Morgunblaðið - 19.10.1996, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 19.10.1996, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996 47 FRETTIR Fyrirlestur í Háskóla Islands um bankamál PRÓFESSOR David T. Llewellyn heldur fyrirlestur í stofu 101 í Odda þriðjudaginn 22. október nk. kl. 16.15 með yfirskriftinni „The Theory of Banking, a Reconsider- ation“ Prófessor David Llewellyn kemur hingað til lands á vegum Rannsókn- arframlags bankanna. Hann er kunnur fyrirlesari og hefur verið fenginn til ráðgjafar og fyrirlestra- halds víða um heim, segir í fréttatil- kynningu. Aðallega hafa störf hans og fyrirlestrar tengst peninga- stjórnun og bankamálum. Síðustu ár hefur hann til dæmis veitt stjórn- völdum í S-Afríku ráðgjöf um bankareglugerðir og verið seðla- banka landsins innan handar um peningastjórnun. Þá hefur Llewellyn starfað all- nokkuð í Svíþjóð, Noregi og Finn- landi eftir bankakreppuna sem þar varð, en Skandinavísk yfirvöld og bankar fengu hann til að rannsaka orsakir kreppunnar og veita ráðgjöf til úrlausnar. Þá má nefna að í dag er Llewellyn ráðgjafi stjórnvaida í ýmsum fyrrverandi ríkjum komm- únista, svo sem Póllandi og Tékk- landi. Gífurlegur umbætur hafa verið gerðar á fjármálakerfum þess- ara landa á undanförnum árum. Prófessor David Llewellyn er út- skrifaður úr London School of Economics 1964. Hefur hann meðal annars starfað fyrir Alþjóðagjald- eyrirsjóðinn og ríkissjóð Bretlands og setið í stjórn fjölmargra fyrir- tækja og stofnana sem sinna efna- hagsráðgjöf. Llewellyn er nú pró- fessor í Loughborough University. Öllum, sem áhuga hafa, er vel- komið að sækja fyrirlesturinn. Námskeið í andlegum vísindum LJÓSBLIK er að fara af stað með námskeið í andlegum vísindum og segir í tilkynningu frá félaginu að markmiðið sé að þjálfa og fræða menn og konur sem óska að starfa sem heimsþjónar. Að vera heims- þjónn þýði einfaldlega að taka að sér að starfa sem ljósberi, meðvitaður starfsmaður ljóssins í öllu sem maður tekur sér fyrir hendur. Þar segir jafnframt: „Námskeiðið byggir m.a. á bókinni Ljósið, lífið og kærleikurinn, miðluð í gegnum Jyttu Eiríksson, stofnanda Norræna heil- unarskólans á íslandi 1985. Mun hún og dóttir hennar, Racel Eiríksson, sjá um kennslu á námskeiðinu. Kennslan verður í formi fyrirlestra, hugleiðslu- og heilunaræfinga og samræður um vandamál líðandi stundar. Tónlist verður mikið notuð.“ Kynningarfundur verður í Pýr- amídanum 21. október kl. 20.30. Fær tekjur af Sögu-Biblíu BARNASPÍTALI Hringsins, Land- spítalanum, og aðstandendur Al- þjóðlegu Barnasögu Biblíunnar hafa gert með sér samning á þann veg að Barnaspítali Hringsins fær 600 kr. af hverri seldri Barnasögu Biblíu frá og með 15. október 1996. Alþjóðlega Barnasögu Biblían er aðgengileg bók sem inniheldur 100 valdar sögur úr Biblíunni og 100 myndir í lit gerðar af börnum um víða veröld. Bókin kostar 1.900 kr. „Ævintýri á skrifstofunni“ og „Óþelló“ í bíósal MÍR KVIKMYNDIN sem sýnd verður í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, næst- komandi sunnudag 20. október kl. 16 nefnist „Ævintýri á skrifstof- unni“ (Sluzhebnyi roman). Þetta er mynd í léttum dúr frá árinu 1977. Leikstjóri er Eldar Rjazanov, einn afkastamesti og vinsælasti kvik- myndaleikstjóri í fyrrum Sovétríkj- unum og Rússlandi síðustu fjóra áratugina. Myndin er talsett á ensku. Mánudagskvöldið 21. október kl. 20 verður sýnd kvikmyndin „Óþelló“, sem gerð var í Moskvu árið 1956 undir leikstjórn Sergeis Jútkevits. Myndin er byggð á sam- nefndu leikriti Shakespeares og hlaut á sínum tíma margvíslega viðurkenningu. Tónlist er eftir Aram Khatsatúrj- an. Sergei Bondartsúk fer með titil- hlutverkið, A. Popov leikur Jagó og Irina Skobtsjova leikur Desdem- ónu. Myndin er sýnd eins og aðrar mánudagsmyndir í bíósalnum án þýddra skýringartexta. Aðgangur að kvikmyndasýning- um MIR er ókeypis og öllum heimill. Þing’ Æskulýðs- sambands Islands TUTTUGASTA þing Æskulýðs- sambands íslands verður haldið í dag, laugardaginn 19. október, á Snorrabraut 60, 3. hæð (Skátahús- inu). Forseti íslands, hr. Ólafur Ragn- ar Grímsson, ávarpar þingið kl. 10.30 en þingið hefst kl. 9.30 og lýkur kl. 16.30. Kirkjudagur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði ÁRLEGUR kirkjudagur Fríkirkjunn- ar í Hafnarfirði verður haldinn sunnudaginn 20. október. Eins og alla sunnudaga verður barnaguðs- þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta verður kl. 14. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson, predik- ar en sr. Guðmundur Óskar þjónaði Fríkirkjunnar á árunum 1972-1975. Barnakór kirkjunnar mun syngja við athöfnina undir stjórn Sigríðar Ásu Sigurðardóttur og kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn nýs organista, Þóru Guðmundsdóttur. Að lokinni guðsþjónustu verður kaffisala Kvenfélagsins í Álfafelli, sal íþróttahússins við Strandgötu. Lagareglurnar þijár um útivist- artíma barna og unglinga MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi áskorun frá Umboðs- manni foreldra og barna, Fræðslu- miðstöð Reykjavíkur og stjórn SAM- FOKS (Sambands foreldrafélags í grunnskólum Reykjavíkur); „Börn 12 ára og yngri mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 20 nema í fylgd með fullorðnum. Unglingar, sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, mega ekki vera á al- mannafæri eftir kl. 22 nema þeir séu á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Á tímabilinu 1. maí til 1. septem- ber lengist útivistartími barna og unglinga samkvæmt 1. og 2. reglu um tvær klukkustundir. Þá viljum við skora á foreldra að vera heima með börnum sínum ef þau halda bekkjar-„partý“. Einnig viljum við hvetja foreldra til að ger- ast virkir þátttakendur í foreldrarölt- inu. Foreldrar, fylgist vel með hvar börnin ykkar eru og hvað þau hafa fyrir stafni.“ Jólakort Hringsins komið út EIRÍKUR Smith, listmálari, hef- ur gefið Barnaspítala Hringsins vatnslitamynd sína Jól og prýðir þessi mynd jólakort félagsins 1996. Jólakortaútgáfa Hringsins hefur í rúma tvo áratugi verið ein aðaluppistaðan í tekjuöflun þess til styrktar barnaspítala. Eiríkur Smith er þekktur list- málari og hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í mörgum samsýningum. Verk eft- ir hann eru í eigu opinberra lista- safna og einkasafnara. Jólakortið er að öllu leyti unn- ið í Odda ehf. Útgefandi og dreif- ingaraðili er Hringurinn, Asval- lagötu 1,101 Reykjavík. FULLTRÚAR Umsjónarfélags einhverfra afhentu Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur, borgarsljóra, fyrsta eintakið af kynningarbækl- ingi um Aspergerheilkenni. Það var Hannes Adam Guðmundsson sem afhenti Ingibjörgu bæklinginn ásamt blómum. Aðrir á mynd- inni eru Þröstur Sverrisson, Ástrós Sverrisdóttir, Bjarni H. Sigfús- son, Hlynur Guðlaugsson, Bjartur Guðlaugsson, Agatha Agnars- dóttir, Ragnheiður Ingadóttir og Ester J. Adamsdóttir. Kynningarbæklingur um Aspergerheilkenni Guðmundssyni, en hann er í hópi þeirra sem eru með Asperger- heilkenni. Umsjónarfélag einhverfra gaf bæklinginn út með tilstyrk lyfja- fyrirtækjanna Delta, Omega og Pharmaco. Páll Magnússon, sál- fræðingur, las texta bæklingsins yfir og veitti fagleg ráð. UMSJONARFELAG einhverfra gaf nýverið út kynningarbækling um Aspergerheilkenni sem dreift er til skóla, leikskóla og heil- brigðisstofnana. Fyrsta eintak bæklingsins var formlega aflient borgarstjóranum í Reykjavík, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, af 14 ára pilti, Hannesi Adam Námstefna um andfélags- lega hegðun unglinga ENDURMENNTUNARSTOFNUN Háskóla íslands gengst fyrir nám- stefnu föstdaginn 25. október nk. um andfélagslega hegðun unglinga og ungs fólks. Áhersla verður lögð á árásar- hegðun og ofbeldi meðal unglinga og ungs fólks og tengsl þess við ýmsa þætti s.s. þroskabreytingar unglingsáranna, vímuefnaneyslu, fjölskylduaðstæður, fjölmiðla og aðrar félagslegar aðstæður. Enn- fremur verður fjallað um greiningu og meðferðarúrræði. Fyrirlesarar verða þeir Einar Gylfi Jónsson, sálfræðingur, deild- arstjóri forvarnadeildar SÁÁ, Hugo Þórisson, yfirsálfræðingur við ungl- ingadeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkur, Ingvar Guðnason, sál- fræðingur við Meðferðarstöð ríkis- ins fyrir unglinga og Karl Steinar Valsson, afbrotafræðingur og lög- reglumaður hjá lögreglunni í Reykjavík. Efni fyrirlestranna verður: Staða ofbeldis- og afbrotamála í dag. Lögð verður sérstök áhersla á þátt unglinga í þeim breytingum sem orðið hafa í þessum efnum; Ungl- ingurinn í frumskóginum. Fjallað verður um ýmsar kenningar um árásarhneigð og hlutverk hennar I mannlegu samfélagi, með sérstakri áherslu á unglingsárin; Aðstæður unglinga í dag, með sérstakri áherslu á vímuefnaneyslu; And- félagsleg hegðun, greining og úr- ræði. Umsjónarmaður námstefnunnar er Ásgeir Sigurgestsson, sálfræð- ingur. Nánari upplýsingar og skrán- ing er á skrifstofu Endurmenntun- arstofnunar. Októbermessa Kvennakirkj- unnar OKTÓBERMESSA Kvennakirkj- unnar verður í Árbæjarkirkju, Ár- bæjarhverfi, sunnudagskvöldið 20. október kl. 20.30. Yfirskrift mess- unnar er Kennsla. Þrír starfandi kennarar tala: Halla Mangúsdóttir, barnakennari við Grandaskóla, Helga Friðfinns- dóttir, skólastjóri Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði, og Regína Stefnisdótt- ir, kennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Einnig mun Anna Mál- fríður Sigurðardóttir, tónlistar- kennari, ræða um tónlistarkennslu og leika á píanó. Aðalheiður Þorsteinsdóttir og Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir stjórna kirkjusöng. Skagamenn heimsækja Hafnarfjarðar- kirkju AKURNESINGAR koma í safnað- arferð til Hafnarfjarðar sunnudag- inn 20. október og taka þátt í messu í Hafnarfjarðarkirkju sem hefst kl. 14. Sr. Björn Jónsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Þór- hildi Ólafs og Kirkjukór Akranes- kirkju og Hafnarfjarðarkirkju syngja undir stjórn organista kirkn- anna, Katalin Lörincz og Nataliu Chow. Eftir messuna er kirkjukaffi í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju. Stefna í nátt- úruvernd NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ hefur gefið út Stefnu í náttúruvernd. „Stefnumörkuninni er ætlað að auð- velda yfirsýn um vandamál náttúru- verndar og leiðir til þess að leysa þau. Stefnan er lögð fram í því skyni að hvetja til umræðu um strauma og stefnur í náttúruvernd og sem tillögur til hinnar nýju stofn- unar, Náttúruverndar ríkisins, um hvar þurfi að gera betur. Jafnframt eru í stefnunni ábendingar til lög- gjafans um ýmsa vankanta sem eru á núgildandi lögum um náttúru- vernd.“ segir í frétt frá Náttúru- verndarráði. Fjölrit Náttúruverndarráðs nr. 28, Stefna í náttúruvernd, er í 8 köflum sem hver um sig fjallar um afmarkað svið náttúruverndar. Inn- an hvers kafla eru ákveðnar tillögur og greinargerðir við þær. Tillögur eru þannig upp settar að með grein- argerðum geti þær staðið einar og óstuddar. Stefnan fæst á skrifstofu Nátt- úruverndarráðs, Hlemmi 3. LEIÐRÉTT Slóð borgarinnar ÞAU mistök urðu í vinnslu fréttar af opnun heimasíðu Reykjavíkur- borgar á Veraldarvefnum í fyrradag að slóð síðunnar féli niður. Slóðin er: http://www.rvk.is. Um gigt SAGT var í Morgunblaðinu síðastlið- inn miðvikudag að talið væri að að- eins 1,2% mannkyns þjáðust af gigt. Gigtarfélag íslands hefur sent Morg- unblaðinu athugasemd, þar sem seg- ir að um misskilning sé að ræða, því að einstakir gigtsjúkdómar eins og iktsýki (liðagigt) og hrygggigt geta einir og sér staðið fyrir þessari prósentu í heiminum. Beðizt er vel- virðingar á þessu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.