Morgunblaðið - 19.10.1996, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 19.10.1996, Blaðsíða 60
Wm^ows NT4.0 TVÖFALDUR1. vinningur MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Hópslys Aætlun- um áfátt ÁÆTLUNUM margra ís- lenzkra sjúkrahúsa um hvernig bregðast skuli við hópslysum og öðrum stóráföllum er ábóta- vant. Þetta kom fram í máli Olafs Þ. Jónssonar, yfirlæknis á gjörgæzlu Sjúkrahúss Reykjavíkur, á ráðstefnunni Björgun 96, sem hófst á Hótel Loftleiðum í gær, en erindi hans fjallaði um viðbrögð heil- brigðisþjónustunnar við stór- áföllum. 10 af 17 hafa áætlun Olafur benti á, að samkvæmt nýjustu upplýsingum Almanna- vama hefðu aðeins 10 af 17 helztu sjúkrahúsum landsins tilbúna hópslysaáætlun, þ.e. áætlun sem segir fyrir um hvernig starfslið sjúkrahússins bregðist við ef neyðarástand kemur upp og meðhöndla þurfi með skömmum fyrirvara fjölda fórnarlamba stórslyss eða nátt- úruhamfara. Fjögur sjúkrahús- anna hafa enga slíka áætlun, en þijú eru að vinna að gerð þeirra. Umrædd sjö sjúkrahús eru dreifð um landsbyggðina. Einungis þrjú sjúkrahúsanna hafa rýmingaráætlun, þ.e. ná- kvæma áætlun um hvernig rýma skuli húsnæði sjúkra- hússins á sem skemmstum tíma ef aðstæður krefjast þess, s.s. vegna skemmda á húsinu vegna jarðskjálfta, eldsvoða eða því um líks. Öryggismál sjúkrahúsa Ólafur sagði brýnt, að sjúkrahúsin skerpi öryggismál og viðbúnað vegna stórslysa. Hópslysaáætlanir ættu að vera fyrir hendi á öllum sjúkrahús- um og þær þurfi að kynna stöð- ugt, svo að starfsfólkið sé alltaf viðbúið. Auka þurfi fræðslu og þjálf- un starfsfólks heilbrigðisþjón- ustunnar í viðbrögðum á neyð- arstundu. Lítil fræðsla í stór- slysalæknisfræði hafi verið í boði og úr því verði að bæta. Columbia ræður Nomura Bank og Babcock & Brown sem fjármálaráðgjafa vegna framkvæmda á Grundartanga Undirbúa fjár- mögriun nýs álvers Morgunblaðið/Golli Ákaf í Perlunni FJÖLSKYLDURATLEIKUR, Islandsmót í veggjaklifri innan- húss og tilraun til að slá heims- metið í köfun innanhúss er með- ai þess sem verður í boði í tengsl- um við sýninguna Björgun 96, sem Landsbjörg, Landssamband björgunarsveita og Slysavarna- félag íslands gangast fyrir i Perl- unni um helgina. -----*—*—*----- Verðmætur farmur í nýja bræðslu á Akranesi Akranesi. Morgunblaðið. ÍRAFOSS, skip Eimskips, kom til Akraness í gær frá Noregi með einn verðmætasta farm sem þar hefur verið skipað upp; vélbúnað og þurrk- ara í nýja fiskimjölsverksmiðju Har- aldar Böðvarssonar hf. Að sögn Haralds Sturlaugssonar framkvæmdastjóra HB er um að ræða nær allan tækjabúnað sem þarf í verksmiðjuna. Lætur nærri að farmurinn sé 400 m.kr. virði. Áætlað er að framkvæmdir við hina endurbættu fiskimjölsverk- smiðju fyrirtækisins kosti 750-800 milljónir króna. Stefnt er að því að hún taki til starfa fullbúin í janúar nk. Afköst hennar verða þá 1.000 tonn af hráefni á sólarhring miðað við vinnslu á hágæðamjöli. COLUMBIA Ventures Corporation hefur ráðið Babcock & Brown og Nomura Bank í London sem fjár- málaráðgjafa sína vegna væntan- legrar byggingar álvers á Grundar- tanga. Þessi fyrirtæki voru ráðgjafar Spalar við undirbúning og fjármögn- un Hvalfjarðarganganna. „Verkefnið er bæði að skipuleggja fjárhagslega hvemig álverið verður byggt upp og að vinna að útvegun fjármagns," sagði Erlendur Magnússon hjá Nom- ura Bank í London í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann er einn þriggja starfsmanna fyrirtækjanna sem munu hafa umsjón með þessu verkefni. Erlendur sagði að þar með yrði það verkefni þeirra þremenninganna að sjá til þess að einstakir íjárfestar væru sáttir við þá ávöxtun og áhættu sem hver og einn þyrfti að taka. Hann sagði að ekkert lægi fyrir á þessu stigi um það hvaða hópur fjár- festa yrði með í fjármögnun þessa verkefnis enda hefði ekki verið geng- ið frá samningi við Columbia fyrr en í gær. Erlendur sagði að einnig væri ómögulegt að segja til um það nú hversu langan tíma starf þeirra sem fjármálaráðgjafar kæmi til með að taka. „Það fer auðvitað eftir því hver niðurstaða okkar og Columbia verður um það hver sé vænlegasti kostur- inn.“ Aðspurður um ástæður þess að þessi tvö fyrirtæki, sem eru systurfyr- irtæki, urðu fyrir valinu sagði Erlend- ur að Babcock & Brown væru sér- fræðingar í því sem kallað væri verk- efnisfjármögnun, eins og fjármögnun álvers og orkufyrirtækja væri. „Þá búum við yfir ákveðinni reynslu vegna fjármálaráðgjafar okkar fyrir Spöl vegna Hvalfjarðar- ganganna, en við unnum saman að henni. Það er fyrsta og eina verkefn- isfjármögnun á Íslandi til þessa. Þá þurftum við, íslensk fjármálafyrir- tæki og íslenskir lögfræðingar, að leysa ýmis vandamál og getum því á vissan hátt byggt á þeirri reynslu okkar,“ sagði Erlendur Magnússon. Morgunblaðið/Halldór Kaupendur og seljendur fíkniefna taka tölvur í þjónustu sína Viðskipti með fíkniefni á spiallrásum alnetsins GRUNUR leikur á að íslenskir kaupendur og seljendur fíkniefna noti svokallaðar spjallrásir á alnetinu til að koma boðum sín á milli. Björn Halldórsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögregl- --- vainar, upplýsti þetta á opnum fundi um fíkniefna- mál, sem haldinn var í vikunni. Björn sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann vildi ekki tjá sig frekar um málið. Á fundinum beindi Björn máli sínu til fundar- manna og spurði, hve margir hefðu tölvu heima hjá sér með alnetstengingu. Hann upplýsti, að á netinu væri að finna ýmiss konar ritmál um fíkni- efni og væri ekki allt jafnnákvæmt og rétt sem þar kæmi fram. Að auki væru mörg dæmi um að hvatt væri til fíkniefnaneyslu. Loks sagði Björn, að grunur léki á að spjallrásir væru notað- ar til fíkniefnaviðskipta. Spjallrásirnar, sem kallast IRC (Internet relay chat), eru ýmist lokaðar og ætlaðar fyrir tveggja manna „tal“, eða öllum opnar. Notendur á spjall- rásum gefa ekki upp eigið nafn, heldur nota dul- nefni, sem geta verið af ýmsum toga. Sá sem stofnar rás stjórnar henni jafnframt. Ef rásin er opin geta allir tekið þátt í spjalli, eða tekið þann kostinn að fylgjast með spjalli annarra, án þess að leggja orð í belg. Jólasveinninn kemur Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru dæmi um spjall á slíkum rásum, sem ekki er hægt að skilja öðruvísi en svo, að viðskipti með fíkniefni fari fram. Ekki er þó talað opinskátt um viðskiptin, heldur notuð ýmis kunn slanguryrði, svo sem hippi, gras, hraði og talað um komu jóla- sveinsins. Til þess að einn notandi geti selt öðrum þarf kunningsskapur að vera fyrir hendi, svo þeir þekki dulnefni hvor annars. Er óttast að þessi við- skiptamáti sé að ryðja sér til rúms, þar sem notk- un síma hafi ávallt ákveðna áhættu í för með sér. Björn Halldórsson vildi í gær ekki tjá sig um hvort lögreglan myndi hugsanlega grípa til ein- hverra aðgerða vegna þessa. „Eg get staðfest það eitt, að það leikur grunur á að þessir við- skiptahættir séu við lýði, en að öðru leyti vil ég ekkert tjá mig um málið," sagði hann. Burstað í blíð- viðrinu ÁSGEIR Eggertsson kraup og burstaði skó vegfarenda á Lækjartorgi í gær, Iíkt og hann hefur gert aðra góðviðrisdaga í höfuðborginni frá 4. júlí, að eigin sögn. Ásgeir var að pússa skóna hennar Arnbjargar Gunnars- dóttur þegar ljósmyndara bar að og gaf ýmis góð ráð um skóhirðu í kaupbæti. Viðskiptavinir sem nýta sér þjónustu Ásgeirs borga 150 krón- ur í fyrsta skipti, en þeir sem koma í annað sinn greiða 100 krónur fyrir hveija burstun seg- ir hann. Ásgeir segir ennfremur að burstunin gangi prýðilega þótt margir séu feimnir við að stoppa. „Þetta skapar nefnilega áhorf,“ segir Ásgeir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.