Morgunblaðið - 19.10.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996 11
FRÉTTIR
OPEL Vectra 5 dyra hlaðbakur er fáanlegur með tveimur gerð-
um véla, annars vegar 2,0 lítra, 16 ventla dísilvél sem er 136
hestöfl og hins vegar mjög öflugri V6 vél sem er 170 hestöfl.
Bónda bættur skertur réttur
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt ríkis-
sjóð til þess að greiða bónda, sem
sviptur var bótalaust hluta fullvirð-
isréttar til mjólkurframleiðslu rúm-
lega 1 milljón króna í bætur með
vöxtum frá 1993.
Maðurinn hafði nýtt heimild í
reglugerð til að selja 80% fullvirðis-
réttar síns árið 1991. Samkvæmt
reglugerðinni bar honum að halda
eftir sérstaklega skráðum 20% rétt-
arins og sagði í reglugerðinni að
þann hluta mætti fella niður ef nauð-
synlegt reynist að skerða fram-
leiðsluréttinn til að ná jafnvægi milli
framleiðslu og eftirspurnar.
Þegar almennur fullvirðisréttur
var svo skertur um 4,4% voru öll 20%
tekin af manninum. Honum var synj-
að um þá 50 króna greiðslu fyrir
hvern lítra sem þeir sem þoldu 4,4%
skerðingu fengu í bætur.
í dómi Hæstaréttar er vitnað til
69. greinar stjórnarskrárinnar sem
segir að engin bönd megi leggja á
atvinnufrelsi manna nema almenn-
ingsheill krefji enda þurfi lagaboð til
og 67. greinarinnar sem verndar
eignarrétt og segir að með þeirri
skipan sem reglugerðin mælti fyrir
um og að ofan greinir hafí verið tek-
ið upp skipulag sem gildandi lög
gerðu ráð fyrir enda hafi ekki verið
í þeim nein heimild um kaup og sölu
fullvirðisréttar. Reglugerðin hafi því
ekki haft lagastoð.
Þá verði ekki taiið að bóndinn
hafi notið jafnræðis á við aðra mjólk-
urframleiðendur sem fengu 50 króna
greiðslu fyrir hvern lítra er fram-
leiðsluréttur þeirra var skertur um
4,4%. „Um þessi atvinnu- og fjár-
munaréttindi bar að setja ótvíræð
almenn fyrirmæli í settum lögum og
gæta þar fyllsta jafnræðis," segir í
dóminum.
Ekki var fallist á að bóndanum
skyldi bætt tjónið með þeim 120
krónum sem hann hafði fengið í
meðalverð við sölu þeirra 80% rétt-
arins en honum voru dæmdar 50
krónur á hvern lítra, eða alls
1.062.500 krónur með vöxtum frá
1993.
5 dyra
Opel Vectra
BÍLHEIMAR ehf., umboðsaðili
Opel á íslandi, kynna um næstu
helgi nýjan Opel Vectra fimm dyra
hlaðbak. Bíllinn er viðbót við
fernra dyra útfærslu sem var
kynnt fyrr á þessu ári.
Opel Vectra 5 dyra hlaðbakur
er fáanlegur með tveimur gerðum
véla, annars vegar 2,0 lítra, 16
ventla dísilvél sem er 136 hestöfl
og hins vegar mjög öflugri V6 vél
sem er 170 hestöfl. Bíllinn er fáan-
legur beinskiptur og sjálfskiptur.
Hann er vel búinn með m.a. loft-
púða í stýri og fyrir farþega í fram-
sæti, tölvustýrða spólvörn, ABS-
hemlakerfi og margt fleira. Boðið
verður upp á reynsluakstur um
helgina. Opið er frá kl. 14-17,
laugardag og sunnudag.
----»■ »■»--
Skipan
kirkjuþings
Biskup
hlynntur
breytingum
Á KIRKJUÞINGI s.l. fimmtudag
kom fram í máli herra Ólafs Skúla-
sonar biskups að hann er hlynntur
tillögum um breytingar á skipan
kirkjuþings sem fela í sér að hlut-
fall leikmanna verði aukið og að
þingforseti verði skipaður úr
þeirra röðum. Eins og málum er
nú háttað skipar biskup það emb-
ætti.
Fyrirvari Ólafs er þó sá að þing-
forseti verði aðeins ráðinn tíma-
bundið á meðan á þinghaldi stend-
ur en að ekki verði um nýja kirkju-
stofnun að ræða.
Sr. Sigurjón Einarsson, prestur
á Klaustri, lýsti því hins vegar
yfir að hann vildi að biskup ís-
lands gegndi áfram starfi sem for-
seti kirkjuþings. Dr. Einar Sigur-
björnsson tók í sama streng.
í flestum nágrannalöndum okk-
ar hafa leikmenn i kirkjum mót-
mælenda mun meiri völd en tíðk-
ast hérlendis.
HUGBÚNAÐUR
FYRIR WIND0WS
FRÁBÆR ÞJÓNUSTA
H KERFISÞRÓUN HF.
Fákaleni 11 - Sími 568 8055