Morgunblaðið - 19.10.1996, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
22 milljóna tilboð
í Laxá í Kjós
Kjósarbændur geta brosað breitt þessa dagana,
því gott tilboð barst nýlega í ána frá hópi er-
lendra auðkýfínga sem voru hér á landi í sumar
skrifar Guðmundur Guðjónsson í veiðiþætti.
Mennirnir horfðu á ána tilsýndar er þeir voru
í bíltúr í Kjósinni.
LÍTILL áhugi reyndist vera meðal
innlendra leigutaka er frestur til
að skila tilboðum í Laxá í Kjós
rann út fyrir skömmu. Það kom
ekki að sök því hópur erlendra
manna hreifst svo af ánni í sumar
að þeir báðu umboðsmann sinn
hér á landi, Ásgeir Heiðar leið-
sögumann, að bjóða í ána í þeirra
nafni og hljóðaði tilboðið upp á
22 milljónir króna.
Atburðarásin hlýtur að vera
ævintýri líkust fyrir eigendur
Laxár, því þeir gátu varla leyft
sér mikla bjartsýni. Áin í lægð
og mikil sókn í Laxá í Dölum sem
einnig var í útboði. I umræddum
hópi eru menn frá Suður-Afríku,
Skotlandi og Bandaríkjunum.
Mennirnir voru að veiðum í
Soginu undir leiðsögn Ásgeirs
Heiðars og Jóns Þ. Einarssonar.
Einn daginn er veiði var lítil
brugðu þeir sér í bíltúr með Ás-
geiri. Ekið var til Þingvalla, áleið-
is í átt til Reykjavíkur, en sveigt
niður Kjósarskarð, því Ásgeir vildi
sýna þeim þessa fallegu á, Laxá.
Barst þá í tal að áin myndi
hugsanlega fara í útboð um
haustið og voru útlendingarnir
svo hrifnir af ánni að þeir létu
slag standa. Þeir munu ætla sér
viku hver í sumar, en síðan mun
Ásgeir sjá um að selja önnur
veiðileyfi og verður áin öllum
opin.
Fáskrúð að ganga út
Útboð fyrir helming veiðiréttar
í Fáskrúð í Dölum hefur einnig
verið í gangi og bárust nokkur
tilboð. Allar líkur eru á því að
gengið verði til samninga við
Stangaveiðifélagið Stekk í
Reykjavík, en forvígismenn þess
áttu bókaðan fund með veiðirétt-
areigendum um helgina. Fáskrúð
gaf 185 laxa á 2-3 stangir í sum-
ar. Hún hefur verið í lægð síð-
ustu sumur eins og margar ár í
Dölum, en síðustu tvö árin hefur
veiði farið vaxandi á ný. Veiði-
svæðið er 11 kílómetrar og aðbún-
aður mjög góður fyrir veiðimenn.
Frumlegheit í nafngiftum
veiðistaða finnst við Fáskrúð.
Nægir að nefna veiðistaðinu Fýlu
og Barkakýli. Stangaveiðifélagið
Stekkur hefur áður verið með
Setbergsá og Núpá á Snæfells-
nesi á leigu. Félagið leigir um
þessar mundir Sæmundará í
Skagafirði.
Ovissa fyrir stjórnarkjör á aðalfundi SSH
Reynt að viðhalda
pólitísku jafnvægi
NOKKUR óvissa ríkir fyrir kjör
stjórnar Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu (SSH) á aðal-
fundi samtakanna í dag. Unnið er
að því að viðhalda pólitísku jafn-
vægi í þessari 12 manna stjóm
samtakanna en að undanförnu hafa
sjálfstæðismenn átt þar fimm full-
trúa, aðrir flokkar fimm fulltrúa
samtals og tveir stjórnarmanna eru
óháðir flokksframboðum.
Uppstillinganefnd hefur haft það
verkefni með höndum milli aðal-
funda að ná pólitísku samkomulagi
um formann samtakanna og um
skipan stjórnar til koma í veg fyrir
að valdajafnvægi milli flokka rask-
ist ekki.
Sjálfstæðismönnum gæti
fjölgað um einn
Það skapar hins vegar óvissu fyr-
ir aðalfundinn í dag að talið er lík-
legt, skv. heimildum Morgunblaðs-
ins, að Sigtryggur Jónsson, oddviti
Bessastaðahrepps, af H-lista hags-
munasamtaka Bessastaðahrepps,
hverfí úr stjóm SSH sem aðalmaður
og sæti hans taki sjálfstæðismaður
úr hreppsnefnd Bessastaðahrepps.
H-listi hefur myndað meirihluta með
sjálfstæðismönnum í Bessastaða-
hreppi frá 1994 og skv. samkomu-
lagi milli listanna hefur verið gert
ráð fyrir að fulltrúi H-listans hverfí
úr stjórn SSH og fulltrúi sjálfstæðis-
manna taki hans sæti þegar kjör-
tímabilið er hálfnað. Við þá breyt-
ingu yrðu sex fulltrúar í stjóm SSH
úr röðum sjálfstæðismanna.
Hefur m.a. komið til tals meðal
sveitarstjómarmanna á svæðinu að
fá annan sjálfstæðismann til að
ganga úr stjórn til að viðhalda hinu
pólitíska jafnvægi sem ríkt hefur
frá 1994. Er mikil áhersla lögð á
að finna lausn sem allir geti fellt
sig við, skv. heimildum blaðsins.
Sjálfstæðismenn misstu meiri-
hluta sem þeir höfðu farið með lengi
innan SSH eftir sveitarstjórnar-
kosningarnar árið 1994 en sam-
komulag náðist þá við stjórnarkjör
um jafnvægi á milli pólitískra afla
gegn því að sjálfstæðismenn Iétu
eftir formennsku í samtökunum og
náðist málamiðlun um að Sigurður
Geirdal, fulltrúi Framsóknarflokks,
yrði formaður. Var talið að með
málamiðlun þá hefði tekist að koma
í veg fyrir kosningar um formann
stjómar sem hefðu getað haft þær
afleiðingar að einstök sveitarfélög
drægju sig út úr samstarfinu og
að samtökin hefðu klofnað.
Síðasta kjörtímabil hefur Árni
Hjörleifsson, alþýðuflokksmaður í
Hafnarfirði, gegnt formennsku í
SSH.
Fóðurverksmiðjan Laxá
Hlutafjárútboð
að hefjast
HLUTAFJÁRÚTBOÐ í fóðurverk-
smiðjunni Laxá hefst síðar í þessum
mánuði og verða seld hlutabréf fyr-
ir 25 milljónir króna á nafnverði.
Bréfin verða seld á genginu 2,05
en þó gefst núverandi hluthöfum
kostur á að auka sinn hlut í fyrir-
tækinu í forkaupi á genginu 1,85.
Sala hlutabréfanna verður í höndum
Verðbréfamarkaðar íslandsbanka á
Akureyri.
Guðmundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Laxár, segir að þeir
fjármunir sem koma inn í rekstur-
inn með hlutafjáraukningunni verði
nýttir til ýmissa endurbóta á verk-
smiðjunni. „Það gerir okkur kleift
að framleiða enn fjölbreyttara fóður
og svara um leið þeim kröfum sem
gerðar eru á þessum markaði í dag
og styrkir okkur í útflutningi."
Stærstu hluthafar fyrirtækisins
eru Kaupfélag Eyfírðinga og Akur-
eyrarbær sem hvor um sig eiga 30%
hlutafjár í A-flokki og rúmlega 36%
heildarhlutafjár. Næst koma Iðnþró-
unarfélag Eyjafjarðar hf. með 8,7%
hlutafjár í A-flokki, Hraðfrystistöð
Þórshafnar hf. með 7,7%, Drekí hf.
með 3,4% og SS Byggir með 2,7%.
Alls eiga 10 stærstu hluthafarnir
91,5% hlutafjár í A-flokki og rúm-
lega 94% heildarhlutafjár. Akur-
eyrarbær hefur verið að selja eignar-
hluti sína í ýmsum fýrirtækjum að
undanförnu og því verður að teljast
ólíklegt að bærinn nýti sinn forkaups-
rétt í hlutaíjáraukningu Laxár.
Dýrbítur gekk laus í Eyjafjarðarsveit í sumar
Talinn hafa drepið
hátt í 50 ær o g lömb
DÝRBÍTUR gekk laus í Eyjafjarð-
arsveit í sumar og er talið að hann
hafí drepið hátt í 50 ær og lömb frá
bænum Saurbæ. Hafdís Sveinbjörns-
dóttir, bóndi á Saurbæ, segir að
fundist hafi um 45 hræ af ám og
lömbum, sem öll voru í hennar eigu,
nú síðast í fyrstu göngum í septem-
ber.
Nú þykir sannað að scháfer hund-
ur frá bænum Sandhólum, sem er
næsti bær við Saurbæ, hafi verið
hér að verki og segir Hafdís að búið
sé að lóga honum. Hundurinn var
tryggður og því fær Hafdís tjón sitt
bætt. Þegar Hafdís kom með lömb
sín til slátrunar í haust var 8 skrokk-
um hennar hent vegna þess hversu
illa þeir voru farnir og telur Hafdís
fullvíst að þeir hafi lent í kjafti
hundsins frá Sandhólum.
Hafdís segir að maður hafi séð
til hundslns við iðju sína í sumar en
hann hafi ekki látið vita af því fyrr
en málið komst í hámæli nú í haust
og lögreglan vann að rannsókn þess.
Hafdís býr með 200 ær og hún fékk
um 280 lömb í sauðburðinum í vor.
Þróun lista í Danmörku
TORBEN Rasmussen, forstöðu-
maður Norræna hússins í Reykja-
vík, heldur fyrirlestur í lestrarsal
Amtsbókasafnsins á Akureyri kl.
11.00 í dag, laugardag.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
dönsku og nefnist En ny klassieisme
pá vej? Nogle overvejelser over
moderne bevægleser í dansk litter-
atur, kunst og arkitektur.
í fyrirlestrinum fjallar Torben um
þróunina í dönskum bókmenntum,
listum og byggingalist síðustu
15-20 ár, s.s. stórar skáldsögur,
raunsæiskvikmyndir og hefðbundin
ljóð. Hann mun m.a. kynna bók-
menntir eftir Per Hojholt, Soren
Ulrik Thomsen og Solvej Balle,
listaverk Per Kirkeby, Dorthe
Dahlin og Michael Kvium og arki-
tektana Henning Larsen og 3 X
Nielsen auk annarra. .
MESSUR
AKUREYRARPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju á morgun,
sunnudag, kl. 11. Munið kirkju-
bílana. Allir velkomnir. Messað
verður í Akureyrarkirkju á morg-
un, kl. 14. Biblíulestur í Safnað-
arheimilinu á mánudagskvöld.
GLERÁRKIRKJA: Biblíulestur
og bænastund í kirkjunni kl. 11.
Þátttakendur fá stuðningsefni sér
að kostnaðarlausu. Barnasam-
koma verður í kirkjunni kl. 11.
Foreldrar hvattir til að fjölmenna
með börnum sínum. Guðsþjón-
usta verður í kirkjunni kl. 14.
Fundur æskulýðsfélagsins fellur
niður vegna landsmóts æskulýðs-
félaga kirkjunnar sem haldið er
um helgina á Dalvík.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Brauðsbrotning kl. 11 á morgun,
sunnudag, safnaðarmeðlimir
hvattir til að mæta. Samkoma kl.
14 á morgun, ræðumaður Reynir
Valdimarsson. Beðið fyrir þörfum
fólks og Guð svarar. KK fyrir 10
til 13 ára þriðjudag kl. 17.30,
Biblíulestur og bænasamkoma kl.
20 á miðvikudag, unglingasam-
koma kl. 20.30 á föstudagskvöld.
KFUM og K Sunnuhlíð 12,
Akureyri. Bænasamvera kl.
20.30 á sunnudagskvöld.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa
kl. 18. í dag, laugardag, og kl.
11 á sunnudag.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sunnudagur; Sunnudagskóli kl.
11.00, bænastund kl. 19.30 og
almenn samkoma kl. 20.00.
Mánudagur; Heimilasambandið
kl. 16.00. Miðvikudagur; Krakka-
klúbbur fyrir 6 ára og eldri kl.
17.00 og biblíulestur kl. 20.30.
Fimmtudagur; 11+ fyrir 10-12
ára krakka kl. 17.00 og hjálpar-
flokkur kl. 20.30. Föstudagur;
Flóamarkaður frá kl. 10-17, ungl-
ingakór kl. 19.30 og unglinga-
klúbbur kl. 20.30.
HÚSAVÍKURKRIKJA: Helgi-
hald á sunnudag; Sunnudaga-
skóli kl. 11.00. Vænst er þátttöku
foreldra með börnum sínum.
Guðsþjónusta kl. 14.00, altaris-
ganga. Guðmundur Guðmunds-
son héraðsprestur prédikar.
Vænst er þátttöku fermingar-
barna og foreldra þeirra. Ferm-
ingarbörn aðstoða. Helgistund í
Miðhvammi kl. 16.00.