Morgunblaðið - 19.10.1996, Page 22
22 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
\
Masood
ítrekar
úrslitakosti
AHMAD Shah Masood, hemaðar-
leiðtogi ríkisstjómarinnar, sem
Taleban-hreyfíngin hrakti frá Kab-
úl, höfuðborg Afganistans, fyrir
þremur vikum, írekaði í gær úrslita-
kostina, sem hann setti Talebönum
fyrr í vikunni. Sagði hann þeim að
hörfa frá Kabúl. Sagði hann að al-
þjóðalið undir stjórn Sameinuðu
þjóðanna ætti að stjórna Kabúl og
greiða götu fyrir viðræðum allra
aðila í Afganistan um sameiginlega
stjórnarmyndun.
Sveitir Masoods kváðust í gær
hafa lagt undir sig mikilvæga flug-
stöð, Bagram, norður af Kabúl.
Reyna að
rjúfa umsátrið
um Arbil
KÚRDAR úr Demókrataflokki
Kúrdistans (KDP), sem notið hafa
stuðnings íraka, reyndu í gær að
hrinda umsátri um borgina Arbil.
Sveitum KDP tókst að hrekja and-
stæðinga sína úr Föðurlandsfylk-
ingu Kúrdistans (PUK) brott frá
bænum Koy Sanjak eftir harða
bardaga, að því er haft var eftir
vitnum.
Svíar í deilu
við Rússa
EMBÆTTISMENN í sænska vam-
armálaráðuneytinu neituðu alfarið
í gær ásökunum Rússa um að þota
sænska flughersins hefði hrapað í
Eystrasaltið á miðvikudag þegar
flugmaður hennar var að látast
gera árás á kjarnorkuknúið, rússn-
eskt herskip, Pjotr Velíký, sem statt
var á sömu slóðum.
„Það mundi aldrei gerast að við
æfðum árás á erlent skip eða er-
lenda flugvél," sagði Owe Wager-
mark, upplýsingafulltrúi sænska
hersins.
Hann sagði að í bréfi skipstjóra
rússneska skipsins vegna þessa at-
viks væri ekki minnst á árás.
Fréttastofan Interfax hafði hins
vegar eftir ígor Kasatonov, hátt-
settum yfirmanni í rússneska sjó-
hernum, að flugmaðurinn hefði ver-
ið að æfa árás.
Norðmenn selja
vopn víða
NORÐMENN seldu á fyrstu sex
mánuðum þessa árs vopn til 23
landa, þar á meðal Tyrklands, Mal-
asíu, Suður-Kóreu og Sameinuðu
arabísku furstadæmanna, fyrir 455
milljónir norskra króna (um 4,7
milljarða íslenskra króna), að því
er kom fram í frétt Aftenbladet.
Ekkert ríki keypti þó meira af
norskum vopnum en Kanadamenn.
Útflutningur á vopnum er umdeild-
ur í Noregi.
16 ára piltur í
lífstíðarfangelsi
LEARCO Chindamo, 16 ára piltur,
var dæmdur í ævilangt fangelsi í
gær fyrir að stinga til bana Philip
Lawrence skólastjóra, sem var að
veija nemanda fyrir unglingagengi
fyrir utan skóla sinn í London.
Dauði Lawrence hafði áhrif á
fólk um allt Bretland og var afleið-
ingin að tekið var hart á hnífaburði
og öryggisgæsla aukin í skólum.
Learco var einnig fundinn sekur
um að særa 13 ára pilt, sem Lawr-
ence hugðist veija.
ERLENT
Lebed í sömu stöðu og Jeltsín í baráttunni við Gorbatsjov árið 1987
„Þegar köttur er króaður
af breytist hann í tígrisdýr“
Alexander Lebed er sannfærður um að hann
berí sigurorð af andstæðingum sínum í
baráttunni um forsetaembættið. Bogi Þór
Arason fjallar um stöðu Lebeds, sem gæti
hæglega komið fram hefndum eins og Borís
Jeltsín nokkrum árum eftir að Míkhaíl___
Gorbatsjov vék honum frá árið 1987.
Reuter
ALEXANDER Lebed áamt eiginkonu sinni í leikhúsi í Moskvu i
gær þar sem hann hugðist horfa á uppfærslu á ieikritinu „Ivan
grimmi". Rússneska innanríkisráðuneytið hefur fyrirskipað hert
öryggiseftirlit í Moskvu og varað við hættu á árásum tsjetsjenskra
aðskilnaðarsinna, sem voru sagðir ætla að aðstoða Alexander Lebed
við að hrifsa völdin í sínar hendur. Á neðri myndinni leita lögreglu-
menn að vopnum á vegfarendum við lestastöð í miðborginni.
VIÐBRÖGÐ Alexanders Lebeds
við brottvikningunni á fimmtudag
benda til þess að hann líti ekki á
hana sem pólitískt bakslag, heldur
stórt skref í átt að forsetaembætt-
inu. Þegar Borís Jeltsín forseti
auðmýkti hann með því að undir-
rita tilskipun um brottvikninguna
fyrir framan sjónvarpsvélarnar
lenti Lebed í sömu stöðu og Jeltsín
sjálfur þegar Míkhaíl Gorbatsjov,
síðasti sovétleiðtoginn, vék honum
frá og ávítaði hann opinberlega
árið 1987.
„Alexander Lebed er mjög vin-
sæll maður meðal almennings. Og
í hreinskilni sagt tel ég hann í
sömu stöðu og Borís Jeltsín 1987,“
sagði Borís Nemtsov, héraðsstjóri
Nizhny Novgorod. Eins og Jeltsín
getur Lebed verið skæður þegar
hann á í vök að veijast og hefur
notið talsverðrar lýðhylli. „Þegar
köttur er króaður af breytist hann
í tígrisdýr," segir Lebed í ævisögu
sinni.
Fáir Rússar hafa gleymt því þeg-
ar Jeltsín galt Gorbatsjov rauðan
beig fyrir gráan og auðmýkti hann
í beinni sjónvarpsútsendingu með
því að undirrita tilskipun um bann
við starfsemi kommúnistaflokksins
í Rússlandi eftir misheppnaða
valdaránstilraun árið 1991.
„Ég er fæddur sigurvegari, fyrr
eða síðar fer ég með sigur af
hólmi,“ sagði Lebed við andstæð-
inga sína í júní og þessi ummæli
lýsa best hugarfari hans eftir
brottvikninguna. Framkoma hans,
sjálfstraustið og krafturinn, var í
algjörri andstöðu við Jeltsín, sem
var gugginn og stirður í hreyfing-
um þegar hann tilkynnti að hann
hefði rekið fyrrverandi skjólstæð-
ing sinn.
Fórnarlamb valdatafls
Margir sérfræðingar í rússnesk-
um stjórnmálum telja að Jeltsín
hafi styrkt stöðu Lebeds sem for-
setaefnis með því að gera hann
að píslarvotti óvinsællar ríkis-
stjómar í Kreml.
Nokkrir stjórnmálamenn og
stjómmálaskýrendur í Moskvu
telja að Lebed hafi sjálfur lagt á
ráðin um að knýja fram brottvikn-
inguna til að losna úr stjórninni
og geta lýst sér sem fórnarlambi
í pólitískri refskák. Sagan sýni að
Rússar hafi oft samúð með þeim
sem verða undir í slíku valdatafli.
„Hann hafði reynt að fá sig rek-
inn í nokkuð Iangan tíma, það er
ljóst," sagði Sergej Parkhomenko,
ritstjóri tímaritsins Itogi. „Hann
braut vísvitandi allar leikreglur
forystusveitarinnar í Kreml.“
Friðarsamningurinn við aðskiln-
aðarsinna í Tsjetsjníju er helsta
afrek Lebeds frá því hann gekk
til liðs við Jeltsín íKreml fyrir fjór-
um mánuðum. Blossi upp átök í
Tsjetsjníju að nýju er öruggt að
Lebed hamri á því að hann hafi
upp á eigin spýtur komið á friði í
héraðinu og andstæð-
ingar hans í stjórninni
hafi glutrað þeim ár-
angri niður. Slík af-
staða væri líkleg til að
styrkja stöðu hans
meðal kjósenda, sem eru margir
orðnir la'ngþreyttir á deilunni um
Tsjetsjníju.
Treysta á skjótan
bata Jeltsíns
Jeltsín og samstarfsmenn hans
vita að Lebed getur reynst þeim
skeinuhættur í stjórnarandstöðu
og hljóta að hafa leitt hugann að
því áður en hann var rekinn. Þeir
virðast binda vonir við að Jeltsín
geti gegnt embættinu næstu miss-
erin þrátt fyrir heilsubrestinn.
Helsta von Kremlveija felst í
því að Jeltsín verði fljótur að ná
sér eftir hjartaskurðaðgerðina,
sem ráðgerð er um miðjan næsta
mánuð. Komist læknarnir hins
vegar að þeirri niðurstöðu að of
hættulegt sé að skera hann upp
gæti stjórnin reynt að halda honum
sem æðsta valdamanni Rússlands
að nafninu til eins lengi
og nokkur kostur er.
Valdhafamir í
Kreml vona að því
lengur sem Lebed verði
í stjómarandstöðu
þeim mun minni hætta stafi af
árásum hans. Ljóst er að þeir ætla
að gera harða hríð að honum með
aðstoð fjölmiðla, sem hafa veist
að honum af mikilli hörku síðustu
vikur.
Framavonir Lebeds eru hins
vegar undir því komnar að efnt
verði til forsetakosninga sem fyrst.
Andstæðingar hans fengju þá lít-
inn tíma til að undirbúa framboð
og erfitt yrði fyrir hugsanleg for-
setaefni eins og Viktor Tsjerno-
myrdín forsætisráðherra að bæta
ímynd sína fyrir kosningamar. Á
hinn bóginn er óljóst hvort Lebed
geti tryggt sér stuðning auðugra
Rússa sem gætu fjármagnað kosn-
ingabaráttuna.
Jeltsín vanmetinn?
Anne McElvoy, aðstoðarritstjóri
breska tímaritsins The Spectator,
segir í grein í The Da-
ily Telegraph í gær að
Lebed hafi þegar af-
skrifað Jeltsín vegna
heilsubrests og það eigi
eftir að réynast „ör-
lagarík mistök".
McElvoy segir að þrátt fyrir
veikindin hafi Jeltsín hvorki misst
tökin á stjórnartaumunum né glat-
að hæfileikum sínum sem stjórn-
málaleiðtoga. Hann sé enn fær um
að „deila og drottna" og geti hald-
ið undirsátum sínum í skefjum og
notfært sér metnað þeirra.
„Hann hefur ekki heldur glatað
þeim hæfileika sínum að etja ráð-
herrum saman sér til framdráttar
eða notfæra sér aðganginn að
leyniþjónustunni til að birgja sig
upp af upplýsingum og bæta víg-
stöðu sína,“ skrifar McElvoy.
„Hann hefur einnig meðfædda
hæfíleika til að höfða til alþýðunn-
ar en hann hefur lært ... að hafa
áhrif á almenningsálitið og veikja
stöðu hugsanlegra andstæðinga.
Samstarfsmaður hans getur verið
dyggur stuðningsmaður einn dag-
inn en honum kann að verða lýst
á sannfærandi hátt sem fláráðum
svikara daginn eftir.“
McElvoy segir að Jeltsín sé ekki
ólíkur ýmsum keisurum Rússlands
og sovétleiðtogum sem hafi litið á
nánustu samstarfsmenn sína sem
strengjabrúður. Til að inynda hafi
forsetinn eitt sinn skipað Pavel
Gratsjov, þáverandi varnarmála-
ráðherra, að dansa fyrir sig hægan
dans í opinberri veislu. Ráðherrann
hafi hlýtt, þótt honum byði við
hugmyndinni, og hlýðni hans átti
líklega sinn þátt í því að hann
hélt embættinu í ár til viðbótar
þótt fast hefði verið lagt að forset-
anum að víkja honum frá.
„Svarti sauðurinn“
Lebed vildi hins vegar ekki
dansa fyrir forsetann og þvert á
móti virtist hann gera sér allt far
um að ögra honum. Hann stærði
sig af því að hann yrði næsti for-
seti Rússlands, jafnvel áður en
kjörtímabilinu lyki, og talaði
ógætilega um hversu Jeltsín væri
háður honum sökum veikindanna.
„Ég var svarti sauðurinn í hjörð-
inni,“ sagði Lebed við blaðamenn
á fimmtudag. „Það var ekki spurn-
ing um hvort heldur hvenær þeir
myndu sparka mér. Ég var ekki
hluti af hjörðinni þeirra."
Lebed vísar hér einkum til
tveggja manna, sem taldir eru
sækjast eftir forsetaembættinu;
Tsjernomyrdíns forsætisráðherra
og Anatolís Tsjúbajs, skrifstofu-
stjóra forsetans. Anatolí Kúlíkov
innanríkisráðherra, sem sakaði
Lebed um að hafa lagt á ráðin um
valdarán, er aðeins peð í valda-
tafli þessara manna.
Kusu manninn -
ekki stefnuna
Aðstoðarmenn Lebeds hafa
stundum þurft að draga ummæli
hans í erlendum fjölmiðlum til baka
og óvarfærnislegar yfirlýsingar
hans hafa þótt til marks um að
hann eigi enn margt ólært sem
stjórnmálamaður. Hann virtist
ekki hafa heildstæða stefnu fyrir
síðustu kosningar og í efnahags-
málum virtist hann aðhyllast tvær
ólíkar stefnur. Annars vegar gaf
hann sig út fyrir að vera róttækur
fijálshyggjumaður, sagði t.a.m. að
í raun ríkti sósíalismi í Bandaríkj-
unum, en á hinn bóginn var hann
hlynntur miðstýringu og miklum
ríkisumsvifum í hergagnafram-
leiðslunni eins og á tím-
um Sovétríkjanna.
Margir kjósendur
kærðu sig þó kollótta
um mótsagnirnar í
málflutningi Lebeds,
sem fékk 15% fylgi í forsetakosn-
ingunum þótt hann væri nýgræð-
ingur í stjórnmálum og hefði engan
flokk á bak við sig. Þeir kusu
manninn, frekar en stefnuna, og
það var sá hæfíleiki hans að ná
til fólks með hjálp sjónvarpsins sem
tryggði honum atkvæði ellefu millj-
óna kjósenda. Sá hæfileiki er fá-
gætur meðal andstæðinga hans í
Kreml.
„Ég var svarti
sauðurinn í
hjörðinni"
„Fyrr eða síð-
ar fer ég með
sigur af hólmi
I
)
I
}
I
\
}
}
>
>
}
\
}