Morgunblaðið - 19.10.1996, Page 26
Maður fínnur uft
fyrir þsssari spennu
Hvað eru skýstrokkar og hvað gefur veður-
fræðingurinn Einar Sveinbjörnsson mynd-
inni Stormi eða „Twister“ margar stjörn-
ur? Arnaldur Indriðason fór með Einari í
bíó og fékk sérfræðiálit hans á myndinni og
komst að því m.a. að kýr mundu aldrei geta
fokið láréttí skýstrokki.
EG HAFÐI mest gaman af
stórslysamyndunum í gamla
daga eins og Jarðskjálfta og
hvað hún nú hét þarna með eldinum
... Logandi víti,“ sagði Einar Svein-
bjömsson veðurfræðingur þar sem
við sátum og biðum þess að stór-
slysamyndin Stormur eða „Twister“
hæfist í Háskólabíói.
Þú ert þá búinn að sjá „ID4“?
„Já, já. Hún var afar skemmtileg
hátæknivædd útgáfa af gömlu stór-
slysamyndunum.“
Úti var „venjuleg íslensk rigning
vegna hægfara uppstreymis í and-
rúmsloftinu" að sögn Einars og inni
yrði bráðlega fárviðri. Stormur fjall-
ar um veðurfræðilegt fyrirbrigði
sem kallast skýstrokkar og skjóta
sér handahófskennt niður úr óveð-
ursskýjum með miklum látum og
eyðileggingarafli. Einar hefur kynnt
sér fyrirbærið og það þótti upplagt
að fá hann með á bíó til að ræða um
myndina og strokkana og hvemig
honum þætti kvikmyndagerðar-
mönnunum takast upp.
Skýstrokkar em ekki fellibyljir
eða hvirfilbyljir. „Það er ekki einfalt
að skilja þetta fyrirbæri," sagði Ein-
ar og maulaði poppkorn. „Líklega er
best að nota samlíkinguna við vatn í
baðkari. Þegar þú tekur tappann úr
baðinu lætur það undan þunga sín-
um og við sjáum hringiðu myndast.
Það sama getur gerst með loftið
nema það streymir uppá við. Loft-
hjúpurinn hvílir nokkuð stöðugur
vegna eigin þunga. Loftið er í jafn-
vægi. Þyngdarkraftur jarðar heldur
því niðri. Það sem gerist yfir sléttun-
um miklu í Bandaríkjunum, í Kansas
og Oklahóma þar sem Stormur er
tekin, er að síðla vetrar og á vorin
kemur heitt og rakt loft inn frá
Mexíkóflóa í lægri loftlögum. Enn
ríkir þá hálfgerð vetrarveðrátta yfir
meginlandi N-Ameríku. Kalda loftið
er ákveðin fyrirstaða og hið hlýja
loft frá Mexíkóflóa treður sér undir
hið kalda sem myndar einskonar lok
í um 1.000 til 1.500 metra hæð. Kalda
loftið í efri lögunum liggur þá þungt
og þurrt ofan á heita loftinu. Hlýja
og raka loftið er í eðli sínu létt og
óstöðugt og vill leita upp en kalda
loftið heldur því niðri eins og lok.“
Einar opnaði kókdós og tók sér
drjúgan sopa. Popp og kók er ómiss-
andi í bíó og Einar nennir ekki að
íslenskur skýstrokkur; mynd af . Morpmblaðið/Árni Sæberg
skýstrokki sem send var Veður- SA ALLAR stórslysamyndir í gamla daga; Emar Sveinbjörnsson 1 bio.
stofunni vestan af miðunum.
Þetta er allt mjög sannfærandi; veð-
urfræðingurinn skemmti sér dável á
kvikmyndinni Stormi.
bíða eftir myndinni til að gæða sér á
bíósnarlinu. „Þegar svo sólin fer að
skína og vermir landið hækkar hit-
inn við yfirborðið og loftið verður
óstöðugra. Þrýstingur á uppstreymi
eykst og lokið rofnar. Það myndast
gat í kalda loftið eins og þegar tappi
er tekinn úr baði og heita loftið ryðst
upp í gegnum þetta gat. Upp-
streymið er gríðarlegt og er alveg
eins og í hringiðunni i bað-
inu nema loftið sogast upp
með firnakrafti. Þegar við
bætast háloftavindar af suð-
vestri togast loftið enn
lengra upp.“
Fyrirbærið er þekkt hér á
landi líka, er það ekki?
„Jú, minniháttar ský-
strokkar geta myndast hér.
Ég hef séð pínulítinn fxls-
rana á Bláfjallasvæðinu. Við
á Veðurstofunni höfum til að
mynda fengið mynd af mið-
unum iyrir vestan land af vel
greinilegum skýstrokk.
Kannski eitt frægasta dæm-
ið um skýstrokk hér á landi
sé frá árinu 1949 þegar
rigndi síld í Eyjum í Kjós við
Meðalfellsvatnið. Ský-
strokkur yfir Hvalfirði er
langsennilegasta skýringin á því fyr-
irbæri."
Og áfram hélt Einar: „Það er ekki
hægt að segja til um það hvar lokið
rofnar fyrirfram og það geta mynd-
ast margir skýstrokkar í einu í sama
fylkinu í Bandaríkjunum. Hinn 26.
apríl árið 1991 mynduðustu 39 ský-
strokkar í Andoversýslu í Kansas og
17 manns létust.“
Það dimmdi í salnum og auglýs-
ingar birtust á tjaldinu. Einar ákvað
strax í menntaskóla að gerast veður-
fræðingur. Veðurfræði var sú grein
innan náttúrufræðinnar sem heillaði
hann mest. Veður er ekki aðeins
vinna heldur líka áhugamál hjá Ein-
ari og hefur alltaf verið. „Eg hef
áhuga á tengingu veðurs og tiðarfars
við afkomu okkar til lands og sjávar.
Til dæmis hvaða áhrif ein hafískoma
fyrir norðan getur haft á sjávarafla
eða tengja þessi óvenjulegu hlýindi
nú við lægðabrautir og hegðun veð-
urkerfa hér við Atlantshafið. A Is-
landi er oft um líf og dauða að tefla
vegna veðurs ekkert síður en í þess-
ari bíómynd. Þegar stórir hlutir eru í
uppsiglingu verður að vanda sig sér-
staklega og gæta vel að orðalagi í
veðurspá. Þegar veður eru hvað
brjáluðust hér vildi ég helst komast í
nálægð við haminn til dæmis á
Rjúpnahæð ofan Breiðholts eða í
Öskjuhlíðinni. Ég veit það ekki.
Kannski er þetta geggjun. Mín
æðsta ósk er að vera á Djúpalóns-
sandi á Snæfellsnesi 1 hvassri suð-
vestanátt og fá að sjá aflmikla öld-
una beint af úthafi.“
Stormur hófst. Aðalpersónan er
kallaður Ofsi af félögum sínum. Er
einhver kallaður Ofsi á Veðurstof-
unni?
„Nei, alls ekki,“ svaraði Einar og
gaf ekki mikið fyrir lýsinguna á veð-
urfræðingum í myndinni. Ymist líta
þeir út eins og þungarokkarar á ster-
um eða eru svipljót illmenni í kol-
svartri bílalest. Einar vildi ekkert
kannast við þessa karaktera en hann
skildi hvað þeir voru að tala um;
Dopplerradar, stöðugleikastuðull,
Mesonet, Fujitakvarði. „Þetta virkar
mjög vel í mín eyru. Allt tæknimál er
mjög sannfærandi. Það er greinilegt
að handritshöfundarnir hafa kynnt
sér efnið vel. Faglega hliðin er mjög
vel unnin. Og ég skil vel spennuna
sem þessir veðurfræðingar finna þeg-
ar þeir eru að elta uppi skýstrokkana.
Maður finnur oft fyrir þessari spennu
þegar miklir hlutir eru í uppsiglingu.
Það er nokkuð sambærilegt við það
sem gerist myndinni."
Myndin lýsir miklum illdeilum á
milli veðurfræðinga. Er svona lág-
þrýstisvæði á Veðurstofu í slands?
„Ég þvertek fyrir það. Ég held ég
geti fullyrt að engin illindi eða óheil-
indi séu á milli veðurfræðinga þótt
vissulega sé faglegur metnaður og
samkeppni til staðar.“
Ofsi virðist treysta mjög á reynslu
sína og innsæi.
„Reynsla og innsæi skiptir miklu
máli í veðurfræði. Það er æði margt í
veðurfarinu illviðráðanlegt og óút-
reiknanlegt."
Aðalmálið í myndinni er að koma
fjölda lítilla skynjara inn í skýstrokk
og fá svör við brennandi spurningum
um hegðun hans og atferli. „Þetta
eru þau vandamál sem menn eru að
fást við, akkúrat hvaða kraftar eni
þarna að verki og þetta er góð hug-
mynd með þessar litlu kúlur eða
skynjara sem reynt er að þeyta upp í
strokkinn. Þarna virðast vera sam-
bærileg mælitæki við okkar hálofta-
tæki sem send eru upp með loftbelg
eitt í einu á Keflavíkurflugvelli tvi-
svar á sólarhring. En þetta virkar
allt saman voðalega áhugavert."
Svo flaug kýr þvert yfir tjaldið og
skömmu seinna flaug hún til baka
aftur. Einar hnippti í sessunautinn.
„Þetta getur ekki gerst. Hún hefði
átt að lyftast og detta niður aftur.
Það eru engir láréttir vindar í ský-
strokkum, bara upp og niður.“
Það leið á myndina og Einar hrós-
aði mjög tölvuteikningunum sem
gera skýstrokkana svo raunverulega
í myndinni. „En stundum sést í heið-
an himin á bak við strokkana í stað
þess að þar eiga að vera þykkir
skýjabakkar. Og annað er það að
skýstrokkar vara í einhverjar mínút-
ur í mesta lagi en ekki klukkustund-
um saman eins og við sjáum hér.“ Og
lokahnykkurinn, stærsti og öflugasti
skýstrokkur myndarinnar sem rífur
upp í sig landbúnaðartæki, bifreiðar
og hlaðinn olíuflutningabíl ásamt
öðru, fannst Einari „svolítið ýkju-
kenndur".
„Innst inni,“ sagði Einar þegar af-
kynningin rann yfir tjaldið í lok
myndarinnar, „vona ég að myndin
veki áhuga menntaskólakrakka á
veðurfræði og veðurfræðinámi." Og
að lokum kemur hér stjörnugjöf
Einars. Hún er í tvennu lagi. Sem
veðurfræðingur gefur hann Stormi
★★★ Sem almennur áhorfandi gef-
ur hann. ★★
SÉRKENNILEGUR LEIKUR
Bridge
Deiuxe ii
Bríds er sérkennileg og torræð kepnisíþrótt.
Ami Matthiasson brá sér í kennslustund til Om-
ars Sharífs og komst að því að Vínarkerfíð
dugði lítið þegar á reyndi.
BRIDS ER sérkennilegur
leikur sem á köflum á lítið
skylt við aðra spilaleiki, að
minnsta kosti í augum þeirra sem
þekkja lítið til keppnisbrids. Al-
mennt brids er aftur á móti víða spil-
að og víst sannað mál að því lengur
sem menn spila það því háðari verða
þeir spilunum. Á áralangri sjó-
mennsku lærðist mér að spila brids,
með svokölluðu Vínarkerfi, sem allir
bridsfróðir hlæja að í dag, og náði
það langt að vera ráðinn á togara fyr-
ir austan út á það eitt að kunna brids;
ekki var spurt um kunnáttu til sjós.
Það var því fróðlegt að komast yfir
bridsforrit sem kennt er við flagar-
ann fræga Omar Shariff, sem hefur
meðal annars leikið brids hér á landi.
Bridsfróðir segja að Omar Sharif
hafi mikið gert fyrir bridsáhuga í
heiminum og sé að auki liðtækur spil-
ari eins og sannast á kennslu- og
spiladisknum Bridge Deluxe II with
Omar Sharif. Sá er ætlaður til að
kenna brids, ekki síður en gefa kost á
að taka nokkrar rúbertur við tölv-
una, og er kennslan í höndum
Sharifs.
Leikurinn hefst með
valmynd þar sem velja má
hvort viðkomandi vill fara
í byrjendakennslustund,
kennslu fyrir lengra
komna, taka rúbertu eða
leggja í keppnisbrids. Ef
taka á kennslustund kem-
ur á skjáinn hreyfimynd
af Omar Sharif, sem út-
skýrir grunnatriði spils-
ins. Hann er þó ekki einn
á ferð, því stúlkurödd sér
um að útskýra það sem
hann nennir ekki að segja frá. Hluti
af kennslunni eru tíu leikir þar sem
búið er að gefa og jafnvel segja fyrir-
fram, en slíka leiki má líka búa til
sjálfur, meðal annars með þvi að
velja spU á hendi og síðan vista leik-
inn. Fleini má stýra, tU að mynda má
velja sagnakerfi, en sjálfvalið er
Styman & Blackwood American
Standard, spilahraða, og fyrir vikið
ætti snjall bridsleikari að geta gert
sér svo erfitt fyrir að
honum þyki nokkurs um
vert að dunda við tölv-
una.
Tölvan gerir ráð fyrir
því að mennskur spilari
sé einn og það sé hennar
að sjá um aðra þátttak-
endur, en einnig gefst
kostur á því að fieiri leiki
samtímis yfir tölvunet.
Bridge Deluxe II ger-
ir kröfu um 25 MHz
80386 tölvu hið minnsta,
sem verður að teljast vel sloppið, svo
framarlega sem innra minni sé yfir 2
Mb og skjákortið SVGA með 2 Mb
minni. Það stóð heima að á slíkri
tölvu mátti vel keyra leikinn í DOS-
ham, en á Pentium-vél varð hann
eðlilega töluvert þægilegri og snarp-
ari. Hreyfimyndirnar með Omar
Sharif keyrðu mjög vel á 386-tölv-
unni og hljóðið fylgdi myndskeiðinu
vel..