Morgunblaðið - 19.10.1996, Qupperneq 36
■ 36 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Yar ekki bara gott
að þú klikkaðist?
ALÞJOÐLEGUR
geðheilbrigðisdagur
var haldinn 10. október
sl. Af því tilefni varð
eftirfarandi pistill til
en þar lýsi ég reynslu
minni af því að „klikk-
ast“ en einnig fylgja
nokkrar hugleiðingar
því tengdar.
Það er mikið talað
um spamað í heilbrigð-
iskerfinu í dag. Við
heyrum fréttir af lokun
þessarar deildarinnar
eða hinnar. Sem áheyr-
endur eða áhorfendur
úti í bæ höfum við enga
möguleika til að leggja
raunhæft mat á þennan sparnað. í
hvert sinn er ég heyri minnst á að
loka þurfi geðdeild eða hætta
rekstri athvarfs geðsjúkra þá hrekk
ég í kút. Því ég þekki til á slíkum
stöðum og mér er ljóst hvaða vanda-
mál geta hlotist af því ef til lokana
þarf að koma. Á árunum 1991 til
’94 dvaldi ég samtals um sjö mán-
uði á geðdeild Landspítalans.
Þunglyndi og oflæti
Ég greindist með þunglyndi og
oflæti sem lýsir sér í miklum geð-
sveiflum — ýmist hátt upp eða djúpt
niður. í báðum tilfellum missir
maður gjörsamlega vald á dóm-
greind sinni. í þunglyndinu getur
tvö þúsund króna rafmagnsreikn-
ingur orðið óyfirstíganlegt vanda-
mál — beinlínis ógnun við tilveruna,
en í oflætinu trúir maður jafnvel
að maður sé fær um að kenna allar
greinarnar í Menntaskólanum við
Hamrahlíð og svo býðst maður til
að þrífa skólann að auki.
Ég tel það mikla gæfu að hafa
verið kennari við MH þegar sveifl-
urnar byijuðu fyrir alvöru. Nem-
endur taka kannski
ekki eftir því þegar
kennarinn þjáist af
þunglyndi. Þeir hugsa
bara með sér: „Mikið
djöfull getur hann
Hallgrímur verið leið-
inlegur." Öðru máli
gegnir um oflætið. Þá
tapaði Hallgrímur
þræðinum aftur og aft-
ur og fór að spyija
kúnstugra spuminga
sem hann gat ekki einu
sinni svarað sjálfur. Á
stórum vinnustað eins
og MH hafa margir
haft einhver kynni af
geðrænum sjúkdómum
hjá sjálfum sér eða hjá sínum nán-
ustu. Þess vegna leið ekki mjög
langur tími þar til athugulir nem-
endur gerðu stjórnendum skólans
viðvart.
Að sjálfsögðu hafði fjölskylda mín
• fundið að ekki var allt með felldu.
Meðan þunglyndið varði dró ég mig
inn í skel mína en þar er ekki hægt
að vera mjög lengi án þess að heimil-
isfólkið taki eftir því. En oflætið
leynir á sér. Hegðunin breytist en
breytingin er oft tiltölulega lítil á
hveijum degi þannig að erfitt er að
átta sig á hvað er að gerast. Svo
hafði ég einstakt lag á að kenna
fyrrverandi konu minni og tveimur
fósturdætmm um allt sem aflaga
fór í samskiptum okkar á þessum
tímum. Til þess beitti ég öllum til-
tækum ráðum því ég var sannfærð-
ur um að ég væri gallalaus snilling-
ur en allir aðrir ýmist vankunnandi
eða beinlínis heimskir. Ég réð yfir
mjög sterkum vopnum og beitti þeim
óspart — háð, illkvittni og fáránleg-
ar rökleysur — það var öllu beitt
ef mér fannst heimafólk mitt efast
um yfirburði mína.
Draugunum úr fortíð-
inni hefur fækkað til
muna, segir Hallgrím-
ur Hróðmarsson, og
ég hef lært að glíma við
vandamál dagsins í dag
þannig að þau verði
ekki að draugum morg-
undagsins.
Á geðdeild Landspítalans fékk
ég mjög mikla hjálp — hjá starfs-
fólkinu og ekki síður hjá sjúklingun-
um. Það hefur ótrúlega góð áhrif á
mann að komast að raun um að
maður er ekki sá eini í heiminum
sem hefur „klikkast". Að sjálfsögðu
var þáttur sérmenntuðu aðilanna
sem hjálpuðu mér veigamestur því
þeir kenndu mér að greina það sem
hugsanlega gat skýrt hvers vegna
allt hafði farið svona úr böndunum.
Ég gat ósmeykur rakið fyrir þeim
mínar innstu langanir og þrár, sagt
þeim frá sigrum mínum og ósigrum
og ráðfært mig við þá um næstu
skref. Með þeirra hjálp gat ég gert
upp við ýmsa drauga sem fylgdu
mér úr fortíðinni.
Gott viðmót á gamla
vinnustaðnum
Þessir sjö mánuðir sem ég dvaldi
á sjúkrahúsinu skiptust í íjórar
innlagnir og gat ég sinnt kennslu
á milli. Það var ekkert mjög erfitt
að koma til starfa eftir þunglyndis-
kast — flestir kennarar upplifa það
að vera dæmdir leiðinlegir — og
það má ráða bót á því. En erfiðara
var að koma í skólann eftir oflæt-
Hallgrímur
Hróðmarsson
ið. Maður vissi að mikið var skraf-
að um uppákomuna — og að alls-
konar sögur voru í gangi — flestar
sannar en sumar dáldið ýktar. Allt
gekk þetta nú og kannski hjálpaði
mér mest að hugsa um að hér var
um sjúkdóm að ræða. Hvað gerði
til þó sagðar væru sögur af kátleg-
um uppátækjum mínum — ef það
gat hjálpað til að lífga upp skamm-
degið þá var það bara gott. Hafi
einhveijir nemendur mínir eða
samkennarar haft fordóma gagn-
vart þessum „klikkaða" kennara
fékk ég aldrei að heyra af því. Það
er óskaplega mikils virði eftir
hremmingar af þessu tagi að geta
komið aftur til starfa á gamla
vinnustaðinn. Ég segi því enn og
aftur: Það var mikil gæfa að ég
skyldi vera kennari við MH þegar
þetta gerðist.
Meiri aðstoð við aðstandendur
í dag þegar ég horfi til baka get
ég ekki sagt annað en að á margan
hátt hefur þessi reynsla orðið mér
til góðs. Draugunum úr fortíðinni
hefur fækkað til muna og ég hef
lært að glíma við vandamál dagsins
í dag þannig að þau verði ekki að
draugum morgundagsins. — Er þá
bara ekki allt í lagi, var ekki bara
gott að þú klikkaðist? En málið er
ekki svona einfalt — ég er ekki einn
í henni veröld. Nemendur mínir
fengu dijúgan skammt af rugli og
óþægindum — nokkuð sem ég hefði
feginn viljað losa þá við. Samt eru
það smámunir miðað við það sem
mínir nánustu þurftu að þola. Það
var erfitt að koma í vinnuna eftir
oflætiskast, en það var miklu, miklu
erfiðara að koma heim til þeirra sem
manni þótti vænst um. Sárin sem
ég hafði veitt þeim voru þess eðlis
að þeir hefðu ekki síður þurft að
fá mikla aðstoð frá sérmenntuðu
fólki til að græða þau. Þvi miður
er ekki hugað nægilega mikið að
þessum þætti í geðheilbrigðismálum
hjá okkur.
Dropinn sem fyllti mælinn
Eitt af því sem ég hreifst mjög
af hjá fólkinu sem hjálpaði mér var
hvað það var lítið fyrir einfaldar,
ódýrar lausnir. Það hefði verið svo
einfalt að benda á einhvern draug-
inn úr fortíðinni og segja: Hér höf-
um við orsökina. Nú kippir þú þessu
í lag Hallgrímur og sólin fer að
skína á ný. Eða að segja: Hallgrím-
ur, þú ert með allt of mikla kennslu
— eitt og hálft starf — þú þolir
ekki svona mikið álag. Allir hjálpar-
aðilar mínir höfðu fullan skilning á
að það voru margir samverkandi
þættir sem höfðu valdið veikindun-
um. Það var því ekki nóg að útiloka
einn þáttinn — t.d. kippa burt yfir-
vinnunni. Jú, að sjálfsögðu minnkar
vinnuálagið, en af hveiju vann
Hallgrímur svona mikið? Var hann
ekki bara eins og hver annar meðal-
jón í landjnu að reyna að ná endum
saman? Ég er virkilega þakklátur
fyrir að þeir sem hjálpuðu mér
reyndu að fá góða yfirsýn áður en
raunveruleg meðferð hófst og leit-
uðust við að halda góðri yfirsýn
þegar meðferðin var komin á skrið.
Vissulega hrinti vinnuálagið hjá
mér öllu af stað en það var bara
dropinn sem fyllti mælinn.
Fjárfestum í fólki
Kannski er það einmitt meiri yfir-
sýn sem okkur skortir í samfélaginu
í dag. Eða er það eðlilegt ástand
að meðaljóninn á íslandi skuli neyð-
ast til að vinna eina og hálfa vinnu
til að hafa i sig og á? Með því að
eyða þessum fasta, sjálfvirka
streituþætti myndum við hafa áhrif
til góðs á íjölmörgum sviðum mann-
lífs á íslandi — ekki bara á sviði
heilbrigðismála.
Ég byijaði pistilinn á að hugleið-
ingu um sparnað í heilbrigðiskerf-
inu. Ekki efast ég um að það er
full þörf á að fara vel með fé þar
eins og annars staðar, en varanleg-
ur sparnaður kostar oft mikla fjár-
muni. Það kostar örugglega mikið
að afnema yfirvinnu í íslensku sam-
félagi meðan breytingin er að ganga
yfir, en ef menn hafa yfirsýn lengra
fram á veginn sjá þeir að hagnaður-
inn verður margfalt meiri en sá
kostnaður. Það dugir ekki að auka
sífellt og einhliða fjárfestingu í
steinsteypu. Nú þurfum við — að
þora — að auka fjárfestingu í fólki.
Við getum meira að segja sparað
á því.
Höfundur er kennnri í MH.
NÝ KYNSIDÐ AF
OLÍUSKILJUM
fyrir bæði létta og þunga olíu.
DVZ-VC-”OILMASTER"
Vélar ehf.,
Vatnagörðum 16, Rvík,
sími 568 6625.
Sjálfhreinsandi - engar síur.
Stærðlr frá 250 l/klst uppí 7000 l/klst
Stretsbuxur kr. 2.900
Konubuxur kr. 1.680
Milcfó úrval af
allskonar buxum
Opib ó laugui Jögum
Nokkur orð um sögu Njarðvíkur
ÞAÐ ER ekki fyrr
en flett hefur verið á
þriðja hundrað blaðsíð-
um að maður kemst
nær okkar tíma eða
rétt yfir síðustu alda-
mót í þessari bók, sögu
Njarðvíkur.
En þar segir frá því
á blaðsíðu 223 þegar
Njörður GK 467, 8,5
rúml. Bátur var keypt-
ur. Sagt er hveijir eig-
endur voru en þetta
var í árslok 1916.
Einnig er sagt frá því
er Njörður fórst 22.
febrúar 1918 með fjór-
um ungum mönnum
en ekki minnst á hveijir þessir ungu
menn voru.
Þá kemur upptalning á næstu
vélbátum í Njarðvík og
segir síðan á bls. 227
frá því þegar Karvel
Ögmundsson og bræð-
ur hans komu til Njarð-
víkur með Pilot GK
210, 28 rúml. bát, sem
er ekki rétt því Pilot
var GK 201 og 35 rúml.
Næst er farið að
segja frá Eggerti Jóns-
syni frá Nautabúi á
miðri blaðsíðu 227.
Þá næst er farið yfir
í kartöflurækt á blaðs-
íðu 232 og á blaðsíðu
234 er komið að raf-
magnsmálum og
hreppaskiptingu 1942.
Á bls. 241 kemur að Keflavíkur-
flugvelli, á bls. 262 kemur aftur
að útgerðinni og segir þar í upp-
Grímur
Karlsson
Á bls. 264 eru taldir upp bátarnir:
Sigurkarfí GK480 184 rúml. Eig. Karvel og Guðm. Þórarinn Ögmundssynir
Ingiber Ólafsson GK135 247 rúml. Eig. Jón og Óskar Ingiberssynir
Magnús Ólafsson GK494 256 rúml. Eig. Garðar Magnússon
Keilir GK24 60 rúml. Eig. Garðar Magnússon
Bára GK 24 165 rúml. Eig. Garðar Magnússon
Mánatindur SU95/síðar GK240 228 rúinl. Eig. Garðar Magnússon
En svo er eftirtöldum bátum sleppt í bókinni:
Ingiber Ólafsson GK35 83 rúml. Eig. Jón og Óskar Ingiberssynir
Haffari GK240 250 rúml. Eig. Garðar Magnússon
Auður GK201 21 rúml. Eig Karvel og Guðm. Þórarinn Ögmundssynir
Gulltoppur GK321 22 rúml. Eig Garðhúsabræður
Emma GK279 16 rúml. Eig Árni .Bachmann
Sigriður GK78 11 rúml. Eig. Kristján í Höfða
Mars GK374 15 rúml. Eig. Dúi og Grímur Karlssynir
Jónas Jónasson GKI0I 72 rúml. Eig. Egill Jónasson
Fróði GK 480 36 rúml. Eig. Egill Jónasson
Anna III GK461 54 rúml. Eig. Sigurður í Þórukoti o.fl.
Brimnes KE204 36 rúml. Eig. Magnús Daníelsson
Þessi bók getur ekki,
segir Grímur Karls-
son, staðið sem heimild-
arrit fyrir framtíðina.
hafi orðrétt „hér á eftir verður drep-
ið á helstu atriði úr sögu fiskiskipa-
flota Njarðvíkinga“ síðan er þess
getið að þetta sé um það leyti sem
Njarðvíkurhreppur var stofnaður
og að bátafloti Njarðvíkinga sé 9
skip. Síðan eru þau talin upp en
þá eru þau aðeins átta.
Þessi skip eru:
Annall GK461, 42rúmlesta,
sem er ekki rétt. Anna II var 26 rúml.
Ársæll
Bragi
Freyja
Glaður
Gylfi
Pilot
GK492,
GK497,
GK494,
GK405,
GK522,
GK210,
22 rúmlesta,
20 rúmlesta,
22 rúmlesta,
22 rúmlesta,
22 rúmlesta,
28 rúmlesta,
sem er ekki rétt, Pilot var GK 201 og 35
rúmlesta,
Vöggur GK204, 29 rúmlesta,
sem er ekki rétt, Vöggur var 50 rúml.
Þegar Ársæll fórst er þannig
sagt frá slysinu að aðeins einn af
þeim sem fórust er nafngreindur,
aðrir sem fórust eru það ekki, ekki
heldur sá sem komst af, eða neitt
sagt frá því hvernig slysið bar að
eða hveijir björguðu.
Það er undrunarefni hvers vegna
öllum þessum bátum er sleppt. Ef
við tökum til dæmis Fróða, sem var
systurskip Braga sem sagt er frá,
en Egill átti Fróða miklu lengur og
var sjálfur skipstjóri á Fróða. Fróði
var mikið afla- og happaskip, hann
varð til dæmis eitt sinn 5. afla-
hæsta sildveiðiskipið fyrir Norður-
landi. Auk þess átti Egill á Fróða
þátt i stórkostlegu björgunarafreki
úti á skerjum þar sem kunnugleiki
hans og hæfni sem sjómanns bjarg-
aði_ mannslífum.
í heildina fá athafnamenn í bæn-
um litla umijöllun, t.d. er ekki
minnst á ummæli Theodórs Frið-
rikssonar í bókinni I verum um
Magnús ólafsson, þar sem hann
lýsir því hve Magnús Ólafsson og
kona hans bjuggu vel að vermönn-
um, þó er minnst á það að Theodór
hafí verið í skiprúmi hjá Magnúsi.
Sama sagan er með Egil og Ein-
ar Jónassyni. Ekkert er minnst á
þegar Einar á gamals aldri bjargaði
öðrum af flugmönnum herþotu sem
steyptist niður í höfnina.
Saga Karvels Ögmundssonar er
slitin í sundur og skotið inn í bók-
ina hingað og þangað, en hvergi
heilleg frásögn.
En það sem er verst af öllu við
þessa bók er hvernig fjallað er um
slysfarir, það er lítillega tæpt á
sumu, eða ekkert sagt einsog um
drukknanir í höfninni eða þegar
opni vélbáturinn María fórst með
þremur ungum mönnum.
Þessi bók getur ekki að öllu leyti
staðist sem heimildarrit fyrir fram-
tíðina.
Ég veit ekki hvernig hægt er að
bæta úr þessu en kannski er hægt
að setja leiðréttingar í eða með
bokinni.
Höfundur er skipstjóri.