Morgunblaðið - 02.11.1996, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRA undirritun samnings KSI og Byrgis ehf. í gær. Frá vinstri eru Magnús Bjarnason, sem
er byggingastjóri fyrir KSÍ, Eggert Magnússon, formaður KSÍ, Þórður Jónsson, eigandi Byrg-
is ehf., og Gunnar St. Olafsson, verkfræðiráðgjafi Byrgis ehf.
Samið um nýja stúku
við Laugardalsvöll
KN ATTSPYRNU S AMB AND ís-
lands og Byrgi ehf. undirrituðu í
gær samning um byggingu stúku
við austurhlið Laugardalsvallar.
Nýja stúkan er 140 metrar að
lengd með 15 sætaröðum og mun
taka 3.500 manns í sæti en fram-
kvæmdir hófust strax í morgun
og verður lokið 23. maí næstkom-
andi. Samningurinn tekur aðeins
til byggingar stúkunnar, sem er
úr forsteyptum einingum. Þakið
og sætin verða boðin út síðar í
þessum mánuði en stefnt er að
því að ljúka öllum framkvæmdum
í maí á næsta ári þannig að hægt
verði að opna völlinn samkvæmt
öryggisreglum Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins með alls
7.000 manns i númeruðum sætum.
Að sögn Eggerts Magnússonar,
formanns KSI, er löngu tímabært
að klára þessa stúku enda hefur
Knattspyrnusambandið gengið
þvert á reglur alþjóðaknattspymu-
sambandsins fyrir að bjóða ekki
samkvæmt reglum þeirra upp á
númeruð sæti í stað áhorfenda-
palla. „Þetta er stór stund fyrir
íslenska knattspyrnu en við erum
búnir að bíða í sex ár eftir að
völlurinn verði löglegur. Það hefur
lengi vofað yfir okkur að fá sekt
fyrir að fara ekki eftir lögum Al-
þjóðaknattspymusambandsins,
sértaklega eftir harmleiki erlendis
þar sem stúkur hafa hrunið,“ sagði
Eggert við undirritun samnings-
ins. „Það má einnig benda á að
verið er að leggja nýtt lag úr gervi-
efni á hlaupabrautina í Baldurs-
haga, sem er undir gömlu stúk-
unni, þannig að reynt er að gera
veg fijálsíþróttafólks sem mest-
an.“
Staða varalögreglustjóra stofnuð
Tengist stækkun
lögreglusljóra-
embættisins
DÓMS- og kirkjumáiaráðuneytið
hefur auglýst laust til umsóknar
embætti varalögreglustjóra í
Reykjavík en það verður veitt frá
1. júlí á næsta ári. Um nýtt emb-
ætti er að ræða og á sá sem því
gegnir að vinna að undirbúningi
vegna fyrirhugaðra breytinga á
embætti lögreglustjóra í Reykjavík.
Stofnun embættisins er í tengsl-
um við gildistöku nýrra lögreglu-
laga á næsta ári, en þau hafa í för
með sér uppstokkun á yfirstjórn
löggæslu og lögreglumála í landinu.
Meðal annars verður Rannsóknar-
lögregla ríkisins lögð niður og emb-
ætti ríkislögreglustjóra stofnað í
hennar stað.
Miklar breytingar í sjónmáli
„Á sama tíma færist tii lögreglu-
stjórans í Reykjavík rannsókn allra
sakamála sem hefur verið hjá RLR.
Embættið í Reykjavík mun því
stækka verulega og m.a. mun rann-
sóknadeild þess verða mjög öflug,“
segir Björg Thorarensen, skrif-
stofustjóri í dómsmála- og lög-
gæsluskrifstofu dómsmálaráðu-
neytisins.
„Um svipað leyti taka gildi lög
um breytingar á lögum um meðferð
opinberra mála, en þar er stefnt
að því að færa stóran hluta ákæru-
valds frá ríkissaksóknara til ein-
stakra lögreglustjóraembætta. Þar
með fær lögreglustjóri í Reykjavík
geysilega mikið af nýjum málum
þar sem hann annast útgáfu á
ákæru og er ákærandi í þeim málum
fyrir héraðsdómi.
Þetta mikla og nýja umfang
embættisins kallar á embætti vara-
lögreglustjóra, en honum er ætlað
að vera næstráðandi og staðgengill
lögreglustjóra, samkvæmt greinar-
gerð með nýjum lögreglulögum."
Björg segir að varalögreglustjóri
eigi að taka til starfa um áramót,
en umsóknarfrestur rennur út 15.
nóvember nk. Gerð er krafa um
lögfræðimenntun.
Bílvelta á
Kjalarnesi
MAÐUR var fluttur mikið slasaður
á slysadeild eftir að bifreið hans
valt á móts við Grundahverfi á Kjal-'
arnesi um klukkan tvö í fyrrinótt.
Sjúkrabíll og tækjabíll lögreglu
voru sendir á vettvang, enda var
talið um mjög alvarlegt slys að
ræða. Maðurinn kjálkabrotnaði og
ökklabrotnaði, auk annarra
meiðsla. Ökumaðurinn er grunaður
um ölvun við akstur.
Héraðsdómur í máli fyrrum framkvæmdastj óra Lífeyrissjóðs bænda
Tíu mánaða dómur fyrir
lánveitingar til Emerald Air
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær fyrrverandi framkvæmda-
stjóra Lífeyrissjóðs bænda í 10 mánaða fangelsi fyrir umboðssvik, en fram-
kvæmdastjórinn lánaði flugfélaginu Emerald Air rúmar 97 milljónir króna,
án þess að bera þá ákvörðun undir stjórn sjóðsins. Samkvæmt dómnum
fellur refsing mannsins niður, haldi hann almennt skilorð næstu 3 árin.
Þá er honum gert að greiða samtals 500 þúsund krónur í sakarkostnað.
Dómurinn tók ekki afstöðu til skaðabótakröfu Lífeyrissjóðsins á hendur
manninum, þar sem ekki væri útséð með einhverja greiðslu frá Emerald Air.
■V; ■;
I jjj||
ir'-Wu*
Morgunblaðið/RAX
Ný brú á Affall
Stálu 2
milljómim
í klinki
UM tveimur milljónum króna í
fímmtíu króna peningum var stolið
úr spilakössum Happdrættis Há-
skóla íslands á skemmtistað við
Álfheima í fyrrinótt.
Talið er að þjófurinn eða þjóf-
amir hafi falið sig inni á staðnum
fyrir lokun, athafnað sig eftir að
starfsfólk hafði gengið frá og brot-
ist síðan út með fenginn.
Tæp 30 kíló
Talið er að þjófamir hafí haft
um 1,8 milljónir króna upp úr
krafsinu samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu. Slík upphæð jafngild-
ir um 36 þúsund fimmtíu króna
peningum, alls um 28,8 kíló.
Innbrotið uppgötvaðist og var
tilkynnt lögreglu um klukkan 8.30
í gærmorgun. Rannsóknarlögregla
ríkisins fer með rannsókn málsins.
♦ ♦ >----
Svalbakur EA
Aflaverð-
mæti 56 millj.
SVALBAKUR EA, frystitogari
Útgerðarfélags Akureyringa hf.
kom til hafnar á Akureyri í vik-
unni með 250 tonn af frystum flök-
um og heilfrystum fiski eftir 5
vikna túr.
Aflaverðmæti skipsins er um 56
milljónir króna en mesta aflaverð-
mæti sem Svalbakur hefur komið
með að landi er 65 milljónir króna.
Uppistaða aflans er þorskur, eða
um 230 tonn af 500 tonnum upp
úr sjó. Togarinn var við veiðar
bæði fyrir austan land og vestan.
BRÚARVINNUFLOKKUR Jóns
Valmundssonar frá Vík er að
gera tvíbreiða brú á Hringveg-
inn um Affall í Rangárvalla-
sýslu í stað einbreiðrar brúar.
Flokkurinn byrjaði á því að
brjóta niður gömlu brúna og fór
svo að gera undirstöður fyrir
þá nýju. Þegar myndin var tek-
in var verið að reka niður stein-
staura en þeir fara 21,5 metra
niður í jörðina. Við verkið er
notaður dísilhamar. Jón brúar-
smiður segist ætla að Ijúka
verkinu fyrir jól, ef veður leyf-
ir, en hefur áhyggjur af því
hvað veturinn er snemma á
ferðinni.
Maðurinn var ákærður fyrir brot
framin á árinu 1995 og gert að sök
að hafa misnotað aðstöðu sína og
stefnt fé Lífeyrissjóðs bænda í stór-
fellda hættu með lánveitingunum,
sem voru án ábyrgða og trygginga.
Lífeyrissjóður bænda var stofn-
hluthafi í félaginu Activa, sem
stofnað var á árinu 1994 um þátt-
töku íslenskra aðila í Emerald Air
Ltd. og lagði sjóðurinn fram 10,8
milljónir króna í hlutafé. Fram-
kvæmdastjóri lífeyrissjóðsins var
kjörinn stjórnarformaður Activa og
jafnframt kjörinn í stjórn Emerald
Air.
Fullvissaður um greiðslu
Lánveitingar framkvæmdastjór-
ans til Emerald Air urðu stjórn líf-
eyrissjóðsins kunnar eftir mitt ár
1995 og gaf framkvæmdastjórinn
þær skýringar, að hann hefði verið
fullvissaður um að lánin yrðu
greidd. Lánveitingarnar hefðu hins
vegar ekki verið bókaðar jafnóðum
í bókhaldi sjóðsins, þar sem hann
hefði viljað sjá til og skoða málið
síðar. Þá sagði hann fyrir dómi, að
framkvæmdastjóri Emerald Air
hefði leynt sig mikilvægum upplýs-
ingum um stöðu félagsins. Loks
benti hann á, að Lífeyrissjóður
bænda hefði að jafnaði fjárfest fyr-
ir um 1 milljarð á ári og því væru
umrædd lán lítið brot af fjárfesting-
unum og aldrei hefðu verið gerðar
athugasemdir við fjárfestingar hans
þau tíu ár sem hann var fram-
kvæmdastjóri sjóðsins.
Gaf tryggingar eftir
{ niðurstöðu dómara, Hjartar O.
Aðalsteinssonar, segir að Lífeyris-
sjóður bænda hafi haft tryggingu
fyrir 217 þúsund breskum pundum,
eða um 22 milljónum króna, þar til
framkvæmdastjórinn gaf þær
tryggingar eftir í júní 1995. Eftir
það hafí lánveitingarnar verið án
nokkurra ábyrgða og trygginga.
Sú háttsemi að lána fé með þessum
hætti hafi verið mjög óvenjuleg,
sérstaklega í ljósi þess að um veru-
legar upphæðir hafi verið að ræða
og lánveitingin gekk gegn því
ákvæði laga um sjóðinn, að fjár-
munir hans yrðu ávaxtaðir á trygg-
an hátt. Framkvæmdastjóranum
hafi borið að leita samþykkis stjórn-
ar sjóðsins, eins og málið hafí verið
vaxið.
Ekki persónulegur
ávinningur
Við ákvörðun refsingar lítur
dómarinn til þess, að framkvæmda-
stjórinn hafí ekki notið persónulegs
ávinnings af brotinu og ekki leynt
því, heldur skýrt hreinskilnislega
frá. Þá hafí hann misst atvinnu sína
og jafnframt skýrt frá að hann
hafi þurft að ganga á eignir sínar
til að framfleyta sér. Brot hans sé
hins vegar stórfellt og margt bendi
til að umræddir fjármunir séu sjóðn-
um með öllu glataðir.
Þó tekur dómarinn fram, að til-
boð hafi borist frá Emerald Air um
greiðslu 20 milljóna með skilyrðum
og hafi stjórn lífeyrissjóðsins ekki
tekið afstöðu til tilboðsins. Þá eigi
Emarald Air útistandandi kröfur
og hafí boðið sjóðnum framsal á
þeim. Því sé enn margt á huldu um
tjónið og á þeirri forsendu sé synjað
umfjöllun um skaðabótakröfu sjóðs-
ins.
I
I
i
I
i
I
1
.
I
i
l
«
i
i