Morgunblaðið - 02.11.1996, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Dansráð íslands hefur staðið fyrir keppni í 10 ár
Islendingar hafa
eignast danspör á
heimsmælikvarða
Á þessu ári eru liðin 10 ár síðan
*
Dansráð Islands stóð fyrir fyrstu
íslandsmeistarakeppni í samkvæmis-
dönsum. Jóhann Gunnar Arnarson
skoðar hvað er á döfinni í vetur.
FYRSTA keppnin sem Dansráð
íslands stóð fyrir fór fram á Hótel
Sögu í maí 1986. Síðan hefur mik-
ið vatn runnið til sjávar. í fyrstu
var einungis ein keppni í boði en
svo bættust smátt og smátt fleiri
við og nú í vetur er séð fram á
að keppnimar verði 9 talsins fyrir
utan skólakeppnir.
Mikil framþróun hefur átt sér
stað síðan fyrsta keppnin fór fram
og í dag eiga íslendingar danspör
sem jafnast á við það bezta sem
gerist í heiminum í dag. Allt hefur
þetta gerst á ótrúlega stuttum tíma
og því undravert hversu árangur
íslendinga á alþjóðavettvangi er
góður því við etjum kappi við þjóð-
ir sem hafa áratuga reynzlu í
keppnisdansi.
íslandsmeistaramót
og hinir beztu
Nú þegar er einni keppni lokið
og framundan eru tvær, nú um
helgina. Laugardaginn 2. nóvem-
ber fer fram úrtökumót vegna
Norðurlandamóts í dansi sem fram
fer hér á íslandi í desember. Úr-
tökumótið hefur fengið nafnið Bar-
átta hinna beztu. Er þar keppt í
fimm flokkum; flokki 10-11 ára,
12-13 ára, 14-15 ára, 16-18 ára
og 19 ára og eldri. Efstu tvö pörin
í hveijum flokki öðlast þátttöku-
rétt á Norðurlandamótinu og er
miðað við samanlögð stig, nema í
flokki 19 ára og eldri, þar fá þátt-
tökurétt eftsu tvö pörin í stand-
arddönsum, í suður-amerískum
dönsum og báðum flokkum saman-
lagt, alls 6 pör.
Sunnudaginn 3. nóvember fer
fram Islandsmeistaramót í 5&5
dönsum með frjálsri aðferð. Keppt
er í fjórum flokkum með frjálsri
aðferð auk þess í flokki atvinnu-
manna. Einnig er boðið upp á
keppni í einum og tveimur dönsum
með grunnaðferð.
Sunnudaginn 24. nóvember
stendur Dansskóli Auðar Haralds-
dóttur fyrir sinni árlegu Lottó-
danskeppni. Er þar keppt í fjöl-
mörgum flokkum, bæði með
grunnaðferð og frjálsri aðferð,
einnig er þar boðið upp á liða-
keppni sem er mjög skemmtilegt
keppnisform.
Norðurlandamót í dansi á
Islandi og opin keppni
Norðurlandamótið í dansi fer
fram hér á íslandi laugardaginn
7. desember. Keppendur verða frá
fjórum löndum auk íslands; Dan-
mörku, Finnlandi, Noregi og Sví-
þjóð. Keppnin fer fram í íþrótta-
húsinu við Strandgötu í Hafnar-
firði. Norðurlöndin eru mjög fram-
arlega í keppnisdansi í heiminum
og verður því eflaust ákaflega
gaman að sjá ölj þessi sterku pör
á keppnisgólfi á íslandi í desember.
Sunnudaginn 8. nóvember,
stendur Samband íslenzkra áhuga-
dansara fyrir opinni danskeppni
með frjálsri aðferð. Keppendur
verða frá Islandi og Norðurlöndun-
um, einnig hafa borist fyrirspurnir
frá fleiri löndum. Skemmtileg nýj-
ung hér á ferð.
Bikarkeppni
Dansráðs Islands
Dansráð íslands stendur svo
fyrir sinni árlegu bikarkeppnp
þann 9. febrúar. Bikarkeppni DI
er létt og skemmtileg keppni sem
sérstaklega er hugsuð fyrir kepp-
endur sem keppa í dansi með
grunnaðferð. Hún verður haldin í
Iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi eins
og áður.
Rokk-og
gömlu dansakeppnin
Laugardaginn 15. mars verður
svo haldin Islandsmeistarakeppni
í 5&5 dönsum. Þar er keppt í
mörgum flokkum með frjásri að-
ferð og er keppt í öllum 10 dönsun-
um. Islandsmeistarar í þessari
keppni verða fulltrúar íslands á
heims- og Evrópumeistaramótum
í standard og suður-amerískum
dönsum á næsta ári svo að til mik-
ils er að vinna.
íslandmeistaramótið í gömlu
dönsum og rokki fer svo fram
sunnudaginn 16. mars. Það er
gaman og gott til þess að vita að
íslenzkir danskennarar viðhalda
OPIÐ HÚS - HAGSTÆTT VERÐ
SUÐURVANGUR 2, HAFNARFIRÐI
Til sölu rúmgóð 3ja herb. íbúð á 1. hæð I fjölbýlishúsi. (búðin er 94 fm að
stærð og skiptist í góða stofu, rúmgott hol (sjónvhol) og eidhús
m/borðkrók. Sér þv.hús og búr inn af eldhúsi. Þá eru einnig 2 svefnherb. og
bað á sérgangi. Góðar svalir, snyrtileg sameign. Lækkað verð, nú aðeins
6.4 millj.lbúðin laus til afhendingar og til sýnis í dag, laugardag, kl. 14-16.
Gjörið svo vel og lítið inn. Dyrabjalia merkt opið hús.
EIGNASALAN, Ingólfsstræti 12,
símar 551 9540 og 551 9191.
ELÍSABET Haraldsdóttir og Sigursteinn Stefánsson eru í hópi
þeirra íslenzku danspara sem komist hafa í fremstu röð í heiminum.
þeirri stuttu danshefð, sem við ís-
lendingar eigum, með því að keppa
í gömlu dönsunum. Að keppa í
þessum dönsum gefur þeim án efa
meira gildi og skipar þeim annan
sess í huga unga fólksins. Einnig
er svo með rokkið, það er mjög
skemmtilegt og fjörugt á að horfa.
Rokk er erfiður dans og krefst
þess að þol og líkamsstyrkur séu
í góðu lagi.
Maí-keppnin
í maí er svo síðasta keppni vetr-
arins og er það íslandsmeistara-
keppni í dansi með ^grunnaðferð.
Hún verður haldin í Iþróttahúsinu
við Strandgötu í Hafnarfirði dag-
ana 3. og 4. maí. Þetta er yfirleitt
stærsta keppni vetrarins og tekur
hún tvo daga. Einnig er keppend-
um með fijásri aðferð boðið að
taka þátt í keppninni til að öðlast
meiri keppnisreynzlu, sem er ákaf-
lega mikilvægt fyrir þessa kepp-
endur, því í alþjóðlegri keppni
skiptir reynzlan mjög miklu máli.
Dans er almenningseign
í öllu þessu umtali um keppni
vill oft gleymast að dans er ekki
einungis keppnisíþrótt, heldur er
dans miklu frekar almenningseign
okkar allra og mikill minnihluti
þeirra sem stunda dans keppa
nokkurn tíma í þessari grein. Allir
geta stundað dans, sér til ánægju
og yndisauka, og er úr fjölbreyttri
flóru að velja, t.d. samkvæmis-
dansar, línudansar (kúrekadans-
ar), barnadansar, rokk, stepp, jazz-
ballet, og ballet, svo eitthvað sé
nefnt. Greinilegt er að allir ættu
að geta fundið sér eitthvað við sitt
hæfi. Og verðið kemur skemmti-
lega á óvart, að stunda dans kost-
ar hjón svipað og að fara einu sinni
í viku í kvikmyndahús.
rrn 11 rn rrn 1 Q7f1 lárusþ.valoimarsson,framkvæmdastjóri
UUL I luU'UuL lu/U JÓHANNÞÓRBARSON,HRL.LÖ6GILHIRFftSTElGNASflLI.
Ný á fasteignamarkaðinum m.a. eigna:
Rúmgóð - bílskúr - skipti
Mjög góð 4ra herb. ibúð 108,2 fm nettó við Blikahóla á 3. hæð. Stórar
sólsvalir. Innbyggður bílskúr með vinnuplássi. Mikið útsýni. Selst i
skiptum fyrir góða 2ja-3ja herb. íbúð.
Raðhús - vinnupláss - skipti
Mjög gott raðhús við Hrauntungu, Kóp. Á aðalhæð er glæsileg 5 herb.
ibúð. 50 fm sólsvalir. Á jarðhæð er ibúðar-/vinnuhúsnæði. Innbyggður
góður bílskúr með rúmgóðri geymslu. Skipti möguleg á minna sérbýli.
Góð eign - hagkvæm skipti
Steinhús á Grundunum, Kóp., ein hæð 132,5 fm. Nýlegt og vandað. 4
svefnherb. Bílskúr 30 fm. Ræktuð lóð 675 fm. Vinsæll staður. Skipti
möguleg á 2ja-3ja herb. góðri íbúð. Vinsamlegast leitið nánari uppl.
íbúðir á góðu verði
3ja herb. íbúðir íbúðir m.a. við: Kaplaskjólsveg, Grettisgötu, Eskihlíð
og Gnoðarvog. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga.
Laugavegur - Bankastræti - nágrenni
Fjársterkir kaupendur óska eftir húsnæði. Má þarfnast endurbóta,
stækkunar eða niðurrifs. Margt kemur til greina. Mjög gott verð fyrir
rétta eign. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga.
• • •
Opið í dag frá kl. 10-14.
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Margs konar eignaskipti
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 -5521370
Ólafur H. Johnson skólastjóri með nýjan skóla í bígerð
Hyggst útskrifa stúd-
enta á tveimur árum
ÓLAFUR H. Johnson skólastjóri
Hraðlestrarskólans hefur í hyggju
að setja á fót nýjan framhalds-
skóla sem útskrifa mun stúdenta
á tveimur árum. Nýi skólinn á að
heita Hraðbraut ef af rekstrinum
verður og stefnir Ólafur að því að
hámarksfjöldi nemenda í skólanum
verði 80, það er 20 í fjórum bekkj-
ardeildum á tveimur árum.
„Nýju lögin eru þannig að það
má í sjálfu sér hver sem er stofna
framhaldsskóla ef honum sýnist
svo. Hins vegar er æskilegra að
fá viðurkenningu menntamála-
ráðuneytisins og heimild til þess í
lögunum að ráðherra veiti slíka
viðurkenningu," segir Ólafur.
Hann segir unnið að reglugerð þar
sem fram kemur með hvaða hætti
slík viðurkenning eigi að fást.
„Mönnum er því ekki alveg ljóst
hvert ferlið verður. Hins vegar er
ég búinn að fara yfir þetta mál
með ráðherra og embættismönnum
og hef alls staðar fengið mjög
góðar og jákvæðar undirtektir."
Erfitt nám fyrir duglega
nemendur
Markmiðið er að bjóða upp á
140 eininga stúdentspróf í Hrað-
braut, sambærilegt við stúdents-
próf annarra framhaldsskóla, segir
Ólafur. „Það er ekki ljóst hvenær
skólinn tekur til starfa enda þarf
að nást samningur við ráðuneytið
um fjárhagslegan stuðning. Undir-
tektirnar við þeirri málaleitan eru
góðar og ef ég næ samningum á
skömmum tíma gæti skólinn tekið
til starfa í janúar. Enn á ný að
því gefnu að ég fái nemendur,“
segir hann.
Ólafur segir kostnað við stúd-
entspróf um 600 þúsund á hvern
nemanda og hafi hann falast eftir
þeirri upphæð.
„Þetta á að vera mjög lítill skóli
og ég myndi byija með 20 manna
hóp. Námið mun jafnframt verða
erfitt og er hugsað fyrir mjög dug-
lega nemendur," segir hann að
lokum.
Hörður Lárusson deildarstjóri
framhaldsskóladeildar í merinta-
málaráðuneytinu segir að verið sé
að vinna að reglugerð með nýjum
lögum um framhaldsskóla, þar sem
komið er inn á hvernig veita skuli
einkaskólum viðurkenningu. Sagði
hann að Ólafur hafi kynnt hug-
myndir sínar í ráðuneytinu en að
engin afstaða hafi enn verið tekin
til erindisins.
\
1
I
I
I
í
1
1
I
I
t
l
\
I
\