Morgunblaðið - 02.11.1996, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.11.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 15 AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján SIÐASTI vinnudagnrinn í Þvottahúsinu Mjöll sem hætti starf- semi í gær, Sigríður Stefánsdóttir og Asta Þórðardóttir önnum kafnar við að pressa húfur kokkanna á KEA. Þvottahúsið Mjöll hættir starfsemi Vönduð vinna þó nýtískutæki skorti „ÞETTA hefur verið ágætis tími og auðvitað kveður maður með nokkurri eftirsjá," segir Ásta Þórðardóttir forstöðukona Þvotta- hússins Mjallar í Kaupvangsstræti, en starfsemi þvottahússins var hætt í gær. Höfði, fatalitun og þvottahús, hefur keypt vélar og tæki auk þess sem viðskipti fyrir- Lekja KEA sem verið hafa uppi- staða í starfsemi Mjallar verða færð þangað. Það var mikill erill síðasta starfsdaginn, búið var að hringja í þá sem áttu þvott í húsinu og var mikið að gera við að afgreiða hann. Ásta byrjaði upphaflega að vinna í þvottahúsinu árið 1958, en hætti eftir tvö ár, vann þar svo síðar að sumarlagi i nokkur ár áður en hún byijaði aftur í föstu starfi sem hún hefur gegnt í fjölda ára. Þvottahúsið Mjöll er margra áratuga gamalt, „Þetta var upp- haflega einkafyrirtæki, það átti það kona sem ævinlega var kölluð Laufey straukona, svo keypti Gunnar Jónsson það og loks kaup- félagið,“ sagði Ásta. Hún lét vel af lífinu í þvottahús- inu, andinn hefði alla tíð verið ágætur og starfsfólkið gott. Mest er að gera fyrir hátíðir, jól, páska og fermingar og þá er mikil törn allt sumarið, á háannatíma Hótel KEA. Stærstur hluti þvottarins kemur frá fyrirtækjum KEA, hót- elinu, mjólkursamlaginu, slátur- húsi og kjötiðnaðarstöð, „en við eigum Iíka marga fasta viðskipta- vina, sem koma hingað með þvott- inn sinn,“ sagði Ásta. „Við höfum fengið mikil viðbrögð frá okkar viðskiptavinum, sem eru ósáttir við að þvottahúsinu verður lokað, þeir sjá eftir okkur.“ Heim að pijóna „Eg lærði handbrögðin hjá gömlum konum sem hér unnu þegar ég var að byija, vönduð vinnubrögð voru í öndvegi, það var vandað til allra verka og allt varð að vera eins vel gert og unnt var,“ segir Ásta. „Ég geri mér grein fyrir að það hafa verið svo- lítið gamaldags vinnubrögð við- höfð hér, en við höfum skilað góð- um verki þó aðferðirnar séu ekki alltaf þær nýtískulegustu," bætti hún við en sumar vélanna eru komnar til ára sinna. En hvað skyldi Ásta nú taka sér fyrir hendur eftir áratuga starf í þvottahúsinu? „Nú fer ég heim og pijóna." Ljósmynd/Arnaldur Halldórsson MYNDIN „Að spjalla við gesti“ úr myndröðinni Athafnir, en röðin sýnir 25 algengar athafnir fólks í heimahúsum. Listasafnið á Akureyri Eilíft líf EILÍFT líf er yfirskrift sýningar Þor- valdar Þorsteinssonar sem opnuð verður í Listasafninu á Akureyri á morgun, laugardaginn 2. nóvember, kl. 16. Á sýningunni eru verk unnin í samvinnu við fólk sem fæst leggur stund á myndlist en á það hins veg- ar sameiginlegt að vera einkar vel að sér í listinni að lifa. Meðal verkanna má nefna Athafn- ir, ljósmyndaröð sem sýnir 25 al- gengar athafnir fólks í heimahúsum. Akademíur, skólaspjöld tileinkuð akureyrskum akademíum sem ennþá hafa ekki fengið fullnaðarviðurkenn- ingu menntamálaráðuneytisins, Mar- íumyndir, en það eru myndir fengnar að láni hjá þeim Maríum sem finna má í símaskránni á Akureyri og Mín- útumyndir, 16 einnar mínútu hljóð- verk, unnin í samstarfi við Þorstein J. Vilhjálmsson, en þau munu birtast í morgunþætti Rásar 2, ein á dag, kl. 08.33, alla daga sýningartímans. Við opnun sýningarinnar verður kvenfélagið Framtíðin með kökubas- ar og Kór aldraðra syngur nokkur lög. Verk Þorvaidar Þorsteinssonar hafa verið kynnt víða á undanförnum árum, einkum í Hollandi, Belgíu, Þýskalandi, Finniandi og Svíþjóð og í sumar var hann fulltrúi Reykjavík- ur á sýningunni Container '96 í Kaupmannahöfn. LAIMDIÐ Fulltrúar björgunarhópa í hádegismat Flateyri - Magnea Guðmunds- dóttir oddviti Flateyrar bauð fulltrúum þeirra hópa sem komu að björguninni í snjóflóð- inu á Flateyri 26. október 1995 í hádegismat til sín. Fréttaritari Morgunblaðsins leit við og tók myndir af hluta hópsins að snæðingi. Talið frá vinstri: Hörður Einarsson, Samhugur í verki, Jónas Þórisson, Hjálpar- stofnun kirkjunnar, Jón Gunn- arsson, Landsbjörg, Þórir Stein- grímsson, slökkviliðsmaður í Slökkviliði Reykjavíkur, Gunn- ar Pétursson, varðstjóri í Slökkviliði Reykjavíkur, Sig- urður Steinar Ketilsson skip- herra á Tý og Sólveig Þorvalds- dóttir, framkvæmdastjóri Al- mannavarna ríkisins. Morgunblaðið/Egill Egilsson Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson AKRANESHOFN. Unnið að endurbótum á gamla „sementsgarðinum“. Nýtt stálþil hefur verið sett utan um hann. Gamli „sementsgarðurinn" á Akranesi endurbyggður Akranesi - Nú standa yfir miklar framkvæmdir við Akraneshöfn. Um er að ræða endurbyggingu á gamla sementsgarðinum svokallaða sem byggður var jafnhliða byggingu Sementsverksmiðjunnar á sjötta áratugnum. Framkvæmdir hófust á síðasta ári og er nú verið að ljúka öðrum áfanga þeirra af fjórum sem fyrirhugaðir eru. Lætur nærri að hér sé um að ræða framkvæmd sem kostar um 150 milljónir króna. Þessi gamli hafnargarður þarfn- ast mikilla endurbóta, að sögn Gísla Gíslasonar bæjarstjóra á Akranesi. Steinkerin sem garðurinn er byggð- ur á eru orðin gömul og morkin og má ekki tæpara standa að huga að endurbyggingu. Verkið verður eins og fýrr er sagt unnið í fjórum áföngum. Á síðasta ári var garður- inn breikkaður og grjótfyllingu komið fyrir. Þar var um að ræða framkvæmd fyrir um 15 milljónir króna. I öðrum áfanga, sem nú er langt kominn, var komið fyrir stál- þili og hefur verið unnið fyrir um 54 milljónir króna á þessu ári. Þriðji áfanginn er að ljúka við stálþilið og þar er um að ræða aðra eins upphæð og var í öðrum áfanga. Fjórði og síðasti áfanginn þar sem lokið verður gerð þekjunnar svo og að koma fyrir lögnum og lýsingu er áætlaður að upphæð um 30 millj- ónir króna. Þessi hafnargarður hefur að mestu verið notaður vegna starf- semi Sementsverksmiðjunnar og svo verður áfram. Þá er gert ráð fyrir þeim möguleika að koma upp þarna aðstöðu til gámaflutninga og yrði það þáttur í að aðskilja löndun á ferskum físki frá öðrum flutningi í Akraneshöfn. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir FRÁ verzluninni Lóninu. Áhugasamir Þórshafnarbúar á öllum aldri silja við tölvurnar og kynna sér veraldarvefinn. Starfs- menn Nett.is fylgjast með. Tölvukynning á Þórshöfn Þórshöfn - Sparisjóður Þórshafn- ar og nágrennis og Verslunin Lónið hér í bæ stóðu fyrir áhuga- verðri kynningu fyrir skömmu en það var sýning og tilboð á tölvum og prenturum í samvinnu við Tölvutæki-Bókval á Akureyri. Tölvumar vom til sýnis í Spari- sjóði Þórshafnar og versluninni Lóninu en þar voru einnig stadd- ir starfsmenn Nett.is sem kynntu möguleika veraldarvefsins, póst- sendinga og spjallrása fyrir áhugasömu fólki. Að sögn Steina Þorvaldssonar, framkvæmda- stjóra Lónsins, fékk þetta fram- tak góðar viðtökur og mun tölvu- eign Þórshafnarbúa og nærsveit- unga aukast nokkuð eftir þessa kynningu. Aðalfund- ur SSV AÐALFUNDUR Samtaka sveitar- félaga í Vesturlandskjördæmi stendur nú yfír í Hótel Stykkis- hólmi. Á fundinum sem hófst í gær var auk hefðbundinna aðalfundarstarfa m.a. rætt um sorpurðun, en ætlun- in er að í landi Fíflholta í Borgar- byggð verði tekið við öllu urðanlegu sorpi af Vesturlandi. Einnig flutti heilbrigðismálaráð- herra, Ingibjörg Pálmadóttir, erindi um stefnumörkun í heibrigðsmálum m.a. á Vesturlandi. Aðalfundinum lýkur síðdegis í dag. UNO D A N M A R K fafUn, *táttci,u(4ól& Tilhoð-iangur laugardagur 20—50% afsláttur uf barnafötum. Ný sending, nýjar vörur. Opið kl. 11-17. UNO DANMARK Vesturgötu 10A, S. 561 0404, (við hliðina á Naustinu).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.