Morgunblaðið - 02.11.1996, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 02.11.1996, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ W- m LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 27 unum þegar við rekumst á eitthvað gott annars staðar. Þvert á móti, við verðum að hafa augun opin.“ Á köflum segist hann hins vegar hafa lent í bobba á Islandi þar sem að það hráefni er hann venjulega notar var ekki til staðar, tO að mynda jRíeotta-ostur, sem er uppi- staðan í réttum á borð við Malfatti. Eftir nokkrar tilraunir með kota- sælu var hann hins vegar ánægður með árangurinn. Bragðið segir hann ekki hafa verið stóra vanda- málið, því hafí hann náð með því að blanda smá Parmigiano-osti saman við kotasæluna, heldur að ná nægi- legri samheldni í Malfatti-kúlurnar. Malfatti svipar að mörgu leyti tii Gnocchi en þetta eru litlar pasta- bollur úr Ricotta og hveiti sem stungið er ofan í sjóðandi vatn. „Almennt tel ég mig geta stað- hæft að ég nái hér allt að 90% sama bragðinu í sósur og annað með hrá- efninu sem hér er að fínna. Eg er mjög ánægður með það því að ef hlutfallið væri einungis 50% þá hefði það varla tekið því fyrir mig að koma hingað.“ Enzo segist ætla að bjóða upp á mjög breiða línu af Toscana-réttum meðan á íslandsdvölinni stendur og á kvöldin setur hann saman fjög- urra rétta matseðil er breytist dag- lega, sem sagt ekta II Menu Del Giorno. Á þessum fjöguiTa rétta matseðli reynir hann að hafa þrjá hefðbundna rétti og einn af þeim nýju réttum er hann hefur verið að þróa fram. „Ég reyni að gera ein- falda og mjög góða rétti því hluti af verkefni mínu hér er jú að miðla hugmyndum og tækni til íslensku kokkanna," segir Enzo. DAGLEGA er sett upp borð af ferskum fiski á Da Enzo, Mikilvæg kynsláðaskipti En hvernig útskýrir hann hinar stöðugu vinsældir ítalski-ar matar- gerðar utan Italíu? „Kokkar af minni kynslóð hafa lagt miklu meira í matinn en áður var gert er hefur stuðlað að auknum vinsældum. Þeir sem nú eru komnir á eftirlaun voni kokkar er oft létu duga að bera fram kartöflur og steik. Samkeppnin er miklu meiri nú og menn leggja mik- ið á sig til að gera betur. Veitinga- hús ganga líka flest í erfðir og yngri kynslóðir hafa verið að taka við. Flestir af fremstu kokkunum nú eru af minni kynslóð, menn um fertugt, fimmtugt. Næsta kynslóð verður hins vegar ekki síðri. Jafnvel miklu betri. Þróunin er stöðugt framávið." Réttír Enzns ENZO Parri féllst á að veita þessar uppskriftir að Malfatti, spínatfylltu Gnocchi með salvíusmjöri og ólívusósu fyrir pasta. Malfatti Hráefni: 500 g. kotasæla 300 g. soðið spínat Eittegg. 200 g. hveiti. 100 g. smjör. Salvía, múskat-krydd og salt eftir smekk. Ferskur Parmigiano-ostur. Aðferð: Blandið saman spínati, kotasælu, egginu, hveit- inu, saltinu og múskatki'yddinu. Gerið kúlur úr þessu annað- hvort með ísskeið eða höndun- um. Kúlumar eru soðnar í sjóð- andi, söltuðu vatni í u.þ.b. tíu mínútur eða þar til þær eru soðnar í gegn. Ekki ofsjóða. Takið kúlurnar upp úr og berið fram mjög heitar með bráðnu smjöri, salvíu og parmesanostin- um. Óiíx/usása Hráefni: 400 g. svartar, stein- lausar ólívur. 50 g. ski-ældur hvítlaukur. 20 g. fersk basilika. 200 g. ferskur parmigiano- ostur. Salt og pipar eftir smekk. 150 g. ólívuolía. Aðferð: Setjið hráefnið í mat- vinnsluvél og hakkið vel. Sósan hentar hvers kyns pasta og er ráðlegt að bæta smá smjöri við. Spínatfyiit Enacchi með sah/íusmjöri Gnocchi: 100 gr. soðnar kartöflur. 50 gr. hveiti. 1 eggjarauða. Salt eftir smekk. Salvíusmjör 75 gr. smjör 10 söxuð blöð af ferskri salvíu. Fylling: 50 gr. soðið spínat. 50 gr. ferskur rifinn Parmigi- ano. 1 eggjarauða. Ögn múskat og salt eftir smekk. Aðferð: Kartöflurnar eru stappaðar, hnoðaðar með hveit- inu, eggjarauðu og salti. Blandið öllu innihaldinu í fyllinguna saman. Deigið er flatt út á borði með nóg af hveiti. Þykktin á að vera um hálfur sm. Stingið út með hringlaga móti um 7 sm. í þvermál. Fyllingunni er síðan skipt á miðju hringanna, þeim lokað sem hálfmána og soðnir í ca. 12. mínútur í söltuðu vatni. Borið fram með salvíusmjörinu. Athugið að þessi réttur hentar fyrst og fremst sem forréttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.