Morgunblaðið - 02.11.1996, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.11.1996, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Forsetakosningarnar í Búlgaríu prófsteinn á stefnu stjórnar Zhans Videnovs Stoyanov tal- inn öniggnr með sigur Sofia. Reuter. FLEST bendir til öruggs sigurs lögmannsins og umbótasinnans Petars Stoyanovs, frambjóðanda stjórnarandstöðunnar, í seinni umferð forsetakosninganna í Búlgaríu, sem fram fara á morg- un, sunnudag. Kosið verður milli Stoyanovs og Ivans Marazovs, menningarmálaráðherra, fram- bjóðanda Sósíalistaflokks Zhans Videnovs, forsætisráðherra. Stoyanov mun lítinn tíma hafa til að fagna sigri því við þeim, sem tekur við völdum, blasir gífurleg og versnandi efnahagskreppa. Samkvæmt skoðanakönnun Gall- ups nýtur hann fylgis 64% kjós- enda en Marazov einungis 36%. Könnun annarrar markaðsrann- sóknastofnunar mældi fylgi Stoy- anovs 57% og fylgi Marazovs 37%. Prófsteinn Að sögn stjórnmálaskýrenda hafa kosningarnar snúist upp í þjóðaratkvæði um stefnu ríkis- stjórnar sósíalistaflokks Zhans Videnovs forsætisráðherra. Segja þeir, að gjaldi frambjóðandi flokksins, Marazov, afhroð muni það draga dilk á eftir sér, leiða til klofnings í flokknum og stjórn- aruppgjörs. Videnov sagði í vikunni, að upp- stokkun í ráðherraliðinu kæmi ekki til greina, en stjórnmálaskýr- endur sögðu hann ekki myndu eiga annarra kosta völ. Hann yrði jafn- vel að mynda nýja samsteypu- stjórn eða hugsanlega boða til nýrra þingkosninga. Stoyanov er frambjóðandi flokks and-kommúnista, Lýðræð- issambandsins. Hann segir efna- hagsástandið svo slæmt, að al- mennir borgarar viti ekki hvað bíður þeirra næsta dag er þeir ganga til rekkju að kvöldi. Verði þeir að velja milli þess að kaupa sér mjólk eða brauð eða að kveikja á rafmagnstækjum. Matvæla- og eldsneytisskortur er viðvarandi og þykir eiga eftir að aukast í vetur. I gær áttu að hefjast viðræður fulltrúa ríkisstjórnarinnar og Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF). Búlgarar hafa farið fram á lána- fyrirgreiðslu sem þá sárvantar en búist er við, að IMF setji ströng skilyrði fyrir þeim. Reuter ALDRAÐUR Búlgari hirðir úr ruslatunnu drasl til að selja í endurvinnslu. Bakvið hann eru kosningaspjöld Petars Stoy- anovs, sem flest bendir til að kjörinn verði forseti í stað Zhelyu Zhelevs. Hjartaaðgerðin á Jeltsín Rússlandsforseta Búist við ákvörðun á hverri stundu Moskvu. Reuter. GERA má ráð fyrir því að ákveðið verði á hverri stundu hvenær Bor- ís Jeltsín Rússlandsforseti verði skorinn upp, að sögn Sergejs Jastrzhembskís, talsmanns forset- ans, í gær. Hann sagði að læknar forsetans bæru nú saman bækur sínar daglega. Bandaríski skurð- læknirinn Michael DeBakey segir Jeltsín vera „ágætlega á sig kom- inn“ og hægt verði að skera hann upp í næstu viku. Jeltsín dvelst nú á Barvíkha- heilsuhælinu, skammt frá Moskvu. Hann þjáist af lélegu blóðstreymi til hjartans og hefur fengið nokkur hjartaáföll á undanförnum árum. Víktor Tsjernomýrdín forsætisráð- herra tekur við skyldustörfum Jeltsíns, þ. á m. æðstu yfirstjórn kjamorkuheraflans, meðan á að- gerðinni stendur. Sagði Jastrz- hembskí að forsetinn hefði undir- ritað tilskipun um að Tsjernomýrd- ín fengi tímabundna heimild til að gera samninga fyrir hönd embætt- isins við stjómvöld í einstökum hémðum Rússlands. Ekki bein útsending Talsmaðurinn sagðist hafa fulla samúð með því sjónarmiði læknis- ins sem annast mun uppskurðinn, Renats Aktsjúríns, að óþarft væri að skýra fyrirfram frá dagsetning- unni en það yrði samt sem áður gert. Á hinn bóginn vísaði Jastrz- hembskí eindregið á bug orðrómi um að sjónvarpað yrði frá aðgerð- inni. „Uppskurðurinn sjálfur og allt sem hann snertir er ekki einhvers konar leiksýning og það verður að sjálfsögðu ekki um beina út- sendingu að ræða,“ sagði hann. Jastrzhembskí sagði að erlendir læknar myndu ekki verða til stað- ar í skurðstofunni en DeBakey veitir rússneskum læknum forset- ans nú ráðgjöf. Hefur hann útveg- að læknunum fullkomin tæki af sjúkrahúsi sínu í Bandaríkjunum og er að sögn talsmanns forsetans væntanlegur til Moskvu um helg- ina. DeBakey sagði í viðtali við blaðið Moskovskí Komsomolets í gær að aðgerðina á Jeltsín yrði hægt að framkvæma hvenær sem væri í næstu viku, ekkert væri því til fyrirstöðu. „Læknunum hefur tekist að vinna bug á hættulegu blóðleysi og aúka virkni skjaidkirtilsins," sagði DeBakey og taldi undirbún- ing fyrir aðgerðina hafa tekist mjög vel. Danir bjóða Rushdie Kaupmannahöfn. Reuter. DANSKA stjórnin lét undan alþjóð- legum þrýstingi í gær og ákvað að bjóða breska rithöfundinum Salman Rushdie til Kaupmannahafnar til að taka við bókmenntaverðlaunum Evr- ópusambandsins (ESB). Danir báru við öryggisástæðum er þeir tilkynntu, að ekki gæti orðið af því að Rushdie fengi verðlaunin afhent í Dan- mörku. Sögðu þeir lögregluna 'of hart keyrða í glímunni við norræn mótor- hjólagengi sem borist hafa á bana- spjót þar í landi. Til stóð að afhenda þau í Kaup- mannahöfn, menningarhöfuðborg Evrópu 14. nóvember, en athöfninni hefur verið frestað fram í desember og er dagsetning hennar óákveðin. Rushdie fagnaði ákvörðun dönsku stjórnarinnar í samtali við BBC- útvarpsstöðina. Hann hefur farið huldu höfði frá 1989 er Iranir lýstu hann réttdræpan vegna bókarinnar Söngvar Satans, skáldverks þar sem spámaðurinn Múhammed er m.a. gagnrýndur. j Rushdie Frekari sannanir fyrir lífi á Mars London. Reuter. BRESKIR vísindamenn skýrðu frá því á fimmtudag, að þeir hefðu fundið frekari sannanir fyrir þeirri kenningu bandarískra geimvísindamanna, að líf hefði þróast á Mars. Studdust Banda- ríkjamennirnir við rannsóknir á loftsteini, sem borist hafði frá Mars til jarðar, en Bretarnir rannsökuð jafnt hann sem annan yngri. Telja þeir hugsanlegt, að enn sé að finna örverulíf á plán- etunni. „Við teljum þetta styðja þá til- gátu, að líf sé að fínna á Mars,“ sagði Colin Pillinger, stjarnfræð- ingur við Opna, breska háskólann, á ráðstefnu í fyrradag. Sagði hann, að hann og samstarfsmenn hans hefðu skoðað nánar sýnis- horn úr loftsteininum ALH84001, sem NASA, Bandaríska geim- ferðastofnunin, hefði haft til rann- sóknar, og fundið kolefnissam- sætu, sem oft væri afurð örveru- lífs á jörðu. Kolefni 12 NASA vakti mikla athygli í ágústsl. þegar tilkynnt var, að ýmis efni og efnasambönd í loft- steininum hefðu líklega verið fram- leidd af örsmáum bakteríum en síðan hafa ýmsir orðið til að draga þá niðurstöðu í efa. Pillinger sagði hins vegar, að þeir hefðu fundið kolefni 12 i sýnishomunúm. „Það eina, sem inniheldur kol- efni 12 á jörðu, er metan, sem örverur framleiða," sagði hann. Auk rannsókna á ALH84001 skoðuðu bresku vísindamennirnir nánar annan loftstein, EETA- 79001, en talið er, að hann hafí yfirgefið Mars fyrir 600.000 árum en hinn fyrir 16 milljón árum. Kom þeim niðurstaðan á óvart. I honum fundu þeir einnig lífrænt efni, sem þó á eftir að kanna nánar. Sagði Pillinger, að af þessum sökum væri ekki óhugsandi, að frumstætt líf þrifíst enn á Mars. Skilyrðum efnavopna- banns fullnægt UNGVERJAR urðu í vikunni 65. aðildarþjóð Sameinuðu þjóðanna sem staðfesti bann við allri notkun efnavopna og mun því alþjóðasamningur í þá veru taka gildi 29. apríl nk. Fulltrúar 160 aðildarþjóða hafa þegar undirritað samn- inginn. Eru í þeim hópi öll stórveldin sem hafa fast sæti í öryggisráðinu en aðeins tvö þeira, Bretland og Frakkland, hafa endanlega staðfest sam- komulagið. Svipaður samn- ingur tók gildi árið 1975 um bann við notkun sýklavopna. í samningi sem gerður var í Genf árið 1925 er kveðið á um bann við gashernaði en hins vegar ekki við tilraunum og framleiðslu á slíkum vopn- um og ríki mega eiga birgðir af þeim. Reuter ARAFAT heilsar Prím- akov á skrifstofu sinni í Gaza í gær. Prímakov vongóður um frið JEVGENÍ Prímakov, utanrík- isráðherra Rússlands, átti fund með Yasser Arafat, for- seta Palestínumanna, í Gaza í gær og sagðist eftir hann vera vongóður um að friðar- viðræður í Miðausturlöndum myndu bera árangur. Það gætu þó liðið nokkrir mánuðir áður en mál tækju að þokast fram á við á ný en mikil spenna hefur verið í samskipt- um araba og ísraela eftir að stjórn hægrimannsins Beny- amins Netanyahus tók við í ísrael fyrr á árinu. Prímakov, sem hefur heimsótt nokkur ríki Miðausturlanda síðustu daga, sagði Rússa vilja auka þátttöku sína í friðarviðleitn- inni. Spáir endan- legu hruni kommún- ismans LECH Walesa, fyrrverandi forseti Póllands, er í fimm daga heimsókn á Tævan og hrósaði hann í gær lýðræðis- umbótum í eyríkinu. Spáði Walesa því að kommúnism- inn, sem enn er að nafninu til við lýði í Kína og fáeinum ríkjum að auki, myndi endan- lega leggja upp laupana á næstu fimm árum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.