Morgunblaðið - 02.11.1996, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.11.1996, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ íslenskujóla- sveinarnir ájólaefni BJARNI Jónsson listmálari hefur hannað ogteiknað íslensku jólasvein- ana á jólaefni sem nú er til sölu. Jólasveinarnir eru þrettán og er efn- ið ætlað bæði í gluggatjöld og dúka. Efnið er 1,40 sm á breidd og kostar 1.130 krónur metrinn. Metrinn af eldhúskappa, földuðum og frágengn- um að ofan, 65 sm á hæð, er á sama verði. Dúkaefnið verður framleitt með þvottekta vistvænni akrýlhúð. Efnið fæst í Vogue verslununum, Allt búðinni í Breiðholti, kaupfélög- unum á Vopnafirði, Höfn, Hvolsvelli, Borgarfírði, Dýrafírði og Sauðár- króki, Felli í Grundarfirði, Undir nálinni í Vestmannaeyjum, Ósk á Akranesi. Kotru á Dalvík, Dalakjöri í Búðardal, Kjallaranum á Patreks- fírði og Palómu í Grindavík. Tilboð á No7 snyrtivörum UM þessar mundir er tilboð á No7 snyrtivörum, þ.e. hreinsilínu og kremiínu fyrirtækisins. Viðskiptavin- ir fá tvær vörutegundir á verði einn- ar. Tilboðið gildir meðan birgðir end- ast og þær fást í ýmsum snyrtivöru- verslunum og apótekum. ----♦ ♦ ♦--- Jarðarber á tilboðsverði HRAÐBÚÐIR Essó eru með tilboð á jarðarbeijum um þessar mundir. Kostar 250 gramma askja af jarðar- berjum 99 krónur og stendur tilboðið meðan birgðir endast. Hraðbúðir Essó eru á fimm stöðum á höfuðborg- arsvæðinu, við Gagnveg, Skógarsel og Ægisíðu í Reykjavík, við Stóra- hjalla í Kópavogi og Lækjargötu í Hafnarfirði. ----♦ ♦ ♦--- V eitingahúsasýning í Perlunni Bitiaf Reykjavík í DAG, laugardaginn 2. nóvember, og á morgun, sunnudaginn 3. nóv- ember, stendur yfir veitingahúsasýn- ing í Periunni. Yfirskrift sýning- arinnar er Biti af Reykjavík en til- gangurinn er að kynna veitingahúsa- líf Reykjavíkur fyrir gestum. Um 35 veitingastaðir og þjónustu- fyrirtæki tengd veitingarekstri taka þátt í kynningu þessari og fá gestir að smakka á ýmsum réttum. Allur ágóði sýningarinnar rennur til góð- gerðarmála og er sýningin opin frá 13-18 báða dagana. Nýtt upplýsingarit VERIÐ er að dreifa á heimili þjón- ustuskrá Gulu línunnar sem ber nafnið A til Ö. Handbókin inniheldur upplýsingar um öll fyrirtæki, stofn- anir og alla þjónustu á höfuðborgar- svæðinu, alls um 9.000 nöfn. Auk þess er að fínna í henni götukort. Bókin er 400 blaðsíður og gefín út í 70.000 eintökum. Enskjólakaka Bökuð átta vikum fyrir jól ÞEIR sem hafa vanist því að baka ekta enska jólaköku fyrir jólin fara að huga að bakstri núna. Kate Harrison hefur verið búsett á ís- landi síðastliðin tíu ár en alltaf far- ið til Bretlands um jólin nema síð- ustu tvö ár. „Ég er alin upp við enska jólaköku og þekki reyndar enga breska fjölskyldu sem ekki borðar ekta enska jólaköku um jól- in. Kökumar eru skreyttar með litl- um jólasveinum, eða hreindýrum úr plasti en sumir búa til fígúrur úr marsípani og skreyta þannig.“ Kate segir að kökuna þurfi að baka átta vikum fyrir jól og síðan er kakan vikulega tekin fram og áfengi dreypt yfir hana. „Fólk not- ar áfengi eftir smekk. Ég notaði viskí í fyrra í staðinn fyrir koníak og veit að fólk notar allt að hálfri flösku í kökugerðina! Kate segir að í fyrra hafí hún aðeins breytt uppskriftinni. í hana á að nota kúrenur (currants), kú- rennur (sultanas) og rúsínur. Hún fann kúrennur í Kornmarkaðnum en notaði gulleitar rúsínur í stað þeirra sem kallast á ensku currants. Kökuna á að þekja með marsíp- ani 10 dögum fyrir jól og setja sykurbráðina á nokkrum dögum fyrir jól. Ensk jólakakn 450 g kúrennur (currants) 175 g Ijósar rúsínur (sultanas) 175 g rúsínur 50 g gljóð kirsuber, hreinsuð og skorin í fínlega bita 50 g sykraður börkur, fínt niðurskorinn 3 msk koníak (viskí) 225 g hveiti Vitsk salt 'Atsk ferskt malað múskat 'ótsk kökukrydd (kanill, engifer. . . ) 225 g ósaltað smjör 225 g púðursykur 4 stór egg 50 g niðurskornar möndlur meó húð 1 msk Ijóst síróp _____börkur af einni sitrónu börkur af einni appelsínu Hitið ofninn í 140°C. Hyljið hringlaga jólakökumót (20x18) með bökunarpappír. Kvöldið áður en gera á kökuna eru allir þurrkað- ir ávextir og börkur sett í skál og látið liggja í koníaki í að minnsta kosti tólf tíma. Hyljið skálina með hreinum bómullarklút. Sigtið hveiti, salt og krydd í skál og þeytið síðan saman í annarri skál sykur og smjör þangað til blandan er orðin ljós og létt. Þeyt- ið eggin og setjið út í sykurblönd- una. Þegar búið er að bæta öllum Morgunblaðið/Árni Sæberg KATE Harrison bakar ekta enska jólaköku átta vikum fyrir jól. ) > eggjunum í bætið þá í sykurblönd- una hveiti og kryddi. í lokin er ávöxtum og berki hrært samanvið deigið, svo og möndlum. Setjið deigið í kökuformið. Hyljið topp kökunnar með smjörpappír og not- ið brúnan pappír eða smjörpappír meðfram forminu. Bakið kökuna neðarlega í ofni í um fjórar og hálfa klukkustund og ekki opna ofninn fyrr en að minnsta kosti fjór- ar klukkustundir eru liðnar. Þegar kakan er orðin köld pakk- ið henni inn í smjörpappír og setjið í loftþétt ílát. (Dollur undan Mac- hintosh sælgæti eru tilvaldar). Tak- ið kökuna út vikulega, gerið lítil göt á pappírinn eða takið hann af og sprautið koníaki eða viskíi með lítilli sprautu hér og hvar í kökuna. Tíu dögum fyrir jól er kakan tekin út og hún þakin með marsíp- ani. Fyrst er kakan smurð með marmelaði og síðan þakin með marsípaninu. Leyfíð marsípaninu að þorna á kökunni og hafið hana þá ekki í pappír en áfram í loft- þéttu dollunni. Sykurbráð er sett ofan á kökuna tveimur dögum fyrir jól: 500 g flórsykur 3 eggjahvítur 1 'Amsk sítrónusafi Sigtið flórsykur og þeytið eggja- " hvítur lauslega. Bætið sykri í eggin og sítrónusafa. Þeytið kröftuglega með trésleif þangað til blandan er orðin mjúk og hvít en mjög stíf. Setjið kökuna á fallegan disk, þekið með sykurbráð og skreytið. Hefðbundin kaka er skreytt með plastdýrum, plasttrjám og hrein- . dýrum. Einnig má skreyta með * marsípanfígúrum. Kökuna má ljúka við nokkrum | dögum fyrir jól en sykurbráðin harðnar með tímanum. Brauðgerðin Krútt á Blönduósi Nýtt Kynnir tvenns konar brauð á íslenskum dögum BRAUÐGERÐIN Krútt á Blöndu- ósi tekur þátt í íslensku átaki sem um þessar mundir stendur yfír á Norðurlandi. „Við erum með vöru- kynningar í verslunum á Blönduósi og Skagaströnd þar sem við kynn- um ný brauð“, segir Óskar Hún- fjörð eigandi brauðgerðarinnar Krútt á Blönduósi. Um er að ræða matarbrauð sem hafa verið í þróun undanfarið ár, endurbætt pálma- brauð og þriggja korna brauð í nýjum umbúðum. „Nöfnin eru ekki ný á brauðunum en samsetningin er ný. “ Brauðgerðin Krútt hefur verið starfrækt á Blönduósi frá árinu 1968 en það var faðir Ósk- ars, Þorsteinn Húnfjörð, sem stofn- aði hana. Hann starfar reyndar enn við bakaríið en feðgarnir eru báðir bakarameistarar. Ekta súrdeigsbrauð „Á tímabili var rekstur brauð- gerðarinnar mjög umfangsmikill. Við vorum með þijá bíla í út- keyrslu og seldum brauð um allt land. Samkeppnin hefur hinsvegar harðnað mikið og við drógum okk- ur til baka af þeim markaði og settum upp brauðbúð á Blönduósi sem hét Krútt kökuhús. Þetta var eitt fyrsta konditori á íslandi.“ Óskar segist hafa hætt þeim rekstri eftir sex ára tímabil, það var mikið að gera yfir sumarmán- uðina en heimamarkaður ekki nægilega stór til að halda bakarí- inu opnu yfir vetrarmánuðina. Vöruþróun okkar hefur leitt af sér sérstök brauð sem við ætlum að markaðssetja von bráðar. Það eru ekta súrdeigsbrauð og ég held að við séum nánast einir á landinu sem notum gamalkunnar Morgunblaðið/Jón Sigurðsson FEÐGARNIR Óskar og Þorsteinn Húnfjörð. vinnsluaðferðir með súrdeig í bakstur okkar. Auk brauðgerðar- innar reka Óskar og fjölskylda Blönduskálann á Blönduósi og einnig Sveitasetrið sem er hótelið á Blönduósi. „Þar höfum við verið að vinna okkur upp og staðið í endurbótum á húsnæði og þjón- ustu. Við létum endurhanna hús- næðið og erum komnir áleiðis með þær breytingar.“ Óskar segir þá leggja áherslu á vandaðan veit- ingasal því á veturna gegnir hótel- ið hlutverki samkomu- og skemmtistaðar líka. Rekstur þessarar athafnafjöl- skyldu er ekki upptalinn því kona Óskars, Brynja Ingibersdóttir, er útibússtjóri ÁTVR á Blönduósi auk þess sem hún rekur þar efnalaug og þvottahús. Næring og heilsa í Blómavali í DAG, laugardag, og á morgun verður dagskrá á Græna torginu í Blómavali við Sigtún sem nefn- ist Næring og heilsa. Hallgrímur Þ. Magnússon læknir heldur stutta fyrirlestra klukkan þijú og fjögur um næringu og heilsu og svarar fyrirspumum. Einnig mun Ragnar Þjóðólfsson kynna drottningarhunang og blómafijó- kom frá tvö til sex báða dag- ana. Upplýsingarit liggja frammi og 10% afsláttur er veittur af þessum fæðubótarefnum. Snuð sem er hitamælir í apótekum og hjá B. Magnússyni er nú hægt að kaupa sérstök snuð sem gegna hlutverki hitamælis líka. Potta- galdrar í vín-anda POTTAGALDRAR í vín-anda er ný 1 framleiðslulína fyrirtækisins Potta- galdra. Á ensku verður hún sett á | markað undir nafninu Potmagic in * Spirit. Er um að ræða kryddblöndur sem eru vættar í ýmsum víntegund- um uns kryddin hafa mettast. Verð- ur þá til blautur kryddmassi. Sjö mismunandi afbrigði koma á markað um miðjan nóvember, villi- jurtir í koníaki, villijurtir í púrtvíni, villijurtir í rauðvíni, creole í rauð- s víni, ítalskt pastakrydd í rauðvíni, fískikrydd í hvítvíni og lamb Island- ia í hvítvíni. í fréttatilkynningu frá Potta- göldrum segir að varan hafi verið reynd við matreiðslu um hálfs árs skeið og má meðal annars nota hana í kryddlög á kjöt og fisk eða sem bragðbæti í sósur og súpur. Þá má nota kryddmassann í paté- gerð, í pottrétti, í innbakaða rétti, í fyllingar í fugla og margt fleira. j Engum aukefnum er bætt í fram- leiðsluna og í þeim tilfellum sem salti er bætt í vörulínu Pottagaldra er um að ræða Eðalsalt. Morgunblaðið/Emilía
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.