Morgunblaðið - 02.11.1996, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Rax
Franskra
sjómanna minnst
Ambassador Frakka á íslandi
M. Robert Cantoni minntist á
föstudag frönsku fiskimannanna,
Les Pecheus d’Islande, sem í ald-
ir veiddu á skútum sínum við
Island, með því að leggja blóm-
sveig að minnisvarðanum um þá
í kirkjugarðinum við Suðurgötu.
En á honum stendur á frönsku
og íslensku upphafið á sögu Pi-
erres Lotis: „Hann kom aldrei
aftur. Agústnótt eina var þar
efnt til brúðkaups hans og Rán-
ar“.
Við þetta tækifæri sagði Can-
toni sendiherra m.a. að franskir
ferðamenn, sem koma í æ ríkari
mæli til íslands, hafi látið í ljós
við sendiráðið hve ánægðir þeir
séu með að sjá hve vel sé hirt
um grafir frönsku sjómannanna
í kirkjugörðunum hér á landi.
Stundum berist bréf frá Frökk-
um með fyrirspurn um ættingja
þeirra sem voru grafnir hér. Og
þar sem skráning sé hér svo góð
í skjalasöfnum, geti þeir veitt
þeim úrlausn. Hann sagði einnig,
að íslendingar þekktu betur en
nokkrir aðrir harðræði það sem
sjómenn í bátum í vondum veðr-
um verða fyrir og hann hefði
sjálfur hitt ekki svo gamla ís-
lendinga sem enn myndu eftir
því að hafa séð kistur franska
sjómanna bornar til kirkju.
Myndin var tekin þegar Robert
Cantoni sendiherra Frakka
minntist franskra sjómanna við
minnisvarðann um þá í Suður-
götukirkjugarði.
Bið eftir aðgerðum
Ráðherra
geri út-
tektá
áhrifum
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
hefur verið beðinn að gera
úttekt á áhrifum langrar biðar
eftir læknisaðgerðum. Það
eru allir ellefu þingmenn jafn-
aðarmanna, sem standa að
beiðni um skýrslu frá ráðherr-
anum um málið, en beiðnin
var lögð fram á Alþingi í síð-
ustu viku. Fyrsti flutnings-
maður er Jóhanna Sigurðar-
dóttir.
Beiðnin gengur út á, að
heilbrigðisráðherra flytji Al-
þingi skýrslu um biðlista hins
opinbera, félagslegt öryggi og
fjárhag sjúklinga og fjöl-
skyldna þeirra sem á biðlist-
um eru, sem og áhrif langrar
biðar eftir aðgerð á framvindu
sjúkdóma og sjúkdómsein-
kenni.
Listarnir lengjast
I greinargerð með skýrslu-
beiðninni er vísað til þess, að
sparnaðaraðgerðir í heilbrigð-
isþjónustunni hafi valdið því
að biðlistar séu sífellt að
lengjast. Dregið er í efa, að
sífellt lengri biðlistar leiði til
sparnaðar; þeir hafi þvert á
móti útgjöld í för með sér,
ekki eingöngu fyrir ríkissjóð,
heldur einnig sjúklingana sem
bíða og íjölskyldur þeirra. Það
sé því nauðsynlegt að ýtarleg
úttekt fari fram á því hvað
lengri biðlistar kósti ríkissjóð,
heimilin og samfélagið í heild
sinni.
Ennfremur er vísað til þess
í greinargerðinni, að erlendis
hafi víða verið settar reglur
um hámarksbið eftir aðgerð-
um og heilbrigðisþjónustu.
Þetta sé tilfellið t.d. í Svíþjóð,
Noregi og Danmörku. Hvatt
er til, að slikar reglur verði
einnig settar hérlendis.
SJÁÐU PEUGEOT
Notaðu tækifærið um helgina og sjáðu bílana sem
þú sérð ekki annars staðar. Komdu og sestu undir stýri
og þú kemst í beina snertingu við nýja hugsun, nýjar línur
og ný þægindi í akstri. Sjáðu bílana sem marka tímamót
í evrópskri bílaframleiðslu.
Frí vctrardckU fylgja
cf þú staðfcstir pöntun
á Peugcot um hclgina.
Peugeot 306 * *
Hér fara saman þægindi, öryggi og kraftur
- og rýmið kemur á óvart.
Peugeot 306 er lipur bíll og stærri en hann sýnist.
i * Opið laugardag og sunnudag *.
* . . frá kl. 12-16.
PEUGEOT
- þekktur fyrir þœgindi
t 9 4 6 - l 9 9 6
Nýbýlavegi 2 • Sfmi 554 2600
*Peugeot 406 *
Frægur fyrir einstaka fjöðrun og aksturseiginleika.
Kraftmiklar 1600 cc eða 2000 cc vélar, loftpúði
í stýri, lúxusinnrétting. Þægindi í akstri eins
og þau gerast best.
Veitingar
í boði:
♦
Peugeot Boxer * ’ • .
Sterkir og rúmgóðir fólksflutninga- eða sendibílar
- fyrir fagmennina og fyrirtækin.
Turbo disil- eða bensínvélar.