Morgunblaðið - 02.11.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 13
FRÉTTIR
Félagsmálaráðherra um fyrirhugaða breytingu á jafnréttistilskipun ESB
Hefur trúlega ekki afger
andi þýðingu hér á landi
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra segist ekki hafa trú á því
að fyrirhuguð breyting á jafn-
réttistilskipun Evrópusam-
bandsins, sem fela mun í sér að
aðeins stífur og ófrávíkjanlegur
kynjakvóti við stöðuveitingar
verði óheimill, muni hafa neina
afgerandi þýðingu hér á landi,
en samþykki ráðherraráð ESB
breytinguna á tilskipuninni mun
hún einnig taka gildi hér á landi
þar sem hún er hluti EES-samn-
ingsins.
„Varðandi þennan kynjakvóta
er ég andvígur því að fara að
mismuna fólki. Eg tel að menn
eigi að njóta hæfileika sinna af
hvoru kyninu sem þeir eru og
að annað kynið skuli hafa algeran
forgang finnst mér ekki rétt og
reyndar ekki í því nein jafnréttis-
hugsun. Það hefur verið talað
um jákvæða mismunun en ég
felst ekki á það hugtak. Mér
finnst að mismunun geti aldrei
verið jákvæð og að það eigi að
stefna að jöfnuði eftir öðrum leið-
um en með svoleiðis valdboði,"
sagði Páll.
Tilraunaverkefni um
kynhlutlaust starfsmat
Hann sagðist telja mikilvægt
að hlutur kvenna aukist frá því
sem nú er, sérstaklega hvað
launamun varðar, og reyndar sé
mikil vinna unnin í félagsmála-
ráðuneytinu í því skyni. Þar sé
verið að hleypa af stokkunum
kynhlutlausu starfsmati og ný-
lega hafi verið ráðinn sérstakur
starfsmaður til að vinna að því
verkefni. Hugmyndin væri að
fara út í tilraunaverkefni þar sem
tekin væru fyrir tvö ríkisfyrir-
tæki eða stofnanir, ein borgar-
stofnun eða fyrirtæki í Reykjavík
og eitt fyrirtæki i einkageiranum
eða samvinnugeiranum, til að
prófa hvemig kynhlutlaust
starfsmat kæmi út.
„Ég tel að það sé mikilvægt
að bæði kynin fái tækifæri til að
njóta sín og ég held að það sæki
mjög í þá áttina. Það er ekki
heppilegt að vinnustaðir séu
mannaðir eingöngu af öðru kyn-
inu eða að starfsstéttir séu mikið
til kynbundnar,“ sagði félags-
málaráðherra.
Vissir þú að mest seldi jeppinn d íslandi
kostar álíka mikið og meðalstór fólksbill?!
ALDREI X
BETRAVERÐ \
3-d: 1.675.000 kr.
5-d: 1.940.000 kr.
V-6:2390.000 kr.
handskiptir y
‘ \
i
/
SUZUKI i VITARA
1
I
SUZUKl VITARA V6: 2.390.000 KR.
SUZUKIVTTARA JLX, 3 DYRA: 1.675.000 KR.
SUZUKIVITARA JLX, 5 DYRA: 1.940.000 KR.
Allar gerðir af VITARA
koma fullbúnar með miklum
þægindum og öryggisbúnaði:
Vökvastýri samlæsingar, rafdrifnar rúðu-
vindur, rafstýrðir útispeglar, tveir öryggis-
loftpúðar, styrktarbitar í hurðum, barna-
læsingar, upphituð framsæti, þvottasprautur
fyrir aðalljósker, þurrkur og rvottasprautur
á afturrúðu, bílbelti með hæðarstillingu,
dagljósabúnaður.
Auk alls þessa fæst VITARA jeppinn að
sjálfsögðu með sjálfskiptingu og margs konar
öðrum aukabúnaði.
Engar dhyggjur af
vetrarveðri og fœrðl
Hvaö hentar betur við íslenskar
aðstæður en lipur VITARA?
Oruggur og traustur úti á vegum
- en pægilegur í innanbæjarakstri
að auki. Þú kemst það sem þú
þarft; þegar þú þarft þess. Og svo
verða ferðalögin miklu
skemmtilegri1.
Fáránlept1"
Vhveriu r&tti — ð v , ö
'££7***
g ,n eyðir rneira að segja ekki
'an
jeppa
' nema
Sagt með stjörnur í augum eftir prufuakstur
í Vitara föstudaginn 25. október, 1996.
SUZUKI SÖLUUMBOÐ:
Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2. Sími 431 28 00
Akureyri: BSA hf. Laufásgötu 9. Sími 462 63 00.
Egilsstaðir: Bíla og búvélasalan hf. Miðási 19. Sími 471 20 11.
Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8. Sími 421 12 00.
Hafnarfjörður: Guðvarður EÍíasson, Grænukinn 20. Sími 555 15 50.
SUZUKIBÍLAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.
Komdusjálfum þárog
fjölskyldu þinni á óvart.
Prufukeyrðu VITARA í dag!