Morgunblaðið - 02.11.1996, Page 18
18 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERIIMU
57. aðalfundur LÍÚ
Fráleitt er að til
átaka við sjómenn
þurfi að koma
Kjarasamningar LIU við sjómenn
renna út um áramót
„MIKILVÆGT er að samskipti
okkar við sjómenn mótist af sann-
girni og við misbjóðum þeim ekki
í þeirri framkvæmd, sem okkur
er falin með nýtingu veiðiréttar
einstakra skipa. Miðað við aðstæð-
ur og hve sjómenn eru vel launað-
ir, tel ég fráleitt að til átaka þurfi
að koma á næsta ári,“
sagði Kristján Ragn-
arsson, formaður LIÚ,
m.a. í setningaræðu
sinni á aðalfundi LÍÚ.
Hann sagði að sum
atriði kjarasamninga
þörfnuðust tafarlausr-
ar endurskoðunar,
eins og þau atriði, sem
lúta að því að launa-
greiðslur hækki í heild
við fækkun í áhöfn.
Ennfremur vektu at-
hygli innbyrðis deilur
sjómanna um hluta-
skipti, þar sem vél-
stjórar ætluðu sér
stærri hlut á kostnað
annarra skipveija.
Slíkar deilur gætu orðið torleyst-
ar, þar sem áhöfn deilir innbyrðis
og útgerðin gæti ekki orðið að liði
við að fínna lausn.
Laun verði í réttu
hlutfalli við tekjur
„Ég fullyrði að efnahagsleg
framtíð okkar og uppbygging vel-
ferðarþjóðfélagsins er nú meira
en nokkru sinni fyrr undir því
komin hvernig ykkur tekst að
vinna úr þeim verkefnum sem
framundan eru. Ef tryggja á stöð-
ugleika og efnahagslegar framfar-
ir í landinu á næstu árum, verður
að hafa þá meginreglu að leiðar-
Ijósi að laun' og annar tilkostnaður
verði í réttu hlutfalli við þær tekj-
ur, sem sjávarútveg-
urinn fær fyrir að selja
afurðir sínar,“ sagði
Kristján í ræðu sinni
til útvegsmanna.
Sameiginlegt
verkefni
Hann sagði þetta
að sjálfsögðu vera
sameiginlegt verkefni
atvinnurekenda og
launþega, en það væri
á ábyrgð útvegs-
manna að finna og
ná samstöðu um það
jafnvægi sem skapað
gæti nauðsynlega
sátt í landinu á hverj-
um tíma. Baráttan
snerist um það að hafa betur í
samkeppni á erlendum mörkuðum
við sjávarútveg samkeppnisland-
anna.
„Komi til átaka á vinnumark-
aði, sem við öll vonum að gerist
ekki, má ekki til þess koma að
menn láti stjórnast af stundar-
hagsmunum. Þann efnahagslega
ávinning og stöðugleika, sem nú
er, má ekki leggja fyrir róða.“
Kristján
Ragnarsson
formaðuir LÍÚ.
Morgunblaðið/Golli
SAMHERJAR. Björgólfur Jóhannsson, yfirmaður markaðs- og þróunarsvið Samherja og fram-
kvæmdastjóri Friðþjófs á Eskifirði, Gísli Baldur Garðarsson, lögfræðingur Samherja, og Þorsteinn
Vilhelmsson, einn eiganda fyrirtækisins, á aðalfundi LIÚ.
Ekkert skip í smíðum
fyrir okkur hérlendis
KRISTJAN Ragnarsson, formaður
LÍÚ, telur það vera alvarlegt mál
að nú sé ekkert skip í smíðum fyr-
ir landsmenn hérlendis, en flutt
hafí verið til landsins nokkur 20
ára gömul skip til endurnýjunar
eldri loðnuskipa. Við augum blasi
að farið er fram hjá gildandi reglum
í þessu efni með því að smíða skip
í áföngum.
„Þetta er óþolandi ástand og
mikil hætta því samfara að við
fylgjum ekki þróun í gerð og bún-
aði skipa ef við höldum áfram þeim
hindrunum, sem við fylgjum nú,“
segir Kristján og vísar til svokall-
aðra úreldingarreglna, þ.e. að rúm-
metri komi í stað rúmmetra í skipi
sem sé endurnýjað.
Stjórnvöld skipti sér
ekki af stærðum skipa
„Telji stjórnvöld afnám reglna
hafa of mikla röskun í för með sér,
tel ég að taka eigi verulegan áfanga
nú þegar til að rýmka reglurnar og
marka leið til afnáms þeirra. Við
megum ekki gleyma því að ekki
hefði komið til sóknar utan lögsögu
nema af því að við áttum öflug
skip til þeirra veiða sem hafa fært
verulega björg í bú.
Síðasti aðalfundur LIU sam-
þykkti að afnema bæri rúmmáls-
regluna. Að sögn Kristjáns var í
reynd eðlilegt að hafa þessar reglur
meðan kvótakerfið var að festa sig
í sessi en nú væru þær alls óþarf-
ar. „Það getur ekki verið hlutverk
stjómvalda að hlutast til um stærð
þess skips, sem viðkomandi útgerð-
armaður notar til þess að veiða sinn
kvóta. í tímans rás hefur svo margt
breyst varðandi aðbúnað skipshafn-
ar og varðandi kröfur til þess hvern-
ig farið er með físk um borð í skipi
að það sem áður átti við, á ekki
við lengur.“
Klókindi Norðmanna að vilja tengja loðnusamning við lausn Smugudeilu
„Ekkí verði samið
á þessum grundvelli“
„ÉG TEL það vera klókindi af Norð-
manna hálfu að vilja tengja loðnu-
samninginn við lausn á Smugudeil-
unni því þeir vita jafn vel og við
að engin loðna hefur gengið í Jan
Mayen lögsöguna og óttast því að
þeir fái ekki áfram gefins mikilvæg-
an loðnuafla frá okkur og rétt til
þess að veiða hana í íslenskri lög-
sögu. Ég tel því ekki koma til greina
að semja um veiðar í Smugunni á
þeim grundvelli, sem nú er í boði,
og betri kostur sé að biða og sjá
hver þróunin verður," segir Kristján
Ragnarsson, formaður LÍÚ.
I máli Kristjáns á aðalfundi LÍÚ
kom fram að þorskveiðar okkar í
Smugunni í Barentshafi hafi ekki
gengið vel í sumar þótt veiðst hafi
um 25 þúsund lestir, undirbúningur
hafi verið mun meiri en áður og
meiru kostað til. Lengi hafi staðið
yfir viðræður við Norðmenn og
Rússa um takmörkun á Smuguveið-
um þótt veiðamar fari fram utan
lögsögu ríkjanna. „Nú munu standa
til boða samningar, þar sem við
skuldbindum okkur til þess að veiða
ekki nema 13 þúsund lestir. Þar
af heimilist okkur ekki að veiða
nema 6.500 lestir í norskri lögsögu
og 6.500 í Smugunni. Mjög erfítt
yrði að nýta þennan veiðirétt með
svo takmörkuðu magni og á tveim-
ur hafsvæðum. Á móti þessu gera
Norðmenn kröfu í alls óskyldu máli.
Þeir vilja fá frekari veiðirétt á loðnu
og fá að veiða á svæði, sem þeim
j hefur verið lokað vegna sérstakra
hagsmuna okkar við nýtingu á
loðnu til manneldis.
Þannig háttar til að við höfum
gert samning við Norðmenn og
Grænlendinga um nýtingu loðnu-
stofnsins, sem að meginhluta til
heldur sig í íslenskri lögsögu og að
litlum hluta í grænlenskri lögsögu.
Þegar samningurinn var gerður í
upphafí, var einnig loðna í norskri
lögsögu við Jan Mayen. Þangað
hefur engin loðna komið í tíu ár
og því fráleitt að endumýja samn-
inginn við Norðmenn þegar hann
fellur úr gildi vorið 1998.“
ESB á engan rétt á síldinni
Kristján sagði að lengi hefði þess
verið beðið að norsk-íslenski síldar-
stofninn rétti úr kútnum eftir að
Norðmenn og Rússar gengu nær
því af honum dauðum fyrir 30
árum. Nú hefði stofninn sýnt mikil
batamerki og væri farinn að sækja
út úr norskri lögsögu þó síldin hafí,
því miður, enn ekki gengið nema
að litlu leyti inn í þá íslensku. „Is-
Iensk stjórnvöld sömdu við Norð-
menn, Rússa og Færeyinga um að
við veiddum 190 þúsund lestir á
þessu ári eða 17% af því sem veiða
átti. Ekki tókst nú betur til við
stjórnun veiðanna en svo að við
skildum eftir 24 þúsund lestir
óveiddar. Evrópusambandið, sem
aldrei veiddi úr þessum stofni á
árum áður, setti sér einhliða kvóta,
án nokkurra gildra raka, sem nam
150 þúsund lestum og veiddi nær
200 þúsund lestir. Miðað við að síld-
in breytti ekki göngu sinni á þessu
ári, verður erfítt að sækja stærri
hlut en samið var um á þessu ári.
Það hlýtur að vera meginverkefni
strandríkjanna að koma ESB út úr
þessum veiðum því það á þarna
engan rétt.“
Takmörkuð verði sókn
í karfa á Reykjaneshrygg
Gífurleg átök urðu um skiptingu
aflamarks í karfa á Reykjaneshrygg
milli þeirra þjóða, sem þar telja sig
eiga rétt. Lyktaði þeim deilum með
samkomulagi allra aðila nema
Rússa, sem mótmæltu samkomu-
laginu og hafa veitt án takmarkana
á þessu ári. Á vettvangi Norðaust-
ur-Atlantshafsfískveiðinefndarinn-
ar var samið um veiðar fyrir árið
1996. Veiða má 153 þúsund lestir,
þar af komu í okkar hlut 45 þúsund
lestir. „Reynslan hefur kennt okkur
að koma þarf á fót mun virkara
veiðieftirliti en nú er á þessu svæði.
Það þarf að fela í sér skyldu til
þess að tilkynna um komu á veiði-
svæðið og brotthvarf af því. Einnig
þarf að gera kröfu til þess að til-
kynnt sé daglega um afla og rétt
strandríkis til eftirlits. Óviðunandi
er að skipum undir hentifána leyf-
ist að veiða, þar sem alþjóðlegt
samkomulag um veiðistjórnun hef-
ur tekist. Ég tel líklegt að sam-
komulag takist um lausn þessara
vandamála og sókn í karfa á
Reykjaneshrygg verði takmörkuð
með alþjóðlegu samkomulagi í
framtíðinni.“
Takmarka þarf veiðar
á Flæmingjagrunni
í huga formanns LÍÚ leikur ekki
nokkur vafi á að stjórna þarf rækju-
veiðum á Flæmingjagrunni, eins og
annars staðar, og megum við ekki
ætla okkur að þrefalda aflann þeg-
ar aðrir sæta takmörkunum. Skyn-
samleg nýting svæðisins, sem að
öllu leyti liggur utan lögsögu, er
mikilvæg fyrir okkur um ókomna
framtíð. Islensk skip hefðu veitt
rækju á Flæmingjagrunni í fjögur
ár og hefði samkomulag tekist inn-
an Norðvestur-Atlantshafsfisk-
veiðinefndarinnar um stjórn á
rækjuveiðum á svæðinu fyrir 1996
sem byggst hefði á fjölda sóknar-
daga hvers skips. Nú hefði aftur
tekist samkomulag um takmörkun
veiðanna á næsta ári, sem byggðist
á sömu stjórnunaraðferð, þ.e. sókn-
arstýringu með úthlutun veiðidaga.
Vegna ótta vísindamanna við of-
veiði, hafi verið ákveðið að fækka
sóknardögum um 10%. Fulltrúar
íslands á NAFO-fundinum telja rétt
að mótmæla þessu stjórnunarfyrir-
komulagi aftur þar sem það sé
bæði óhagkvæmt og ómarkvisst og
hvorki tekið tillit til stærðar skipa
né hvort skip dragi eitt eða tvö troll.
„Hinsvegar telja þessir sömu full-
trúar að okkur líðist ekki að hafa
áfram ótakmarkaða sókn á þessi
mið. Þess vegna þurfi að ákveða
um leið og fyrirkomulaginu er mót-
mælt hvað við leyfum okkar skipum
að veiða á næsta ári. Ákvörðun um
hve mikið það verði, þarf að vera
viðunandi fyrir aðrar þjóðir, að te-
knu tilliti til takmarkana þeirra á
veiðum eigin skipa. Veiðarnar eru
það rýrar nú að vart veiðist fyrir
kostnaði. Ekki bætir það rekstrar-
skilyrðin að stjórnvöld samþykktu
mjög dýrt og óhagkvæmt eftirlits-
kerfí fyrir veiðarnar fyrir þetta og
næsta ár,“ sagði Kristján.
Frjálst framsal
í úthafsveiðum
Að mati Kristjáns er mikilvægt
að frumvarp til laga um veiðar utan
lögsögu íslands, sem nú liggur fyr-
ir Alþingi, nái fram að ganga. í því
væri ákvæði, sem gerði stjórnvöld-
um kleift að stjórna veiðum þótt
mótmælt sé stjórnunarfyrirkomu-
lagi því sem nú er á Flæmingja-
grunni. Einnig tæki það til þess
hvernig veiðirétti yrði ráðstafað á
grundvelli veiðireynslu, en um það
væru ekki allir sammála. „Ég tel
sanngjamt að veiðiréttur, sem er
tilkominn vegna legu landsins og
einnig þegar um er að ræða físki-
stofn eins og norsk-íslensku síldina,
þá njóti allir veiðiréttarhafar þess
ávinnings, sem í þessum veiðirétti
felst, að einhveiju leyti, líkt og
ákvæði eru um í frumvarpinu.
Frjálst framsal þessara veiðirétt-
inda er lykilatriði til þess að veið-
arnar verði stundaðar með þeim
hagkvæmasta hætti, sem völ er á,“
segir Kristján.
\
1
.
s
I
I
i
I
i
i
<
<
(
1
<
(
(
(