Morgunblaðið - 02.11.1996, Side 24
24 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
Morgunblaðið/Sverrir
Hlutir
Ljósapera og dálk-
ur, vagn og bréfa-
vigt, straujárn og
skjaldbaka. Gunnar
Hersveinn opnaði
augun og horfði
augliti til auglitis
við hlutina í kring.
HUN er
ósegjanleg.
Hún er
alltumlykjandi en
samt ósýnileg. Hún
smýgur inn um
augað en sleppur
framhjá athyglis-
gáfunni.
Fegurðin allt í
kring er ofast hulin
sjónum, sveipuð
dulu sem fellur
ekki fyrr en mann-
eskjan nemur stað-
ar og lætur hugann
líða til baka. Hugs-
unin hættir og á
hugartjaldinu birt-
ast hlutir úr fortíð-
inni: Silfraður
eggjabikar, svört
jámbrautarlest og
koparlituð fótboltapumpa.
Fegurðin afhjúpast með tíman-
um. Hún var, er og verður en getur
auðveldlega farið huldu höfði. Hún
rúmast ekki í skilgreiningu fræði-
manna.
Hún er ómælanlega, óáþreifanleg
en býr samt í hlutunum allt í kring:
Rjómakanna stendur á borði,
brún og gylt. Handfangið er
rúmt, hálsinn grannur.
Kaffidrykkjumaður-
inn lyftir henni og
hellir rjómanum út
í án þess að hafa
ætlað sér það.
Dulin feg-
urð leikur
um
hið
óbrotna
og látlausa.
Hún er ekki
uppáþrengj-
andi. Hún
stendur ekki á
kassa og hrópar:
Hér er ég, komið og
sjáið mikilfengleik
minn. Nei, ekkert fellur í
skugga hennar, hún bara er
þar sem hún er eins og hún er.
Gamalt straujárn birtist á hug-
artjaldinu. Enginn dáðist að því
þegar það vann óþreytandi á
strauborðinu. Það liggur á hillu í
geymslunni. Hönd sem er að tína
dót á hauganna
grípur það og varp-
ar í ruslakassann.
Hik. Aftur fer það á
hilluna. Það er eitt-
hvað dulið við það,
eitthvað sem leiddi
til þess að það var
keypt og síðan
löngu síðar ekki
hent. Samt leiðir
eigandinn ekki hug-
ann að því. Fegurð
þess hefur ekki enn
afhjúpast. Hún er
eins og fugl á sundi.
Bak við aðra hluti
býr svo snilldarleg
útsjónarsemi að fáir
veita því eftirtekt.
Rakvélablað og
rakskafa, í þessu
verkfæri lifir fegurð
snilldarinnar. Eða
bréfavigt sem að
hávaðalaust mælir 4
grömm bréfsins til
elskunnar.
Bréfaklemma, gard-
ínuklemma,
töng. Fegurð
þeirra verður ekki
fangin, þær eru of al-
gengar og hugvitsemin of
mikil.
Dulin fegurð stendur ekki
og fellur með verðmæti hlut-
anna sem hún býr í. Ekki held-
ur í efni þeirra eða nytsemd.
Hún er óháð öllu nema lögun og
litum, áferð og stærð. Hún er í
hönnuninni og birtir ævinlega feg-
urðarskyn eiganda síns. Kaffi-
könnur eru til í ótal tilbrigðum og
flestum er hent eftir áralanga
notkun. Aðrar verða fallegri
með árunum.
Ailir hlutir eru hannaðir.
Það er staðreynd sem ekki er
velt vöngum yfir: Hver
pennategund, hvert strokleð-
ur, hver súkkulaðimoli, hver
terta er verk hönnuðar.
Ekkert er undanskilið, því
allt þarfnast lögunar nema
fegurðin í sjálfri sér.
Galdurinn bak við hlut-
ina sem hulda fegurðin
tekur sér bólfestu í er
hófsemdin. Markmiðið
vera í kringum fólkið á
heimilinu og styðja það án þess
að láta á sér bera.
1
Logandi súrt og sastt
Allra handa framandlegur matur er greinilega í mestu
uppáhaldi víða um lönd, ef marka má matarskrif og mat-
seðla veitingahúsanna og þar er piparjurtin gegnumgang-
andi hráefni. Sigriin Davíðsdóttir bendir hér á nokkrar
uppskriftir fyrir þá sem sækjast eftir því logandi...
Hjartslátturinn eykst, svitanum slær út
og sviðann leggur niður allan melting-
arveginn. Þetta eru áhrifin, þegar
snæddur er matur með ríkulegum skammti af
rauðum pipar. Aðrir kunna því betur að fara
fínlegar í sakimar og láta sér nægja snert af
léttum bruna. Rauðum pipar skýtur upp í
matseld nánast um heim allan, þó síst í norð-
ur-evrópskum mat. En í kjölfar áhuga á fram-
andi mat er rauður pipar líka orðinn tíðfund-
inn þar og fæst í margskonar formi. Pipar-
hylkin fást ný og þurrkuð, en einnig í margvís-
legum sósum og kryddmauki. Uppskriftirnar
hér á eftir koma víða að, en eiga það sameigin-
legt að logarnir standa upp úr þeim. Hversu
glatt réttirnir brenna er auðvitað undir pipar-
skömmtunum komið, svo farið ykkur hægt í
sakimar. Það er auðveldara að bæta við en
takaaf!
Góða skemmtun!
Piparalía
Víða um lönd tíðkast að leggja pipar í olíu,
láta olíuna draga í sig styrkinn og nota hana
síðan til að gefa smá loga. í 2 dl af góðri ólífu-
olíú er sett nýtt piparhylki, skorið í ræmur og
sneiddur hvítlaukur. Eftir nokkra daga er olí-
an tilbúin til neyslu. Gætið þess að pipar og
hvítlaukur sé alltaf á kafi í olíu, en hellið olí-
unni af og notið í nýjan skammt með olíu, pip-
ar og hvítlauk þegar þarf.
Pipamnnendur styrkja salatsósur, grillsós-
ur og aðrar sósur, kryddlegi, súpur, pastarétti
og pottrétti með nokkrum dropum af ólíunni.
KjúkHngakryddlögur
Matseld við Karabíska hafið er blanda
aðliggjandi menningarsvæða og nýlendu-
þjóða. Kryddlöginn getið þið notað allan í eft-
irfarandi rétt, en einnig geymt í kæliskáp og
notað hann til að pensla með kjöt þegar á þarf
að halda. Með þessum rétti fer vel á að bera
fram hrísgrón eða soðið bulgúr. Bragðbætið
hvorttveggja ef til vill með söxuðum hvítlauk,
saxaðri steinselju og salti eftir smekk. Réttur
handa fjórum til sex gestum.
2 góðir kjúklingar eða ámóta magn af
kjúklingabitum.
Kryddlögur: 1 dl greipsafi
1 dl hvítvínsedik
1 dl hvítvín
1 tsk allrahanda
1 tsk oregano
1 tsk timjan
... og byrjið með 1/4-1/2 tsk af rauðum pipar
- þeir æfðu þola meira
1. Ef þið notið heila kjúklinga fletjið fuglana
þá út með því að rista þá eftir endilangri neðri
hliðinni og opnið þá þannig að bringumar
liggi flatar. Þannig liggur kjúklingurinn vel í
leginum og er fljótur að stikna.
2. Blandið löginn og látið kjúklinginn liggja í
honum yfir daginn. Ef þið látið kjötið liggja
lengur í leginum hafið það þá inn í ísskáp. Snú-
ið bitunum og ausið þá leginum sem oftast.
3. Setjið ofninn á 200 gráður.
4. Takið kjúklingana úr leginum, leggið í fat
og látið þá stikna í ofninum í um klst., eða þar