Morgunblaðið - 02.11.1996, Side 36
36 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
GULLFOSS - smíðaár 1915, ganghraði 11,0, farþegafjöldi 74.
Ferðasaga
Byggð á dagbók Elínar Magnúsdóttur í maí - júní 1925
ÞANN 16. maí 1925 leggja þau
hjón Elín Magnúsdóttir og Sveinn
Jónsson trésmíðameistari (afí grein-
arhöfundar) af stað með Gullfossi
áleiðis til Danmerkur, Sviþjóðar og
Noregs. Aðaltilgangur ferðarinnar
er að heimsækja fæðingarstað Ing-
r ólfs Amarsonar í Dal í Dalsfirði, þar
sem heitir á Fjöllum, því Sveinn er
mikill áhugamaður um Ingólf land-
námsmann og sögu hans.
17. maí er komið til Vestmanna-
eyja, Arsæll sonur Sveins heimsótt-
ur að Fögrubrekku og veitingar
þegnar hjá hans ágætu konu Lauf-
eyju Sigurðardóttur. Elínu Jósefs-
dóttur bróðurdóttur minni skilað til
Páls Kolka læknis, en þau hjón
höfðu verið beðin fyrir hana til
Vestmannaeyja.
18. maí: Komið til Hornafjarðar
á hádegi og þar skilað í land þing-
manni Austur-Skaftfellinga, Þor-
leifí bónda Jónssyni á Hólum. Elín
telur nú upp helstu farþega á 1.
farrými: Konráð R. Konráðsson
læknir (dó í slysi í Bremen 12.7.
1929), Gunnar Árnason cand.theol,
frá Skútustöðum, síðar prestur í
Kópavogi. Þorkell Clements vél-
fræðingur og frú, Vilhjálmur Þ.
Gíslason cand. magv síðar skóla-
stjóri Verslunarskóla Islands, Sveinn
Ólafsson alþingismaður í Firði, Bjöm
Kristjánsson alþingismaður, kona
Haraldar frænda með bam, tveir
synir Sigurðar læknis Magnússonar
á Seyðisfírði, Sverrir og Magnús
W1 (Elín er systir Sigurðar læknis).
Þrátt fyrir mikla þoku tókst að
komast til Djúpavogs og var þar
fagurt veður og kpmu 3 bátar út á
móts við skipið. „í dag tók Konráð
læknir myndir á þilfari af Sveini í
Firði og Vilhjálmi Þ. Gíslasyni í
glimu, einnig af Vilhjálmi og Birni
Kristjánssyni, ennfremur af Ihalds-
og Framsóknarflokki, sem vom
þeir Björn Kr. og Sveinn í Firði.
19. maí er komið til Fáskrúðs-
ijarðar í glaða sólskini og blíðu og
heimsækja þau hjón þar Valgerði
Björnsdóttur, konu Guðna Stefáns-
sonar. Valgerður býr myndarlega
og á þijú börn.
Á hádegi er komið til Reyðar-
fjarðar, en kl. 15.30 er haldið til
Eskiijarðar, klukkutíma stím. Sent
skeyti til Þuru frænku, sem er 50
ára. Af stað frá Eskifirði kl. 16.45,
„Það síðasta, er ég veitti eftirtekt
var sýslumaður, Helgi Hermann og
einhver þriðji náungi í stutttreyju
með loðkraga, leiddust þeir allir
góðglaðir upp bryggjuna, er þeir
höfðu kvatt Hofmeistara með mikl-
um virktum.
Næsti áfangastaður er Norð-
fjörður og þar vomm við farþegarn-
ir spurðir hvar við værum ráðnir,
því atvinnurekendur áttu von á
landverkafólki að sunnan. Nú er
haldið til Mjóafjarðar og þar skilað
í land Sveini i Firði, hinum lands-
kunna þingmanni.
20. maí: Kl. 6 komum við til
Seyðisijarðar, níunda og síðasta
viðkomustaðar okkar áður en lagt
er upp í ferðina til Norðurlanda.
Sigurðar Magnússonar bróður Elín-
ar er læknir á Seyðisfírði og býr á
„Öldu“. Þar fær Elín skeyti frá
I M P E X
Sterkf • auðvelt • fljótlegt
Hillukerfi
sem allir geta sett saman
0DEXIQN SINDRI
Tilgangur ferðarínnar
var að heimsækja fæð-
ingarstað Ingólfs Arn-
arsonar. Leifur Sveins-
son reifar ferðasögu afa
síns og ömmu í fyrri
grein sinni af tveimur.
HJÓNIN Elín Magnúsdóttir (1877-1933)
og Sveinn Jónsson (1862-1947).
-sterkur í verki
BORGARTUNI 31 • SIMI 562 72 22
Lauru Götzsche, að enginn bati sé
hjá Esther systur hennar (báðar eru
dætur Sig. læknis).
Þau heimsækja sýslumanninn
Ara Arnalds, „tók hann okkur mjög
vel og býr hann sérlega skemmti-
lega“. „Lagt af stað frá Seyðisfirði
kl. 11.30 og fannst mér þá ferðin
byijuð fyrir alvöm.“
21. maí: „Uppstigningardagur.
Töluverður stormur, ég alltaf í rúm-
inu, en maðurinn minn situr uppi
og spilar brids við Gunnar Árnason,
Þorkel Clements og einhvern Akur-
eyrarbúa, sem ég veit ekki nafn á.
Dagurinn er langur og tilbreyting-
arlaus.“
22. maí: „Erum á ferðinni, alltaf
stormur, en skipið fer að mínu áliti
vel í sjó. Lóðs tekinn við Noreg
kl. 24.
23. maí: „Vöknum í Bergen í
guðdómlega fögru veðri. Förum í
land, hittum Skúla Skúlason rit-
stjóra, sem leiðbeinir okkur um
borgina, m.a. upp til Flöjen. Berg-
enbúar ekki haft jafn fallegt vor í
20-30 ár, enda gróður sem um
hásumar. Vilhjálmur Þ. Gíslason
skilur við okkur í dag, fer með járn-
braut til Osló. Sjáum við mikið eft-
ir að missa hann af skipinu. Hér á
ég hægt með að skilja, að menn
vilji hafa stuttan vinnudag, því hér
er unnið, hvorki staðið né glápt á
fólk, þó framhjá gangi eða alltaf
verið að taka í nefið“. „Lögðum á
stað frá Bergen um kvöldið í ágætu
veðri, en helst til orðið skuggsýnt
til að sjá útsiglinguna, fórum því í
rúmin.“
ELÍN Magnúsdóttir ásamt Völundarbræðrum við heimili þeirra
í Kirkjustræti 8 b árið 1928. Haraldur og Sveinn Kjartan stand-
andi. Elín heldur á greinarhöfundi.
Richard, vel leikið og sungið. 30.
maí sjá þau á Kgl. „Man kan hvad
man vil.“ 31. maí hvítasunnudag
er farið í messu hjá pastor Fenger
í Holmenskirkju. Á annan í hvíta-
sunnu hlýða þau á sr. Richard í
Garnisonskirkjunni, en það er sá
sami, sem bannaði KFUM-mönnum
að hafa Harald Níelsson í stjórn
KFUM. Þau heimsækja konu Carl
Nielsen tónskálds, hina merku lista-
konu og myndhöggvara, sem þá
vann að gerð styttu Kristjáns IX á
hestbaki. Jón Guðbrandsson for-
stjóri Eimskipafélags íslands hf. í
Kaupmannahöfn býður þeim í mat.
Þau skoða söfn og dýragarðinn,
hitt þar bróðurson Ara Arnalds
(gæti verið Ingólfur Kristjánsson
tollvörður?) Esther frænka Elínar
deyr meðan þau eru í Kaupmanna-
höfn og fylgja þau henni til grafar
í Ringsted. Þau fara með Jóni Guð-
brandssyni til Frederiksborg, þar
sem „Riddarasalurinn er eitt af því
fegursta, er við sáum á okkar leið“.
8. janúar halda þau upp á sjöunda
giftingardaginn með því að bjóða
Jóni Guðbrandssyni og konu hans
til miðdegisverðar í Tivoli. 9. júní
förum við með lest til Helsingör.
Danmerkurdvöl lokið.
24. maí: „Veðrið ct gott, þó kom-
inn sé dálítill kaldi. í nótt dó yfir á
II farrými frú Schalek, kona manns,
sem var í Völundi, á leið til Dan-
merkur með íjölskyldu sína. Gunnar
Árnason hefur ljársöfnun handa
Schalekfjölskyldunni og safnast kr.
620. Elín lýkur dagbókinni 24. maí
þannig: „Milli mín og dauðans er
aðeins eitt fótmál."
25. maí: „Fórum framhjá Skag-
anum kl. 5. Allir eru á fótum og
enginn nefnir sjóveiki, veður femur
gott. Fyrsti íslendingurinn, sem við
sjáum í landi (Kaupmannahöfn) og
sem heilsar okkur er Jón Svein-
björnsson konungsritari. Júlla (Júl-
íanna Sveinsdóttir listmálari, dóttir
Sveins Jónssonar) kemur niður að
skipi til að taka á móti okkur og
búum við fyrst um sinn hjá henni.
Niður við skip voru einnig Árni og
Kata (Árni Pétursson læknir og
Katrín kona hans) ásamt fleiri ís-
lendingum, sem við þekktum.
II.
í Kaupmannahöfn dagana 26.
maí - 9. júlí 1925.
Hér verður farið fljótt yfir sögu.
Það er ótrúlegt hvað þau hjón kom-
ust yfir að skoða á þessum hálfa
mánuði. Fyrsta daginn á landsleik
í knattspyrnu milli Dana og Eng-
lendinga, jafntefli 2:2.
Annan daginn í Konunglega leik-
húsið að sjá „Dýragarð hinna fá-
tæku“ og Kopelíu að viðstöddum
Kristjáni X. Circus næsta dag þann
28. maí en strax þann 29. maí enn
á Kgl: „Drot og Marsk“ eftir Chr.
III.
Þau kom til Mölle í Svíþjóð þann
9. júní og taka sér gistingu á Hótel
Mölleberg. Heimsækja vinafólk
Júllu í Björkeröd, Svanehjónin.
Halda síðan áfram til Hássleholm
og gista þar. 11. júní er haldið með
lest til Stokkhólms. Koma til Stokk-
hólms kl., 19 og gista á Hótel Cont-
inental. Daginn eftir er tekinn bíll
út á Skansinn og þar leið dagurinn
áður en þau vissu af. Þau fara frá
Stokkhólmi til Laxá þann 14. júní.
Okkur leið vel í Laxá, góð gisting
þar og lagt af stað þaðan um há-
degi. Frá Laxá héldu þau til Kílar
um Karlsstad og tóku gistingu á
járnbrautarhótelinu. Nú eru þau á
þeim slóðum, sem Gösta Berlings-
saga gerist, þar á meðal Ekelund.
Okum í gegnum Sunne og á bað-
stað þann, sem Entervik heitir. 17.
júní fara þau eldsnemma á fætur
og um borð í bátinn „Gösta Berl-
ing“, sem er gufubátur, sem feijar
á Frykensjön ásamt.öðrum, er nefn-
ist „Selma Lagerlöf“.
Frá Kíl leggja þau síðan af stað
til Osló kl. 16.41. Þau ná til Osló
um kvöldið og taka sér gistingu á
Missionshóteli í Kirkegaden.
Höfundur er lögfrædingur.