Morgunblaðið - 02.11.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 39
Fulltaf
ogfrábærumjóla
Skipholti 1 9
Sími: 552 9800
Hagtölur og launamál
ÞAÐ gengur erfiðlega fyrir lág-
launafólkið á íslandi að fá viður-
kenndan rétt sinn til að lifa eins
og menn.
Launasamningar og umræður
um launamál hafa um langt skeið
grundvallast einhliða á hagtölum
af ýmsu tagi án þess að menn hafi
leitt hugann að því, hvernig viðkom-
andi launþegi geti dregið fram lífið.
Það er talað um hagvöxt, þjóðar-
tekjur, samkeppnisstöðu atvinnu-
veganna og margt fleira, aldrei um
afkomumöguleika hins láglaunaða.
Hagfræðingar og stjómmálamenn
hafa talið láglaunafólki trú um, að
þessar hagtölur skipti einhverju
máli fyrir afkomu þess og velferð.
Þær hafa þó reynst vægast sagt
vafasamar viðmiðanir fyrir það fólk,
sem neðst er í launastiganum.
Við seinustu almenna kjarasamn-
inga var hagvöxtur talinn of hægur.
Það var talað um kreppu, og af
þeim sökum var ekki hægt að hækka
kaupið. Fólkinu var sagt að sýna
biðlund, þetta myndi lagast með
auknum hagvexti. Nú hefur hag-
vöxtur aukist og er helmingi hrað-
ari en meðaltal hagvaxtar í OECD-
löndunum. Stóra stundin virðist því
vera upp runnin. En þá kemur upp
úr dúmum, að það er ekki einhlítt
að búa við öran hagvöxt. Á því geta
verið skuggahliðar. Það er t.d. þensl-
an. Nú kemur það í ljós að auknum
hagvexti fylgir þensla og þegar
þensluástand hefur skapast er stór-
varasamt að hækka kaupið. Kaup-
hækkun getur verkað á þensluna
eins og bensíni sé skvett á glóð.
Úr því getur orðið verðbólgubál. Og
þetta gildir að sjálfsögðu eingöngu
um lágu launin.
Það hefur sem sagt komið í ljós
að það er sama, hvemig þessi mál
þróast, það er aldrei lag fyrir lág-
launamanninn og raunar ekki held-
ur manninn með meðaltekjurnar.
Tími launþegans kemur aldrei. Ef
hagvöxtur er lítill, þá er kreppa og
ekki hægt að hækka kaupið þess
vegna. Ef hagvöxtur glæðist, er
óðara komin þensla og stórvara-
samt að hækka kaupið. Bilið milli
kreppu og þenslu er mjög þröngt,
það er eins og nálarauga. Og í gegn-
um það nálarauga kemst enginn
BARNASTÍGUH
BRUM’S 0*1 4 SlÐAN 1965
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8 SÍMI 552 1461
láglaunamaður frekar er ríkur mað-
ur í himnaríki. Um leið og krepp-
unni linnir, er þensludraugurinn
kominn í gættina og farinn að skæla
sig framan í launþegann og loka
öllum leiðum.
Hagfræðingur samtaka iðnaðar-
ins heldur því fram að hinn aukni
hagvöxtur eða hagsveifla, eins og
hann vill kalla það, stafi að stórum
hluta af aukinni eyðslu og sé því
plathagvöxtur. Þetta stafi mestan
part af stórauknum bílkaupum og
utanlandsferðum, og það sé ekki
hægt að byggja kauphækkanir á
slíkum grunni, það auki bara þensl-
una. Nú er það ekki líklegt, að það
Hagvöxturinn hefur
ekki, segir Guðmundur
Helgi Þórðarson,
______skilað sér til___
láglaunafólksins.
sé fyrst og fremst láglaunafólkið,
sem hefur aukið bílkaup sín og ut-
anlandsferðir í svo ríkum mæli.
Hagvöxturinn hefur ekki skilað sér
til þeirra, heldur fyrst og fremst til
hinna efnameiri. Það eru því þeir,
sem hafa staðið fyrir
hinni auknu eyðslu.
Það má því segja, að
það sé eyðsla hinna
betur stæðu, sem
hindrar það með
þensluáhrifum sínum,
að hinir lægst launuðu
fái leiðréttingu sinna
mála, ef marka má
skraf hagfræðingsins.
Það má kannski orða
þetta svo, að það sé
græðgi hinna ríku, sem
heldur niðri kjörum
hinna fátæku með
fulltingi hagfræðinnar.
Þessi leikaraskapur
með hagtölur ætti að
færa láglaunafólki heim sanninn
um það, að það getur ekki stuðst
við hefðbundna hagfræði í barátt-
Guðmundur Helgi
Þórðarson
unni fyrir bættum
kjörum hinna fátæku
eða kjarajöfnuði. Þvert
á móti tala tala hag-
fræðingar um launa-
misrétti sem nauðsyn-
legan hvata í efna-
hagslífinu, og það er
ekki gert ráð fyrir
neinu þaki á því mis-
rétti. Það er því nokk-
uð augljóst mál að ef
almennt launafólk ætl-
ar áfram að byggja
réttindabaráttu sína á
hefðbundnum hag-
tölum þá mun það
seint fá leiðréttingu
sinna mála.
Höfundur er fyrrv.
heilsugaeslulæknir.
Iðtafnnumþað
1 ' ) 1 , \
! i w : i;
nmnnnfl r-mni-
THOMSON
TELEFUNKEN QARA
|Black D.I.V.Al_____
| Sístillt móttaka |
|Sjáðuog heyrðu|
Bylting í hönnun myndlampa.
Skjárinn er með myndmöskva úr
nýju efni INVAR (svartur skjárj,
sem er sérstaklega hitaþolið. Þessi
nýja tækni tryggir nákvæma
litablöndun og enn meiri skerpu,
ásamt bjartari mynd.
Munurinn er greinilegur !
Móttaka á sjónvarpsefninu er
sistillt með sérstökum hraövirkum
örgjörva, sem tryggir aö allt flökt
á mótföku er leiðréft, þannig að
myndgæðin eru ávailt trygg
• 100 Hz myndgæöi • ekkert flökt
• Cinema Zoom • Stækkun á mynd
• Digital Nicam Stereo-móttaka
• Surround-umhverfishljómur
• Pal Plus • mun betri móttaka
• Aigeröasfýringar á skjá sjónvarps
• Intelligent Noise Reduction-suöeyiir
• 16/9 - breibtjaldsmóttaka
• PIP ■ mynd i mynd (allt ab þrjár)
• Frá 14" og upp í 52" • þitt er valið...
• o.m.fl.