Morgunblaðið - 02.11.1996, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 41
AÐSENDAR GREINAR
Tónlistargagnrýni
Hverjum gagnast hún eða hverjum beinist hún gegn? *
ÞAÐ ER forvitnilegt
að velta því fyrir sér
hvað orðið gagnrýni
merkir. í fljótu bragði
virðist þetta samsetta
orð hafa þijár óskyldar
merkingar. Um seinni
hluta orðsins þarf ekki
að íjölyrða, en hann
lýsir skoðun, umfjöllun
eða athugun á ein-
hveiju fyrirbæri. Fyrri
hluti orðsins er hins
vegar nokkuð flóknari.
Hann gæti vísað til
umfjöllunar sem væri
einhveijum til gagns -
þótt ég hafi raunar
aldrei áttað mig á því
hvort sú gagnsemi sé ætluð full-
móta listamanninum sjálfum eða
njótendum listarinnar. Hann gæti
einnig falið í sér að umfjöllunin
beinist gegn eða móti einhverjum,
eins og t.d. í orðunum gagnsókn,
og gagn&róður. Eða þá, sem er
raunin, að gagn merki gegnum,
eins og í orðinu gag-nmerkur og
gagnsær, og gagnrýni merki þá ít-
arlega, vitsmunalega greiningu, og
þá væntanlega á faglegum grunni.
Lestur tónlistargagnrýni á ís-
landi vekur vissulega upp spurning-
ar um merkingu ofangreinds orðs,
en hann vekur einnig upp ýmsar
aðrar spurningar sem ég veit að
margir tónlistarflytjendur og tón-
listarunnendur vildu gjarnan fá svör
við. Sem vísindamaður, tónlistar-
unnandi, tónlistarmenntuð kona,
tónleikagestur um árabil, og síðast
en ekki síst móðir, móðursystir og
vinur fjölmargra íslenskra og er-
lendra ungra tónlistarflytjenda
langar mig að koma með nokkrar
samtvinnaðar spurningar og ábend-
ingar til íslenskra tónlistargagnrýn-
enda og þeirra fjölmiðla sem þá
ráða til verksins.
1. Sem skapandi vísindamaður í
afmarkaðri fræðigrein myndi ég líta
á umfjöllun um verk mín af öðrum
en kollegum í greininni ómerk og
innihaldslaus. Eg myndi ekkert
taka mark á slíkri umfjöllun, því
hún hefði takmarkaðar forsendur
til að byggja á. Á sama hátt mætti
segja að öll fagleg umfjöllun um
tónlistarflutning ætti einungis að
vera í höndum þeirra sem hafa
reynslu sem flytjendur eða sér-
menntun í flutningi þeirrar tónlistar
sem um er fjallað. Flutningur á
strengjahljóðfæri lýtur t.d. allt öðr-
um lögmálum en flutningur á slag-
verks- eða blásturshljóðfæri. Flutn-
ingur á klassískri kammertónlist
lýtur sömuleiðis öðrum lögmálum
en samning íslenskra sönglaga eða
útsetningar á vinsælum slögurum,
án þess að lítið sé gert úr þeirri iðju.
2. Sem gagnrýnandi vísinda-
maður í minni eigin fræðigrein reyni
ég að bera virðingu fyrir þeirri
vinnu, tíma og viðleitni sem lögð
hefur verið í þá grein sem ég hef
til umfjöllunar hveiju sinni. Ég
gæti ekki borið virðingu fyrir sjálfri
mér og eigin fagmennsku ef ég
leyfði mér að kasta til höndunum
og misnota það vald og aðstöðu sem
felst í því að vera gagnrýnandi. Við
lestur tónlistargagnrýni dagblað-
anna vaknar sú spurning of oft
hvaða hvatir valdi fljótfærnislegri,
ýfirborðskenndri og innantómri
umfjöllun á tónleikum sem djúp
hugsun, yfirvegun, blóð, sviti og tár
flytjenda hafa verið lögð f. Eru slík
vinnubrögð hugsanlega endurspegl-
un á almennri vinnuþrælkun og
aukavinnusnapi íslendinga? í at-
vinnu- og fræðigrein minni, klín-
ískri sálfræði, er lögð áhersla á að
léleg meðferð sé verri en engin
meðferð. Ég tel að þessi vinnuregla
ætti einnig vel við um tónlistar-
gagnrýni.
3. Sem tónlistarmenntaður ís-
lendingur (sem hefur 10 ára nám
í píanóleik og 3 ára nám í sellóleik
að baki), tónlistarunnandi og tón-
ieikagestur frá unga
aldri hef ég einkum
furðað mig á þrennu í
íslenskri tónlistar-
gagnrýni. í fyrsta lagi
er einhver neikvæður
umvöndunartónn ríkj-
andi í umfiöllun um
jafnvel langmenntaða
fullþroskaða listamenn
eins og talað sé til
þeirra eins og nemenda
(gagnrýnendanna). í
öðru lagi kemur oft
fram undarleg til-
hneiging til að hefja
sjálfan sig upp með
afar hrokablandinni og
lævíslegri fyndni sem
stundum kemur fram í yfírskrift
gagnrýninnar. Dæmin eru mýmörg,
og nægir að nefna nýlegt dæmi um
hreint ótrúlega niðurrifsgagnrýni á
debut tónleikum ungrar söngkonu
í íslensku óperunni. Í þriðja lagi
hef ég oft furðað mig á því ósam-
ræmi sem ríkir á milli fagnaðarláta
áheyrenda á tónleikum og tónleika-
gagnrýnenda. Það hefur stundum
hvarflað að mér hvort heym tveggja
roskinna tónlistargagnrýnenda
þyrfti athugunar við, því mönnum
förlast vissulega heyrn þegar aldur-
inn færist yfir. Sem taugasálfræð-
ingi er mér vel kunnugt um að
ástand tilfinninga og hugar ræður
miklu um túlkun á skynrænum
áreitum, án þess að nánar sé farið
út í þá sálma hér.
4. Sem móðir, móðursystir og
vinur fjölmargra íslenskra og er-
lendra tónlistarflytjenda langar mig
að segja þetta. Djúp hugsun, sjálfs-
agi, yfirvegun, kjarkur, linnulausar
æfingar, fórnir og álag einkenna
þetta unga fólk sem hefur kosið sér
afskaplega krefiandi lífsstarf til að
flytja okkur ódauðlegar perlur tón-
listarinnar. Ég hef oft fylgst með
því stranga ferli sem hefst við verk-
efnaval fyrir tónleika og lýkur með
tónleikunum sjálfum. Umbun
margra mánaða vinnu við þrot-
lausar æfingar og þeirrar eldlínu
sem tónleikar óhjákvæmilega eru
eru alltof oft ein eða tvær flausturs-
lega unnar klisjukenndar máls-
Ég gæti ekki borið virð-
ingu fyrir sjálfri mér og
eigin fagmennsku, segir
dr. Þuríður J. Jóns-
dóttir, ef ég leyfði mér
að kasta til höndunum
og misnota það vald og
aðstöðu sem felst í því
að vera gagnrýnandi.
greinar, fátækar að innihaldi og
virðingu bæði fyrir tónlistinni og
viðkomandi flytjanda/flytjendum,
en ekki síst fýrir gagnrýnanda sjálf-
um. Ég vil taka það fram að hér
er ekki verið að fara fram á innan-
tóm lofsyrði og húrrahróp heldur
fræðilega, málefnalega og upp-
byggilega umfjöllun.
Þessi greinarstúfur er ritaður í
síðoktóbersólinni í San Francisco. í
litríku og fjölskrúðugu mannhafinu
hér er maður minntur á hversu fáir
við íslendingar erum, og hve ná-
lægð og tengsl á milli manna á ís-
landi eru mikil. Og þó að einmitt
þessi nálægð og þessi tengsl geti
verið okkur afar dýrmæt geta þau
auðveldlega snúist upp í andhverfu
sína og orðið að hlutdrægni og
hagsmunaárekstrum. Ég hef heyrt
því fleygt að það sé erfítt að skrifa
tónlistargagnrýni á íslandi vegna
þessa. Ég er hins vegar sannfærð
um að það er ekki erfiðara að skrifa
tónlistargagnrýni á íslandi en ann-
ars staðar ef siðvendni, hógværð,
vandvirkni, þekking og virðing eru
höfð að leiðarljósi. Þá mun merking
orðsins tónlistargagnrýni vera bæði
tónlistarunnendum, tónlistarflytj-
endum og tónlistargagnrýnendum
ljós. Ef sómakærir fjölmiðlar geta
ekki séð til þess að þessum einföldu
grunnforsendum sé fullnægt, legg
ég til að tónlistargagnrýni verði
lögð niður með öllu.
Höfundur er taugasálfræðingur.
mumiHnimi
m í
ALLTAF
teg: 8837
brjóstahöld með spöng
kr. 1.690,-
teg: 8831
baxur
kr. 745,-
. ..hreinlega gœlir við
húðina. Þú verður að
prófa!
Líttu við á löngum
laugardegi.
I Opiðkl. 10.00 til 17.00
j (JSt>
^ Óóinsgötu 2, sími 551 3577
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!
Þuríður J.
Jónsdóttir
Skagfirska söngsveitin
í Reykjavík heldur tónleika á Laugalandi í Holtum
sunnudaginn 3. nóvember kl. 16.00 og að kvöldi
sama dags í Selfosskirkju kl. 20.30. Einsöngvarar
með kórnum verða þau Elín Ósk Óskarsdóttir,
Þorgeir J. Andrésson og Guðmundur Sigurðsson.
Trompetleikur, Helga Þóra Björgvinsdóttir leikur á
fiðlu og Vilhelmína Ólafsdóttir leikur undir á píanó.
Stjórnandi er Björgvin Þ. Valdimarsson.
.VeTrArlaGaR
m Tilbod Z-8. nóvember
Tilbod 1
kr. 1.920
Stærdir: 21-36
Litir: Routt/blatt
Tilbod 2
kr. 1.920
Stærdir: 23-32
Litir: Blátt/fjólublátt
Tilbod 3
kr. 2.990
Stærdir: 36-46
Litir: Svart/blátt
Póstsendum
samdægors
StQrmir
sóli
Lodfódur
TiTbod
þessa viku
SKÓUERSLUN
KÖPAVOGS
HAMRA80RG 3 ♦ SÍMI 554 1754
I