Morgunblaðið - 02.11.1996, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1996 51 ,
FRETTIR
TÆKNISKÓLI íslands.
Opið hús í Tækniskólanum
Dagur
syrgjend-
anna í Dóm-
kirkjunni
HALDIÐ er upp á 200 ára afmæli
Dómkirkjunnar í Reykjavík um
þessar mundir. Af því tilefni er
sögusýning í Ráðhúsi Reykjavíkur
og kallast: Kirkja tveggja alda. Á
laugardag er þar sögustund kl. 16.
Sr. Þórir Stephensen segir frá sr.
Jóni Auðuns.
I tilefni afmælisins og Tónlistar-
daga Dómkirkjunnar verða Orgel-
tónleikar Marteins H. Friðrikssonar
í kirkjunni laugardag kl. 17.
Á sunnudag, allra heilagra sálna
messu, er dagur syrgjendanna í
Dómkirkjunni. Messa verður kl. 11
í umsjá sr. Hjalta Guðmundssonar.
Minning látinna er svo kl. 14 í
umsjá sr. Jakobs Ágústs Hjálmars-
sonar. Þar gefst tækifæri til að
tendra ljós í minningu látinna ást-
vina og eiga helga minningarstund.
Með degi syrgjendanna er sér-
staklega minnt á þann þátt sem
Dómkirkjan á í þessum þætti lífs
Reykvíkinga. í vor var dagur ferm-
ingarinnar og á aðventunni verður
á sama hátt dagur skírnarinnar og
dagur hjónavígslunnar verður í jan-
úar.
Sólarmegin á
Akranesi
SÖNGHÓPURINN Sólarmegin
heldur útgáfutónleika í sal Grunda-
skóla á Akranesi laugardaginn 2.
nóvember nk. ki. 15.00.
Sólarmegin hefur verið að kynna
nýja geislaplötu með íslenskum lög-
um og erlendum með nýjum íslensk-
um textum, auk nokkurra erlendra
laga með upprunalegum texta.
Nýir íslenskir textar eru við alls 7
af 20 lögum á disknum.
I sönghópnum Sólarmegin eru 10
söngvarar; Hópurinn hefur sungið
saman síðan 1990 og haldið tónleika
reglulega víða um land,auk þess
hefur hann komið fram á skemmtun-
um og í útvarpi og sjónvarpi.
Basar Hús-
mæðrafélags
Reykjavíkur
HÚSMÆÐRAFÉLAG Reykjavík-
ur heldur sinn árlega basar á
morgun sunnudag á Hallveigar-
stöðum við Túngötu og hefst hann
kl. 14.
í boði verður úrval af handa-
vinnu og má t.d. nefna sokka,
vettlinga, barnapeysur, inniskó,
pijónaða og heklaða dúka,
jóladúka, allskonar púða svo og
svuntur af öllum gerðum og stærð-
um, að ógleymdu jólaföndri.
Einnig eru á boðstólum lukku-
pakkar fyrir börnin sem innihalda
ýmislegt smálegt.
Allur ágóði af sölu basarmuna
rennur til líknarmála.
Allra heilagra
messa í Breið-
holtskirkju
FYRSTA sunnudag í nóvember
minnast lúthersku kirkjurnar að
fornum sið allra heilagra messu en
á þeim degi er þeirra látnu minnst.
Af þessu tilefni verður sérstök
messa í Breiðholtskirkju í Mjódd
kl. 14. Við þessa athöfn mun Lauf-
ey Geirlaugsdóttir, sópransöng-
kona, syngja stólvers og tendrað
verður kertaljós til minningar um
látna.
Að messu lokinni verður kaffi-
sala í safnaðarheimilinu til stuðn-
ings orgelsjóði kirkjunnar.
OPIÐ hús verður í Tækniskóla
Islands sunnudaginn 3. nóvem-
ber milli kl. 11 og 17. Dagskráin
verður fjölbreytt, allt nám við
skólann verður kynnt.
Sett verður upp rannsóknar-
stofa í meinatækni, tæknifræði-
nemendur sýna skjámyndafor-
rit, teikniforrit og sjálfvirkni-
búnað, jarðhitahermir verður til
Opinn
fundur um
kvikmyndir
OPINN fundur á vegum Kvik-
myndahátíðar Reykjavíkur með
gestum hátíðarinnar verður haldinn
laugardaginn 2. nóvember á Hótel
Borg kl. 14.
Eftir fundinn er boðssýning í
Háskólabíó á mynd Kaurismakis
„Amlóði“. Myndin er sýnd í minn-
ingu finnska leikarans Matti Pell-
enpaa. Á sunnudag verður sýnd í
Háskólabíói önnur mynd Mattis
Pellenpaa, Bóhemlíf, sem Aki
Kaurismaki leikstýrði.
Deilt um
stöðu ljósa
ÁREKSTUR varð á mótum Miklu-
brautar og Grensásvegar um kl.
7.20 fimmtudaginn 17. október og
greinir ökumenn á um stöðu um-
ferðarljósanna.
Dodge-fólksbíl var ekið vestur
Miklubraut, en strætisvagni frá
Almenningsvögnum ekið norður
Grensásveg og lentu bílarnir saman
á gatnamótunum.
Þeir sem varpað gætu ljósi á at-
burðinn eru beðnir að hafa samband
við slysarannsóknadeild lögregl-
unnar í Reykjavík. *
Tanja tatara-
stelpa í
Kringlunni
TANJA tataratelpa kemur nú aftur
í heimsókn í Ævintýra-Kringluna í
dag, laugardag, eftir langt sum-
arfrí. Ólöf Sverrisdóttir leikkona
samdi þáttinn um Tönju og hefur
sýnt hann á leikskólum og víðar.
Leikritið hefst kl. 14.30 í dag. Að-
gangseyrir er 300 kr. og er þá
barnagæsla innifalin.
„Ævintýra-Kringlan er barna-
gæsla og listasmiðja fyrir böm á
aldrinum 2-8 ára. Hún er staðsett
á 3. hæð í Kringlunni og þar geta
viðskiptavinir Kringlunnar skilið
börnin eftir á meðan þeir versla.
Ekki er hætta á að börnunum leið-
ist, því þar er ýmilegt til gamans
gert. Þar er hægt að teikna og
mála. Sagðar er sögur og farið í
leiki. Stundum hefur verið boðið upp
sýnis, röntgentæknar sýna tæki
og tól er tilheyra verklegri
kennslu, viðhaldsforrit og loka-
verkefni nemenda verða kynnt.
Gestum gefst kostur á að svífa
á alnetinu, Alþjóðaskrifstofa
háskólastigsins og Landsskrif-
stofa Leonardo munu kynna
starfsemi sina og kór skólans
treður upp. Einnig munu út-
á leikræna tjáningu og síðan eru
leiksýningar vikulega. Ævintýra-
Kringlan er opin kl. 14-18.30 virka
daga og kl. 10-16 laugardaga,"
segir í frétt frá Kringlunni.
Tónlistar- og
fyrirbæna-
guðsþjónusta
TÓNLISTAR- og fyrirbænaguðs-
þjónusta verður haldin í Hafnar-
fjarðarkirkju sunnudaginn 3. nóv-
ember kl. 18 í tilefni allra sálna
messu og allra heilagra messu.
Kirkjugestum gefst þá tækifæri
til að kveikja á kertum í minningu
horfinna ástvina. Natali Chow
syngur ásamt kór Hafnarfjarðar-
kirkju en organisti er Helgi Péturs-
son. Prestur er sr. Þórhallur Heim-
isson.
Kattholts-
dagur í Dýra-
ríkinu
HALDINN verður Kattholtsdagur í
Dýraríkinu, Grensávegi, í dag, laug-
ardaginn 2. nóvember.
LÍKNARFÉLAGIÐ Þjóðarátak
gegn fíkniefnum hefur styrkt
ungan tollvörð hjá Tollpóststof-
unni, Baldvin Þórisson, til að fara
á námskeið í Bandaríkjunum.
Baldvin mun dvelja í rúmar tvær
skrifaðir nemendur flylja stutt
erindi undir yfirskriftinni: Hvað
starfa ég í dag?
Einnig verða málsháttarleikur
og happdrætti þar sem bókaverð-
laun eru í boði. Veitingar verða
á staðnum, barnahorn fyrir börn-
in og gestum boðið upp á safa
frá Mjólkursamsölunni og flögur
frá Vifilfelli.
í fréttatilkynuingu segir að Katt-
holtsdagarnir, sem eru ávallt fyrsta
laugardag hvers mánaðar í Dýrarík-
inu, hafi gengið vonum framar og
hafi flestir kattanna sem sýndir
hafa verið fengið góð heimili. Vel
sé hugsað um kettina í Kattholti,
þar fái þeir ekki einungis húsaskjól
og mat, heldur séu þeir líka undir
eftirliti dýralæknis.
Þeir sem ættleiða kött í Dýrarík-
inu á laugarag fá veglega matar-
gjöf frá 9 Lives sem er sérlegur
styrktaraðili og einnig ól og merki-
spjald frá Dýraríkinu.
Spýta skaust
framan á bíl
GRÁ Toyota Corolla skemmdist
nokkuð þegar spýta skaust undan
hjóli annarar bifreiðar og skall á
Corollunni.
Óhappið varð sl. þriðjudag, 29.
október, um kl. 12.40. Toyotunni
var ekið eftir hægri akrein á Miklu-
braut, milli Kringlumýrarbrautar
og Hááleitisbrautar, þegar óhappið
varð. Spýtan skaust undan dekki
grárrar Daihatsu Charade bifreiðar,
sem var ekið á miðrein.
Vitni eru beðin um að hafa sam-
band við slysarannsóknardeild lög-
reglunnar í Reykjavík.
vikur hjá fíkniefnadeild tollgæsl-
unnar í Orlando, sem þykir mjög
öflug í baráttunni gegn fíkniefn-
um. Það var Svavar Sigurðsson
sem afhenti Baldvin farmiðann
og dagpeninga til fararinnar.
Verður banni
við dýratil-
raunum
frestað?
FYRIRHUGAÐ er að banna allar
tilraunir á dýrum vegna framleiðslu
á snyrtivörum. Bannið á að taka
gildi í Evrópu 1. janúar 1998 sam-
kvæmt samþykkt Evrópusam-
bandsins. Efasemdaraddir hafa
heyrst frá mörgum dýraverndarfé-
lögum um að bannið verði að veru-
leika, því það tekur ekki gildi nema
til komi aðferðir sem geti leyst
dýratilraunirnar af hólmi. Banninu
verður skotið á frest ef nýju aðferð-
irnar verða ekki fyrir hendi 1. janú-
ar 1997.
í tilefni af líklegum fresti á banni
við tilraunum á dýrum vegna snyrti-
vara stendur The Body Shop fyrir
undirskriftasöfnun í búðum sínum
í Evrópu með hvatningu til Jacques
Santer, forseta Evrópuráðsins, um
að fresta ekki fyrirhuguðu banni
sem taka á gildi árið 1998.
Markmið forsvarsmanna Body
Shop er að safna sex milljónum
undirskrifta og þar af 20 þúsundum
á íslandi. Listana á að afhenda 27.
nóvember þegar Evrópuþingið kem-
ur saman.
Ragnar Blöndal, upplýsingafull-
trúi „Body Shop“ á Islandi, segir
að listar til undirskriftar liggi
frammi í búðum verslunarinnar á
Laugavegi og í Kringlunni í Reykja-
vík þessa viku á enda.
Fyrirlestur
um Lúter
FYRSTU fjóra laugardagana í nóv-
ember mun dr. Sigurjón Árni Eyj-
óifsson halda fyrirlestur um Lútei
í Víðistaðakirkju.
Fyrirlestrar þessir eru hluti af
fræðsludagskrá kirkjunnar og
munu þeir hefjast kl. 10 árdegis.
Fyrirlestrarnir eru öllum opnir.
■ / NORRÆNA HÚSINU verða
þrír þættir um Línu Langsokk
sýndir sunnudaginn 3. nóvember
kl. 14. Sýningin tekur rúmlega 80
mín. og er með sænsku tali. Allir
eru velkomnir og aðgangur er
ókeypis.
■ / FJÖLSKYLDU- og húsdýra-
garðinum verða hestar teymdir
undir börnum allar helgar fram að
jólum frá kl. 13-15. Skemmtidag-
skrá verður alla sunnudaga fram
að jólum kl. 11-15. Á sunnudaginn
verður Sögustund kl. 11. Kl. 15
verður ævintýraleikritið Bangsa-
leikur eftir Illuga Jökulsson flutt
af leikurunum Stefáni Sturlu og
Jakobi Þór í Kaffihúsinu. Bangsa-
leikur segir frá Bangsa litla sem
hittir ljón, fíl, krókódíl og páfagauk
í skóginum og reynir með öllum
ráðum að vingast við dýrin. Sunnu-
daginn 10. nóvember verður lesin
saga kl. 11 en Tijálfur álfur og
Minimli koma í garðinn kl. 15.
Garðurinn er opin alla virka daga
kl. 13-17, lokað miðvikudaga. Opið
um helgar kl. 10-18.
LEIÐRÉTT
Myndlist +4
I myndlistargagnrýni Braga Ás-
geirssonar í blaðinu í gær, föstudag
er sagt að sýningunni í Stúdíó
Bubba. í JL húsinu Ijúki 1. nóvem-
ber, það er ekki rétt, henni lýkur
10. nóvember. Er beðist afsökunar
á þessum mistökum.
Jetz á Tetris
í skemmtanarammanum sl.
fimmtudag var sagt í myndatexta
að hljómsveitin Jetz myndi leika á
á veitingahúsinu Tetris á fimmtu-
dagskvöld. Það er ekki rétt hljóm-
sveitin leikur í kvöld, laugardags-
kvöld, og er beðist velvirðingar á
mistökunum.
Morgunblaðið/Kristinn
Styrktur til utanfarar