Morgunblaðið - 03.11.1996, Page 9

Morgunblaðið - 03.11.1996, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 1996 9 FRÉTTIR Islandsdagur í London Island kynnt sem fjárfestingarkostur ÍSLANDSDAGUR var haldinn í Barbican Center í London síðast- liðinn fimmtudag. Sendiráð ís- lands og tíu íslensk fyrirtæki, sem starfa í Bretlandi, stóðu að kynn- ingunni auk iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytis og Pjárfestingarskrif- stofu. Benedikt Ásgeirsson sendiherra í London sagði íslandskynninguna lið í því að auka áherslu sendiráðs- ins á viðskiptamál. Hann benti á að Bretland væri helsta viðskipta- land íslands. Þangað færu um 20% af vöruútflutningi íslendinga, sem væri töluvert meira en til nokkurs annars lands. Undanfarin ár hefði hlutfallslega heldur dregið úr út- flutningi til Bretlands. Því sé nauð- synlegt að rækta þennan markað. Árið 1995 nam útflutningur til Bretlands 221 milljón sterlings- punda (um 23,7 milljarðar kr.). Innflutningur frá Bretlandi nam á sama tíma 107 milljónum punda (um 11,5 milljarðar kr.). Um 80% af útflutningnum eru fiskur og fiskafurðir. Utanríkisþjónustan viðskiptavædd Um hádegið var móttaka fyrir breska blaða- og fréttamenn. Magnús Magnússon sjónvarps- maðiir kynnti dagskrána og sagði frá íslandi, Sigríður Ella Magnús- dóttir söng íslensk sönglög við undirleik Jónasar Ingimundarson- at'. Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, kynnti ísland sem vænlegan kost í viðskiptum og fjárfestingum. Hann sagði að ríkisstjórnin væri jákvæð gagnvart erlendri fjárfestingu og liti svo á að aukin alþjóðleg samvinna væri nauðsynleg til að tryggja viðvar- andi hagvöxt. Nú væri unnið að því að breyta löggjöf um erlenda ijárfestingu í ftjálsræðisátt. Aðspurður um aukna áherslu á viðskiptamál hjá Sendiráði íslands í London sagði Finnur Ingólfsson að núverandi utanríkisráðherra legði áherslu á viðskiptavæðingu utanríkisþjónustunnar. Finnur sagði að nýlega hafi verið haldin kynning á íslandi sem ijárfest- ingarkosti á vegum íslenska sendi- ráðsins í Bonn í Þýskalandi. Sú kynning var haldin í Dússeldorf og heppnaðist mjög vel, að sögn Finns. Hann sagðist eiga von á því að framhald yrði á þessu í öðrum sendiráðum Islands. „Við höfum haft mjög litla erlenda fjárfestingu á íslandi sem hluta af landsfram- leiðslu. 0,1% að meðaltali á undan- förnum árum á meðan löndin allt í kringum okkur eru með 2-3%. Með samningnum um stækkun ál- versins í Straumsvík tíföldum við erlendu fjárfestinguna. Við verðum að halda því og auka hana upp i 2-3%,“ sagði Finnur. Haildór J. Kristjánsson, ráðu- neytisstjóri kynnti einnig Island sem vænlegan íjárfestingarkost og nefndi meðal annars að hér væri hægt að fá gnótt hreinnar orku. Loks var gestum boðið að glæsi- legu hlaðborði með íslenskum kræsingum sem Sigurður L. Hall útbjó. Gestir fengu gjafir Um kvöldið var um 160 manns boðið til hátíðarkvöldverðar. Gest- ir komu úr heimi breskra stjórn- mála og ráðuneyta og eins var völdum viðskiptavinum fyrirtækj- anna tíu boðið. Sömu aðilar komu þar fram og fyrr um daginn. Gest- ir á íslandsdeginum voru síðan leystir út með gjöfum. Fengu þeir litaða ætingu eftir Karólínu Lár- usdóttur. Morgunblaðið/Guðni BRESKIR blaða- og fréttamenn voru á meðal þeirra sem komu á íslandsdag í Barbican Center á fimmtudag. Finnur Ingólfs- son, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, flutti þar ræðu og kynnti ísland sem vænlegan kost í viðskiptum. TARA Heildverslun, Kringlan 7 103 Reykjavík s. 568-6030. UTSOLUSTAÐIR Reykjavík:........................... Snyrtistofan Ársól .......................... Snyrtihús Heiðars ............ Hárgreiðslustofa Sólveigar Leifs. Kópavogur:............................ Snyrtistofan Snót ........................ Snyrtistofan TARA Hafnarfjörður:............................. Snyrtistofan Þema Keflavík: ............................ Snyrtistofa Lindu Sandgerði:................ Snyrtistofa Rósu Guðnadóttur Mosfellsbær:..................... Hársnyrtistofan Pilus Hvergerði:...................... Hárgreiðslustofan Ópus Vestmannaeyjar:............................ Snyrtistofan Anita Höfn: ..........................Hár og snyrtistofan Japis Djúpivogur:............................. Hársnyrtistofan Anis Egilsstaðir: ................. Hársnyrtistofan Cleopatra Húsavík: ........................... Snyrtistofan Hilma Akureyri: ........................... Snyrtistofa Bjarkar Sauðárkrókur:..................... Hárgreiðslustofa Emu Blönduós:...................... Hársnyrtistofa Ragneyjar Bolungarvík:............................. Hársnyrtistofa Helgu Suðureyri:...................... Hársnyrtistofan Vilborg Patreksfjörður:..................... Snyrtistofa Sigríðar Grundarfjörður:............ Hársnyrtistofa Kristínar Yrar Ólafsvík: ....................... Hárgreiðslustofa Unnar Borgarnes:.......................... Hárgreiðslustofa Elfu Húsgagnaframleiðsla hefst að nýju STOFNAÐ hefur verið félag um húsgagnaframleiðslu í húsnæði gömlu Húsgagnaiðju KR á Hvols- velli. Fýrirtæki og einstaklingar á Hvolsvelli standa að stofnun fyrir- tækisins ásamt húsgagna- og inn- réttingaversluninni Stólnum ehf. í Kópavogi. Nýja fyrirtækið heitir Form-inn- réttingar ehf. hefur þar starfsemi um áramót. „Við höfum trú á þessum iðnaði sem er á uppleið á ný,“ segir Friðrik Óskarsson aðaleigandi Stöp- uls og stjórnarformaður Form-inn- réttinga. Áætlað er að fimmtán manns fái vinnu við framleiðsluna. Hákon Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri. Áttu föt fyrir kvöldið? Við höfum opið í dag frá kl. 13 -18 og aðstoðum þig við val á sniði og efnum. Vefnaðarvöruverslunin og saumastofan textilMne Faxafeni 12* Sími: 588 1160 Sértilboð til Kanarí 26. nóvember frá kr. 39.900 3 vikur Nú seljum við síðustu sætin þann 26. nóvember til Kanarí í glæsilega þriggja vikna ferð þar sem þú tekur þátt í spenn- andi dagskrá alla daga, hvort sem er kvöldvökur eða spennandi kynnisferðir og nýtur traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Nú getur þú tryggt þér spennandi tilboð, þú bókar ferðina á mánudag eða þriðjudag á tilboðsverði og viku fyrir brottför staðfestum við gististaðinn, góðan gististað á ensku ströndinni. Verð kr. .930 M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, 26. nóv., 21 nótt. Verð kr. .960 M.v. 2 í íbúð, 26. nóv., 21 nótt, skattar innifaldir. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562 4600

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.