Morgunblaðið - 03.11.1996, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 3. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Sambíóin sýna Ríkharð III eftir leikriti Shakespeares með
Ian McKellen, Annette Bening, Kristin Scott Thomas og fleiri þekktum leikurum í
aðalhlutverkum. Leikritið er fært í átt til nútímans og er látið gerast upp úr 1930.
Sir
Ian
IAN McKellen hefur stund-
um verið kallaður mesti
Shakespeare-leikari sam-
tímans. Hann er fæddur 25.
maí 1939 í Burnley á Eng-
landi og nam m.a. enskar
bókmenntir við háskólann í
Cambridge. Þar byijaði
hann að leika á sviði og eft-
ir að hann útskrifaðist árið
1961 hóf hann að starfa í
atvinnuleikhúsum og gat sér
fljótlega orð sem leikari í
fremstu röð.
Auk sviðsleiks beggja
vegfna Atlantshafsins hefur
McKellen leikið í um 30
kvikmyndum og sjónvarps-
myndum bæði í Bretlandi
og Bandaríkjunum og hefur
hann hlotið hátt í 20 alþjóð-
legar viðurkenningar fyrir
leik sinn, og árið 1990 var
hann aðlaður af Elísabetu
Bretadrottningu fyrir leik-
listarstörf. Meðal annarra
viðurkenninga sem hann
hefur hlotið eru Tony-verð-
laun fyrir túlkun sína á Sali-
eri í uppfærslunni á Amad-
eus á Broadway, Olivier-
verðlaunin, sem kennd eru
við Sir Laurence Olivier, og
síðastliðið vor varð hann
þess heiðurs aðnjótandi að
vera fyrstur til að veita við-
töku Gullna fjöðurstafnum,
en það er heiðursviðurkenn-
ing sem kennd er við Sir
John Gielgud og er veitt
fyrir framúrskarandi leik-
listarstörf.
McKellen er samkyn-
hneigður og lýsti hann því
yfir opinberlega árið 1988 í
útvarpsþætti þar sem tekist
var á um lög um samkyn-
hneigð. Hann hefur alla tíð
síðan starfað ötullega að
málefnum samkynhneigðra
og er meðal stofnenda fé-
lagsskapar er kallast
Stonewall Group sem beitir
sér fyrir auknum réttindum
samkynhneigðra í Bret-
landi. Hann hefur jafnframt
unnið með ýmsum öðrum
samtökum gagnkyn-
hneigðra og samtökum
eyðnisjúkra.
Meðal kvikmynda sem
McKellen hefur leikið í und-
anfarinn áratug eru Plenty
(1985), Scandal (1989), Six
Degrees of Separation
(1993), Last Action Hero
(1993), The Ballad of Little
Jo (1993), The Shadow
(1994) og Restoration
(1995). Eftir vinnuna við
Ríkharð III lék McKellen í
sjónvarpsmyndinni Rasput-
in og fer hann með hlutverk
Nikulásar Rússakeisara í
henni. Þá leikur hann aðal-
hlutverkið í Apt Pupil sem
gerð er eftir sögu Stephen
Kings, en myndin verður
frumsýnd á næsta ári.
KONUNGSFJÖLSKYLDAN eftir að hafa náð LEIÐ Ríkharðs í hásætið er blóði drifin.
til sín völdum í borgarastríðinu.
Valdafíkn
fasistans
UPP ÚR 1930 geisar blóðugt
borgarastríð á Englandi og
lýkur því með morði konungsins.
I hásætið sest Játvarður (John
Wood) sem kvæntur er hinni
bandarísku Elísabet (Annette
Bening), en þau eiga þijú börn
og virðist konungdæmið í örugg-
um höndum næstu kynslóðirnar.
En hinn valdagráðugi og bæklaði
Ríkharður (Ian McKellen), yngsti
bróðir konungsins, á sér hins
vegar þann draum að setjast
sjálfur að völdum. Með forystu-
hæfileikum sínum og kænsku
kemur hann þessu til leiðar, en
leið hans í hásætið er blóði drif-
in. Hann ryður ættingjum sínum
og öðrum andstæðingum úr vegi
hveijum á fætur öðrum og hrifs-
ar til sín völdin, en eftir fasíska
einræðisstjóm verður hann loks
að láta í minni pokann fyrir and-
stæðingum sínum sem una ekki
harðræði hans.
Sú uppfærsla á leikriti Shake-
speares sem notuð er til grund-
vallar kvikmyndinni Ríkharður
III var sett á svið af Richard
Eyre, leikhússtjóra Konunglega
breska þjóðleikhússins, í þjóðleik-
húsinu í London árið 1990. Sýn-
ingin vakti mikla athygli og var
farið með hana í leikför víða um
heim. Ian McKellen fór með hlut-
verk Ríkharðs og fékk hann þá
hugmynd að gera kvikmynd eftir
leikritinu og hvatti Richard Eyre
hann til að skrifa kvikmynda-
handritið. Eyre gat hins vegar
ekki tekið að sér að leikstýra
myndinni, en hann aðstoðaði hins
vegar dyggilega við fyrstu hand-
ritsdrögin. Það var svo Richard
Loncraine sem fenginn var til að
leikstýra myndinni, en hann á
m.a. að baki myndirnar The
Missionary og The Blade on the
Feather. Það var kannski ekki
síst vegna þess að Loncraine var
enginn sérstakur aðdáandi
Shakespeares sem hann varð fyr-
ir valinu, en hann þótti geta kom-
ið með nýjar hugmyndir sem
gagnast gætu myndinni. Saman
unnu þeir McKellen og Loncraine
svo lokahandrit myndarinnar, en
McKellen er jafnframt einn af
framleiðendum hennar. Á bakvið
myndavélina er svo Peter Biziou,
sem hlaut á sínum tíma Óskars-
verðlaun fyrir Mississippi Burn-
ing.
McKellen segir að ástæðan
fyrir því að kvikmyndin er látin
gerast á fjórða áratug aldarinnar
sé sú að það sé sá tími í nánustu
fortíð sem breska konungsfjöl-
skyldan gæti hafa leikið stórt
hlutverk í stjórnmálum.
„Þetta var sá tími sem einræð-
isherra á borð við Ríkharð III
hefði með góðu móti getað kom-
ið fram á sjónarsviðið í Bret-
landi. Eftir að Játvarður VIII
hafði afsalað sér konungdómnum
heimsótti hann Hitler með vel-
þóknun, og Oswald Mosley (leið-
togi breskra fasista) hermdi eftir
þýskum fasisma á götum Lund-
úna. Þessi endurómur hjálpaði til
við að auka trúverðugleika leik-
ritsins, ekki með því að setja á
svið raunverulega atburði heldur
atburði sem hefðu getað átt sér
stað.“
Ríkharður III er ekki fyrsta
kvikmyndin sem gerð er eftir
þessu leikriti Shakespeares, en
m.a. gerði Laurence Olivier mynd
eftir leikritinu árið 1955. Elsta
útgáfan er hins vegar frá árinu
1912 og kom hún í leitirnar fyrr
á þessu ári, en það er elsta
bandaríska kvikmyndin í fullri
lengd sem til er. Kvikmynd þeirra
McKellens og Loncraines hefur
hvarvetna fengið geysigóðar við-
tökur og er hún tilnefnd til Felix
verðlaunanna.
Fjöldi þekktra leikara fer með
hlutverk í myndinni, en meðal
þeirra eru Nigel Hawthorne sem
leikur bróður Ríkharðs, en Haw-
thome, sem kannski er þekktast-
ur úr sjónvarpsþáttunum Já, ráð-
herra, var tilnefndur til Óskars-
verðlauna fyrir hlutverk sitt í The
Madness of King George. John
Wood, sem leikur Játvarð, lék
einnig i The Madness of King
George, og Kristin Scott Thomas
(Fjögur brúðkaup og jarðarför)
fer með hlutverk lafði Önnu, sem
giftist Ríkharði þrátt fyrir að
hann hafi myrt eiginmann henn-
ar. Annette Bening (The Americ-
an President) leikur Elísabetu
drottningu og Robert Downey Jr.
bróður hennar. Með því að velja
bandaríska leikara í þessi hlut-
verk vildu þeir McKellen og
Loncraine leggja áherslu á að
þau væru utangarðs við hirðina,
en einnig hjálpaði það til við að
fjármagna gerð myndarinnar að
hafa leikara frá Hollywood í hlut-
verkunum. Jim Broadbent (Bul-
lets Over Broadway) leikur her-
togann af Buckingham og
Maggie Smith, sem hlaut Óskars-
verðlaun fyrir leik sinn í Californ-
ia Suite, leikur hertogaynjuna af
Jórvík, móður Ríkharðs.
RIGHARD Loncraine leikstjóri myndarinnar um Ríkharð III