Morgunblaðið - 10.11.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 10.11.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1996 39 _____BRÉF TIL BLAÐSIIMS_ Dylgjur um tónlistar- gagnrýnendur Frá Sigurði Þór Guðjónssyni: MORGUNBLAÐIÐ birti laugar- daginn 2. nóvember greinina „Tón- iistargagnrýni, hveijum gagnast hún og hverjum beinist hún gegn?“ eftir Þuríði J. Jónsdóttur taugasál- fræðing. Greinin er hörð ádeila á íslenska tónlistargagnrýnendur. Hér verða þó engar efnislegar at- hugasemdir gerðar við hana að tveimur málsgreinum undanskild- um er svo hljóða: „Það hefur stundum hvarflað að mér hvort heyrn tveggja rosk- inna tónlistargagnrýnenda þyrfti athugunar við, því mönnum förlast vissulega heyrn þegar aldurinn færist yfir. Sem taugasálfræðingi er mér vel kunnugt um að ástand tilfinninga og hugar ræður miklu um túlkun á skynrænum áreitum, án þess að nánar sé farið út í þá sálma hér.“ Til allrar hamingju er það sjald- gæft að mönnum, er ekki hafa látið af störfum vegna aldurs, sé brigslað um vanhæfni í starfi vegna líkamlegrar veiklunar (heyrnarbilunar), sem þó byggist eingöngu á hugdettum einstakl- ings en ekki læknisfræðilegri rannsókn. En þetta felst í fyrri málsgreininni. Síðari málsgreinin er þó miklu alvarlegri. Þar er ekki rætt um líkamlega heyrnarskerð- ingu heldur „ástand tilfinninga og hugar“. í samhenginu er máls- greinin fuiikomlega merkingar- laus nema hún þýði það að hinir rosknu tónlistargagnrýnendur séu ekki aðeins heyrnarsljóir heldur einnig vanhæfir til að túlka þau „skynrænu áreiti“ sem þeir heyra, beinlínis "egna ástands „tilfinn- inga og hugar“. Þeir séu sem sagt andlega og tilfinningalega ruglað- ir. Og þessar dylgjur eru settar fram sem laundijúgt sérfræðiálit, „sem taugasálfræðingi. . en eins og sæmir rætnum dylgjum eru höfð um það sem fæst orð: „án þess að nánar sé farið út í þá sálma hér.“ í kaflanum um ábyrgð segir svo í B og C lið í siðareglum sálfræð- inga: (B) Sálfræðingur skal hafna sérhverri aðgerð eða yfirlýsingu, sem felur í sér árás á virðingu einstaklinga. Sálfræðingur skal koma því á framfæri að kunnátta hans sé ekki notuð til þess að misbjóða, misnota eða kúga ein- staklinga. (C) Sálfræðileg starfsemi og þekking skal aldrei notuð í þeim tilgangi að kúga aðra. Ef stétt sálfræðinga tekur mark á siðareglum sínum hljóta orð Þur- íðar að vera býsna alvarlegt brot á þeim. Sálfræðingurdylgjaropinber- lega í nafni fræðigreinar sinnar um andlega vanhæfni einstaklinga sem ómögulegt er annað en að þekkja. Hér á landi eru nefnilega aðeins tveir „rosknir tónlistargagnrýnend- ur“: Jón Ásgeirsson og Ragnar Björnsson. Það er fjarska alvarlegt þegar sérfræðingar um mannshugann, geðlæknar eða sálfræðingar, mis- nota fagþekkingu sína og þá virð- ingu sem samfélagið ber fyrir henni, í því skyni að gera tortryggi- lega einstaklinga, er ekki ekki geta varið sig með hinni sömu sérfræði- þekkingu. Slíkt má ekki gerast. SIGURÐUR ÞÓR GUÐJÓNSSON, Skúlagötu 68, Reykjavík HI utabréf am ar kaður á gelgjuskeiði Stefán Halldórsson Halldór Friörik Þorsteinsson Miðvikudaginn 13. nóv. 1996, boðar Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga til morgunverðarfundar frá kl. 8:00-9:30 að Hótel Sögu, Skála 2. hæð. Framsögumenn á fundinum veröa: Stefán Halldórsson framkvæmdastjóri Verðbréfaþings íslands. Hann mun m.a. fjalla um: ■ Breytingar á starfsemi veröbréfaþings ■ Leiðir til þess að efla traust fjárfesta á markaðnum ■ Áhrif gamaldags viðskiptahátta á markaðinn og hugmyndir um úrbætur í þeim efnum Halldór Friðrik Þorsteinsson viðskipta- fræðingur hjá Kaupþingi. Hann mun fjalla um: ■ Gífurlegar hækkanir og vöxt á íslenska hlutabréfamarkaðarins sl. 2 ár ■ Stöðuna nú og horfur á næstu misserum. Opinn fundur • gestir velkomnir. FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐING A OG HAGFRÆÐINGA Fundurinn hefst kl. 8:oo , stendur til 9:30 og er öllum opinn. „Þeir koma í haust“ Frá Kjartani Guðjónssyni: EG HEF gert mér það til gamans í nokkur ár að spyija bókmennta- fræðinga og aðra áhugamenn um bókmenntir hvort þeir kannist við Dos Passos. Ennþá hef ég ekki hitt mann undir fimmtugu sem þekkir nafnið hvað þá bækurnar sem hann skrifaði. Þetta var þó höfundur sem samdi U.S.A., en það verk taldi Sartre eitt af önd- vegisritum þessarar aldar. í eina tíð var Dos Passos oft nefndur í sömu andrá og Hemmingway. Þeir voru báðir á Spáni meðan borgarastyijöldin geisaði og þá gerðist Dos Passos kommúnisti. Það var víðar gúlag en í Sovét. Þeir voru bara betur snyrtir hér fyrir vestan, og nöfn hafa verið strikuð út og minning afmáð fyrir minna en það sem Dos Passos sagði og skrifaði. Fráfall Helga Skúlasonar er nú blæðandi und í menningarlífi okk- ar og hans hefur að vonum verið að góðu getið. Og nú bið ég menn um að leiðrétta mig ef þeir telja sig vita betur. í Ríkisútvarpinu var Helgi nýlega talinn hafa debúterað í „Dýragarðinum“ eftir Albee 1957, og man nú víst enginn leik- rit Agnars Þórðarsonar, „Þeir koma í haust“, sem var frumflutt 1955 í Þjóðleikhúsinu, og þar háði Helgi Skúlason frumraun sína í miklu hlutverki. Máli mínu til stuðnings vísa ég til leikdóms Ásgeirs Hjartarsonar, þar sem hann lofar frammistöðu hins unga leikara og reyndist sannspár um framtíð hans. Aðrir leikarar voru Haraldur Björnsson, Jón Aðils, Herdís Þorvaldsdóttir o.fl. Og leik- ritið, hvað í ósköpunum var þetta eiginlega? Það þýðir víst ekki að spyija neinn undir fimmtugu. Verkið var samið í skugga sprengjunnar miklu og fjallar um samfélag sem á sér enga von, sein- ustu daga norrænna manna á Grænlandi. Óttinn við sprengjuna hefur um sinn vikið fyrir öðrum heimsendi, öðru helvíti, ótti sem ólgar eins og eldsúr hver í undirvit- und hugsandi manna. Að mínu leikmannsviti er þetta hádrama- tískt verk og jafn lifandi nú sem þá. Annað eins hefur nú verið endursýnt. Lúteranar brenndu um siðaskiptin pápískar villutrú- arbækur. Nú jaðrar það við villu- trú að minnast á verk sem eru eldri en tvævetur. Ég ætla bara að vona að hinir rétttrúuðu hafi ekki komið öllum afritum af þessu leikriti fyrir kattarnef. Það fennir í sporin. KJARTAN GUÐJÓNSSON listmálari. Bingó - Andespil Félagið Dannebrog heldur sitt árlega matarbingó í dag, sunnudag 10. nóvember, kl. 20.30 í Risinu, Hverfisgötu 105. Húsið opnað kl. 20. Stjórnin Tannlæknastofa fyrir börn Hef opnað tannlæknastofu rnína að Einholti 2, Reykjavík. Tannlæknastofan er sérstaklega ætluð börnuni og unglingum. Tímapantanir í síma 561 3130 Sigurður Rúnar Sæmundsson Tannlæknir, MPH, PhD. Valgerður Einarsdóttir: Eg hef stundað œíingabekkina í 2 ór og líkað mjög vel. Ég var slœm aí vöðva- bólgum og er nú allt önnui. Ég mceli því eindregið með cefingabekkjunum. Mararét Ámundadóttir: Eg hef stundað cefingabekkina í þrjú ctr og finn stórkostlegan mun á vextinum. Og ekki hvað síst hafa vöðvabólgur og höfuðverkur algjörlega horfið. Þetta er það besta serrí ég hef reynt og vil ekki missa úr einn einasta tíma. yilhelmína Biering: Eg er eldri borgari og hef verið hjá Sigrúnu í cefingabekkjunum í 8 ár og hlakka til í hvert sinn. Mér íinnst þetta ómetanleg hieyfing fyrir alla vöðva og finnst mér ég ekki mega missa úr einn tíma enda finnst mér að eldri borgarar eigi að njóta þess að vera í œfingum til að halda góðri heilsu og um leið haía eigin tíma. Steíanía Davíðsdóttir: Undirrituð hefur stundað cefinga- bekkina reglulega í 7 ár og líkað mjög vel. Ég þjáðist verulega aí liðagigt og vöðvabólgum og þoldi þess vegna ekki venjulega leikíimi. Með hjálp cefinga- bekkja heíur vöðvabólgan smám saman horfið og líðan í liðamótum er allt önnur. Þetta er eitthvert það besta cefinga- bekkjakeríi fyrir allan líkamann sem flestir cettu að þola. -12 tíaarákr. 5.900 Erum með tvo auka nuddbekki, göngubraut og þrekstiga. Opiö íra kl. 9‘l2og 15-20 - Fnr kynnmgartimi Ert þú með lærapoka? Ert þú búin að reyna allt, án árangurs? Hjá okkur nærðu árangri. Prófaðu og þú kemst að því að senti- metrunum fækkar ótrúlega fljótt. Eru vöðvabólgur að hrjá þig í baki, öxlum eða handleggjum? Stirðleiki í mjöðmum og þreyta í fótum? Vantar þig aukið blóðstreymi, þol og slökun? l>á hentar æfingakerfið okkar vel. Reynslan hefur sýnt að þetta æfingakerfi hentar sérlega vel fólki á öllum aldri, sem ekki hefur stundað einhverja líkamsþjálfun í langan tíma. Æfingakerfið er einnig gott fyrir fólk, sem ekki stundar almenna leikfimi vegna stífra vöðva o.fl. 7 bekkja æfingakerfið liðkar, styrkir og eykur blóðstreymi til vöðva þannig að ummál þeirra minr.kar. Einnig gefur það gott nudd og slökun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.