Morgunblaðið - 12.11.1996, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
*
Arnes hf.
býður út nýtt 130 milljóna króna hlutafé
Aætlað að afkom-
an verði íjámum íár
ÁRNES hf. í Þorlákshöfn hefur í
dag útboð á nýju hlutafé að nafn-
virði 130 milljónir króna. Bréfin
verða boðin á genginu 1,25 til hlut-
hafa á forkaupsréttartímabili sem
stendur til 26. nóvember, en þá
verða óseld hlutabréf boðin til sölu
á almennum markaði á genginu
1,35. Söluandvirði bréfanna verður
því a.m.k. 162,5 milljónir króna.
Hlutafé félagsins er nú 260 millj-
ónir og er því um að ræða 50%
aukningu. í byijun október voru
hluthafar 111 talsins, en stefnt er
að því að fjölga þeim í 200 til að
uppfylla skilyrði um skráningu bréf-
anna á Verðbréfaþingi íslands. Er
fyrirhugað að sækja um slíka skrán-
ingu fljótlega eftir útboðið.
Tilgangur hlutafjárútboðsins er
að styrkja eiginfjárstöðu Árness.
Hlutafénu verður einkum varið til
að lagfæra veltufjárstöðu félagsins
og er ætlað að lækka vaxtagreiðsl-
Stefnt að 45
milljóna hagnaði
á næsta ári
ur, auk þess sem félagið verður
betur í stakk búið til að nýta sér
þau tækifæri sem kunna að gefast
til aukinna umsvifa á næstunni,
eins og segir í útboðslýsingu.
Árnes var stofnað þann 12. apríl
1991 eftir samejningu sjávarút-
vegsfyrirtækja á Árborgarsvæðinu,
Hraðfrystihúss Stokkseyrar hf. og
Glettings hf. í Þorlákshöfn. Rekst-
urinn hófst formlega í byijun árs
1992 . Fyrirtækið hefur sérhæft sig
í veiðum og vinnslu á ýmsum flat-
fisktegundum. Það gerir út fimm
báta og rekur frystihús í Þorláks-
höfn og á Dalvík. Árnes sér að
mestu sjálft um sölu afurða sinna
og rekur í þeim tilgangi dótturfélag-
ið Árnes-Europe bv. í Hollandi.
Árnes leggur einnig áherslu á veið-
ar og vinnslu á humri og fer sú
vinnsla fram í frystihúsi félagsins
á Stokkseyri. Þá hefur félagið fryst
töluvert af loðnu á undanförnum
árum.
Erfiður rekstur
frá upphafi
Rekstur félagsins hefur verið
erfiður frá því félagið var stofnað
og tap verið af starfseminni öll ár-
in. Á árinu 1995 varð um 47 millj-
óna tap m.a. vegna þess að sjó-
mannaverkfallið bitnaði hart á fyr-
irtækinu. Fyrstu sex mánuði ársins
1996 varð um 16 milljóna hagnaður
af starfseminni, en rekstraráætlun
gerir hins vegar ráð fyrir að afkom-
an verði í járnum eða að hagnaður
ársins verði um 3 milljónir. Áætlan-
ir fyrir næsta ár gera ráð fyrir um
45 milljóna hagnaði.
Innheijaviðskipti at-
hugvð hjá Eurotunnel
London. Reuter.
RANNSÓKNARDEILD fjársvika í
Bretlandi, SFO, hyggst kanna inn-
heijaviðskipti fyrir frönsku lögregl-
una hjá Eurotunnel Plc, ensk-
franska fyrirtækið sem heldur uppi
ferðum um járnbrautargöngin undir
Ermarsundi.
Talsmaður SFO sagði að upplýs-
ingar, sem yrði safnað, yrðu afhent-
ar frönskum yfirvöldum.
Hann kvað SFO ekki hafa ástæðu
til að kanna ásakanir um brezk inn-
heijaviðskipti.
Astæðan væri sú að flestir hlut-
hafar Eurotunnel væru Frakkar og
megnið af viðskiptum Eurotunnel
hefðu farið fram í París, en ekki
London.
Leit í níu helztu bönkum
Blaðið Sunday Times hafði
áður skýrt frá því að franska lögregl-
an vildi að leit yrði gerð í höfuðstöðv-
um níu helztu tanka og fjármála-
stofnana Bretlands vegna málsins.
Frakkar hafa áhyggjur af ásök-
unum um leka á viðkvæmum við-
skiptaupplýsingum um fjárhagslega
endurskipulagningu Eurotunnels til
spákaupmanna að sögn blaðsins.
Blaðið segir að rannsóknin nái
aftur til ársins 1994 þegar Ermar-
sundsgöngin voru opnuð.
Hermt er að innheijaviðskiptin
hafi farið fram skömmu áður en
ensk-franska fyrirtækið greindi frá
tilraunum til að skuldbreyta skulda-
byrði, sem nú nemur 9.1 milljarði
punda, eða rúmlega 900 milljörðum
króna.
Blaðið segir að eftirlitsdeild kaup-
hallarinnar í London, LSE, hafi þeg-
ar rannsakað ásakanirnar, en engin
sönnunargögn fundið.
HI utabréf am ar kað ur
á gelgjuskeiði
T
Stefán Halldórsson
Miðvikudaginn 13. nóv. 1996, boðar Félag
viðskiptafræðinga og hagfræðinga til
morgunverðarfundar frá kl. 8:00-9:30 að Hótel
Sögu, Skála 2. hæð.
Framsögumenn á fundinum veröa:
Stefán Halldórsson framkvæmdastjóri
Verðbréfaþings (slands. Hann mun m.a.
fjalla um:
i
Halldór Friðrik
Porsteínsson
■ Breytingar á starfsemi verabréfaþings
■ Leiðir til þess að efla traust fjárfesta á
markaðnum
■ Áhrif gamaldags viðskiptahátta á markaðinn
og hugmyndir um úrbætur í þeim efnum
Halldór Friðrik Þorsteinsson viðskipta-
fræðingur hjá Kaupþingi. Hann mun fjalla um:
■ Gífurlegar hækkanir og vöxt á ístenska
hlutabréfamarkaðarins sl. 2 ár
■ Stöðuna nú og horfur á næstu misserum.
Opinn fundur - gestir velkomnir.
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
Fundurinn hefst kl. 8:oo , stendur til 9:30 og er öllum opinn.
Fyrirspurn
umlífeyr-
isgreiðslur
TÓMAS Ingi Olrich alþingis-
maður hefur beint fyrirspurn
til Ijármálaráðherra varðandi
greiðsiur í lífeyrissjóði og al-
mannatryggingar. Meðal ann-
ars er spurt um hvort fylgst
sé með að allir launamenn og
þeir sem stundi atvinnurekstur
eða sjálfstæða starfsemi eigi
aðild að lífeyrissjóði eins og
skylt sé samkvæmt lögum.
Einnig er spurt hvort mis-
brestur sé á að lagaskyldan sé
virt og hve margir greiði ekki
í lífeyrissjóði og hvort það geti
ekki valdið miklum árlegum
útgjöldum fyrir almannatrygg-
ingar á komandi árum og ára-
tugum ef menn sinni ekki
tryggingaskyldu sinni og hve
mikill sá útgjaldaauki geti orð-
ið. Þá er spurt hvort greiða
beri í lífeyrissjóð af nefndar-
og stjórnarlaunum.
Loks er spurt hvort það geti
reynst hagkvæmara fyrir ein-
stakling skattalega séð og með
tilliti til ráðstöfunarfjár á eftir-
launaaldri að kaupa sér t.d.
fremur spariskírteini eða
tryggja sig með söfnunar-
tryggingu hjá einkatrygging-
arfélagi, en að greiða lögbund-
ið iðgjald til lífeyrissjóðs.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
KRISTJÁN Theodórsson, framleiðslustjóri Myllunnar, býður þeim
Kolbeini Kristinssyni og Páli Kr. Pálssyni að smakka á smákökum
bökuðum úr Ljómandi mylludeigi við undirritun samstarfssamn-
ings Mýllunnar og Sólar um framleiðslu á deiginu.
„Ljómandi myllu-
deig“ í verslanir
LJÓMANDI mylludeig er ný
framleiðsla sem Myllan hf. og
Sól hf. standa sameiginlega að.
Um tvenns konar tilbúið deig er
að ræða, piparköku- og súkku-
laðibitakökudeig. Deigið er selt
í 600 gramma pakkningum og
geymist í allt að sex vikur í kæli.
Að sögn Kolbeins Kristins-
sonar, framkvæmdasljóra Myll-
unnar, er deigið ákaflega þægi-
legt i notkun og það eina sem
þarf að gera við deigið er að
skera það niður og baka. „Við
hjá Myllunni framleiðum deigið
en Sól sér um markaðssetningu
þess og dreifingu. Myllan fram-
leiddi áður tilbúnar smákökur
en hætti því vegna þess hversu
erfitt er að keppa við verð á
erlendum smákökum sem eru
seldar í íslenskum verslunum.
Aftur á móti er Ljómandi myllu-
deig á svipuðu verði og tilbúið
erlent deig.“
Ársgömul hugmynd
Að sögn Páls Kr. Pálssonar,
framkvæmdasljóra Sólar,
kviknaði hugmyndin að fram-
leiðslu á tilbúnu deigi fyrir um
ári síðan. „Starfsmenn beggja
fyrirtækjanna höfðu velt hug-
myndinni fyrir sér en fyrir sex
mánuðum hófst undirbúningur
að samstarfi Myllunnar og Sólar
um framleiðslu á Ljómandi
mylludeigi. Síðan þá hefur deig-
ið verið í stöðugri þróun með
góðri hjálp frá bæði börnum og
fullorðnum.“
Byijað verður að dreifa
Ljómandi mylludeigi í verslanir
í dag og verður það selt fram
að jólum til reynslu. Að sögn
Páls skera viðtökur neytenda
úr um hvort framhald verði á
framleiðslunni eftir það. „Ef
deigið fær góðar viðtökur eru
bæði fyrirtækin tilbúin að halda
áfram á sömu braut og starfa
frekar saman. I Bandaríkjunum
er talið að u.þ.b. helmingur af
bakstri heimilanna sé úr tilbúnu
deigi enda fylgir því mikill tíma-
sparnaður. Við gerum okkur
vonir um að ná um 20% mark-
aðshlutdeild í smákökubakstri
heimilanna fyrir þessi jól.“
Kolbeinn segir að þetta sé
raunhæft mat sé miðað við
fengna reynslu af sölu á tilbúnu
laufabrauðsdeigi. „Allt frá því
að sala á tilbúnu laufabrauðs-
deigi og fullgerðumlaufa-
brauðs
farið stigvaxandi og um síðustu
jól var hlutdeildin í markaðnum
orðin um 80%. Þar skiptir miklu
að nýir neytendur bættust í
hópinn, fólk sem ekki hafði áður
gert laufabrauð. Ég hef trú á
því að svipaða sögu verði hægt
að segja af smákökudeiginu og
fleiri muni baka fyrir þessi jól
en áður.“
Lífeyrissjóðirnir
Sjö milljarðar
íhlutabréfum
BÓKFÆRÐ hlutabréfaeign lífeyr-
issjóða nam tæpum 7 milljörðum
króna um síðustu áramót eða 2,65%
af heildareignum þeirra, sem voru
um síðustu áramót um 263 milljarð-
ar króna, að því er fram kemur í
SAL fréttum, fréttabréfi Sambands
almennra lífeyrissjóða. Samsvar-
andi hlutfall af heildareignum var
2,34% í árslok 1994.
Lífeyrissjóður verslunarmanna,
stærsti lífeyrissjóður landsins með
eignir sem námu tæplega fjörutíu
milljörðum, átti mest lífeyrisjóð-
anna í hlutabréfum eða sem nam
1.577 milljónum króna, sem er um
4% af heildareignum.
Lífeyrissjóður Austurlands á
mest hlutfallslega í innlendum
hlutabréfum eða sem nemur rúm-
um 10% af heildareignum. Sam-
vinnulífeyrissjóðurinn á hlutfalls-
lega litlu minna í hlutabréfum eða
sem nemur um 10%. Þar á eftir
koma Lífeyrissjóður Vesturlands,
Lífeyrissjóður Tæknifræðingafé-
lags Islands og Lífeyrissjóður
lækna, sem eru með um 6% af
heildareignum hver um sig í inn-
lendum hlutabréfum.
Tekið er fram að rétt sé að skoða
þessar upplýsingar með tilliti til
þess að misræmis geti gætt eftir
því hvort hlutabréfin séu færð á
markaðsverði eða framreiknuðu
kostnaðarverði í bókhaldi sjóð-
anna, en færa bera hlutabréfin á
því verði sem lægra sé.