Morgunblaðið - 17.11.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.11.1996, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forsetaheimsóknin vekur athygli danskra fjölmiðla Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. EF marka má fjölda danskra fjöl- miðla, sem hafa skráð sig til að skrifa um heimsókn Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta íslands, og eig- inkonu hans, Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur, vekur heimsóknin ótvítræðan áhuga Dana. Það vekur einnig athygli að forsetahjónin verða saman um dagskrána, þar sem for- setafrúin hefur kosið að fylgja manni sínum í stað þess að gerð verði sér- stök dagskrá fyrir hana. Á föstudaginn, þegar fjölmiðlar máttu sækja aðgangskort sín að atburðum heimsóknarinnar, höfðu 39 fjölmiðlar tilkynnt þátttöku, þar á meðal báðar stóru sjónvarpsstöðv- arnar, danska ríkisútvarpið, öll helstu blöðin og einnig mörg tíma- rit. í þessum hópi eru ýmsir fjölmiðl- ar, sem annars sinna ekki opinberum heimsóknum, en nefna má að þegar forseti eins Eystrasaltslandanna var Kynning á íslenskum vörum samhliða hér á ferð nýlega vakti heimsókn hans engan áhuga fjölmiðla. Mestur er áhuginn á blaðamannafundi for- setahjónanna, sem haldinn verður í Kristjánsborgarhöll á miðvikudaginn að afloknum hádegisverði er forsæt- isráðherra Dana heldur til heiðurs þeip hjónum. í heimsóknum þjóðhöfðinga er venjan að auk dagskrár hans sé skipulögð sérstök dagskrá fyrir makann sem í flestum tilfellum er eiginkonan. Þannig var ætlunin að Guðrún Katrín færi í heimsókn á Karen Blixen-safnið og í danskan skóla. Það verður hins vegar úr að Blixen-safninu verður sleppt og þau fara bæði í skólaheimsókn, en Guð- rún Katrín mun fara í stutta heim- sókn í Rósenborgarhöll þar sem meðal annars eru geymdir skartgrip- ir dönsku krúnunnar og önnur verð- mæti. „íslenskt? Já, takk“ Þegar Soren Haslund-Christensen hirðmarskálkur kynnti að vanda dagskrá heimsóknarinnar fyrir dönskum blaðamönnum um daginn vakti það óskipta athygli blaða- mannanna, sem margir hveijir hafa þá sérgrein að fylgjast með opinber- um heimsóknum, að forsetahjónin skyldu heimsækja pizzustaðinn Pizza 67, sem er í eigu íslenskra aðila og kjörbúð. Skýringin er sú að tíu SuperBrugsen búðir á Stór- Kaupmannahafnarsvæðinu standa um þessar mundir að mikilli kynn- ingu á íslenskum vörum. Búðirnar eru hluti af dönsku sam- vinnuhreyfingunni sem rekur hér öfluga búðarkeðju undir fyrrnefndu nafni þar sem lögð er áhersla á góð- ar og ódýrar vörur. í búðunum blasa nú við kunnugleg skilti þar sem á stendur: „íslenskt? Já, takk“, ís- lenskt sælgæti er í haugum á besta stað, flatkökurnar hjá munaðarvör- um eins og ítalskri parmaskinku og íslenska lambakjötið er í frystiborð- inu. Vænt lambalæri kostar á bilinu 120-150 danskar krónur sem er dijúgt miðað við að heldur minni læri frá Nýja-Sjálandi fást iðulega á tilboði fyrir 50 krónur. Torben Vogter, verslunarstjóri SuperBrugsen í Hellerup, á veg og vanda af kynningunni sem dyggilega er studd af Útflutningsráði. Torben er slátrari og bjó á íslandi fyrir þijá- tíu árum, vann þá meðal annars hjá Sfld og fiski, í Kjötbúðinni Borg og hjá Sláturfélagi Suðurlands. Samkeppni lækkar plötuverð VERÐ á geisladiskum hefur farið lækkandi í verslunum á höfuðborg- arsvæðinu að undanförnu. í kjölfar opnunartilboða nýrrar búðar, Virgin Megastore, hefur Bónus lækkað verð á geisladiskum, Skífan hefur fram- lengt afmælistilboð sitt og Spor býð- ur nú 20% afslátt af geisladiskum fram í desember. Ódýrustu nýju ís- lensku geisladiskamir fást á tilboði í Bónus á 1.299 kr. en lækkunin annars staðar nemur 200-400 kr. Á opnunartilboði Virgin eru tveir nýútkomnir íslenskir geisladiskar seldir á 1.499 kr. Annað nýtt ís- lenskt og erlent efni er selt frá 1.699 krónum. Auk þess fæst þar töluvert af geisladiskum sem framleiddir hafa verið með litlum tilkostnaði, á 299 til 499 kr. Steinar Berg ísleifsson, fram- kvæmdastjóri hjá Spori, sagði að mögulega væru sviptingar á mark- aðinum viðvarandi. Geisladiskar út- gefnir hjá Spori seljast á 1.599 kr. en kostuðu áður 1.999 kr. en auk þess er afsláttur af nokkrum eriend- um geisladiskum „Við bjóðum þenn- an afslátt í verslunum okkar næstu vikumar og sjáum svo til hvað setur en við höfum hug á að mæta auk- inni samkeppni með lægra verði á íslenskum plötum," sagði Steinar Berg. Viðvarandi afsláttur Afmælistilboð Skífunnar hefur verið framlengt fram yflr helgi og segir Tómas Tómasson, markaðs- stjóri fyrirtækisins, að vel gæti farið svo að afslátturinn sem er um 20% af vinsælu efni verði viðvarandi. „Engar ákvarðanir hafa verið teknar en ég á ekki von á að verðstríð sé í uppsiglingu. Aukin samkeppni er hins vegar af hinu góða,“ sagði Tóm- as. Skífan býður nýútkomið erlent efni frá 1.699 krónum og tuttugu vinsælustu diskamir kosta á bilinu 1.359 til 1.799 krónur. Jón Ásgeir Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Bónuss, segir hrær- ingar hafa verið í verðlagi á vinsæl- ustu geisladiskunum að undanfömu í kjölfar opríunar nýju verslunarinn- ar. „Bónus býður yfirleitt lægsta verðið en Virgin opnaði með lægri tilboð í tveimur tilfellum á fimmtu- dag. í snarhasti lækkuðum við verð- ið þannig að tilboðin em að nýju hagstæðust hjá okkur," sagði Jón Ásgeir. í verslunum Bónuss fást um 200 tegundir af geisladiskum sem kosta á bilinu 1.399 - 1.557 kr. Á tilboði eru tveir íslenskir geisladiskar á 1.299 kr. SOGRÖR eru til margra hluta nytsamleg. Það má drekka kókómjólk með þelm og svo má iíka nota þau til að fram- leiða einkennileg hljóð og til I kennslu- stund? Morgunblaðið/Ámi Sæberg margvíslegrar annarrar skemmtunar. Engu er líkara en að hér leiðbeini sá eldri og reyndari ungviðinu um notkun þessa þarfaþings. Talsmenn útvarpsstöðva furða sig á gagnrýni tónlistarfólks Hlutur íslenskrar tónlistar ekki lítill TALSMENN Ríkisútvarpsins, Bylgj- unnar og Aðalstöðvarinnar og X-ins fullyrða að hlutdeild íslenskrar tónlist- ar í dagskrá stöðvanna sé ekki of lít- il. Þrenn hagsmunasamtök tónlistar- fólks hafa vakið athygli á því að hlut- deild íslenskrar tónlistar sé aðeins á bilinu 5%—21% á útvarpsstöðvum og krafið forsvarsmenn þeirra svara hvers vegna svo lítið sé Ieikið af ís- lenskri tónlist. Talsmenn Bylgjunnar og Aðalstöðvarinnar/X-ins sögðust furða sig á gagnrýni tónlistarfólks og töldu hana ekki maklega. Bergþóra Jónsdóttir, tónlistarrit- stjóri rásar 1, segir að mikið sé rætt um það á Norðurlöndum að innlend tónlist eigi í vök að veijast gegn er- lendum tónlistaráhrifum. „Ég tel að hlutur íslenskrar tónlistar hafi ekki minnkað og hún á a.m.k. enn sinn samastað á rás 1. Nefna má að dag- skrárgerð um íslenska tónlist og tón- listarmenn hefur aukist," sagði hún. Á hinn bóginn segir Bergþóra að tónlist hafi almennt fengið meira vægi í dagskrá RÚV og þess vegna kunni hlutdeild íslenskrar tónlistar að vera hlutfallslega heldur minni en áður fyrr. „Það hefur alltaf verið stefna okkar að spila sem mest af íslenskri tónlist og svo verður áfram." í réttu hlutfalli við framboð Jón Axel Ólafsson, dagskrárstjóri Bylgjunnar, segir að sér komi veru- lega á óvart gagnrýni tónlistar- manna. Bylgjan hafí átt mjög gott samstarf við þá á undanförnum árum og m.a. átt frumkvæði að tölvuskrán- ingu tónlistar. „Ég tel að hlutur ís- lenskrar tónlistar sé ekki fyrir borð borinn á Bylgjunni eða á öðrum stöðvum. Það er á hinn bóginn spurn- ing hvort hlutfall íslenskrar tónlistar sé ekki í réttu hlutfalli við framboð af tónlist á landinu," sagði hann. Að sögn Jóns Axels hefur aldrei verið mörkuð stefna á Bylgjunni að takmarka íslenska tónlist. „Þvert á móti viljum við hafa gott samstarf við íslenska tónlistarmenn og við vilj- um spila meiri góða íslenska tónlist. Við spilum þó fyrst og fremst þá tónlist sem hlustendur okkar vilja heyra,“ sagði hann. Þormóður Jónsson, dagskrárstjóri Aðalstöðvarinnar og X-ins, segir gagnrýni tónlistarfólksins bera vitni um hroka og telur erindi þeirra vart svaravert. Hann segir að áhersla hafl verið lögð á að leika íslenska tónlist á Aðalstöðinni og m.a. þess vegna væri gagnrýni tónlistarmanna illskiljanleg. A X-inu væri á hinn bóginn leikin sú tónlist sem sé vinsæl hverju sinni. Þar sé hlutur íslenskrar tónlistar mestur um jól þegar útgáfa er mest. Bendir hann á að íslensk lög myndi þriðjung spilunarlista X-ins fyrir jólin. „Ég hef ekki trú á því að margir tónlistarmenn, sem við höfum unnið með í gegnum tíðina, hefðu skrifað undir þetta bréf. Ég hef þegar borið erindið undir nokkra tónlistarmenn og telja þeir að okkur vegið,“ sagði Þormóður. ► 1-56 Bjartsýnn á að álver rísi ►Lögfræðingurinn Kenneth Pet- erson var lítt efnum búinn árið 1986 er hann fékk þá hugmynd að endurreisa álver sem búið var að loka. Nú rekur hann margar arðbærar verksmiðjur í áliðnaði og ef allt gengur að óskum er álver á Grundartanga næsta stórvirki hans. /10 Evrópusamruninn af sjónarhóli Bundesbank ►Helmut Schlesinger, fyrrverandi aðalbankastjóri þýska seðlabank- ans, Bundesbank, hefur lýst at- hyglisverðum hugmyndum um evr- ópska myntsambandið og fram- vindu þess. /12 Nýr baraaspítali nauðsynlegur ►Vilji er fyrir að ráðast í að reisa nýjan bamaspítala við Landspítal- ann, en aðstaðan nú er alls ófull- nægjandi og verður ekki leyst nema með nýbyggingu. /22 Fall varfararheill ►í Viðskiptum/Atvinnulífl á sunnudegi er rætt við bræðuma Harald og Sturlaug Sturlaugssyni í Haraldi Böðvarssyni hf. á Akra- nesi. /24 B ►l-32 Karabískir draumar ►Töfrar Dóminikana leynast víð- ar en á afgirtum svæðum glæsihót- ela. Þar býr líka glaðvært og heill- andi fólk sem brosir með augunum. /1 og 16-17 Menningarlegur dyravörður ►Sigurður G. Valgeirsson, dag- skrárstjóri innlendrar dagskrár- deildar ríkissjónvarpsins, hefur víða komið við um dagana. /8 Eitthvað spennandi ►Móeiður Júníusdóttir og Eyþór Amalds í Bong eru með breiðskífu í burðarliðnum, en kynning á nýj- ustu tölvutækni tekur æ meiri tíma frá tónlistinni. /14 C FERDALÖG ► 1-4 Andorra ►Af fríverslun í flöllunum. /2 Skoða norðurljósin á íslandi ►Gert er ráð fyrir að um 500 jap- anskir ferðamenn komi til landsins í vetur í þessum erindagjörðum. /4 D BILAR ► 1-4 Reynsluakstur ►Vel búinn Fiat Brava á áhuga- verðu verði. /2 íslenskir fornbílar í Færeyjum ► Félagar úr Fombflaklúbbi ís- lands fóru með bíla sína til Fær- eyja á árlega fombílasýningu Föroya Ellis Akför á Ólafsvökuhá- tíðmni 1996. /4 fastir þættir Fréttir 1/2/4/6/bak Leiðari 28 Helgispjall 28 Reykjavíkurbréf 28 Minningar 32 Myndasögur 40 Bréf til blaðsins 40 ídag 42 Brids 42 Stjömuspá 42 Skák 42 Fólk í fréttum 44 Bló/dans 46 lþróttir 60 Utvarp/sjónvarp 52 Dagbók/veður 55 Kvikmyndir 5tl Gárur 61 Mannlífsstr. 61 Dægurtónlist 121 Skoðun 301 INNLENDAR FRÉTTIR- 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR- 1&6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.