Morgunblaðið - 17.11.1996, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996
MINNINGAR
/
MORGUNBLAÐIÐ
t
Vinkona okkar,
ÓLÍNA PÉTURSDÓTTIR
sem lést á Reykjalundí 11. nóvember, verður jarðsungin frá Lága-
fellskirkju þriðjudaginn 19. nóvember kl. 13.30.
Vinir.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR H. VALDIMARSSON
flugvirki,
Árskógum 6,
Reykjavík,
lést á heimili sínu 15. nóvember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Þorgerður Bjarnadóttir,
Guðrún J. Gunnarsdóttir, Birgir Birgisson,
Hallgrímur V. Gunnarsson,
Guðbjörg K. Gunnarsdóttir,
Margrét Á. Gunnarsdóttir,
Gunnar R. Gunnarsson,
Kristbjörg Sigurðardóttir,
Björn Guðjónsson,
Eyjólfur Ingimarsson,
Björg G. Gísladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, afi, tengdafaðir og bróðir,
KRISTINN EYJÓLFSSON
frá Hvammi í Landssveit,
Drafnarsandi 5,
Hellu,
lést á heimili sínu 13. nóvember sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Anna Magnúsdóttir,
Lóa Rún Kristinsdóttir,
Inga Jóna Kristinsdóttir, Þórður Þorgeirsson,
Eyjólfur Kristinsson,
Eyjólfur Ágústsson, Guðrún S. Kristinsdóttir,
barnabörn, systkini og aðrir vandamenn.
t
Ástkær maðurinn minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
KRISTJÁN EDILON HJÁLMARSSON,
Hringbraut 54,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði þriðjudaginn 19. nóvember
kl. 13.30.
Hulda Margrét Hermóðsdóttir,
Ingibjörg Kristjánsdóttir, Guðjón Guðbjartsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Astkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HÉÐINN SKÚLASON
fyrrv. lögreglufulltrúi,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju,
þriðjudaginn 19. nóvember kl. 13.30.
Guðrún Nanna Þorsteinsdóttir,
Margrét Héðinsdóttir, Ólafur Ingi Baldvinsson,
Þorsteinn Héðinsson, María Birna Gunnarsdóttir,
Hilmar Héðinsson, Lena Maria Nolen,
Örn Héðinsson, Guðrún Hanna Hilmarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
systir og amma,
ÓLAFÍA ÞORVALDSDÓTTIR,
Freyjugötu 47,
sem andaðist í Landspítalanum 13.
nóvember sl. verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 19. nóvem-
ber kl. 1 5.
Þórunn Sigurðardóttir, Magnús Ólafsson,
Dagbjört Þyri Þorvarðardóttir, Guðni Kristinsson,
Hafsteinn Þorvaldsson,
Haukur Þorvaldsson
og barnabörn.
INGIBJÖRG
BÖÐ VARSDÓTTIR
+ Ingibjörg Böðv
arsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 21.
júlí 1915 og lést í
Reykjavík 8. nóv-
ember síðastliðinn.
Ingibjörg var dóttir
hjónanna Böðvars
Jónssonar efnis-
varðar, lengi um-
sjónarmanns á Nýja
Garði, f. 27. júní
1879, d. 6. febrúar
1954, og Guðrúnar
Skúladóttur, f. 31.
ágúst 1883, d. 9.
ágúst 1965. Þau
eignuðust fimm börn. Þau voru
auk Ingibjargar: Jón símamað-
ur, f. 13. ágúst 1912, d. 1986,
maki Hólmfríður Sigurðardótt-
ir. Gunnar, fulltrúi hjá Bæjar-
síma Reykjavíkur, f. 2. febrúar
1914, d. 1966, maki María Ás-
geirsdóttir. Ragnheiður , f. 17.
ágúst 1921, maki Jóhann Sig-
urðsson. Sigurbjörg, f. 3. maí
1923, maki Jón Sigurpálsson.
Ingibjörg var síðari kona Reyn-
is Guðmundssonar vélsljóra í
Hafnarfirði, f. 24. apríl 1906,
d. 14. apríl 1988. Ingibjörg varð
stúdent úr stærfræðideild MR
1935, stundaði nám í lyfjafræði
í Reykjavíkur Apóteki 1935 -
1938 og lauk fyrrihlutaprófi í
lyfjafræði það ár. Hún nam við
Lyfjafræðiháskólann í Kaup-
mannahöfn 1939 - 1941 oglauk
Hjartkær móðursystir okkar,
Ingibjörg Böðvarsdóttir, er látin.
Stella, eins og hún var alltaf köll-
uð, var engin venjuleg frænka. Hún
var einstök manneskja með ótrú-
lega stórt hjarta. Hjarta sem rúm-
aði ekki aðeins hennar nánustu
heldur alla sem hún kom nálægt.
Við höfum stundum sagt það systk-
inabörnin hennar að allar fjölskyld-
ur þyrftu að eiga eina svona Stellu
frænku. Frænku sem var höfuð
ættarinnar, vakti yfir okkur öllum,
sýndi námi okkar, áhugamálum og
öllu okkar daglega lífi svo mikinn
áhuga.
Stella fæddist í Reykjavík. For-
eldrar hennar voru Böðvar Jónsson
frá Tjörn á Vatnsnesi og Guðrún
Skúladóttir frá Ytra-Vatni í Skaga-
firði. Hún ólst upp á stóru og gest-
kvæmu heimili ásamt fjórum systk-
inum sínum. Mikil tengsl voru við
ættingjana bæði úr Húnavatnssýsl-
unni og Skagafirðinum og voru
báðar þessar sýslur henni alla tíð
mjög hjartfólgnar. Stella var ákaf-
lega lifandi og skemmtileg og hafði
mörg áhugamál. Eitt af þeim var
ættfræði, en frænka okkar var
ákaflega ættrækin. Var það svo að
ef maður nefndi vin eða kunningja
var Stella óðara búin að rekja ætt-
ir þeirra og okkar saman. Skipti
það hana engu að viðkomandi væri
skyldur okkur í 5. - 6. lið, viðkom-
andi var frændi eða frænka. Hún
hafði einnig brennandi áhuga á öllu
sem viðkom landi og þjóð. Skildi
hún aldrei hvað fólk var að þvælast
í ferðalög til útlanda þegar það
hafði annað eins land og Island til
að ferðast um.
Eftir hefðbundið skyldunám lá
leið Stellu í Menntaskólann í
Reykjavík og útskrifaðist hún það-
an 1935. Á menntaskólaárunum
eignaðist hún sínar bestu vinkonur
og entist sú vinátta ævilangt.
Eftir stúdentspróf lá leiðin í
Reykjavíkurapótek þar sem Stella
gerðist nemi í lyfjafræði. Þær eru
ófáar sögurnar sem hún sagði okk-
ur frá árunum í Reykjavíkurapó-
teki. Sagði hún svo skemmtilega
og lifandi frá að manni fannst
maður sjá í anda þau Mundu Gísla,
Immu Siguijóns, Sverri Magg,
Helga Hálfdanar og alla hina sem
þar störfuðu.
Ekki voru þær heldur fáar sög-
umar frá námsárunum í Danmörku
þar sem hún varð innlyksa á stríðs-
árunum.
lyfjafræðiprófi
haustið 1941. Áður
en hún fór til Kaup-
mannahafnar starf-
aði hún eitt ár sem
aðstoðarlyfjafræð-
ingur í Reykjavíkur
Apóteki og að prófi
loknu vann hún á
rannsóknastofu
lyfjafyrirtækisins
Ferrosan í Kaup-
mannahöfn 1941 -
1945. Heimkomin
eftir stríðið vann
hún í Reykjavíkur
Apóteki 1945 -
1954 og Garðs apóteki 1959 -
1970. Hún stofnaði Lyfjabúð
Breiðholts 1970 og rak hana
þar til hún varð að láta af störf-
um 1985 vegna ákvæðis sem
þá var í lögum um aldurstak-
mark lyfsala. Ingibjörg sat í
sljórn Lyfjafræðingafélags Is-
lands 1947 - 1950 og 1965 -
1969, var í stjóm Menningar-
sjóðs lyfjafræðinga 1966 - 1970
og í Minjanefnd lyfjafræðinga
frá stofnun 1978 og í sljórn
Lyfjafræðisafnsins til dauða-
dags. Hún ritaði greinar í Tíma-
rit um lyfjafræði og var í rit-
nefnd Lyfjafræðingatals, sem
út kom 1982. Útför Ingibjargar
verður gerð frá Dómkirkjunni
í Reykjavík mánudaginn 18.
nóvember og hefst athöfnin
klukkan 13:30.
Manni sínum, öðlingnum Reyni
Guðmundssyni, gift.ist Stella 1954.
Bjuggu þau lengst af í litlu og vina-
legu húsi við Jófríðarstaðaveg í
Hafnarfirði. Minningamar sem við
eigum frá heimsóknum okkar til
þeirra, munu ylja okkur alla tíð.
Hinsta kveðjustundin er mnnin
upp. Um leið og við kveðjum ást-
kæra frænku þökkum við af alhug
allar yndislegu samverustundirnar,
ást hennar, umhyggju og gjafmildi
í okkar garð og þökkum forsjóninni
fyrir að hafa átt hana Stellu okkar
að. Blessuð sé minning hennar.
Margrét, Sigurpáll, Þorgerður.
Minningamar hrannast upp og
koma fram í yndislegum myndum
tengdum æskunni - unglingsárum
og fullorðinsámm þar sem mynd
Stellu frænku skín skært þegar rifj-
aðar eru upp minningar frá þessum
tíma em þær oftar en ekki tengdar
Stellu frænku og Reyni í Hafnar-
firði.
Allar mörgu gleðistundirnar sem
við áttum á Jófríðarstaðaveginum
á heimili Stellu og Reynis. Öll jóla-
boðin, þar sem stórfjölskyldan kom
saman, voru engu öðru lík. Árviss
rifsbeijatínsla í fallega garðinum
þar sem stórir og smáir léku saman
og úr varð mikil garðveisla. Það
þótti svo sjálfsagt að fara í Hafnar-
fjörð. Gamla timburhúsið með háa-
loftinu og öllum spennandi skápun-
um sem alltaf buðu uppá verkefni
fyrir litlar hendur. Garðurinn, sem
Stella lagði svo mikla rækt við og
hafði komið upp miklu safni ís-
lenskra jurta. Hóllinn á Jófríðar-
stöðum, sem ósjaldan var klifinn á
sumrin en var hin besta sleðabrekka
á vetrum. Allt þetta umhverfi var
sem ævintýraheimur. Þarna ríktu
svo Stella og Reynir og voru sam-
taka um að taka öllum opnum örm-
um hvenær sem var. Árin liðu og
við héldum áfram að koma í Hafn-
arfjörð, nú með börn og maka. Síð-
ar meir fýlgdum við þeim í Skafta-
hlíðina þegar þau fluttu þangað.
Stella var einstök kona. Eftir að
hún hætti að reka Lyfjabúð Breið-
holts og eftir lát Reynis, fyllti Stella
dagana með áhugamálum sinum.
Áhugi hennar á lyfjafræðinni var
óþijótandi og Lyfjafræðisafnið átti
hug hennar allan. Þar lagði Stella
sannarlega sinn skerf af mörkum
enda mikið sem liggur eftir hana
þar. Ættfræðin átti líka stóran sess
í huga hennar. Þar var hún jafnó-
trúlega fróð og vel lesin sem í öðru.
Stella vildi gjarnan miðla þessari
þekkingu sinni. Hún sýndi okkur
systrum mikla þolinmæði við að
skrifa niður, útskýra og leiðbeina
um fjölskyldutengsl, sem henni
þótti sjálfsagt að við vissum deili á.
Stella frænka var mikill og sterk-
ur persónuleiki. Hún fékk sinn skerf
af erfíðleikum í lífinu en umhyggja
hennar fyrir öðrum var ofar öllu
öðru. Við nutum þess systurnar, að
fá óteljandi símhringingar frá henni
þar sem við vorum í burtu. „Rétt
til að heyra í okkur,“ eins og hún
var vön að segja. Hún var sannar-
lega mikil frænka sem okkur þótti
ákaflega vænt um.
Við sendum Sísí og Rögnu inni-
legar samúðarkveðjur, nú þegar
Stella er farin. Samband þeirra
þriggja var einstaklega mikið og
gott.
Við systur, mamma, Hannes og
börnin okkar kveðjum Stellu með
söknuði, virðingu og þakklæti.
Blessuð sé minning Stellu frænku
okkar.
Hildur og Guðrún (Gurra).
Kveðja frá
Apótekarafélagi íslands
Á morgun verður til moldar bor-
in mikil heiðurskona, Ingibjörg Böð-
varsdóttir eða Stella eins og hún
var kölluð af vinum og samstarfs-
fólki.
Við, sem skipum stjórn Apótek-
arafélags íslands, munum sakna
Stellu, en hún var tíður gestur í
húsi Lyíjafræðisafnsins í Nesi við
Seltjörn. Við hittum hana oft þegar
við héldum fundi þar.
Stella var félagslynd kona og lét
sig málefni stéttar sinnar miklu
varða. Slíkir eiginleikar eru fá-
mennum stéttum mikils virði, því
að erfitt er að fá menn til starfa í
mikilvægum málum.
Dugnaðarforkurinn Stella starf-
aði bæði í stjórn Lyfjafræðingafé-
lags íslands og Apótekarafélags
Íslands, þó að hæst beri störf henn-
ar við stofnun og mótun Lyfjafræði-
safnsins frá upphafi, en þá var hún
hætt rekstri Lyfjabúðar Breiðholts,
sem hún stofnaði síðla árs 1970.
Stella hafði einnig mikinn áhuga
á ættfræði og rakti gjarnan ættir
sumra starfsmanna sinna t.d. til
málsmetandi manna í þjóðfélaginu.
Stjórn Apótekarafélags íslands
þakkar Stellu samfylgdina og send-
ir nánustu ættingjum hennar inni-
legar samúðarkveðjur.
F.h. stjórnar Apótekarafélags
íslands,
Kristján P. Guðmundsson.
Kveðja frá Lyfjafræðisafninu
Þegar Stella varð áttatiu ára
vildu lyfjafræðingar gera henni
nokkuð til heiðurs. Var þá úr vöndu
að ráða, því að bæði hafði hún ver-
ið gerð heiðursfélagi lyfjafræðinga
og sæmd gullmerki þeirra. Varð úr
að Tímarit um lyfjafræði gaf út
aukahefti, sem eingöngu var helgað
Stellu og skrifuðu í það vinir og
samstarfsmenn úr öllum geirum
stéttarinnar. Þetta fór nokkuð leynt
í fyrstu og átti að koma afmælis-
barninu á óvart, en þegar kom að
því að Elín Pálmadóttir blaðamaður
var fengin til að skrifa viðtal við
Stellu, varð því ekki leynt lengur.
Stella brást hin versta við og sagði
meðal annars að sér fyndist nokkuð
snemmt að fara að skrifa um sig
minningargreinar í lifanda lífi.
Gekk nú maður undir manns hönd
að fá samþykki afmælisbarnsins og
ætlaði ekki að takast, fyrr en henni
var bent á að með þessu fengist
ágætis auglýsing fyrir Lyfjafræði-
safnið, sem hún bar svo mjög fyrir
brjósti.
Okkur, sem fylgdumst með þegar
fyrstu hugmyndirnar komu fram
um lyfjafræðisafn og síðan baráttu
Stellu að gera þær að raunveru-
leika, finnst það sýna vel umhyggju
hennar fyrir velferð safnsins að
sætta sig við að vera á þennan
hátt dregin fram í sviðsljósið ef það
mætti verða safninu til framdrátt-