Morgunblaðið - 17.11.1996, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Regnboginn hefur tekið til sýninga nýjustu mynd Bernardo Bert-
olucci, „Stealing Beauty", með Liv Tyler, Jeremy Irons, Sinead Cusack og Carlo
Cecchi í aðalhlutverkum.
Náttúran
blómstrar í
Toscana
SINEAD Cusack leikur Diana Grayson.
AÐ ER smástimið unga, Liv
Tyler, sem fer með aðalhlut-
verkið í þessari nýjustu kvikmynd
hins þekkta ítalska kvikmynda-
gerðarmanns, Bernardo Bertolucc-
is. Hún leikur Lucy Harmon, 19
ára ameríska stúlku, sem tekst á
hendur ferðalag til hinna frjósömu
sveita í Toscana-héraði á Ítalíu.
Hún ætlar að eyða sumrinu með
fjölskylduvinum og henni gengur
tvennt til; að endumýja kunnings-
skap við fyrstu ástina sína, mynd-
arlegan, ungan mann úr nágranna-
fjölskyldu og að leysa gátu sem
Lucy hefur rekist á í dagbók móð-
ur sinnar, skáldsins og fyrirsæt-
unnar Söm. Sara var bóhem og
jafnóðfús að reyna eitthvað nýtt
og hún var ófús að bera ábyrgð.
Lucy granar að í olífutrjálundunum
í Toscana fínni hún svör við spum-
ingum sem brenna á henni og hún
krefst svara við í leit að sjálfri sér.
Nærvera Lucy kemur eins og
ferskur vindur inn í tilvera fólksins
sem hún heimsækir og gesta þess.
Hún hefur djúpstæð áhrif á freðið
tilfinningalíf þessa fólks og kemur
af stað lostafullri ólgu í hjörtum
næstaddra sem vakna til minninga
um þá sælu og þær sorgir sem
æskan veitir færi á að upplifa.
„Stealing Beauty" var tekin upp
sumarið 1995 í Chianti-héraði í
Toscana. Bemardo Bertolucci, leik-
stjórinn, samdi sjálfur söguna sem
myndin er gerð eftir.
Bertolucci er vanastur því að
skrifa handrit eigin mynda en að
þessu sinni fól hann verkið banda-
ríska rithöfundinum Susan Minot.
Þegar handritið lá fyrir fóra Ber-
tolucci og framleiðandinn, sem
hann hefur unnið eingöngu með
undanfarin ár, Bandaríkjamaður-
inn Jeremy Thomas, að ráða leik-
ara til starfa. Óskarsverðlaunahaf-
inn Jeremy Irons var ráðinn til
þess að leika Alex, sem kemur í
heimsókn til Grayson-fjölskyldunn-
ar á sama tíma og Lucy.
Diana Grayson, húsráðandinn,
er leikinn af hinni írsku Sinead
Cusack og landi hennar, Donal
McCann, leikur hr. Grayson. Meðal
annarra leikara má nefna Jean
Marais, sem er á níræðisaldri, en
öðlaðist á sínum tíma frægð fyrir
leik í myndum Jean Cocteau.
Ekki má láta hjá líða að geta
þess að það er hinn stórkostlegi
kvikmyndatökumaður Darius
Khondij, sem stjómar myndatökum
í „Stealing Beauty“. Khondij er
fransk-íranskur og hefur stjórnað
kvikmyndatökum í myndum Jeunet
og Caro, „Delicatessen" og Borg
hinna týndu bama, einnig í make-
dónísku verðlaunamyndinni Fyrir
regnið. Síðast en ekki síst var það
Darius Khondij sem var ábyrgur
fyrir hinu ótrúlega drangalega og
ógnvekjandi yfírbragði sem var á.
myndatöku „Seven“, með Brad Pitt
og Morgan Freeman í aðalhlutverk-
um.
Þegar Bertolucci og Khondij
vora að undirbúa samvinnuna lagði
leikstjórinn línuna með því að segja
myndatökumanninum að koma sér
í rétta stemmningu fyrir „Stealing
Beauty“ með því að stúdera mál-
verk franskra fauvista á borð við
Matisse og Derain og með því að
hlusta á tónlist Mozart.
Höfundur sviðsmyndarinnar,
Gianni Silvestri, fékk þau fyrir-
mæli að vega upp á móti léttleik-
anum sem einkenndi söguna með
því að nota þunga, höfga liti.
Dimmrauðir og bláir litir einkenna
sviðsmyndina og Silvestri gekk
m.a. svo langt að láta lita mölina
í hlaði heimilis Grayson-fjölskyld-
unnar, ægifögru húsi í grennd við
Siena.
JEREMY Irons og Liv Tyler í myndinni „Stealing Beauty". LIV Tyler ieikur Lucy Harmon í myndinni „Stealing Beauty“
eftir Bemardo Bertolucci.
Ungá
LIV Tyler varð 18 ára meðan á tök-
um „Stealing Beauty“ stóð í Toscana
á Ítalíu. Leið hennar á stjörnuhimin-
inn hefur verið ótrúlega hröð frá því
að hún lék fyrst í tónlistarmynd-
bandi hljómsveitarinnar Aerosmith
en hún er einmitt dóttir söngvara
hijómsveitarinnar, Steven Tylers.
Liv Tyler hélt reyndar þangað til
hún var 10 ára að hún væri dóttir
annars poppara, Todd Rundgren, en
eftir því sem stúlkan stækkaði og
þroskaðist varð hið sanna lýðum
Ijóst.
Liv ákvað að gerast fyrirsæta 14
ára gömul og skömmu siðar birtist
hún á forsíðu tímaritsins Vogue.
Fyrsta kvikmyndin sem hún lék í var
„Silent Fall“ eftir Bmce Beresford
þar sem Richard Dreyfuss var í aðal
karlhlutverki. „Stealing Beauty“ er
fjórða kvikmyndin sem hún leikur í
á 18 mánuðum. Síðan hefur hún m.a
leikið í „Heavy“ með Shelley Winters
og Debby Harry. Hún vann nýlega
með Woody Allen og var meðal leik-
enda í „That Thing You Do“, fyrstu
myndinni sem Tom Hanks leikstýrir.
Aftur á Ítalíu
Stealing Beauty er fyrsta
kvikmyndin sem Bernardo
Bertolucci gerir heima á Ítalíu
í fimmtán ár, eða síðan hann
gerði Tragedia de un uomo
ridicolo, Harmsögu um fárán-
legan mann, árið 1981. í milli-
tíðinni hefur hann lokið við
gerð þess sem hann kallar aust-
ræna þríleikinn sínn; banda-
rísku myndimar The Last
Emperor, The Sheltering Sky
og Little Buddha.
Bertolucci er fæddur í Parma
á Ítalíu árið 1941, sonur ljóð-
skálds. Hann var tvítugur há-
skólastúdent í Róm þegar hann
var kynntur fyrir kvikmynda-
gerðarmanninum Pier Paolo
Pasolini, sem var þekktur fyrir
myndir sem mörgum þóttu
hneykslanlegar. Pasolini bauð
Bertolucci vinnu við að aðstoða
sig við gerð myndarinnar Acc-
attone. Bertolucci þáði boðið
og lét nám sitt lönd og leið.
Næsta ár skrifaði hann svo
handrit að eigin mynd. Sú heit-
ir La Commare Secca, Maður-
inn með ljáinn og hlaut feiki-
góðar viðtökur á kvikmyndahá-
tíðinni í Feneyjum eins og sú
sem eftir fylgdi árið 1964,
Prima de la Rivoluzione, Fyrir
byltinguna.
Árið 1967 bað Sergio Leone
Bertolucci um að skrifa drög
að handriti myndarinnar góð-
kunnu Once upon a time in the
West og árið eftir leikstýrði
hann eftir eigin handriti mynd-
inni Félagi. Árið 1970 gerði
hann tvær myndir. Strategia
del Ragno, Kænskubragð
köngulóarinnar og Taglhnýt-
inginn, La Comformista, eftir
skáldsögu Alberto Moravia.
Árið 1973 vakti hann svo mikla
alþjóðlega athygli fyrir hina
djörfu myndi Síðasti tangó í
París með Marlon Brando og
Mariu Schneider í aðalhlut-
verki. Árið 1976 gerði Bert-
olucci myndina 1900 og aftur
vann hann með bandarískum
og frönskum leikurum, að
þessu sinni Robert De Niro og
Gerard Depardieu. 1979 lék
Jill Clayburgh aðalhlutverkið í
La Luna og 1981 kom frá
Bemardo Bertolucci myndin
Harmsaga um fáránlegan
mann, Tragedia de un uomo
ridicoío, með Ugo Tognazzi og
Anouk Aimee í aðalhlutverk-
um.
Óskarsverðlatmahafi
Eins og fyrr sagði hefur
Bertolucci haldið sig utan hei-
malandsins frá gerð þeirrar
myndar, og myndað tengsl við
menn ( Hollywood. Árið 1986
gerði hann myndina Síðasta
keisarann um síðasta keisar-
ann í Kína og hlaut hún hvorki
fleiri né færri en 9 óskarsverð-
Iaun, þar á meðal sem besta
kvikmynd ársins og Bertolucci
sjálfur hlaut viðurkenningu
sem leikstjóri ársins. Árið 1990
gerði hann mynd í Sahara eftir
skáldsögu Paul Bowles, The
Sheltering Sky en meðal leik-
enda voru Debra Winger og
John Malkovich. 1992 sneri
Bertolucci afturtil Austurlanda
fjær og gerði myndina um
Buddha litla í Nepal og í
klaustrum í hinu afskekkta
furstadæmi Bhutan.
Bertolucci hefur oftast skrif-
að liandrit eigin mynda og auk
þess hefur hann komið fram
sem leikari ! nokkrum kvik-
myndum.