Morgunblaðið - 17.11.1996, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996 9
FRETTIR
Vill afnám skyldu-
áskriftar að RÚV
AFNÁM skylduáskriftar að Rík-
isútvarpinu og innheimtuaðferðir
afnotagjalda þess komu til umræðu
á Alþingi í vikunni. Viktor B. Kjart-
ansson, varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokks, mælti fyrir þings-
ályktunartillögu, sem miðar að því
að menntamálaráðherra leggi fram
frumvarp um afnám skylduáskrift-
ar almennings að RÚV.
Viktor sagði afnotagjöld RÚV
raska samkeppni á íslenzkum fjöl-
miðlamarkaði, þar sem það væri í
samkeppni við einkaaðila bæði á
markaði fyrir áskrift og auglýsing-
ar. Auk þess leggi skylduáskriftin
hömlur á valfrelsi almennings, sem
verði að teljast grundvallaratriði í
fijálsu markaðsþjóðfélagi. „Niður-
felling afnotagjalda er því rétt-
lætismál,“ sagði Viktor, „bæði í
skilningi valfrelsis neytenda og
jafnræðis á milli keppenda á sama
markaði."
Margir þingmenn urðu til að
andmæla tillögunni. Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir, þingflokki
jafnaðarmanna, sagði undarlegt,
að á sama tíma og eignarhald á
fjölmiðlum hér á landi sé að fær-
ast á æ færri hendur komi fram
tillaga um það að afnema skuli
skylduáskrift almennings að Ríkis-
útvarpinu. Hún sagði RÚV vera
hluta opinberrar þjónustu, sem séu
lagðar ýmsar skyldur á hendur,
sem einkareknar útvarps- og sjón-
varpsstöðvar þurfi ekki að sinna.
Sértilboð til
London
25. nóvember frá kr.
17.570
liven<er er /_
21. nóv
**• nóv,;_
28. nóv J-8s*«
Nú eru síðustu sætin að seljast til London
og við bjóðum nú sértilboð þann
25. nóvember hvort sem þú vilt aðeins
flugsæti eða gista á einu vinsælasta
hótelinu okkar, Butlins Hotel, einföldu en góðu
hóteli skammt frá Oxford stræti. Öll herbergi með sjónvarpi,
síma og baðherbergi. Og að auki getur þú valið um fjölda
annarra hótelvalkosta í hjarta London.
Siðustu sætin 25. nóvember
Verð kr.
17.570
Flugsæti. Verð með flugyallarsköttum,
mánudagur til fimmtudags í nóvember.
Verð kr.
20.700
M.v. 2 í herbergi, Butlins Hotel, með
morgunverði 25. nóvember, 3 nætur.
Sértilboð í helgarferð 28. nóvember.
Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562 4600
Hagsmunir ríkisrekins fjölmiðils
séu hagsmunir almennings, á með-
an hagsmunir einkarekins fjölmið-
ils séu bundnir eigendum sínum.
Einnig sagði Asta Ragnheiður
nauðsynlegt, að Ríkisútvarpið hafi
afnotagjöldin sem sjálfstæðan
tekjustofn, þannig að það haldi
sjálfstæði sínu gagnvart fjárveit-
ingavaldinu.
Viðræður um
samstarf UA
og KEA
FORSVARSMENN Útgerðarfélags
Akureyringa og Kaupfélags Eyfirð-
inga hafa hist á tveimur fundum þar
sem rætt hefur verið um hugsanlegt
samstarf félaganna í sjávarútvegi.
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA, segir að ekki sé
á þessari stundu verið að ræða um
möguleika á samruna félaganna:
„Við höfum verið að horfa á mögu-
leika á hagræðingu í útgerðar- og
hráefnisþættinum hjá okkur. Á þess-
um fundum hefur m.a. verið rætt
um sameiginlega útgerðarstjóm og
ýmsar útfærslur á þeim möguleika."
Utsalan hefst
á morgun
Blað allra landsmanna!
Laugavegi 70, sími 551-4515.
-kjarni málsins!
Nýtt útbob
ríkisvíxla
mánudaginn 18. nóvember
Ríkisvíxlar til
3, 6 og 12 mánaba,
18. fl. 1996
Útgáfudagur: 19. nóvember 1996
Lánstími: 3, 6 og 12 mánuðir
Gjalddagar: 19. febrúar 1997, 20. maí 1997 19. nóvember 1997.
Einingar bréfa: 500.000, 1.000.000, 10.000.000,
50.000.000, 100.000.000 kr.
Skráning: Verða skráðir á Verðbréfaþingi íslands
Viðskiptavaki: Seðlabanki íslands
Sölufyrirkomulag:
Ríkisvíxlarnir verða seldir með tilboðsfyrirkomulagi. Öllum er heimilt
að bjóða í ríkisvíxla að því tilskyldu að lágmarksfjárhæð tilboðsins sé ekki lægri
en 20 milljónir.
Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum, fjárfestingalánasjóðum,
verðbréfafyrirtækjum, verðbréfasjóðum, lífeyrissjóðum og tryggingafélögum
er heimilt í eigin nafni, að gera tilboð í meðalverð samþykktra tilboða,
að lágmarki 500.000 krónur.
Öll tilboð í ríkisvíxla þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir
kl. 11:00 á morgun, mánudaginn 18. nóvember. Útboðsskilmálar, önnur
tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins,
Hverfisgötu 6, í síma 562 4070.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 562 4070.
Melka dagar 14. - 21. nóvember
Melka HAGKAUP
Quality Men’s Wear
* Bolur fylgir hverri sölu *
JL
Melka
Quality Mhn's Wear