Morgunblaðið - 17.11.1996, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 17.11.1996, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996 LISTIR MORG UNBLAÐIÐ Kammersveit Reykjavíkur í Listasafni Islands Morgunblaðið/Ásdís HLUTI Kammersveitar Reykjavíkur stillir saman strengi sína fyrir tónleikana annað kvöld. Tónlist fyrir alla á Vest- urlandi í KLEPPJÁRNSREYKJ A- SKÓLA í Borgarfirði hefst á mánudag 18. nóvember fyrsta tónleikasyrpa þessa skólaárs handa grunn- og framhaldsskólanemendum á Vesturlandi á vegum verkefn- isins Tónlist fyrir alla. Eftir jákvæða reynslu af tónleika- haldi í grunnskólum Akra- ness frá haustinu 1993 hafa önnur sveitarfélög í fjórð- ungnum nú komið til liðs við verkefnið og bjóða nemend- um til þrennra tónleika í vet- ur. Að þessu sinni taka nem- endur á Vesturlandi á móti Jazzkvartett Reykjavíkur sem flytur þeim nokkra vel valda „standarda" úr heimi djassins ásamt íslenskum og erlendum alþýðulögum. Má þar t.d. nefna St. Thomas eftir Rollins, Take five eftir Desmond, Sönginn um fugl- ana eftir Atla Heimi Sveins- son og norska þjóðlagið Siggi var úti. Tónlistarmennimir ætla að leggja áherslu á að djassinn er tilbrigðarík tónlist og hvaða tónlist sem er megi færa í djassbúning. Að venju er efnt til al- mennra fjölskyldutónleika á kvöldin að loknum kynning- um í skólum, í Dalabúð mánu- daginn 18. nóvember kl. 20.30, í Ólafsvíkurkirkju á þriðjudag kl. 20.30, í Stykkis- hólmskirkju miðvikudag kl. 20.30, á Hótel Venus Borgar- nesi fimmtudag kl. 21 og að lokum í Tónlistarskóla Akra- ness föstudag 22. nóvember kl. 20.30. Norskur kvartett sigrar í nor- rænni kamm- ertónlist- arkeppni Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Norski kvartettinn VertavoKvartetten vann 1. verðlaun í norrænni kammer- tónlistarkeppni danska út- varpsins. Stúlkurnar fjórar í kvartettinum hlutu hundrað þúsund danskar krónur í verð- laun, eða um 1,1 milljón ís- lenskra króna. Tveir íslenskir hópar tóku þátt í keppninni, Cameratica og Trio Nordica, en þeir féllu úr skaptinu í fyrstu umferð. Einn dómari var frá hveiju landi og af hálfu íslands sat Gunnar Kvaran sellóleikari í dóm- nefnd. Í 2. sæti lenti danska Eskær Trioen og í þriðja sæti var einnig danskur hóp- ur, DuoDenum. Vertavo- Kvartetten hefur mikla reynslu að baki, því stöllurn- ar fjórar, sem reyndar eru tvennar systur, hafa spilað saman síðan 1984 og geisla- plötur með leik þeirra hafa komið út. Vonir standa til að keppnin verði framvegis haldin reglulega, en hingað til hefur danska útvarpið haldið danska keppni af þessu tagi. Keppnin er haldin með stuðningi allra norrænu útvarpsstöðvanna, sem munu útvarpa flutningi keppenda. Geislaplata með leik þeirra sem lentu í efstu sætunum kemur einnig út. FYRSTU tónleikar starfsársins hjá Kammersveit Reykjavíkur verða í Listasafni íslands á morg- un, mánudag, ld. 20.30. Verða tónleikarnir helgaðir kammer- verkum Johannesar Brahms en með þeim hætti minnist sveitin 100. ártíðar þessa ástsæla tónjöf- urs. Sérstakur gestur á tónleik- unum verður Sigríður Ella Magn- úsdóttir söngkona. Á efnisskrá eru Tríó í Es-Dúr op. 40 fyrir píanó, fiðlu og horn, tvö sönglög op. 91 fyrir altrödd, víólu og píanó og Kvintett í F- Dúr op. 88 fyrir tvær fiðlur, jafn- margar víólur og selló. Einungis fyrstnefnda verkið hefur heyrst á tónleikum Kammersveitarinn- ar áður. Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari og einn liðsmanna Kammersveit- ar Reykjavíkur, segir alltaf jafn- ánægjulegt að flytja verk eftir Brahms, enda hafi verk hans margoft prýtt efnisskrár sveitar- TONLIST Kirkja Krists k o n u n g s KÓRTÓNLEIKAR Vox feminae flutti kórverk eftir Mendelssohn, Brahms, Bach, F. de Lurano, Handel, Reger, Pál ísólfs- son, Atla Heimi Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson og Sigvalda Kaldal- óns. Einleikari: Stefán Stefánsson á saxofón. Undirleikari: Svana Vík- ingsdóttir. Fimmtudagurinn 14, nóv- ember, 1996. Stjórnandi: Margrét J. Pálmadóttir. TÓNLEIKARNIR hófust með samleik á saxofón og orgel, Sei stille dem Herrn und warte auf ihm, úr óratoríunni Elia, eftir Mendelssohn. Stefán lék á sópran saxofón en tónn- inn í saxofónum er sérlega mannleg- ur og er það að mörgu leiti skýring- in á vinsældum þessa hljóðfæris, sem enn er þó að hluta til útlagi í klass- ískri tónlist. Stefán lék verkið af þokka en heyra mátti að hann var ekki búinn að fínna sig í enduróman kirkjunnar, þannig að tónninn var á köflum nokkuð um of haminn. Brahms í brenni- depli innar í gegnum tíðina. „Maður fær aldrei leið á verkum Brahms — það er hægt að spila þau aftur og aftur.“ Tríóið, sem Brahms mun hafa samið til minningar um móður sina, flutti Kammersveitin fyrst árið 1979 og bauð af því tilefni til landsins feðgunum Ib og Will- iam Lansky-Otto og spilaði Rut verkið með þeim. „Nú munu Jó- sef Ognibene og Peter Maté flytja það með mér.“ Kórinn söng næst þijú kórverk eftir Mendelssohn, fyrst Lyftu þín- um augum upp úr Elia og tvö verk úr op. 39, Laudate Dominum og Veni Domine, en tvö síðarnefndu voru með orgelundirleik, sem Svana Víkingsdóttir sá um. Tónninn í kórnum var á köflum svolítið harð- ur og vantaði á köflum meiri sveigj- anleik í styrkleikabreytingum. í heild voru þessi opinskáu og tón- hreinu verk sungin af öryggi. Ave María, eftir Brahms er krómatískt unnið og þar mátti greina nokkra óvissu í tónstöðu innraddanna. Stef- án Stefánsson lék án undirleiks, Bist du bei mir, eftir J.S.Bach og gerði það fallega. í Anima Christi eftir Lurano (1475-1520) átti Stef- án að leika af fingrum fram og tók hann smá strófur aðallega yfír liggjandi niðurlagstóna. Ekki er samræmi á milli endurreisnarstíls- ins hjá Lurano og saxofónstíls nú- tímans, svo að þessi tilraun tókst ekki sem best. Saxofónninn „söng“ hins vegar fallega aríuna How be- utiful are the feet, úr óratoríunni Messías, eftir Handel, við undirleik Svönu Víkingsdóttur. Vögguljóð Maríu, eftir Reger, Sigríður Ella verður i sviðs- ljósinu í sönglögunum tveimur en hún hefur ekki komið fram með Kammersveit Reykjavíkur í annan tíma. „Það er eiginlega stórmerkilegt með tilliti til þess hvað við Sigríður Ella höfum þekkst lengi,“ segir Rut. „Núna vill hins vegar svo skemmtilega til að hún er stödd á landinu á vegum Kaffileikhússins og þótti okkur því tilvalið að fá hana loks- ins til liðs við okkur.“ Rut segir að Kvintettinn sé eitt af þessum gullfallegum verk- um eftir Brahms — mögnuð tón- smið. Mun Kammersveitin flylja hann á tónleikum í Frakklandi síðar í vetur. Auk fyrmefndra tónlistar- manna koma fram á tónleikunum annað kvöld Unnur María Ing- ólfsdóttir fiðluleikari, Junah Chung víóluleikari, Herdís Jóns- dóttir víóluleikari og Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari. var sungið af þokka, þó stundum brygði fyrir óvissu í innkomum raddanna. Fram að þessu höfðu kór og einleikarar verið staðsettir uppí á orgelpallinum, en kórinn flutti sig um set og söng af altar- iströppunum. Islensku lögin voru best flutt, Máríuvers Páls ísólfs- sonar, Haustvísur til Maríu, sem er eitt af hinum undrafögru smá- lögum Atla Heimis og Salve Regina eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Salve Regina er áferðarfagurt verk en á köflum sundurlaust, sérstaklega um miðbikið. Þessi þijú lög voru mjög vel sungin, sérstaklega perl- an hans Atla. Tónleikunum lauk með saxofóneinleik Stefáns í Ave Mariu Kaldalóns. Kórinn hefði mátt taka undir í viðlaginu en hvað sem því líður léku Stefán og Svana þetta fallega verk Kaldalóns mjög vel. Raddlega er Vox feminae vel settur, þó meira megi vinna með styrkleika og mótun blæbrigða en söngur kórsins í heild var einum of blátt áfram. Þrátt fyrir þetta voru tónleikarnir hinir ánægjuleg- ustu undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur. Jón Ásgeirsson Megasar- kvöld í Lis- taklúbbnum í LISTAKLÚBBI Leikhúskjall- arans mánudagskvöldið 18. nóvember verða Sjónleikar með Megasi þar sem hann syngur eitt og annað af nýrri plötu og einnig nokkur eldri lög. Með Megasi í Listaklúbbnum spila þeir Tryggvi Hiibner á gítar og Haraldur Þorsteinsson á bassa. Þá verður á þessu Megasar- kvöldi boðið upp á valda kafla úr verki Megasar „Gefín fyrir drama þessi dama“ (- og öllum stendur svo innilega á sama), sem flutt hefur verið að undan- förnu í leikstjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur í Hafnarhúsinu. Það er leikkonan Sigrún Sól Ólafsdóttir sem bregður sér í ýmis gervi í þessu nýja verki Megasar. Húsið verður opnað kl. 20.30 en Megasarkvöldið hefst kl. 21. Aðgangseyrir er 600 kr. en 400 kr. fyrir meðlimi Listaklúbbsins. „Fjall og- fjara“ á ferð um landið ANNA Pálína Ámadóttir og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson halda ásamt hljómsveit í tón- leikaferð um Norðurland vestra á næstu dögum undir yfírskrift- inni „Fjall og fjara“. Á ferð sinni heimsækja þau einnig leikskóla og flytja frumsamda dagskrá sína „Berrössuð á tánum". Þriðjudagskvöldið 19. nóv- ember koma þau fram hjá Tón- listarfélagi Skagafjarðarsýslu á svonefndu Kaffíkvöldi á Löngumýri. Þá halda þau tón- leika á Hvammstanga fimmtu- dagskvöldið 21. nóvember á vegum Tónlistarfélags Vestur- Húnavatnssýslu. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt, m.a. lög af plötunni „Fjall og fjara“. Anna Pálína og Aðalsteinn hafa starfað saman í tíu ár og hafa haldið tónleika víða um land. Á tónleikunum verða þeim Önnu Pálínu og Aðalsteini til fulltingis Daníel Þorsteinsson á harmóníku, Gunnar Gunnars- son á píanó, Jón Rafnsson á kontrabassa og Halli Gulli á trommur og slagverk. Sýningu Signr- björns lýkur í Gallerí Jörð SÝNINGU Sigurbjörns Ó. Kristinssonar á tússteikningum í Gallerí Jörð á Reykjavíkurvegi 66 í Hafnarfirði lýkur í dag, sunnudag. Það skal tekið fram að gefnu tilefni af galleríið er ekki í úti- búi Sparisjóðsins í Norðurbæ, heldur við hliðina í sama húsi. Galleríið er rekið af Benedikt Sveinssyni sem er þar einnig með innrömmunarstofu. Sýningin er opin frá kl. 12-16. MR kórinn syngur í Dóm- kirkjunni KÓR Menntaskólans í Reykja- vík syngur í Dómkirkjunni í dag, sunnudag 17. nóvember, kl. 14. Sungin verður messa við tón Þorkels Sigurbjömsson- ar og er prestur sr. Hjalti Guð- mundsson. Messan er liður í afmælis- dagskrá vegna 200 ára afmæl- is Dómkirkjunnar. Stjórnandi MR-kórsins er Marteinn H. Friðriksson, organleikari Dóm- kirkjunnar. Kyrrðarstund við kertaljós

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.