Morgunblaðið - 17.11.1996, Page 24

Morgunblaðið - 17.11.1996, Page 24
24 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Haraldur hugsar sig um augna- blik og segir svo: „Sameiningar af þessu tagi eru bæði tímafrekar og flóknar. Þær geta einnig verið mjög viðkvæmar. Allar sameining- ar eru erfiðar og það ganga ekki allar sameiningar upp! Eins er ekki gefið að stórar einingar séu í öllum tilvikum besti kosturinn. Það er eðlilegt að skoðanir séu skiptar og segja má að svona mál byija á ákveðinni geijun þar sem menn þreifa varlega á málefnunum. Fólk spyr auðvitað, hvers vegna þarf allt í einu að breyta hlutum sem hafa staðið áratugum saman óhagganlegir." Sturlaugur tekur við: „Okkur tókst að koma á þessum breyting- um áður en það var orðið of seint. Það var okkar gæfa og þegar af stað var farið kom margt á eftir, hlutir sem við sáum ekki fyrir og gáfu okkur ný spil á hendi. Til að mynda sjófrystingin og möguleikar á því að sækja í utankvótafisk á borð við úthafskarfa." Ekki öll egg í sömu körfu HB hf. er á íslenskan mæli- kvarða sannkallað stórfyrirtæki og angar þess og þræðir liggja í marg- ar áttir. Fróðlegt væri að spyija þá bræður aðeins út í fyrirtækið í tölum, fá uppgefnar framleiðslutöl- ur, veltutölur, aflatölur og svo framvegis. Þeir segja það sjálf- sagt, taka sér síðustu ársskýrslu í hönd og byija að fletta, staldra við og segja síðan: „Heildaraflamagn skipa HB hf var um 80.000 lestir á árinu sam- anborið við um 70.000 lestir árið 1994 og 90.000 lestir árið þar á undan. Sveiflan liggur í mismikilli loðnuveiði á milli ára. Heildartekjur skipa fyrirtækisins, Höfrungs 3, Sturlaugs H. Böðvarssonar, Har- aldar Böðvarssonar, Víkings og Höfrungs, voru um 1.267 milljónir króna og var tekjuaukning á milli ára 56 milljónir. Drýgstur var Höfr- ungur 3 með um 575 milljónir, en hann veiddi að mestu utankvóta- fisk, m.a. úthafskarfa, auk grálúðu. Rekstrartekjur fiskvinnslunnar í heild urðu 1.482 milljónir árið 1995, samanborið við 1.447 millj- ónir árið 1994. Tekjur frystihúss HB voru 860 milljónir árið 1995 og voru þar framleiddar um 3.480 lestir af afurðum. Framleiðsla fyr- irtækisins á frystri loðnu og loðnu- hrognum var tæplega 750 tonn. Frystar voru loðnuafurðir í frysti- húsinu og um borð í Höfrungi 3. Tekjur af framleiðslu fiskimjöls og lýsis árið 1995 námu um 566 millj- ónum króna. Fiskimjölsverksmiðja HB keypti um 67.000 tonn af hrá- efni til vinnslu, þar af voru loðna og síld um 59.000 tonn. Til saman- burðar var tekið á móti um 51.000 tonnum af hráefni árið 1994 og um 65.000 tonnum árið þar á und- an og aftur liggur munurinn í breytilegu loðnumagni. Framleidd- ar voru samtals 12.110 lestir af mjöli og 5.120 lestir af lýsi“ Hvert seljið þið þessa miklu fram- leiðslu? Haraldur svarar og segir áhersl- urnar á síðasta ári og nú í ár hafa verið svipaðar og allra síðustu ár- in. „Meginuppistaðan í afurðum frá landfrystingunni er karfi sem fer nær eingöngu til Evrópu, þorskafurðir hafa verið seldar til Bandaríkjanna og Þýskalands og afurðir úr ufsa hafa einkum farið á Evrópumarkað. Loðnuafurðir hafa mest farið á Japansmarkað og sama má segja um afla frysti- togarans Höfrungs 3, grálúða, karfi og úthafskarfi, hann hefur farið til Japans og einnig Tævans. Mjölafurðirnar hafa dreifst á hefð- bundnar slóðir í Bretlandi, Dan- mörku og Þýskalandi og lýsið höf- um við selt til Noregs, Hollands og til innanlandsvinnslu hjá Lýsi hf. Þá er eftir að geta frosins salt- fisksmarnings sem við höfum selt til Frakklands og Spánar, og salt- aðrar síldar sem við höfum selt til Síldarútvegsnefndar til flökunar og sölu til Evrópu.“ „Við þetta vildi ég bæta,“ segir Sturlaugur, að við erum nýverið komnir í samvinnu við íslenskt - STURLAUGUR t.V. Og Haraldur t.h. Morfunblaðið/Ásdfs Ásgeirsdóttir FALLVAR FARARHEILL VJÐSKEPnfflVINNULÍF Á SUNNUDEGI ►Útgerðarfyrirtækið Haraldur Böðvarsson hefur raætt aðsteðjandi vanda í sjávarútvegi síðustu árin með þeim hætti að fyrirtækið er í dag öflugra en nokkru sinni fyrr. I dag er fyrirtækið auk þess nírætt og sem slíkt elsta starf- andi útgerðarfélag íslands. Þar ráða ríkjum bræðurnir Haraldur Sturlaugsson framkvæmdastjóri og Sturlaugur Sturlaugsson aðstoðarframkvæmdastjóri. Morgunblaðið tók hús á þeim bræðrum í vikunni. eftir Guðmund Guðjónsson EIR Haraldur og Stur- laugur eru fæddir og uppaldir á Skaganum. Haraldur er fæddur 24. júlí 1949. Hann lauk Samvinnu- skólanámi á Bifröst 1970 og fór þegar að sinna framkvæmdastjóra- starfmu. Hann á því 26 ára starfs- afmæli S fyrirtækinu á þessu ári. Haraldur er giftur Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráðherra og eiga þau fjóra syni á aldrinum 7-23 ára. Sturlaugur er fæddur 6. júní 1958. Hann er viðskipta- fræðingur og kom til starfa hjá fyrirtækinu árið 1981. Sturlaugur er giftur Jóhönnu Hallsdóttur og á með henni tvö böm, en Jóhanna á fyrir þijú eldri börn. Það er kannski að bera í bakka- fullan lækinn að reifa níutíu ára sögu útgerðarfélags þar sem svipt- ingar hafa verið miklar, en ekki verður hjá því komist að rifja upp upphafíð. Það var árið 1906, að Haraldur Böðvarsson seldi hesta sína, eina meri og þijú folöld. Fyr- ir það fékk hann 200 krónur og með þær í höndunum fór hann á stúfana og keypti eitt af hinum frægu róðrarskipum sem reru frá Garðinum, Helgu Maríu, „sexman- nafar“ eins og hann lýsir bátnum í dagbók sinni 17. nóvember 1906. Haraldur var aðeins 17 ára og hafði verið á skoskum togara, Mack Thomson, frá 15 ára aldri. Hallgrímur Jónsson frá Bjargi var með Haraldi í þessari tilraun og var framlag hans til útgerðarinnar að vera formaður á Helgu Maríu. Fyrstu vertíðina árið 1907 hafði útgerðin tvær netatrossur og voru 8 net í hvorri. í fyrsta róðri var farið með netin út í svokallaðar „Forir“ og þau lögð þar. Þegar vitja átti netanna fannst ekkert nema eitt ból. Enskur togari hafði komið og sópað öllu á brott og þannig fór um fyrstu sjóferð hinn- ar nýju útgerðar. Veiðarfærin, sem öll höfðu verið fengin að láni, voru töpuð. Ekki gáfust menn upp þótt á móti blési. Helga María var gerð út frá Garði allt til ársins 1914 og jceypti Milljónafélagið aflann. Utgerð Haraldar náði sér á strik og óx og dafnaði stöðugt, fyrst í Garðinum og síðar einnig í Hólmin- um í Vogum frá árinu 1909 uns Haraldur fór ásamt fleiri Skaga- mönnum til útgerðar frá Sandgerði árið 1914. A árunum 1926-28 fundust síðan svokölluð Akurnes- ingamið í Faxaflóa og fluttist Har- aldur þá aftur til Akraness með fjölskyldu sína og tók og hélt þar uppteknum hætti. Fyrirtækið suð- ur með sjó starfaði áfram, en breytti um nafn, fékk nafnið Mið- nes og starfar enn í dag í Sand- gerði. Um áramótin verður því söguleg sameining er Miðnes og Haraldur Böðvarsson hf. samein- ast. Ekki viku seinna Fyrir um það bil áratug var komið að tímamótum í íslenskum sjávarútvegi. Útgerðin var hvað eftir annað komin að fótum fram og stjórnvöld sáu um tíma enga leið út úr ógöngunum aðra en að skuldbreyta og fella gengi. Hver kollsteypan rak aðra, en þar kom að allir áttuðu sig á því að alger uppstokkun var óhjákvæmileg. Hún hlaut að taka nokkur ár og hún hlaut að verða mörgum sár og dýrkeypt. En þjóðarheill var í veði og því varð ekki undan því komist. Gjaldþrotin voru mörg, en fyrirtæki tóku til við að kanna hagkvæmni samruna og þar fór Haraldur Böðvarsson meðal ann- arra_ í fararbroddi. „Á ögurstundum skiptir mestu máli að taka réttar ákvarðanir,“ segir Haraldur Sturlaugsson fram- kvæmdastjóri og bætir við: „Við náðum hér á Akranesi að sameina alla fiskvinnslu og útgerð, síðast er fyrirtækið Krossvík hf. samein- aðist HB í haust. Menn gerðu sér grein fyrir því að þetta var nauð- syn og samruninn gekk eftir. En það verður að segjast eins og er, að við máttum ekki ganga frá þessu viku seinna, svo hröð er þróunin. Þar skildi á milli hvort hér yrði uppbygging og vaxandi velmegun eða mikill samdráttur. Þetta voru sannarlega umbrota- tímar. Síðan má segja að við séum enn í þessari mótun og þróun, þannig er Miðnes í Sandgerði að sameinast fyrirtækinu um áramót. Stefnt er að því að efla ferskflaka- vinnslu í Sandgerði auk þess að syrkja síldar- og loðnuvinnslu. Ég býst við því að þessi órói verði í þjóðfélaginu næstu tvö til þrjú árin en síðan hægist aðeins um. Aukin tækni hefur flýtt fyrir aukinni sam- vinnu og sameiningu fyrirtækja.“ Uppbyggingin gífurleg „Þetta ár sem nú er langt kom- ið,“ segir Sturlaugur, „er eitt mesta fjárfestingarár sem hefur átt sér stað á Akranesi í áratugi. Fyrstu sex mánuði ársins var hagnaður fyrirtækisins tæpar 180 milljónir. Allar líkur eru á að þetta verði eitt besta rekstrarár fyrirtækisins í langan tíma. Fjárfestingarnar eru upp á um það bil milljarð króna og þar af fara um 800 milljónir í upp- byggingu á síldar- og fískimjöls- verksmiðjunni. Afköst verksmiðj- unnar aukast um 100% þannig að við getum unnið 1.000 tonn af hrá- efni á sólarhring. Við styrktum þessa fjárfestingu með samrunan- um við Miðnes, en með honum erum við með um 10,8% af úthlutuðum loðnukvóta. Með þessari fjárfest- ingu aukum við verðmæti afurð- anna og styrkjum samkeppnisað- stöðu fyrirtækisins.“ Sameining fyrirtækja er augljós- lega lykilatriði síðustu árin, hvern- ig fer slíkt ferli fram?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.