Morgunblaðið - 17.11.1996, Side 34

Morgunblaðið - 17.11.1996, Side 34
34 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996 MINIMIIMGAR MORGUNBLAÐIÐ ÍNGIBJÖRG BÖÐVARSDÓTTIR var óvenjulegur apótekari. Hún hafði verið í forystusveit lyfjafræð- inga áður en hún varð apótekari og hún hélt áfram að vera lyfjafræðing- ur þó að hún sæti hinum megin við borðið. Staða lyfjafræðinnar sem fags og lyijafræðinga sem stéttar var það sem hún hafði alltaf í fyrir- rúmi. Þróun mála undanfarin ár var henni eins og flestum lyfjafræðing- um mikið áhyggjuefni. Hún skynjaði það að ef lyíjafræðingar köstuðu frá sér forræði yfir lyfjadreifingunni væri þess ekki lengi að bíða að fag- ið biði skipbrot. Undanfarin ár, einkum eftir að hún hætti störfum í Lyfjabúð Breið- holts fyrir aldurs sakir, helgaði hún söfnun muna og upplýsinga sem tengjast lyfjafræði á Islandi alla sína krafta. Þau eru ófá Grettistökin sem hún lyfti í félagi við vini sína og félaga í stjóm Lyfjafræðisafnsins. Vinnustundimar sem hún eyddi ásamt þeim í söfnun muna og við það að koma Lyfjafræðisafninu við Neströð á legg, em óteljandi. Eng- inn vafi er á að ef ekki hefði komið til eldmóður, bjartsýni og örlæti þeirra Stellu og Sverris Magnússon- ar apótekara sem lést 1990, hefði safnið aldrei orðið að veruleika. Lyfjafræðisafnið er glæsilegur minnisvarði um óeigingjamt starf þessa fólks. Þáttur hennar í gerð Lyfjafræð- ingatalsins sem kom út á 50 ára afmæli félagsins 1982, var stór. Ættfræðiáhugi og þekking hennar kom þar að góðum notum. Hún hélt áfram til dauðadags að safna upplýs- ingum um ættir og líf lyfjafræðinga lífs og liðinna. Þessi vinna hennar kemur til með að skila sér í næstu útgáfu Lyfjafræðingatalsins. Stella ásamt Sverri Magnússyni, urðu heiðursfélagar Lyfjafræðinga- félags íslands árið 1987 ekki síst vegna starfs þeirra í þágu Lyfja- fræðisafnsins. Ánægjulegasti dagur sem ég upplifði í sfjóm Lyfjafræð- ingafélagsins var 5. desember 1992, en þá var hús safnsins vígt á 60 ára afmælishátíð félagsins. Um leið varð ég þess heiðurs aðnjótandi að afhenda sfjómarmönnum Lyfja- fræðisafnsins, Stellu, Áslaugu Haf- liðadóttur, Axel Sigurðssyni, Krist- ínu Einarsdóttur og Erling Edwald fyrstu gullmerki félagsins. Heiður sem þau sannarlega höfðu unnið fyrir. Nú þegar Ingibjörg Böðvarsdóttir er fallin frá em lyfjafræðingar fá- tækari en þeir vom. Við höfum misst vin og félaga, sem alltaf bar hag fagsins fyrir bijósti. Erfitt og líklega ómögulegt er að fylla það skarð sem hún skilur eftir. Ættingj- um og vinum Stellu sendum við Guðrún Edda okkar innilegustu samúðarkveðjur. Finnbogi Rútur Hálfdanarson, lyfjafræðingnr. Það eina sem við vitum um fram- tíðina er að í fyllingu tímans munum við deyja, en þrátt fyrir allt eram við ávallt óviðbúin dauðanum. Við andlátsfregn Ingibjargar Böðvars- dóttur eða Stellu eins og hún var t Þökkum allan þann stuftning og hlýhug sem okkur hefur verift sýndur undan- farnar vikur vegna veikinda og fráfalls ástkærs eiginmanns míns, föftur okkar og afa, GUÐMUNDAR HREINS EMANÚELSSONAR. Svava Guðmundsdóttir, Ásta Guðmundsdóttir, Emanúel Geir Guðmundsson, Eva Rún Guðmundsdóttir, Hálfdán Bjarnason. t Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð vift andlát og útför, BALDURS ÞÓRIS JÚLÍUSSONAR, Sunnubraut 17, Keflavík. Sérstakar þakkir sendum við læknum og starfsfólki á deild a6 Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Guð blessi ykkur öll. Margrét Hannesdóttir, Þórir Baldursson, Guðrún Pálsdóttir, María Baldursdóttir, Rúnar Júliusson, Júlíus Baldurssson, Ásgerður Karlsdóttir, Baldur Baldursson, Ásta Sigurðardóttir, Ómar Baldursson, barnabörn og barnabarnabörn. t innilegar þakkir fyrir auftsýnda samúft og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóftur, ömmu og langömmu, GUÐNÝJAR FRIÐRIKSDÓTTUR, Vogatungu 77, Kópavogi. Sigurður K. Haraldsson, Vilborg Pétursdóttir, Helga Haraldsdóttir, Guðjón Haraldsson, Ingibjörg Högnadóttir, Rósa Haraldsdóttir, Ólafur Böðvar Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. alltaf kölluð, reikar hugurinn aftur í tímann. Minning um Stellu frá heimili hennar og Reynis á Jófríðar- staðaveginum í Hafnarfirði þar sem þau löðuðu að sér öll böm. Síðan í Garðsapóteki þar sem Stella tók unga stúlku undir sinn vemdar- væng. Síðan liggur leiðin í Lyfjabúð Breiðholts þar sem leiðir okkar sam- einast. Stella stofnaði Lyijabúð Breiðholts 31. október 1970 og starfrækti í 15 ár. í þessi 15 ár vann nokkuð stór hópur hjá Stellu, sumir öll árin, aðrir skemur. Margir lyfjafræðinemar unnu starfstímann sinn hjá Stellu, stór hópur lyfja- tækna hóf nám sitt hjá henni og margir þeirra héldu áfram að vinna þar eftir að námi lauk. Á vinnustaðnum ríkti einstaklega góður starfsandi og félagslífíð var gott, „útfararfélagið" þjónaði því hlutverki að sjá til þess að starfs- fólk og makar gætu farið út að borða saman einu sinni til tvisvar á ári og átt ánægjulega stund. Stella bauð ávallt öllu sínu starfsfólki á árshátíðir apóteka, og oft bauð hún öllum með sér í leikhús án nokkurs tilefnis. Hún var alltaf með hugann við fólkið sitt. 1. nóvember 1985 bauð hún öllum sem höfðu unnið f Lyfjabúð Breiðholts í veislu, nánast allir mættu, það hefur legið töluverð vinna í því að hafa uppi á öllum en Stella fylgdist vel með okkur og vissi hvar okkur var að finna. Stella hafði mikinn metnað fyrir sína stétt og vildi miðla þekkingu sinni og reynslu til starfsfólks síns. Hún hafði mikinn áhuga á að starfs- fólkið væri vel að sér um allt sem komið gat upp í daglegum störfum í apótekinu og lét útbúa spjaldskrár sem vora aðgengilegar fyrir okkur. jafnvel varð hún að vera viss um að við kynnum hina ýmsu söngtexta sem sungnir vora á árshátíðum apó- teka, og minnumst við þess oft þeg- ar hún tók textann „Táp og fjör og frískir menn“ fyrir. Gaman er að minnast þess þegar viðskiptavinir báðu um viðtal við apótekarann og er Stella kom fram vildi fólkið fá að tala við manninn, en sumir viðskiptavinir apóteksins á fyrstu áranum sem apótekið var í Amarbakkanum héldu eina karl- manninn á staðnum vera lyfsalann, enda ekki margar konur lyfsalar þá. Maðurinn var Böðvar bróðursonur Stellu sem var lyfjafræðingur í apó- tekinu frá fyrstu tíð og allt þar til hann gerðist lyfsali á Akureyri. Þrátt fyrir að Stella væri yfirmað- urinn var hún fyrst og fremst vinur starfsfólks síns, alltaf var hægt að leita til hennar ef eitthvað bjátaði á. Það var ekki fagurgalanum fyrir að fara hjá henni, hún kom ávallt hreint og beint fram enda var eins og vandamál sem virtust stór fyrir væru auðleyst og lítil þegar búið var að ræða við hana. Hún starfaði við hlið okkar á jafnréttisgranni, lét sér annt um okkur og fjölskyldur okkar. Flestir hafa haft eitthvert samband við Stellu á einn eða ann- an hátt, engum hafði hún gleymt, enda minnið afar gott og mættum við hin yngri taka hana okkur til fyrirmyndar. Það er ekki hægt að tala um Stellu án þess að minnast á Lyfla- fræðisafnið úti á Nesi. Geysileg vinna liggur að baki, en hún sagði oft að hún hefði aðeins tekið mynd- imar, en til era myndir um sögu safnsins allt frá fyrétu tíð fram á þennan dag, yfir 1.000 ljósmyndir sem hún tók, en aðrir vita að hún átti meiri og stærri þátt í uppbygg- ingu safnsins en að taka myndir. Hún safnaði ótrúlega miklu magni upplýsinga um lyijamál í gegnum tíðina og var með hugann opinn fyrir að halda til haga ýmsu sem aðrir hefðu ekki hugsað út í að yrði sögulegt. Það var mjög auðvelt að gleyma sér yfir úrklippusafninu hennar, möppunum með gömlu merkimiðunum, gömlu lyfseðlunum að ógleymdum öllum myndunum. Stjóm safnsins hefur með ótrúleg- um dugnaði og ósérhlífni unnið að þessu í fjölda ára og árangurinn er stórkostlegur, safnið einstaklega fallegt, öllu smekklega fyrirkomið. Við vitum að við mælum fyrir munn allra þeirra sem hjá Stellu unnu að það er margs að minnast og fyrir svo ótal margt að þakka. Blessuð sé minning hennar. Guðrún og Gyða. Við fráfall Ingibjargar Böðvars- dóttur lyfsala, viljum við þakka henni sérstaka velvild, stuðning og einstakan áhuga á málefnum lyfja- tækna frá upphafi. Ingibjörg Böðvarsdóttir, eða Stella eins og hún var kölluð, stofn- aði Lyfjabúð Breiðholts 31. október 1970. Ohætt er að fullyrða að í þau 15 ár sem hún var lyfsali hafi Lyfja- búð Breiðholts að jafnaði haft flesta lyfjatækna og lyfjatækninema að störfum. Það spurðist fljótt út meðal fé- lagsmanna okkar hve gott var að starfa í Lyfjabúð Breiðholts, þar þótti starfsandi til fyrirmyndar og félagslíf gott. Hún sýndi Lyfja- tæknaskólanum mikinn áhuga frá upphafí og hvatti gjaman starfs- stúlkur sínar til náms, enda gerði hún sér grein fyrir mikilvægi mennt- unar starfsfólks í apótekum. í apó- teki hennar var lögð áhersla á að nemar bæði í lyfjatækni og lyfja- fræði fengju góða starfsþjálfun. Stella fylgdist mjög vel með þró- un Lyfjatæknafélags íslands frá upphaJB og öllum baráttumálum fé- lagsins fyrstu árin og mörg hvatn- ingarorð höfum við fengið frá henni. Á 10 ára afmæli félagsins 1986 færði Stella féiaginu rausnarlega peningagjöf. Gjöf þessi var síðan grannur að Baráttusjóði Lyfja- tæknafélags íslands. Þó að nokkur ár séu liðin frá því að Stella hætti störfum sem lyfsali, mundi hún eft- ir 20 ára afmæli félags okkar í jan- úar síðastliðnum, þá sendi hún fé- laginu veglega bókagjöf. Stella átti stóran þátt í uppbygg- ingu Lyfjafræðisafnsins og var safn- ið hennar helsta áhugamál í mörg ár. Hún var að vinna í safninu fram á síðasta dag. Þegar við kveðjum Stellu er okk- ur efst í huga þakklæti, fyrir þann stuðning og áhuga sem hún sýndi lyfjatæknum og lyfjatækninemum í námi og starfí. Fyrir hönd Iyfjatækna Anna Sveinsdóttir og Gyða Björg Eliasdóttir. 2 I 1 1 2 I 5 Fersk blóm og skreytingar við öll tœkifæri Opið til kl.10 öll kvöld Persónuleg þjónusta Fákafeni 11, sími 568 9120 2 | $ 1 2 | 5 ato*#ioi#§0§a Mig langar í fáum orðum að minnast hennar Stellu, eða ömmu Stellu eins og ég hef alltaf kallað hana. Þegar leiðir skilja leitar hugur til baka og upp koma margar góðar minningar. Heimsóknir til afa Reyn- is og ömmu Stellu á Jóffann, jóla- boðin þar, beijaferðir og bfltúrar með þeim. Þá var einnig gaman að heimsælqa Stellu í apótekið þar sem ávallt var vel tekið á móti mér. Síðar fékk ég sem unglingur vinnu eitt sumar hjá henni í apótek- inu. Þar sá ég glöggt hve mikils metin hún var af samstarfsfólki sínu og hve vel hún reyndist því. Þar fann maður hve sterkur persónuleiki hún var og ekki síður kom það í ljós þegar heilsu afa fór að hraka. Hin síðari ár var alltaf ánægju- legt að koma til Stellu í Skaftahlíð- ina og þiggja hjá henni kaffísopa í eldhúsinu hennar. Þar fékk ég að njóta hins mikla fróðleiks hennar og var henni sérstaklega annt um að fræða mig um ættir mínar og upprana, en ættfræðin var eitt af hennar hugðarefnum. Ég þakka fyrir þær stundir sem ég átti með henni og minningin um hana mun lifa með mér um ókomin ár. Ingibjörg Andrésdóttir. Það húmar að hausti og birtu er tekið að bregða, að baki er bjart og fagurt sumar, vetur er genginn í garð. Okkur berast fréttir, hún Stella er dáin. Við stöldram við um sinn í amstri lífsins, hugurinn fyllist trega og minningarnar flæða fram. Það er gæfa hvers manns að mót- ast og lifa í návist sterkra afbragðs manna og einn slíkur var Ingibjörg Böðvarsdóttir, Stella eins og hún var ávallt kölluð. Stella var konan hans afa okkar á Jófríðarstaðaveginum í Hafnar- fírði þar sem ævintýrin voru skammt undan og draumamir urðu að veraleika. Það virtust fá tak- mörk fyrir því rými og þeirri hlýju sem leyndist í þessu húsi og um- hverfi þess. Það var forvitnilegt að heimsækja prestana á Jófríðarstöð- um eða sækja egg í klaustrið dular- fulla, stunda smíðar í kjallaranum eða skoða allt það sem í risinu leyndist. Alltaf mátti finna pipar- kökur og stundum flösku af pepsí. Þetta era þau minningabrot sem fljóta í gegnum hugann á stund sem þessari og alitaf fannst okkur nóg- ur tími hjá þeim til að sinna okkur og kærleikurinn var ómældur. Hús- ið efst við Jófríðarstaðaveg stóð öllum opið, þar var gestkvæmt og alltaf mátti fínna pláss fyrir fleiri. Ekki má gleyma garðinum sem Stella átti mestan heiður af, þar uxu flestar íslenskar plöntur og gulrætur og jarðarber voru ungum bömum freisting. Þetta voru góðir dagar sem liðu of hratt, og við tók alvara lífsins, unglings- og mann- dómsár. Afi dó og Stella flutti til Reykjavíkur. Alltaf þegar tilefni var til að hittast var spurt um Stellu og enginn gleði- eða hátíðisdagur var fullkominn án návistar hennar. Á þessum stundum varð okkur sí- fellt betur Ijós umhyggja hennar og vinátta og enginn var betur fær um að innræta okkur það sem heil- agast er, ást á landi okkar og vitn- eskja um uppruna og ætt. Stella unni landinu mikið og þekkti það flestum öðrum betur, og ættfróð var hún með ólíkindum og frænd- rækin. Við látum öðrum það eftir að fjalla um starfs- og fræðimanns- feril Stellu, við þekktum hana sem vin og manneskju og þannig viljum við varðveita minninguna um hana. Við viljum nú að leiðarlokum þakka henni fyrir það sem hún var okkur og það sem hún innrætti okkur, og öll ævintýrin sem við fengum að upplifa í návist hennar. Merkileg og góð kona er gengin, en minningin um hana mun lifa með okkur, og við munum af veik- um mætti reyna að miðla þeim arfi sem hún gaf okkur til barnanna okkar, ást og virðingu fyrir landi okkar og uppruna. Við viljum að leið.arlokum senda systram hennar og ástvinum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Systkinin á Smáraflötinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.