Morgunblaðið - 17.11.1996, Síða 35
i
>
l
i
f
>
9
V
>
I
&
>
I
I
1»
h
MORGUNBLAÐIÐ
HULDA
JÓHANNESDÓTTIR
+ Hulda Jóhann-
esdóttir var
fædd á Herjólfs-
stöðum í Alftaveri
23. ágúst 1931. Hún
lést á Vífilsstaða-
spítala 7. nóvember
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
lyónin Þuríður
Pálsdóttir og Jó-
hannes Guðmunds-
son bóndi á Heij-
ólfsstöðum. Hulda
átti tíu systkini og
af þeim eru þrjú á
lífi, en þau eru Ein-
ar, f. 1915, Páll, f. 1917 og
Lára, f. 1928.
Hulda giftist Viggó Guð-
mundssyni árið 1957 en þau
slitu samvistir. Saman áttu þau
þrjá syni sem eru: 1) Þorsteinn
Vignir, f. 8.6. 1953, kvæntur
Ragnhildi Helgu
Ragnarsdóttur,
eiga þau fimm börn
og eru búsett í
Borgarnesi. 2) Jó-
hannes, f. 29.6.
1954, á tvö börn
með Rögnu Fróða-
dóttur. Hann er
búsettur í Kópa-
vogi. 3) Lárus
Kristinn, f. 8.7.
1957, kvæntur Ásu
Ólafsdóttur, eiga
þau þijú börn og
eru búsett í
Reykjavík. Síðustu
20 árin bjó Hulda með Ólafi
Jónssyni, f. 18.2.1927, í Rauða-
gerði 18.
Útför Huldu fer fram frá
Bústaðakirkju á morgun mánu-
daginn 18. nóvember, og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Nú er komið að kveðjustund.
Hulda tengdamóðir mín er látin.
Margs er að minnast, elsku Hulda
mín, og á ég eftir að ylja mér við
allar góðu minningarnar um þig.
Eg veit að þú vildir ekki fá neinar
lofræður þó að þú eigir þær svo
mikið skilið svo ég ætla að láta
fylgja hér með skrif þín sem þú
áttir um dauðann:
„Hvað er dauðinn? Líkn þeim sem
sjúkir eru, hvíld þeim sem þreyttir
eru, lausn þeim sem við vandamál
eiga að glíma og finna engin ráð.
Hvað er í rauninni betra?
Hvers getum við (ef við sleppum
okkar eigingimi) óskað frekar þeim,
sem við i raun og veru elskum, en
að þeir fái að deyja, séu þeir þann-
ig veikir að þeir kveljist bæði á lík-
ama og sál. Við vitum eða okkur
er kennt að það sé tekið vel á móti
þeim sem deyja af ættingjum og
vinum sem á undan eru farnir.
Höfum við þá sem eftir erum, leyfi
til að gráta? Ekki nema því aðeins
að við innra með okkur séum þakk-
lát fyrir það sem hinn dáni hefur
fyrir okkur gert, og einnig að gleðj-
ast yfir að nú líður þeim hinum
dána vel, þegar hann er Iaus frá
öllu hugarangri og líkamlegri kvöl.“
Ég minnist þín,
á svo margan hátt.
ÁSTA
ÞORKELSDÓTTIR
+ Ásta þorkelsdóttir fæddist
í Reykjavík 27. desember
1908. Hún lést á Hrafnistu í
Reykjavík 7. nóvember síðast-
liðinn og fór útför hennar fram
frá Fossvogskirkju 15. nóvem-
ber.
Elsku amma, okkur langar til að
kveðja þig með nokkrum orðum.
Þær voru svo margar yndislegar
stundir sem við áttum með þér, allt-
af var jafn gott að koma til þín í
Árbæinn.
Þú hlustaðir alltaf af jafn miklum
áhuga á hvað á daga okkar hefði
drifið og studdir við bakið á okkur.
Þær voru svo skemmtilegar sögurn-
ar sem þú sagðir, sögur frá því í
„gamladaga“. Langömmubörnun-
um þínum finnst erfitt að skilja að
þú sért farin en þau ætla að tala
til þín í bænum sínum.
Elsku amma, það er svo margt
sem kemur upp í hugann þegar við
hugsum til baka og mikið eigum
við eftir að sakna þín.
Minningarnar um þig munum við
varðveita í hjarta okkar.
Ásta María og Guðjón Karl.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURBJÖRG S. HOFFRITZ,
Ártúni 14,
Selfossi,
lést í Sjúkrahúsi Suðurlands hinn 14. þessa mánaðar.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum þeim fjölmörgu er sýnt hafa
okkur hlýju og vináttu vegna fráfalls
SKÚLA SIGURÐSSOIMAR
lögfræðings,
Bauganesi 4,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
krabbameinsdeildar 11-E á Landspítal-
anum fyrir einstaka umönnun í veikindum
hans.
Kristín Þ. Hauksdóttir,
Haukur Skúlason, Hilma Hólm,
Skúli Skúlason,
Sigurður Skúlason,
Soffía Sigfinnsdóttir,
Ólöf Sigurjónsdóttir,
María Hauksdóttir, Þórarinn Einarsson
og aðrir vandamenn.
MINIMIIMGAR
SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996 35
KRISTÍN LIL Y
KJÆRNESTED
Allt var svo gott sem
þú kenndir mér.
Allt.
Góður guð styrki syni þína og
fjölskyldu, Óla og aðra aðstandend-
ur í sorginni.
Aðstandendur vilja þakka starfs-
fólki hjúkrunardeildar Vífilsstaða-
spítala fyrir umönnun og einstaka
hlýju.
Ása.
Hjartkær amma, far í friði
fóðurlandið himneskt á.
Þúsundfaldar þakkir hljóttu
þínum litlu vinum frá.
Vertu sæl um allar aldir
alvaldshendi falin ver.
Inn á landið unaðs bjarta
englar drottins fylgja þér.
(Óþ. höf.)
Elsku amma er dáin. Það er erf-
itt að trúa því að þú sért farin -
farin að eilífu. Við geymum þó í
hjarta okkar og huga allar minning-
arnar um þig. Við vitum að nú ertu
komin í faðm foreldra þinna og
systkina sem þegar eru látin og við
trúum því að þú sért komin á góða
staðinn, þar sem allt er svo fallegt
og gott, og enginn sársauki eða
sorg eru til. Við þökkum Guði fyrir
að hafa fengið að kynnast þér og
biðjum hann að gefa okkur styrk í
sorginni.
Elsku Steini, Jói og Lalli, sorg
ykkar er mikil nú er þið kveðjið
ykkar elskulegu móður. Megi Guð
styrkja ykkur og styðja í söknuði
ykkar. Vertu blessuð, elsku amma,
um alla eilífð, þökk fyrir allt og allt.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Kveðja frá barnabömum.
+ Kristín Lily Kjærnested
fæddist 24. desember 1928.
Hún lést 26. október síðastliðinn
og fór útförin fram frá Ás-
kirkju 5. nóvember.
Hve allt var fagurt,
er æskuna dreymdi.
Við fógnuðum yfir,
hvað framtíðin geymdi.
(Stefán frá Hvítadal)
Við Stína kynntumst og urðum
vinkonur þegar við vorum 12 og 14
ára og upp frá því hélst vinátta
okkar alla tíð. Báðar áttum við
heima á Baugsveginum í Skeija-
firði, gengum í sama skóla þótt
ekki værum við í sama bekk því hún
var tveimur árum eldri en ég. Við
skemmtum okkur við alls konar úti-
leiki, þ.e.a.s. boltaleiki, fjöruferðir
og svo margt sem krökkum þeirra
tíma þótti skemmtilegt. Ég má til
með að rifja upp að ég var snemma
sólgin í að fara í sund, og á sunnu-
dagsmorgnum kl. 8.30 var ég mætt
og bankaði á gluggann hjá Stínu
og spurði hvort hún væri ekki að
koma í sund. Hana langaði alltaf
heldur til að sofa lengur, en lét sig
samt hafa það að fara með litlu
frekjunni, henni mér, og saman
þrömmuðum við svo úr Skeijafirð-
inum inn í Sundhöll Reykjavíkur —
og aftur til baka. Þætti líklega meira
en smáspotti í dag. Oft skemmtum
við okkur við að rifja þetta upp
ásamt fleiru sem við brölluðum. Síð-
ar fylgdumst við að þegar róman-
tíska tímabilið byrjaði, héldum okk-
ur til og fórum saman á böll. Mér
verður hugsað til erindisins úr kvæð-
inu hans Stefáns frá Hvítadal sem
fylgir þessum línum og til æsku-
draumanna okkar Stínu. Segja má
að draumar okkar hafí ræst álíka,
báðar giftumst við mönnunum sem v ’
okkur langaði til að eignast og stofn-
uðum heimili og eignuðumst börn.
Stína giftist á jólunum 1949 eft-
irlifandi eiginmanni sínum Stein-
grími Nikulássyni. Var hjónaband
þeirra farsælt og eignuðust þau
fjögur mannvænleg börn og barna-
börnin eru orðin átta. Stína var
myndarleg húsmóðir og góð eigin- j
kona og mamma og það var gaman !
að heimsækja þau. Það var auðséð .
að hjónin voru góð hvort við annað
og bömin.
Eftir að ég giftist Hjalta heitnum i
Ágústssyni urðum við öll góðir vinir i
og fjölskyldur okkar hafa alltaf haft
samband, alveg fram á þennan dag.
Síðustu árin voru erfið fyrir j
Stínu, sjúkdómar heijuðu á hana, j
en maðurinn hennar og bömin hjálp-
uðu henni og studdu til hinsta dags. i
Nú þegar ég kveð hana sé ég
hana fyrir mér unga og fallega, því j
Stína var með fegurri stúlkum sem '
sáust og þannig ætla ég að muna
hana.
Við börnin mín sendum Steina, |
börnum þeirra og venslafólki dýpstu 1
samúðarkveðjur. Blessuð sé minn- |
ing Stínu Kærnested.
Guðfinna Jensdóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskiiegt,
að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa,
öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig
auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang
þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp-
lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það
eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari
ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu- .
bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn j
sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t j
Ódýrari tryqqinq
eð skylduaðild og samtryggingu, bjóða sameignarsjóðimir sjóð-
lögum sínum langtum ódýrari tryggingu en hægt er að fá annars staðar.
Verðtryggður ellilífeyrir til æviloka.
Ororkulífeyrir, svo lengi sem orkutap varir.
Makalífeyrir sem tryggir velferð
fjölskyldunnar.
Barnalífeyrir samhliða örorku- og makalífeyri.
Samtryqqinq borqarsiq!
Samband almennra lífeyrissjóða
4
Landssamband lífeyrissjóda
*•