Morgunblaðið - 17.11.1996, Síða 40
40 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Ein kaka handa þér og ein Ein kaka handa þér Voff!
kaka handa mér... og tvær kökur
handa mér___
Æ, hvernig gat ég Bara smá-
gert slík mistök? áminning „voff“
JBoíttgíiwMaíiifo
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sírni 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Guðleg forsjón
Frá Guðbjörgu S. Sigurjónsdóttur:
REYKJAVÍK er bústaður fyrsta
landnema íslands, Ingólfur Arnar-
son, sem reisti þar bú árið 874. Á
leið sinni frá Noregi til íslands kast-
aði Ingólfur öndvegissúlum sínum
fyrir borð og taldi það guðlega for-
sjón að reisa bæ sinn og setjast þar
að sem súlurnar bæri að landi. Á
þriðja ári eftir að Ingólfur kom tii
Islands fundust súlumar reknar á
land við Faxaflóa. Þar var jarðhiti
og reykir stigu til lofts við víkina þar
sem framtíðarstaður Ingólfs skyldi
vera. Þess vegna gaf hann henni
nafnið Reykjavík." Þetta er tekið upp
úr bók Þorsteins Jósepssonar, Landið
þitt, saga og sérkenni nær 2000 ein-
stakra bæja og staða, bls. 292. Af-
komendur Ingólfs eru orðnir margir
á íslandi, ég vildi að allir ættmenn
hans bæru gæfu til að leita til Guðs
með sín mál eins og hann gerði.
Við íslendingar eigum gott og
fallegt land. Mér fínnst þjóðfáninn
okkar vera fallegasti þjóðfáni ver-
aldar. Hann kemur mér svona fyrir
sjónir: Rauði krossinn táknar að
Jesús dó á krossinum fyrir syndir
okkar og blóð Jesú Krists hreinsar
af allri synd, hvíti liturinn táknar
hreinleikann og blái liturinn himin-
inn og hafið. Þetta er fáni kristinnar
þjóðar. Svo er þjóðsöngurinn okkar
mikið fallegur. Hann byijar svona:
„Ó, Guð vors lands! Ó lands vors
Guð, vér lofum þitt heilaga, heilaga
nafn.“, og endar þannig: „Verði gró-
andi þjóðlíf með þverrandi tár, sem
þroskast á Guðsríkis braut“. Þá er
það jólasálmurinn okkar: „Heims um
ból, helg eru jól“. Hann er þijú er-
indi og hefur þessi sálmur hrifið
mig svo mikið, frá því að ég var
barn. Um áramótin syngjum við „Nú
árið er liðið í aldanna skaut og aldr-
ei það kemur til baka, nú runninn
er sérhver þess gleði og þraut, það
gjörvalt er runnið á eilífðar braut,
en minning þess víst skal þó vaka“.
Síðasta erindið byijar svona: „Ó gef
þú oss Drottinn enn gleðilegt ár, og
góðar og blessaðar stundir".
Þetta eru hin kristnu gildi þjóðar
okkar. Þessir sálmar eru dýrmætar
perlur, sem við þurfum að varðveita
og kenna ungu kynslóðinni að meta
og virða. Þessar hugsanir hafa
hlaupið í gegnum huga minn er ég
las í bók Þorsteins Jósepssonar,
Landið þitt. Þegar hann talar um
Ingólf Arnarson og hvernig hann fór
að því að velja sér stað í nýju heim-
kynnunum sínum. Landið okkar er
ekki bara landið sem við byggjum,
það er líka menning okkar og við
sjálf sem búum í því. Að endingu
þetta:
Ég er á langferð um lífsins haf
og lönpm breytinga kenni.
Mér stefnu Frelsarinn góður gaf
ég glaður fer eftir henni.
Guð blessi ísland og íslendinga.
GUÐBJÖRG S.
SIGURJÓNSDÓTTIR
Dúfnahólum 4, Reykjavík.
Mjólk
Frá Ólafi Ólafssyni:
GERILSNEYTT mjólk leiðir af sér
heilsuleysi kemur fram í grein Hall-
gríms Þ. Magnússonar þann 30. októ-
ber 1996. Greinin er í 11 liðum og
þar eru settar fram staðhæfíngar er
vekja furðu enda er ekki ein einasta
þeirra rökstudd með vísindagreinum.
1. Tennur bama eru líklegri til
að skemmast.
2. Eggjahvítan veldur æðakölk-
un.
3. Kettir verða sjúkir.
4. 88% bama hafa óþol gegn
gerilsneyddri mjólk.
5. Beinasjúkdómar.
Fleira mætti rekja.
Ágæti Hallgrímur, hvemig væri
að fínna þessum staðhæfíngum stað.
Ég vil benda þér á að læknum ber
samkvæmt læknalögum, gr. 11, að
sýna varkámi og nákvæmni við út-
gáfu læknayfírlýsinga og einungis
votta það er hann veit sönnur á.
ÓLAFUR ÓLAFSSON
landlæknir.
Hvað skal segja? 66
Væri rétt að segja: Hann kom í gær og fer á sunnudeginum?
Svar: Málvenja hefur verið að segja: á sunnudaginn. Sagt er
t.d.: Hann fer annan mánudag, og kallast þolfallið þá tímaþolfall.
Allt efni sem birtist í Morgunbiaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
PP
&CO
ÁRMÚLA29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SÍMI553 8640 / 568 6100
Þ. ÞORGRÍMSSON &CO
Veldu rétta efnið - veldu Rutland!
Rutland þéttir,
bætir og kætir
þegar að þakið
fer að leka
Rutland er einn helsti
framleiðandi
þakviðgerðarefna í
Bandaríkjunum