Morgunblaðið - 17.11.1996, Page 42

Morgunblaðið - 17.11.1996, Page 42
42 SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Rutland þéttir, baetir og kætir þegar að þakið fer að leka Á ÞÖK - VEGGI GÓLF Rutland er einn helsti framleiðandi þakviðgerðarefna í Bandaríkjunum Veldu rétta efnið - veldu Rutland! pp &CO Þ. ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA29 ■ PÓSTHÖLF 8360 • 128 REYKJAVlK SÍMI553 8640 / 568 6100 OPIÐ HÚS í DAG FISKAKVÍSL 30 Glæsileg 120 fm 5 herbergja íbúð á tveimur hæðum í nýlegu litlu fjölbýli. Góðar stofur. Vandaðar innréttingar. Mikið útsýni yfir borgina. Laus fljótl. Áhv. 6,0 millj. Verð 10,4 millj. Valborg tekur á móti gestum í dag milli 14 og 16. Asbyrgi, fasteignasala, sími 568-2444, fax 568-2446. oreign Sími: 533-4040 Fax:588-8366 Opið mánud.-föstud. kl. 9-18. Lau.11-14. Sunnud.12-14 Dan V.S. Wiium hdl. lögg. fastcignasali Ólafur Guðmundsson sölustjóri Birgir Georgsson sölum., Erlendur Davíössön - sölum. OPIÐ HUS I DAG FRÁ 13—15 í BÚÐARGERÐI 5, RVK. Nýkomin í einkasöiu mikið endurnýjuð 3ja herb. íb. á 1. hæð til vinstri í fjölb. ásamt íbherb. í kj. með sameiginlegri snyrtingu. Aðeins 4 íbúðir í stigagangi. Verð 6,9 millj. Brynjar og Hólmfríður taka vel á móti ykkur. OPIÐ HÚS í DAG FRÁ KL. 13—16 í FJALLALIND 127, KÓP. Parhús á einni og hálfri hæð ásamt innb. bílskúr. Möguleiki að hafa sérib. á jarðh. Húsið er fullb. að utan og fokh. að innan, hægt að fá það lengra komið. Stærð 219 fm. Áhv. 5,0 millj. húsbr. Verð 8,9 millj. Gunnar Haraldsson byggingarm. verður á staðnum. Sími 588 9090 - Siðumúli 21 Sverrír Kristinsson, löggiltur fasteignasali. OPIÐ í DAG, SUNNUDAG, KL. 12-15 Hellusund 7 - Tónskóli Sig- ursveins. Virðulegt 312 fm steinhús á þremur hæðum í Pingholtunum. í húsinu eru 3 samþ. íb. skv. teikningu en án innr. Petta hús býður uppá mikla möguleika. Pað er t.d. tilvalið fyrir hvers kyns félagsstarfsemi eða fyrirtæki. Auk þess væri góður kostur að breyta húsinu í þrjár íbúðir. V. 19,3 m. 6375 Stakkhamrar - tvöf. bílsk. Glæsilegt um 160 fm einlyft einbýli með tvöf. 46 fm bílskúr á góðum stað. Húsið er teikn. af Kjartani Sveinssyni og skiptist m.a. í 4 svefnh., 2-3 stofur, sólskála, stórt eldhús, gestasnyrtin- gu, baöh. o.fl. Góð sólverönd. Áhv. 6,2 m. Laust strax. V. 15,4 m. 6717 Leirutangi Mjög fallegt og rúmgott parhús á einni hæö. Parket og góðar innrétting- ar. Verönd og gróin lóð 6746 Hjallasel - nýtt. vorum ao v* \ eínkasölu 240 fm vandað parhús m. innb. bilskúr. Mögul. á sér íb. á jarðh. 6 svefnh. Vandaöar innr. Parket á góflum. Góð verönd m. skjólgirðingu. Veðursæfd. Laust strax. V. 12,7 m. 6721 Gnoðarvogur-Glæsiþak- hæð. Vorum að fá í einkasölu mjög falle- ga og vandaða 3-4ra hert). þakhæö I tjór- býliahúsi. Parket á gólfum. Fallegt nýtt eld- hús. Vönduð flisalögð sólstofa og stðrar suðursvalir. V. 9,3 m. 6757 Hagamelur-laus. Faiieg og bjön 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í eftirsóttu fjöl- býlíshúsi. Góðar ínnréttíngar. Suö-austur- svalir. íbúðin er laus nú þegar. Verð 6,9 miiij. V. 6,9 m. 6755 Trönuhjalli - glæsileg. Gullfaileg ca 95 fm íb. á 2. hæð i verðlauna- biokk. Sérþvottah. Stór og björt herb. og fal- legt útsýni. Áhv. byggsj. 5,2 m. V. 8,9 m. 6581 Alfaskeið - Hf. 3ja herb. 88 fm góð íbúð á 1. hæð í blokk sem nýlega hefur verið standsett. Laus fljótlega. V. 5,9 m. 6383 Arahólar - lyftuhús. Rúmgóð og falleg um 62 fm íb. á 4. hæð. Stórbrotiö útsýni yfir borgina. Yfirbyggöar vestursvalir. Áhv. ca 3,6 m. V. 5,4 m. 6740 Suðurgata-Hafnarfjörður. Glæsileg og falleg nýendurgerð 2ja herbergja ibúð á jaröhæð með sérinngangi. Glæsilegar sérsmlðaðar innréttingar og parket á gólfum. Allt nýtt m.a. gler, lagnir, innréttingar, gólfefni og fl. Laus strax. ibúð á frábærum staö I Hafnarfirði. Verð 5,5 millj. 6756 Miðvangur Hf - 7. hæð. 2ja her- bergja 57 fm falleg og snyrtileg íb. á 7. hæð með fráb. útsýni. Áhv. 2,4 m. Laus um áramótin. V. 4,8 m. 6743 Valshólar. 2ja herb. mjög falleg íb. á 2. hæð í húsi sem nýl. hefur veriö standsett. Flísar á gólfi. Ný eldhúsinnr. Nýstandsett bað. Áhv. 2,2 m. V. 4,8 m 6727 Frostafold. Mjög falleg 70,7 fm Ib. á 1. hæð í nýviðgerðu lyftuhúsi. Parket. Húsvörður. Stutt í alla þjónustu. Gott útsýni. Áhv. ca. 3 millj. Veðd. V. 6,3 m. 6749 IDAG SKAK IJinsjón Margeir Pétursson Staðan kom upp á stór- mótinu í Dos Her- manas á Spáni í sumar. Gata Kamsky (2.735) hafði hvítt og átti leik, en Spánverj- inn Miguel Illesc- as-Cordoba var með svart. Áskor- andinn í FIDE- heimsmeistara- keppninni missti hér af einfaldri vinningsleið í tímahraki: Hann lék 67. d7?? Og eftir 67. - Hxg6 68. d8=D+ -Kh7 69. g4 - e5 hélt svartur jafntefli án mikilla erfiðleika. Rétt var: 67. Dxf6! - gxf6 68. d7 og hvíta d peðið verður að drottningu án þess að svarti hrókurinn komi nokkrum vörnum við. Unglingameistaramót Islands, 20 ára og yngri. Mótinu lýkur í dag. Teflt HVITUR leikur og vinnur er frá kl. 13-17 í Skákmið- stöðinni Faxafeni 12. Með morgunkaffinu Ást er... 11-27 Jjölgun mannkynsins TM Reg. U.S. Pat. Off. — all rights reserved (c) 1996 Los Angeles Times Syndicate ALLIR sem samþykkir eru þessum drögum að frumvarpi segi A. ÉG var búinn að segja þér, Magnús, að lyfið hefði smá aukaverkanir. ÉG er alveg rosalega slappur, alveg hræði- lega máttlaus, eigin- lega alveg að deyja. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: laugaÞmbl.is Hver er höfundurinn UNNUR Elíasdóttir hringdi og langaði að vita hver hefði ort þessa vísu. Hún telur að faðir henn- ar, Elías Kristjánsson, gæti hafa ort hana, en hann hafði skrifast á við marga hagyrðinga þann- ig að vísan gæti verið eftir einhvem annan, t.d. systumar Ólöfu eða Her- dísi frá Hömrum. Viti einhver hver orti þessa vísu er hann beðinn að hafa samband við Unni í síma 552-7614. Vænt er að kunna vel að slá veiða fisk og róa á sjá smíða tré og líka ljá lesa á bók og rita skrá. Þakkir GUÐMUNDI H. Þórðarsyni, fyrrv. heilsugæslulækni, eru hér færðar bestu þakkir fyrir grein hans, Hagtölur og launamál, sem er hreint frábær, sem og aðrar greinar sem hann fær birtar á síðum Morgunblaðsins. Það væri óskandi að vinnukaupendur og formenn vinnuseljenda læsu grein Guðmundar og viðurkenndu rétt láglaunafólks til að lifa eins og menn. Hildur ÁSA bað Velvakanda fyrir eftirfarandi: Andlegi meistarinn Mata Amritanandamayi, sem kölluð er Amma, er í dag álitin vera einn af helstu andlegu meisturum Indlands. Undanfarin sumur hefur hún farið í heimsreisu og svo mun einnig erða næsta sumar. Nú kemur hún í annað sinn til Evrópu í ár á leið sinni frá Bandaraíkjunum og verður stödd í París dagana 27. til 29. nóvember nk. Amma tekur persónulega á móti hveijum einstaklingi, jafnt bömum sem fullorðnum. Hún tekur alla í fangið og umvefur þá með móðurkærleik sínum. Eigi einhver sem les þessar línur kost á því að hitta Amma í París er það mikil blessun fyrir viðkomandi. Þessa daga verður hún stödd á L.S.C. La Plaine, 144, Avenue du Président Wilson, 93210 La Plaine Saint Denis. Með kveðju og þakklæti. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót o.fl. lesendum sínum að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælis- tilkynningum og eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329 sent á netfangið: gusta@mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Dagbók Morgunblaðsins, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Yíkveiji skrifar... HVER Á ísland? Þessi spuming er fólki tungutöm. Hver á hálendið og óbyggðirnar? Hver á jarðhita og önnur verðmæti langt undir yfirborði jarðar? Hvað nær eignarétturinn langt niður í fóstur- jörðina — eða upp í himinblámann? Hver á íslandsála og auðlindir sjáv- ar og setlaga? Hvað sem þessum spurningum líður á íslenzka ríkið 638 jarðir: 459 í ábúð - 179 nýttar á annan hátt. Heildarfasteignamat þeirra, þ.e. lands, hlunninda, ræktunar og mannvirkja er 3,8 milljarðar króna. Skipting eigna milli landeiganda og leigjenda liggur ekki ljós fyrir. Spurningin er engu að síður: Hvem- ig er þessi sameign þjóðarinnar ávöxtuð? Árlegar leigutekjur af „heila klabbinu" eru 27,8 m.kr. á líðandi ári. Það gerir að meðaltali um kr. 3.600 í mánaðarleigu pr. jörð. Til samanburðar er leiga fyrir litla íbúð í Reykjavík trúlega tífalt hærri. Fimm ríkisjarðir hafa verið seldar í ár. Meðalverð var 1,3 m.kr. - Það er aðeins hægt að hrópa hógværð- arhúrra fyrir svoddan ávöxtun. Hvers vegna ekki að selja þessar jarðir á frjálsum markaði - eða ráðstafa þeim til áhugafólks um tijárækt? xxx * ASÍÐASTLIÐNU vori beið á í'jórða þúsund íslendinga eftir læknisaðgerðum, þar af um þrettán hundruð eftir bæklunaraðgerðum. Hvað kosta þessir löngu biðlistar í fjarvistum frá vinnu? Hver em áhrif þeirra á endanleg útgjöld hins opin- bera? Eða félagslegt öryggi og fjár- hag sjúklinganna? Og hver eru áhrif þeirra á framvindu sjúkdómanna? Spurningar þessar eru sóttar í þingskjal Jóhönnu Sigurðardóttur og fleiri þingmanna, sem biðja heil- brigðisráðherra um úttekt á áhrif- um svo iangrar biðar eftir læknisað- gerðum hér á landi. Fyrr mátti um slíkt biðja. Það skyldi þó ekki vera að fórnar- kostnaðurinn sé umtalsvert meiri en hinn meinti spamaður? XXX INNST olía eða gas í land- grunni ísiands? Færeyingar binda vonir við að olía finnist í þeirra landgrunni. Olíu- gróði hefur, ásamt ráðdeild Norð- manna, borgað upp allar erlendar skuldir þeirra. Guðmundur Hall- varðsson og fleiri þingmenn flytja að mati Víkveija tímabæra þings- ályktun um olíuleit við ísland. Frummælingar fóru fram út af Eyjafirði og á Skjálfandaflóa árið 1978. Þar fundust allt upp í 4ra km þykk setlög, en setlög eru for- senda fyrir því að olía eða gas finn- ist. Boruð var rúmlega 500 m hola í Flatey á Skjálfanda árið 1981, sem staðfesti tilvist setlaga þar. Til þess að ganga úr skugga um hvort kol- vetni eru í setlögum þarf að bora niður á um 2000 m dýpi. Það kann að verða ómaksins vert að kanna leyndardóma norðlenzku setlaganna! XXX ÚSNÆÐISSPARNAÐAR- reikningar, sem komið var á með lögum 1985, opnuð mörgum leið til þess að eignast eigið hús- næði. Formið var byggt á samn- ingsbundnum innlánum, sem tengd voru rétti til húsnæðislána. Þessi hvetjandi lög til sparnaðar voru illu heilli skert í áföngum og eiga að leggjast af nú um áramótin. Tómas Ingi Olrich og fleiri þing- menn hafa lagt fram frumvarp til laga um endurnýjun þessara sparn- aðarreikninga. Samkvæmt frum- varpinu má færa fjórðung innleggs fólks á húsnæðissparnaðarreikn- inga, sem bundnir eru til ákveðins árafjölda, til frádráttar frá tekju- skattsstofni. Allir vita að það skiptir sköpum um möguleika fólks til að eignast eigið húsnæði, hve mikinn hluta kaupanna er hægt að fjármagna með eigin fé. Það er almennt talið að fólk verði að eiga minnst 15% af kaupverði íbúðar skuldlaust við fyrstu kaup. í því ljósi er frumvarp Tómasar Inga Olrich o.fl. þing- manna hið þarfasta mál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.