Morgunblaðið - 17.11.1996, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 17.11.1996, Qupperneq 43
MCÍRGÍJN'ÍnADID SUNNUDÁÖUR'Íf. NÓVEMBER 1996 43 I DAG BRIDS llmsjön Guömundur Páli Arnarsnn ÍSLAND vann Brasilíu 17-13 í riðlakeppni ólympíumótsins á Ródos. Stærsta sveifla leiksins kom í þessu spili: Austur gefur; NS á hættu. (Áttum breytt.) Norður ♦ Á9 V Á2 ♦ K972 ♦ Á7542 Vestur ♦ G10876 9 K1094 ♦ ÁD ♦ 93 Austur ♦ K532 V 73 ♦ 63 ♦ KD1086 Suður ♦ D4 V DG865 ♦ G10854 ♦ G í lokaða salnum keyptu Jón Baldursson og Sævar Þorbjörnsson samninginn í þremur spöðum í AV, sem unnust slétt. Það gaf 140. I opna salnum komust Chagas og Branco aidrei inn í sagnir þeirra Aðalsteins Jörgensens og Matthíasar Þorvaldssonar: Vestur Norður Austur Suður Chagas Matthías Branco Aðalst. Pass 2 hjörtu Pass 2 grönd Pass 3 tíglar Pass 5 tíglar Allir pass Opnun Aðalsteins á tveim- ur hjörtum sýndi fímmlit í hjarta með láglit til hliðar og 5-10 punkta. Chagas kom út með lauf- níu. Aðalsteinn drap með ás og fór síðan heim með því að trompa lauf. Hann spilaði hjartagosa, Chagas lagði kónginn á og ás blinds átti slaginn. Aðalsteinn fór heim á hjartadrottningu og reyndi nú tígultíu. Chagas tók á ásinn og hugsaði sig um í tíu sekúndur, sem er langur tími á hans mælikvarða. Loks spilaði hann hjarta í þeirri von að makker hans ætti tíg- ulgosa og gæti yfírtrompað blindan. En Aðalsteinn var vel á verði; hann trompaði með níunni og lagði næst niður tígulkóng. Hann hafði nú samgang til að fría hjart- að og njóta þess. Unnið spil og 600 til Islands, eða 13 IMPar. Glöggir lesendur hafa tek- ið eftir því að spilið tapast ef vestur spilar spaða, en ekki hjarta, þegar hann er inni á tígulás. Ef sagnhafí hleypir heim á drottningu, drepur austur og spilar laufí. Þá fær vömin slag á tromp- drottningu. Ekki dugir heldur að drepa á spaðaás og taka tígulkóng, því ekki er sam- gangur til að nýta fimmta hjartað. Árnað heilla QrkÁRA afmæli. Á í/\/morgun, mánudaginn 18. nóvember, verður ní- ræður Ólafur Árnason, fyrrverandi starfsmaður Álmennra trygginga, Seljugerði 1, Reykjavík. Hann dvelur á Heilsuhælinu í Hveragerði. ^/AÁRA afmæli. Sjö- I v/tugur verður á morg- un, mánudaginn 18. nóvem- ber Jón Aðalsteinn Jónas- son, Kúrlandi 30, Reykja- vík. Eiginkona hans er Margrét Sveinsdóttir. Þau hjónin verða að heiman á afmælisdaginn. Ljósmyndarinn Lára Long BRUÐKAUP. Gefín voru saman 21. september í Háteigs- kirkju af sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur Sigríður Lilja Samúelsdóttir og Jón Gunnarsson. Með þeim á mynd- inni eru Sigrún María og Guðrún Bóel. Þau eru til heimil- is í Stórholti 37, Reykjavík. HOGNIIIREKKVISI „HAHNSP/L/tR ALlTfiFGOLFA fiFtVWELINO MÍNU- ðG k£MUf>HEIM /H£&M#>ÆLfiN fflcwUÓNÞ ‘ ORÐABÓKIIM ENGIN viðbrögð hafa komið fram við því, sem sagt var síðast um ofan- greint orð og nýja merk- ingu þess í máli ferða- mála-, markaðs- og við- skiptafræðinga. I bréfi Birnu G. Bjarnleifsdótt- ur kemur fram, að hin nýja merking orðsins muni vera ný túlkun á enska orðinu „product“, og skiptir þar ekki máli, hvort um áþreifanlega vöru er að ræða, sem hefur lykt og hægt er að setja á lager, eða ekki. Mun orðið „vara“ í þessu sambandi vera Vara notað bæði í verkfræði- deild og viðskiptadeild Háskóla Islands. I Ensk- íslenskri orðabók er product aftur á móti sagt merkja m.a. fram- leiðsla, framleiðsluvara, afurð. Af þessu er ljóst, að merkingarsvið no. vara hefur bæði verið stækkað og breytt frá almennum skilningi manna og því, sem segir í orðabókum, að vara sé varningur eða e-ð, sem er framleitt og gengur kaupum og sölum. Ég held það verði samt anzi erfitt að fá þorra manna til þess að skilja það, að „vara“ geti verið sæti í flugvél, hótelherbergi eða jafnvel einhvers konar þjónusta við við- skiptavini. Hins vegar má vera, þegar nógu oft hefur verið tönnlazt á nýjum merkingum orða, þótt þær fari í bága við máltilfinningu flestra, að þær verði teknar fyr- ir góða og gilda vöru. Samt mun no. vara verða áfram einhvers konar framleiðsla og varningur í hugum manna. J.A.J. STJÖRNUSPA * SPORÐDREKI Afmælisbarn dagsins: Þú hefurgott skopskyn og ert venjulega hrókur alls fagnaðar. Hrútur (21. mars - 19. apríl) Þú átt erfítt með að gera upp hug þinn varðandi fyrir- huguð viðskipti og þarft að hugsa þig vel um áður en þú lætur till skarar skríða. Naut (20. apríl - 20. maí) Láttu ekki ginnast til að gefa loforð, sem erfítt verður að standa við. Smá misskiin- ingur getur komið upp milli ástvina. Tvíburar (21. maí - 20. júní) 4» Þig langar að slaka á í dag og skemmta þér, en ástvinur hefur skyldum að gegna. Þú verður því að bíða betri tíma. Krabbi (21. júní — 22. júlí) HiB Óvæntar truflanir verða til þess að breyta fyrirætiunum þínum í dag, en síðdegis fell- ur allt í ljúfa löð og ástvinir njóta kvöldsins. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ástin verður í hávegum næstu vikurnar og mikið verður um að vera í sam- kvæmislífinu. Njóttu þess sem lífið hefur að bjóða. Meyja (23. ágúst - 22. september) &£ Það verður mikill gestagang- ur hjá þér næstu vikurnar, og nýir vinir bætast í hóp- inn. Þér gengur einnig vel í vinnunni. Vog (23. sept. - 22. október) Það getur valdið þér leiðind- um þegar vinur endurgreiðir ekki peninga, sem þú lánaðir honum. Ræddu málið í bróð- erni. Sporödreki (23. okt. - 21. nóvember) 9Kj0 Tafir geta orðið á að þér takist að ná mikilvægum samningum um viðskipti. Vertu samt ekki með áhyggjur að óþörfu. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Framundan eru uppgangs- tímar hjá þér í vinnunni og þú tekur að þér mjög áhuga- vert verkefni. Njóttu hvíldar heima í kvöld. Steingeit (22. des. - 19,janúar) Dómgreind þín í fjármálum er góð og leiðir til batnandi efnahags. Vinur, sem þú metur mikils, býður þér að koma í heimsókn. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Skemmtilegt ferðalag gæti verið á dagskránni á næstu vikum og þú ert að búa þig undir að taka á móti góðum gestum. Fiskar (19.febrúar-20. mars) Þú getur þurft að leita í vara sjóðinn til að geta keypt dýr- an hlut fyrir heimilið. Þér opnast nýjar dyr til aukins frama í vinnunni. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Heildarjóga Jógafyrir alla „Jóga og hugleiðsla er það besta seni ég hef upplifað til að ná úr mér streitu ogþreytu og ".......... Ægffi Ásmundur Gunnlaugsson YOGA STUDIO kyira bugann eftir eril dagsins. ÉgfyUist orku og finn fyrir meira jafiivœgi. Eg nueli með jóganufyrir alla. “ Valgerður Matthíasdóttir, arkitekt og dagskrárgerðarkona. Grunnnámskeið: 25. nóv. - 16. des. (7 skipti) mán. og mið. kl. 20.00-21.30. Leiðbeinandi: Anna Dóra Hermannsdóttir. Jóga gegn kvíða: Helgarnámskeið 23. og 24. nóv. kl. 9.00-15.00.. Leiðbeinandi: Ásmundur Gunnlaugsson. Böð, sauna ojg nudd. Mánaðarkort, 3ja mánaða kort, morgunkort og stakir tímar. Verslunin/aígreiðslan er opin alla virka daga frá kl. 11.00 - 18.00. Hátúni 6A, 105 Reykjavík, sími 511 3100. ,1 STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Tilboðsverð Verð kr 4.995 Verð áður kr. 6=995 Stærðir: 36-42 Litur: Svart Ath: HlýfóSra&ir. Vatnsfráhrindandi. Efni: Veratex. Tegund: 69207 POSTSENDUM SAMDÆGURS STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN ^ SÍMI 551 8519 ^ Ioppskórinn Veltusundi v/lngólf$torg Sími 552 1212 Austurstræti 20 Sími 552 2727 STEINAR WAAGE SKOVERSLUN ^ SÍMI 568 9212 ^ TILBOÐ OSKAST í Chevrolet Astro Extended Van 7 farþega árgerö ‘92 og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðjudaginn 19. nóvember kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. I.H.C. VÖRUBIFREIÐ Tilboð óskast í I.H.C. vörubifreið S-1700 m/palllyftu árgerð '84 Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA SALA VARNARLIÐSEIGNA Blað allra landsmanna! - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.