Morgunblaðið - 30.11.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.11.1996, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C 275. TBL. 84. ÁRG. LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter FRANSKIR vörubílstjórar fjarlægja vegatálma á hraðbrautinni milli Lille og Ghent í gær. Flest benti til þess í gærkvöldi að verkfallinu væri að ljúka. 12 sólarhringa verkfalli franskra vörubílstjóra að ljúka Fengu allar helstu kröfur uppfylltar . París. Reuter. Þjóðaratkvæðagreiðslan í Alsír Flokkar heit- trúarmanna útilokaðir París. Reuter. MIKILL meirihluti Alsírbúa sam- þykkti stjórnarskrárbreytingu ríkisstjórnarinnar um bann við starfsemi íslamskra stjórnmála- flokka í þjóðaratkvæðagreiðslunni í fyrradag. Er niðurstaðan talin sigur fyrir Liamine Zeroual forseta í blóðugri baráttu hans við heittrú- armenn. Samkvæmt opinberum tölum voru stjórnarskrárdrögin sam- þykkt með 85,8% atkvæða gegn 14,19% en kjörsóknin var 79,8%. Alls voru 16,4 milljónir manna á kjörskrá. Eru úrslitin talin munu styrkja stöðu Zerouals fyrir þing- kosningar sem verða á fyrri helm- ingi næsta árs. Leiðtogar löglegra stjórnarand- stöðuflokka sökuðu Zeroual um að hafa falsað kosningaúrslitin en nefndu þó engin áþreifanleg dæmi um, að kosningarnar hefðu ekki farið heiðarlega fram. Bókstafs- trúarmenn höfðu haft í frammi líf- látshótanir við hvern þann, sem dirfðist að fara á kjörstað. Erlend- ir sendimenn segja, að 300.000 her- og lögreglumenn hafi verið við gæslu á kjördag. Andstaðan mest meðal Berba Með nýju stjórnarskránni verður bannað að bjóða sig fram undir merkjum trúarinnar, tungumála, kynferðis eða einstakra héraða og tveir íslamskir flokkar, sem starfa löglega, fá eitt ár til að breyta stefnuskránni. Stærsti íslamski flokkurinn, íslamska frelsisfylk- ingin, var bannaður skömmu eftir að þingkosningum var aflýst 1992 en þá stefndi í sigur hans. Andstaðan gegn stjórnarskrár- drögunum var mest í Berba-héruð- unum eða 63% en í þeim var ákvæði um, að arabíska yrði eina opinbera tungumálið. Berbar berj- ast fyrir því, að þeirra tungu verði gert jafn hátt undir höfði. Reuter ERDEMOVIC hlýðirá dómsniðurstöðuna. Stríðsglæpir Króati dæmdur Haag. Reuter. STRÍÐSGLÆPADÓMSTÓLLINN í Haag dæmdi í gær 25 ára Króata, Drazen Erdemovic, í tíu ára fangelsi fyrir að taka þátt í drápum serb- neska hersins í Bosníu á 1.200 óvopnuðum múslimum í borginni Srebrenica. Þetta er fyrsti dómurinn sem dóm- stóllinn í Haag kveður upp og Er- demovic er fyrsti maðurinn sem dæmdur er fyrir stríðsglæpi frá rétt- arhöldunum í Núrnberg og Tókýó eftir síðari heimsstyijöld. Erdemovic var handtekinn í Belgrad í mars eftir að hafa skýrt frönsku dagblaði frá því að hann hefði drepið 70 múslima á fimm klukkustundum að fyrirmælum yfir- boðara síns í her Bosníu-Serba. Hann kvaðst hafa neyðst til að taka þátt í drápunum þar sem yfirmaður- inn hefði hótað honum lífláti ef hann hlýddi ekki. VERKFALLI franskra vörubíl- stjóra, sem staðið hafði í 12 daga, virtist vera að ljúka í gærkvöldi og að sögn talsmanns samgöngu- yfirvalda var búið að fjarlægja flesta vegatálma. Undirritaður var samningur í gær um lækkun eftir- launaaldurs úr 60 í 55 ár og sátt virtist vera að nást um auka- greiðslur er vinnuveitendur buðu og verkfallsmenn töldu geta svarað tii 10% launahækkunar. Alain Juppé forsætisráðherra fagnaði lokum verkfallsins í gær og sagðist álíta að náðst hefði viðunandi niðurstaða. Mikið efna- hagslegt tjón hefur orðið af völdum aðgerðanna og staða Juppés, sem ekki var traust fyrir, þykir enn hafa veikst. Það þótti einnig ugg- vænlegt að félög starfsmanna í olíu- iðnaði sögðust myndu kanna meðal félagsmanna sinna hvort vilji væri fyrir því að hefja aðgerðir til að knýja fram kröfur um bætt kjör. Ekki var búið að ganga endan- lega frá samningum í gærkvöldi en bílstjórarnir voru flestir búnir að aka vögnum sínum á brott frá stöðum þar sem þeir höfðu hindrað alla umferð, þeir sýndu þannig að þeir teldu aðgerðum lokið. „Okkur finnst að stéttin hafi aukið á virð- ingu sína með þessari 12 daga baráttu," sagði Claude Debons, formaður stærsta félags verkfalls- manna, CFDT. Launahækkunin byggist aðal- lega á því að bílstjórarnir segjast oft vinna allt að 200 stundir á viku en fái ekki kaup fyrir nærri því allan tímann vegna þess að dreginn sé frá tími sem fari í að losa og lesta bílana. Hefur þetta viðgeng- ist árum saman en fyrir þennan biðtíma munu þeir nú fá auka- greiðslur. Vinna á sunnudögum verður bönnuð. Ottast að Norðmenn muni smala „skoskum“ fiski Ósló. Morgunblaðið. SKOSKIR sjómenn eru í miklum ham um þessar mundir vegna frétta um tilraunir Norðmanna til að fjarstýra fiski. Hefur John Thomsen, varaformaður í samtök- um þeirra, krafist þess, að slíkar tilraunir verði bannaðar og segist óttast, að annars sé hætta á, að öllum fiski í skoskri lögsögu verði smalað saman og hann rekinn eitt- hvað annað, til dæmis til Noregs. Norski prófessorinn Jens Glad Balchen, sem hefur verið að gera þessar tilraunir, segir, að í besta falli geti fjarstýrður fiskur, t.d. þorskur, haft áhrif á göngu einnar torfu. Skotar halda því fram að fiskarnir hans Balchens muni tæla allan þorsk og makríl yfir að Nor- egsströndum. Hefur gaman af Balchen prófessor hefur gaman af þessum áhyggjum Skotanna. „Ég hef unnið að þessum rann- sóknum í 15 ár. Þetta er mjög spennandi viðfangsefni á mörkum tækni og líffræði og Skotarnir geta sofið rólegir," segir hann. Með tilraunum hans er verið að kanna hvort unnt sé að fjarstýra fiski til ýmissa verkefna. „Fiskurinn er ódýr, vatnsþéttur, ryðgar ekki og kemst niður á 300 metra dýpi án nokkurs sérstaks eldsneytis. Það má koma fyrir bún- aði í maga hans eða utan á honum og hann getur borið hylki með lykt- arefnum, sem draga að sér annan fisk. Við vitum, að torfan fylgir oft fiski, sem stefnir í ákveðna átt,“ segir Balchen. Reuter Forseta- eiður UMBÓTASINNINN Emil Const- antínescu tók við embættí forseta Rúmeniu í gær. Hann hét m.a. að reyna að tryggja þjóð sinni aðild að Atlantshafsbandalaginu og Evr- ópusambandinu. Constantínescu sést hér leggja hægri hönd sína á stjómarskrá Rúmeníu og sveija forsetaeiðinn á meðan Teoctist patríarki, leiðtogi rúmensku rétt- trúnaðarkirkjunnar, signir sig. „Við þurfum að endurheimta stöðu Rúmeníu í Evrópu,“ sagði Const- antinescu. „Okkur vantar efnahags- umgjörð, sem skapar frelsi í athöfn- um, gagnast öllum og vemdar alla ... Fólk á ekki að lifa í ótta við morgundaginn."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.