Morgunblaðið - 30.11.1996, Side 3
HVlTA HÚ8IÐ / SlA
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR30.NÓVEMBER1996 3
Haustið 1649 situr Guðmundur Andrésson, íslenskur almúga-
maður bak við lás og slá í kóngsins Kaupmannahöfn.
Honum er gefið að sök að hafa samið hneykslaniegt rit gegn
Stóradómi, hinni harkalegu siðferðislöggjöf sem þjakaði
íslendinga um aldir.
í Bláturni, einu illræmdasta fangelsi Danaveldis, bíður
Guðmundur þess sem verða vill meðan hann veltir fyrir sér
lífshlaupi sínu og reynir að raða saman brotum.
...fágætlega vel skrifuð."
Jóhanna Kristjónsdóttir/Morgunblaðið
Tvímœlalausf helsfa verk
Þórarins Eldjáms til þessa.
WSPmr‘ wt\ifW»8U
FORLAGIÐ
íslensk bókmenntasaga III
í þessu bindi islenskrar bókmenntasögu erfjallað
um tímabilið frá því um miðja 18. öld og fram til
1918. Hér er rætt um upplýsingarmenn eins og
Eggert Ólafsson og Magnús Stephensen, um
Fjölnismenn og Verðandi, um sálmaskáldskap
og leikritun, um upphafstíma íslensku
skáldsögunnar og þjóðsagnasöfnun. En hér er
líka sagt frá þeim sem stóðu utan við strauma
tímans og frá íslensku bókmenntalífi í Vesturheimi.
Bókin er sérlega vegleg og prýdd fjölda mynda.
Fyrsta bindi flokksins hlaut á sínum tíma íslensku
bókmenntaverðlaunin.
Höfundar eru Árni Ibsen, Gísli Sigurðsson,
Matthías V. Sæmundsson, Páll Valsson, Silja
Aðalsteinsdóttir og Viðar Hreinsson en Halldór
Guðmundsson er ritstjóri.
Að hugsa á íslenzku
Fáum höfundum er eins vel gefið og Þorsteini
Gylfasyni að miðla hugsun sinni og heimspeki á
skýran og skemmtilegan hátt. Þessi bók er safn
fjórtán ritgerða sem hverfast um tvö efni: Annað
er málið sem við tölum og merking þess, hitt er
sköpunargáfan. Bókin sýnir einkar Ijóslega hvernig
mál og sköpun tvinnast saman á margvíslega
lund. Enginn sem ann íslenskri hugsun ætti að
láta þessa bók framhjá sér fara.
Laugavegi 18 • Sími: 552 4240
Síðumúla 7-9 • Sími: 568 8577