Morgunblaðið - 30.11.1996, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Vðnduö kanna með
leka loka.
Slekkur á sér sjálfkrafa.
Café Master
Þægileg, einföld og ódýr. HD7412
Café Gourmet
HD 5400
Falleg kaffivél sem sýöur
vatniö áður en hún hellir upp á.
Auðvelt er að færa hana til og
hitahellan heldur kaffinu
heitu.
11.560 kr.
Café Roma Tfíerm
Hellir upp á ilmandi kaffi HD7262
beint í hitabrúsann.
kr.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SlMI 569 1500
Umboösmenn um land allt.
ERLENT
Milosevic for-
seta enn andæft
Belgrað. Reut-
Kosningaframlög
Reno hafnar
rannsókn
Washington. Reuter.
JANET Reno, dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, samþykkti í gær
þá ákvörðun ráðuneytis síns að
hafna ósk fimm þingmanna repú-
blikana um að hafin yrði sérstök,
opinber rannsókn á fjárframlögum
í kosningasjóði demókrata.
Ráðuneytið sagði að málið yrði
athugað áfram en taldi að ekki
væru nægilega sterkar vísbending-
ar um lagabrot til að réttlæta
mætti opinbera rannsókn. Demó-
kratar hafa verið sakaðir um að
þiggja fé frá erlendum aðilum í
baráttunni um forsetaembættið.
Þingmennirnir vildu að kannað
yrði hvort mönnum sem lagt hefðu
fram fé í sjóði demókrata hefði
verið hyglað af stjórnvöldum.
TUGIR þúsunda mótmælenda gengu
ffm götur Belgrað í slyddu og kulda
í gær og hrópuðu vígorð gegn
Slobodan Milosevic, forseta Serbíu.
Efnt hefur verið daglega til mót-
mæla í höfuðborg Serbíu frá því að
Milosevic neitaði að viðurkenna sigur
stjórnarandstöðunnar í kosningum í
Belgrað og nokkrum öðrum borgum
í landinu fyrir hálfum mánuði og
lýsti þær ógildar.
Talið var að ívið fleiri hefðu mót-
mælt í gær en á fimmtudag þegar
um 80 þúsund manns gengu um
götur í mótmælaskyni.
Milosevic hefur brugðið á það ráð
að leiða mótmælin hjá sér og ríkis-
fjölmiðlar hafa lýst Zajedno, banda-
lagi stjórnarandstæðinga, sem sam-
tökum útlaga og undirróðursmanna.
Milosevic hefur fyrirskipað lög-
reglunni að láta lítið á sér bera og
stjórnarerindrekar teija að hann
treysti á það að mótmælendur um
allt land missi smátt og smátt móð-
inn.
Félagar í Zajedno viðurkenndu að
mótmælin hefðu sennilega náð há-
marki, en Milosevic hefði verið af-
hjúpaður.
„Við höfum rifið af honum grím-
una fyrir framan allan heiminn til
að sýna hver hann er í raun; lítill
einræðisherra á Balkanskaga, sem
þolir ekki minnsta ósigur,“ sagði
Zoran Djindjic, einn leiðtoga stjórn-
arandstæðinga, á mótmælafundin-
um í gær.
Reuter
Leitað í flaki eþíópsku vélarinnar
KAFARAR fóru í gær niður að
flaki eþíópsku farþegavélarinn-
ar, sem hrapaði i Indlandshaf
skammt undan Comoro-eyjum
við austurströnd Afríku 23.
nóvember, í leit að jarðneskum
leifum þeirra, sem fórust með
henni. Hér sjást tveir kafarar
lýsa inn í flugstjórnarklefann.
Þrír menn rændu vélinni, sem
var á leið frá Addis Abbaba í
Eþíópíu til Fílabeinsstrandar-
innar, og kröfðust þess að henni
yrði flogið til Ástralíu.
Flugstjóri vélarinnar lýsti því
í gær hvernig flugræningjarnir
hefðu neitað að trúa því að
vélin væri að verða eldsneytis-
laus og þegar loks tókst að
koma þeim í skilning um það
hvernig væri ástatt vildu þeir
ekki leyfa að flugið yrði lækk-
að.
„Ég sagði við þá: „Sjáið þið
til, við erum öll dauðans matur,
það er tilgangslaust að þræta.“
Foringi flugræningjanna barð-
ist um, tók í stjórntækin og
sneri síðan aftur í farþegarým-
ið,“ sagði Leul Abate flugstjóri.
„Þannig að ég reyndi að fljúga
vélinni alla leið niður og á síð-
ustu stundu kom aðstoðarmað-
ur minn hlaupandi inn í flug-
stjórnarklefann og hjálpaði við
að reyna að brotlenda."
Flugræningjarnir kváðust
hafa sprengju meðferðis. Talið
er að þeir hafi farist með vél-
inni. 175 manns voru um borð,
125 létu lífið og 50 björguðust.
Glœsileg smiddjárnshúsgögn
sýning um helgina
OTT| |TT
STUTT
Árekstur
við ufsa
LEIGUBÍLSTJ ÓRI frá
Raumsdal í Noregi, John Há-
vard Staurset, varð fyrir þeirri
óvenjulegu reynslu um daginn
að aka á ufsa.
Fiskurinn, sem var þrjú kíló
að þyngd og hálfur annar metri
að lengd, lenti á framrúðunni.
Skömmu áður sá Staurset haf-
örn við vegarbrúnina, fuglinn
flaug upp þegar hann sá bílinn
og hefur iíklega verið búinn að
læsa klónum í fiskinn en síðan
misst hann.
Vogel
sýknaður
WOLFGANG Vogel, austur-
þýski lögfræðingurinn, sem
frægur varð fyrir aðild sína að
njósnaskiptum í kalda stríðinu,
var sýknaður í gær í Berlín af
ákæru um fjárkúgun. Taldi
dómarinn skorta á sannanir
gegn honum. Vogel var hins
vegar fundinn sekur um svipað-
ar sakir í janúar á þessu ári
en þá þótti sannað, að hann
hefði á sínum tíma kúgað fé
út úr Austur-Þjóðverjum, sem
vildu komast vestur yfir. Auk
þess var hann þá dæmdur fyrir
meinsæri og skjalafals.
Enska á
enskum
skipum
BRESKA ríkisstjórnin tilkynnti
í fyrradag, að framvegis yrði
sú krafa gerð til sjómanna á
„kvótahoppskipum", að þeir
gætu talað ensku. Sagði Tony
Baldry sjávarútvegsráðherra,
að það væri ekki nema eðlilegt
þar sem skipin væru skráð í
Bretlandi og sigldu undir
breskum fána. Er þetta enn ein
atlaga Breta að kvótahoppi
Spánveija og Hollendinga en
Baldry sagði, að um helmingur
skráðra skipa í Grimsby væri
nú í eigu Hollendinga.
„Concordskí“
áloft
RÚSSNESKU Túpolev-144LL-
þotunni var fiogið í fyrsta sinn
í gær í langan tíma en hún var
smíðuð á áttunda áratugnum
og oft köliuð „Concordskí"
vegna þess, að hún var gerð í
líkingu Concord-þotu Frakka
og Breta. Nú hafa bandarísk
flugvélafyrirtæki og banda-
ríska geimferðastofnunin,
NASA, tekið höndum saman
við Rússa um tilraunir, sem
eiga að leiða til smíði hljóð-
frárrar farþegaþotu. Nokkur
dráttur varð þó á, að þotan
kæmist á loft því að starfsmenn
Túpolev-smiðjanna notuðu
tækifærið til að minna á, að
þeir ættu inni 18 mánaða laun.