Morgunblaðið - 30.11.1996, Qupperneq 22
Sjálfsafgreiðslu-
afsláttur
22 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Kryddblöndur í vínanda
POTTAGALDRAR í vínanda er ný
framleiðslulína fyrirtækisins Potta-
galdra. Á ensku verður hún sett á
markað undir nafninu Potmagic in
Spirit. Þetta eru kryddblöndur sem
eru vættar í ýmsum víntegundum
uns kryddin hafa mettast. Sjö mis-
munandi afbrigði eru þegar komin
á markað, villijurtir í koníaki, villi-
jurtir í púrtvíni, villijurtir í rauð-
víni, creole í rauðvíni, ítalskt pasta-
krydd í rauðvíni, fiskikrydd í hvít-
víni og lamb Islandia í hvítvíni.
Kryddmassa er t.d. hægt að nota
í kryddlög á kjöt og fisk eða bragð-
bæta með honum pottrétti, setja í
fyllingar í fugla, nota í paté og svo
framvegis.
Fer skt j ólalamb
KJÖTUMBOÐIÐ hf. býður í sam-
starfí við Kaupfélag Króksfjarðar-
nes upp á ferskt nýslátrað lamba-
kjöt fram til jóla. Síðastliðin fjögur
ár hefur Kaupfélag Króksfjarðar-
ness verið með slátrun utan hefð-
bundinnar sláturtíðar. Stefnt er að
því að á næsta ári bjóði Kjötumboð-
ið ferskt kjöt af nýslátruðu lambi
í sex mánuði.
ASTI borifstoItfIi i«.vtfihffn
Með Asti línunni bjóðum við upp á breiða línu húsgagna úr gegnneilum
kirsjuberjaviði. Hægt er að velja úr miklum fjölda húsgagna í Asti
línunni sem fullnægja nánast öllum þáttum heimilisins.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
CASANOVA sófi og Tangó stóll
Smíðajárnshúsgögn
og gjafavörur
VERSLUNIN Lífslist, listin að iifa
sem er til húsa að Dalbrekku í
Kópavogi er þessa dagana að fá
nýjar vörur.
Um er að ræða smíðajámshús-
gögn frá Mexíkó, bekki sem henta
vel í sólskála, stóla, sem einnig
passa í eldhús, og ýmiskonar borð.
Þá eru einnig nýkomnar ýmsar
gjafavörur, bakkar, kertastjakar,
glös og fleira frá Þýskalandi og
Bandaríkjunum. Verslunin selur
einnig sófa og sófasett frá banda-
ríska hönnuðinum Galerkin.
HANSÍNA Jóhannesdóttir er hér að byija að skreyta hálmkransinn með svokölluðu Buxus. Hún
vefur allan hringinn með vírrúllu. Undir setur hún mosa sem er ódýrara efni en Buxus. Á myndinni
í miðjunni er könglum, eplasneiðum, kanilstöngum, hnetum og mosa stungið með vír niður í krans-
inn. Myndin lengst til hægri: Slaufan er líka fest niður með vír.
Aðventukransar
Greni eða annað
sígrænt að koma aftur
Á MORGUN er fyrsti
sunnudagur í aðventu og í
dag ætla því eflaust margir
að dytta að aðventukransin-
um síðan í fyrra, búa til
nýjan krans eða kíkja í
blómabúð og kaupa hann
tilbúinn.
Hansína Jóhannesdóttir
rekur Blómagalleríið við
Hagamel ásamt systur sinni
Jórunni og að hennar sögn
eru vinsælustu litirnir núna
gyllt, beinhvítt og appel-
sínugulur með dökkum
haustlegum blæ. „Rautt og
grænt stendur þó alltaf fyrir
sínu“, segir hún. En er erf-
itt fyrir fólk að búa til að-
ventukrans?
„Nei, alls ekki. Ég held
að ef fólk er óvant henti
betur að hafa krans úr hálmi
sem undirlag frekar en frauð
(oasis). Frauðið vill molna
ef fólk er að stinga vír í og
taka hann úr aftur og þá er líka
nauðsynlegt að eiga límbyssu og
auðvitað eru fáir sem eiga hana í
fórum sínum. Noti fólk hálm er
hægt að vefja greni, furu, thuja
eða t.d. laufblöðum utanum krans-
inn með vírrúllu og það ráða flest-
ir við.“ Skrautið er líka vírað á
kransinn og fólk getur notað allt
mögulegt, appelsínusneiðar, epla-
Morgunblaðið/Halldor
MARGIR vilja nota sama
kransinn ár eftir ár og þá er
hægt að nota efni sem ekki
sér á eftir hver jól.
sneiðar, hnetur, möndlur,
jólaskraut og svo framveg-
is. Hugmyndaflugið þarf bara að
fá að ráða ferðinni.
Kertunum fjórum
má raða saman
Hansína segir að undanfarin ár
hafi frauðið verið mjög vinsælt en
hálmurinn sé að koma aftur með
greni eða öðru grænu. „Það er líka
hægt að raða kertunum saman eða
á hálfan kransinn og skreyta hinn
helminginn. Kertin þurfa auðvitað
að vera fjögur en ekkert sem seg-
ir að þau þurfi að vera dreifð um
allan kransinn með slaufu við hvert
kerti. Þá er lögun kertanna á
krönsum að breytast og nú eru þau
gjaman ferköntuð eða keilulaga.“
KRANSINN tilbúinn.
Undanfarið hefur Daninn Bo B.
Iversen verið að vinna í Blómagall-
eríinu og kennt starfsfólkinu nýjar
leiðir í blómaskreytingum. Hann
og Arna Sigríður Sæmundsdóttir
eiga hugmyndimar að mörgu því
jólaskrauti sem prýðir verslunina
núna. Hansína bendir á að örugg-
ast upp á eldhættu sé að setja
kertin í eldfasta kertahlíf sem fest
er niður í hálm-, eða frauðkrans
og þá sé líka hægt að hafa slauf-
una annarsstaðar á kransinum en
við kertið svo hún eigi ekki á hættu
að fuðra upp.
Við báðum Hansínu að skreyta
einn hálmkrans fyrir lesendur svo
þeir geti áttað sig á handbragðinu.
Nýttu þér 2 kr. sjálfsafgreiðsluafslátt af hverjum lítra
af eldsneyti á eftirtöldum þjónustustöðvum Olís.
• Sæbraut við Kleppsveg
• Mjódd í Breiðholti
• Gullinbrú í Grafarvogi
• Klöpp við Skúlagötu
• Háaleitisbraut
• flnanaustum
• Hamraborg, Kópavogi
• Langitangi, Mosfellsbæ
• Reykjanesbraut, Garðabæ
• Vesturgötu, Hafnarfirði
• Suðurgötu, Akranesi
• Básinn, Keflavík
léttir þér lífid
Nýtt