Morgunblaðið - 30.11.1996, Side 26
26 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÞEGAR geng-
ið er vestur
með flug-
skýli númer eitt á
Reykjavíkurflugvelli
rétt hjá Hótel Loft-
leiðum er oft mikill
ys og þys á athafna-
svæði flugskólans
Flugtaks, margar
litlar kennsluflugvél-
ar að fara í loftið
með spennta og
áhugasama flug-
nema eða að renna í
hlað með þreytta en
glaða flugmenn.
Floti kennsluflug-
véla á Islandi hefur
til margra áratuga
að mestu verið skip-
aður tveggja og fjög-
urra sæta banda-
rískum Cessna og
Piper flugvélum.
Pessar vélar hafa reynst mjög vel
sem kennsluvélar og má segja að
þær séu nemendavænar, þær eru
ekki flóknar og mjög þægilegt að
fljúga þeim. Sú vél, sem yfirleitt er
byrjað á, er af gerðinni Cessna 152,
tveggja sæta háþekja með nefhjóli
— en nú mun verða breyting þar á
með hinni nýju kennsluvél Flugtaks,
Katana DV 20, tveggja sæta lág-
þekju frá austurrískum svifflugu- og
flugvélaframleiðanda, HOAC.
Framleiáandinn
HOAC hefur verið á meðal helstu
framleiðenda í Evrópu á svifflugum
og mótorsvifflugum úr samrunaefn-
um (composite), plast- og trefjaefn-
um. Þegar framleiðsla hófst á
Katana flugvélunum fyrir um fjór-
um árum, voru viðtökumar það góð-
ar og eftirspumin mikil, að ákveðið
var að koma upp verksmiðju í Ont-
ario í Kanada. Nýtt nafn var tekið
upp vestanhafs, Diamond Aircraft
Industries, og breytingar gerðar á
Katana vélunum til samræmis við
Flugskólinn Flug-
tak fékk nýja
kennsluflugvél í
byrjun þessa mán-
aðar og með henni
urðu kaflaskil í
sögu flugkennslu á
-y-----------------
Islandi. Arni Hall-
grímsson og Ragn-
ar Axelsson fóru út
á Reykjavíkurflug-
völl, skoðuðu grip-
inn og fóru í
reynsluflug.
óskir einka- og
kennsluflugvéla-
markaðarins vestan-
hafs. Til dæmis var
ljósakerfið endumýj-
að, stærri hjól sett
undir hana, nýju
mælaborði komið
fyrir þar sem hægt
er að setja öll sigl-
inga- og samskipta-
tæki sem þarf til
kennslu og gott bet-
ur, læsingar fyrir
hjálminn (kúpulinn:
yfír stjórnklefanum)
vora styrktar og
endurbættar, sætin
voru gerð þægilegri
og síðast en ekki síst
var „manualinn“
(leiðarvísir vélarinn-
ar) þýddur úr þýsku
á ensku! Viðbrögðin
létu ekki á sérstanda,
200 fyrirframpantanir höfðu borist
fyrr en varði og einn stærsti og
þekktasti flugskólinn í Bandaríkjun-
um, Spartan School of Aeronautics í
Tulsa, Oklahoma, pantaði 42 Katana
vélar snemma á þessu ári.
Kennsluflugi/élar
Flugskólar um allan heim hafa
liðið fyrir skort á kennsluflugvélum
síðasta áratuginn frá því framleiðslu
á Cessna 152 var hætt árið 1985. Þá
höfðu málaferli alls konar gengið
það nærri flestum smáflugvélafram-
leiðendum í Bandaríkjunum, að þeir
treystu sér ekki til að vera á mark-
aðnum. Ekki mátti neitt koma fyrir í
flugi þessara véla, að flugmenn eða
ættingjar þeirra sæju sér ekki leik á
borði og reyndu að hagnast á óhöpp-
um og slysum. — En það era breytt-
ir tímar í gerð kennsluflugvéla;
Katana kennsluflugvélum fjölgar
orðið um eina á dag.
Strax og Katana er litin augum
sést skyldleikinn við svifflugurnar.
Þótt hún sé ekki með nema um það
KATANA DV 20, sem sést hér á flugi yfir Hafnarfírði, er rennileg með afbrigðum.
ur athygli er að hún hefur
innsog svipað og er í bflum,
ekki er lengur „præmað",
eins og það heitir á flugmáli,
sem þýðir að bensíni er dælt
handvirkt inn á strokkana til
þess að fá sterkari blöndu við
gangsetningu.
Shrúfan
Katana er með skipti-
skrúfu, sem er ekki algengt í
kennsluflugvélum. í orðinu
skiptiskrúfa felst að hægt er
að breyta skurði (áfalls-
horni) skrúfublaðanna og ná
þannig hámarksnýtingu út
úr mótor og skrúfu. Mótor-
inn snýst við hámarksafl á ca
5.550 snúningum á mínútu,
sem er of mikill hraði fyrir
skrúfuna ef hún á ekki allt að
æra og er hann „gíraður nið-
ur“ 2,25 sinnum, þannig að
skrúfan snýst á um 2.500
snúningum á mínútu við há-
marksafl. Þetta gerir skrúfuna
hljóðlátari en ella, því að endar
skrúfublaðanna ná aðeins hraðan-
um 0,68 Mach. Mach stendur fyrir
hljóðhraða. Hávaði frá skrúfublöð-
um er oft meiri en frá mótorunum
sjálfum og er því áríðandi að endar
blaðanna fari ekki of hratt, hraðinn
sé sem lengst frá hljóðhraða, eins
og i tilfelli Katana flugvélarinnar.
Hún er því hinn hljóðlátasti ná-
granni. Flugmaður sem flýgur
Boeing 757 hjá Flugleiðum sagði
Morgunblaðið/RAX
STJÓRNKLEFI Katana er nútímalegur — og útsýnið er framúrskarandi,
engir gluggapóstar og ekkert þak! Hluturinn fyrir framan flugmanninn, sem
eins og hangir í lausu lofti, er seguláttaviti, sem er límdur á hjálminn.
bil tveimur fetum meira vænghaf en
Cessna 152 og lengdin álíka er allt
yfírbragð hennar þannig, að svif-
flugur koma upp í hugann, plast-
hjálmurinn yfír stjómklefanum,
mjór afturbolurinn og T-stélið (þ.e.
hæðarstýrið er ofan á stélinu).
Hreyfillinn
Mótorinn í Katana er af gerðinni
Bombardier/Rotax 912. Hann er
fjögurra strokka loft- og vatnskæld-
ur, strokkhausarnir era vatnskældir
en annað er loftkælt. Þetta gerir
mótorinn mun ónæmari fyrir mikl-
um hitasveiflum, sem t.d. verða eftir
að fullt afl er skyndilega tekið af og
vélin látin svífa við lítinn snúning.
Blöndungar era tveir og þeir era
sjálfvirkir, þannig að ekki þarf leng-
ur að „lína“ mótorinn (veikja eða
styrkja blöndu bensíns og lofts),
blandan stillist eftir loftþrýstingn-
um. Það er því enginn blöndustillir
fyrir hendi lengur. Annað sem vek-
Hvað er persónuleikatruflun?
GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spuming: Vinur minn gekkst
undir geðrannsókn að gefnu til-
efni. Hann fékk þann úrskurð að
hann væri með persónuleikatrafl-
un. Hann er ekki viss um hvað
það merkir. Hvað er persónu-
leikatruflun?
Svar: Persónuleikatraflun eða
persónuleikaröskun er einn af
þremur stærstu flokkum geðsjúk-
dóma. Hinir era geðveiki og hug-
sýki.
Fjölbreytni mannlífsins býður
upp á alls konar manngerðir sem
betur fer. Við erum einræn eða
mannblendin, örlynd eða jafnlynd,
tilfinningasöm eða harðlynd. Það
er ekki fyrr en þessi skapgerðar-
einkenni fara að víkja verulega
frá viðteknum umgengnisvenjum í
samfélaginu og hafa traflandi
áhrif á annað fólk og aðlögun við-
komandi einstaklings að um per-
sónuleikatraflun getur verið að
ræða. Það er sérstaklega einkenni
persónuleikatraflana, ólíkt því
sem er í hugsýki eða geðveiki, að
einkenni þeirra eins og þau koma
fram í atferli viðkomandi einstak-
Persónuleika-
truflun
lings, koma niður á öðru fólki,
jafnvel samfélaginu sem slíku,
fremur en honum sjálfum. Oftast
líður honum bærilega með sína
skapgerð og skynjar ekki hve
trafíandi áhrif hann hefur á aðra.
Persónuleikatraflun getur tekið á
sig margar myndir. Hún getur
komið fram í því hvernig menn
hugsa og skynja, viðhorfi til ann-
ars fólks og túlkun á atburðum.
Hún getur komið fram í tilfinn-
ingalegri tjáningu, samskiptum
við aðra og stjórn á eigin löngun-
um og hvötum. Hin afbrigðilegu
skapgerðareinkenni þurfa að hafa
verið viðvarandi frá unglingsáram
eða lengur til þess að öragglega
megi greina þau sem persónu-
leikatraflun.
Persónuleikatruflanir eru
flokkaðar í margar tegundir eftir
því hvaða skapgerðareinkenni era
ríkjandi. Þannig getur einræna
farið út fyrir viðtekin mörk og
nefnist þá persónuleikatraflun af
kleyfhugagerð, sem er ekki það
sama og geðklofi. Hún lýsir sér í
mikilli ómannblendni og snauðum
geðbrigðum. Viðkomandi hefur
enga þörf eða ánægju af mannleg-
um samskiptum, jafnvel ekki inn-
an eigin fjölskyldu. Hann hefur fá
áhugamál, sem hann iðkar í ein-
rúmi, hefur lítinn áhuga fyrir kyn-
lífi, er lítt næmur fyrir hrósi eða
gagnrýni og er almennt í litlum
geðtengslum við annað fólk. Hann
lifir gjarnan í óraunsæjum
dagdraumum og hefur oft undar-
legar hugmyndir, þótt veruleika-
skyn hans sé ekki rofið eins og í
geðveiki.
Önnur og ólík tegund persónu-
leikatraflunar er skyld sefasýk-
inni og kemur fram í ýktum geð-
brigðum og athyglissýki. Slíkum
einstaklingum líður illa ef þeir ’erú
ekki miðpunktur athyglinnar í
samkvæmum og nota öll ráð til að
draga að sér athyglina. Þeir segja
af sér frægðarsögur og gera oft
mikið úr kvenhylli sinni, sem oft-
ast hefur lítið á bak við sig. Þeir
era hástemmdir og sýna ýktar og
yfirborðslegar geðshræringar og
geðbrigði og almennt leikræna
framkomu.
Einhver alvarlegasta tegundin
er persónuleikatruflun af andfé-
lagslegri gerð, sérstaklega af því
að hún kemur verst niður á öðr-
um. Hún einkennist einmitt af til-
litsleysi við aðra og hneigð til að
brjóta á öðrum í eiginhagsmuna-
skyni. Virðingarleysi fyrir siðum,
reglum og lögum er áberandi og
því komast þeir oft í kast við lögin
og geta jafnvel verið síbrotamenn.
Ofbeldi er ekki óalgengt, ef það á
einhvern hátt þjónar þeirra
stundarhagsmunum. Þeir beita
gjarnan lygum og blekkingum og
geta með persónutöfrum oft gefið
af sér trúverðuga mynd. Þeir hafa
litla stjórn á löngunum sínum,
framkvæma fljótt það sem þeim
dettur í hug, en sjá ekki fyrir af-
leiðingamar og læra ekki af
reynslunni. Þeir hafa grannar til-
finningar, hafa ekki samúð með
öðram nema á yfirborðinu, hafa
ekki hæfileika til að tengjast öðr-
um tilfinningaböndum og ástar-
sambönd verða því gjarnan
skammvinn. Samviskuleysi og sið-
blinda era megineinkenni þeirra.
Stundum ná slíkir menn langt í
þjóðfélaginu, ef þeir eru greindir
og heppnast að komast í valda-
stöður.
Fleiri gerðir persónuleikatrufl-
ana hafa verið skilgreindar. Sum-
ar þeirra bera með sér skyldleika
við og fara stundum saman við
ákveðnar tegundir hugsýki eða
geðveiki, en meginmunurinn er
yfirleitt sá að í persónuleikatrufl-
un era þessi einkenni orðin hluti
af persónugerð mannsins, en ekki
óþægileg, utanaðkomandi ógnun
við persónuna, vanlíðan sem hann
vill losna við, eins og er í hugsýki
eða geðveiki.
• Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
sálfræðinginn um það sem þeim liggur á
hjarta. Tekið er á móti spumingum á
virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í
síma 569 1100 og bréfum eða símbréfum
merkt: Vikulok, Fax 5691222.
>
(
>
)
I
)
>
i
)
i