Morgunblaðið - 30.11.1996, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996 31
euphorbia pulcherrima
Staðsetning: Plantan þarf að njóta góðrar
birtu. Kjörhitastig er um
20°C.
Vökvun: Haldið moldinni rakri.
Áburðargjöf er ekki
nauðsynleg á blómgunar-
tímanum.
Athugið: Plantan er viðkvæm fyrir
dragsúg og kulda, því er
nauðsynlegt að söluaðilar
pakki henni vel inn fyrir
viðskiptavini sína.
Blómaframleiðendur
AÐSENDAR GREINAR
í raun og sannleik eru skólarnir
farnir að bregðast við með þeim
ráðum sem eru þeim tiltæk innan
gildandi laga, reglna og heimilda.
Alþekkt er að nemendum er skipað
á brautir, þar sem yfirferðin er mis-
hröð, allt eftir getu og áhuga nem-
endanna sjálfra. Þannig má segja
að í skólastarfinu sjálfu hafi verið
lagt af stað áleiðis að því sem flest-
ir telja nauðsynlegt nú í ljósi reynsl-
unnar.
Illa gengur að ráða
raungreinakennara
Þegar þessi mál eru rædd er óhjá-
kvæmilegt að vekja athygli á því
hversu víða hefur gengið illa að
ráða hæfa raungreinakennara til
starfa. Við sem höfum unnið að
skólamálum á landsbyggðinni vitum
að fátt gengur jafn illa víða úti um
landið - og raunar einnig í Reykja-
vík og að ráða fólk til raungreina-
kennslu. Rétt er það sem bent hefur
verið á að skilyrðin um uppeldis og
kennslunám eru sumum þrándur í
götu. En eitt og sér nægir það þó
ekki til skýringar. Reynslan sýnir
að þegar sæmilega árar í þjóðfélag-
inu á sérmenntað fólk á sviði raun-
greina afar auðvelt með að fá vinnu
við betur launuð störf víða í þjóðfé-
laginu. Tölvufyrirtæki, svo dæmi sé
tekið, sækjast gjarnan eftir slíku
fólki og bjóða allt önnur laun og
starfskjör en skólarnir. Fyrir vikið
standa skólarnir uppi án starfs-
krafta á þessu sviði sem síðar leiðir
til þess að kennsla í raungreinum
situr oft á hakanum.
Spretthlaupari í tjóðurbandi
Skólarnir eiga fá ráð við þessu.
Áratugum saman hefur launakerfi
ríkisins verið ósveigjanlegt. Niður-
njörvuð launastefna hins opinbera
má sín lítt gegn sveigjanleika hins
almenna markaðar. Skóli sem vill
laða til sín kennara í samkeppni við
aðra gengur til þess leiks álíka bú-
inn og spretthlaupari í tjóðurbandi.
Um úrslitin í slíku kapphlaupi þarf
enginn að spyija.
Sú alþjóðlega könnun sem hér
hefur verið vitnað til er vissulega
áfellisdómur. Hún er hins vegar
einnig afar þýðingarmikið tæki fyrir
okkur til þess að endurbæta skóla-
starfið í landinu. í skólum landsins
vinna kennarar og aðrir starfsmenn
mjög fórnfúst og mikið starf, oft
við mjög erfiðar aðstæður. Við þá
er því ekki að sakast. Það er á hinn
bóginn nauðsynlegt að auka veg og
virðingu kennarastarfsins. Síðan ber
okkur að hafa í huga að skólastarf-
ið verður ekki bætt með því einu
að beina sjónum að skólunum sjálf-
um. Þar þarf líka að hyggja að hlut-
verki stjórnvalda og afstöðu heimil-
anna í landinu.
Höfundur er alþingismaður og
fyrrverandi formaður
Fræðsluráðs Vestfjarða.
.
BYR FJOLSKYLDAN ÞIN VIÐ TM-ORYGGI?
Með TM-ÖRYGGI getur þú sameinað öll tryggingamál fjölskyldunnar
á einfaldan, ódýran og þægilegan hátt. TM-ÖRYGGI er sveigjanleg þjón-
usta þar sem þú velur saman þær tryggingar sem fjölskyldan þín þarf á
að halda. Lágmarksfjöldi trygginga í TM-ÖRYGGI eru tvær tryggingar
til dæmis tvær bifreiðatryggingar eða fjölskyldutrygging og fasteigna-
trygging- TM-ÖRYGGI býður þér hagkvæm kjör og sveigjanlegan
greiðslumáta þar sem þú velur þann gjalddaga sem hentar þér best.
Hafðu allar tryggingar á einni hendi og tryggðu fjölskylduna með
TM-ÖRYGGI!
TRYGGINCAMIÐSTÖÐIN HF.
Aðalstræti 6-8 Sími 515 2000
- á öllum sviðum!
Saga um unglinga sem vilja kossa sætari en kók