Morgunblaðið - 30.11.1996, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996 49
svæðinu í Hermonfjalli. Þegar við
yfirgáfum svæðið varð mikið uppi-
stand, svæðinu var lokað og herinn
mætti á staðinn.
Við komumst síðar að því að tor-
kennilegur hlutur hefði fundist, og
hermennirnir fjarlægt hann. Alltaf
þegar hlutir finnast sem skildir
hafa verið eftir á almannafæri í
ísrael, t.d. plastpokar eða handtösk-
ur, eru þeir fjarlægðir af lögreglu
eða her, vegna mögulegrar
sprengjuhættu.
Um kvöldið keyrðum við til Met-
ulia, sem er bær á landamærum
ísrael og Líbanon. Glitti þar í Líban-
on gegnum gaddavírsgirðingu.
Við enduðum daginn í körfubolta
á En Gonen.
Cesarea
Að morgni mánudagsins 15. jan-
úar kvöddum við ísraelska gest-
gjafa okkar á Ben-Gurion flugvell-
inum, í von um að hitta þau sem
flest aftur á íslandi.
Við brottför fórum við gegnum
svipaða vegabréfsskoðun og „yfír-
heyrslu" og í London, rúmri viku
áður. Spurningarnar: Hvar höfðum
við verið í ísrael? Hveija höfðum
við hitt? Ætluðum við að halda sam-
bandi við þá ísraela sem við höfðum
hitt? Ætluðum við að koma ein-
hvern tímann aftur til ísrael? Svör-
in: Já. Já. Við ætluðum sko að koma
aftur.
Komið var að lokum ferðalags
okkar til landsins helga. Flug E1
A1 FY 0315 beið eftir okkur til að
flytja okkur áleiðis heim til íslands.
Sunnudaginn, 14.janúar héldum
við heim á leið. Við keyrðum með-
fram ströndinni og stoppuðum m.a.
stutt í Haifa, helstu hafnarborg
Israels og skoðuðum Bahaía-must-
erið þar.
Síðan keyrðum við sem leið lá
til Cesareu, sem var höfuðborg róm-
verska heimsveldisins í Júdeu í um
600 ár. Þar skoðuðum við m.a.
hallarrústir frá tímum Heródesar
sem grafnar hafa verið upp. Nýleg-
ar fornleifarannsóknir sýna að höfn
hefir verið í Cesareu og þykir bygg-
ing hennar verkfræðilegt afrek mið-
að við verkkunnáttu manna fyrir
2000 árum. Mikið rómverskt hring-
leikahús er í Cesareu, en þar myrtu
Rómveijar þúsundir gyðinga í upp-
reisn þeirra á árunum 66-70 e.Kr.
Helstu ástæðu uppreisnar gyðing-
anna á þeim tíma er einnig að finna
í Cesareu en hún er sú að bænahús
þeirra þar var jafnað við jörðu.
Árið 640 náðu arabar, Cesareu á
sitt vald og árið 1101 krossfararnir.
Krossfararnir eiga að hafa fund-
ið áttstrendan, grænan bikar í Ces-
areu og töldu hann vera Gral-bikar-
inn fræga sem Jesús á að hafa
drukkið úr við síðustu kvöldmáltíð-
ina og blóð úr honum að hafa drop-
ið í. Bikarinn týndist og fjalla marg-
ar riddarasögur um leitina að Gral.
Alla leiðina frá En Gonen-
samyrkjubúinu og að Tel Aviv æfð-
um við lag sem við ætluðum að
flytja í lokahófi sem ísraelsku gest-
gjafarnir voru búnir að bjóða okkur
í seinna um kvöldið. Lagið var þann-
ig að hvert okkar kom fram með
eina setningu um það sem okkur
hafði fundist sérstakt, gott, eða
áhugavert í ísrael. Shlomit, leið-
sögukona okkar, þýddi setninguna
yfir á hebresku og kenndi okkur
siðan ísraelskt lag sem passaði við
textann. Síðan æfðum við og æfð-
um.
Generalprufan var tekin í hring-
leikahúsinu í Cesareu, þar sem
hljómburðurinn var alveg sérstak-
lega góður.
Um kvöldið fluttum við síðan lag-
ið fyrir ísraelsku laganemana, hýsl-
ana okkar, við mikla kátínu þeirra.
Að lokum voru gestgjafar okkar
leystir út með íslenskum gjöfum í
þakklætisskyni fyrir móttökurnar.
Yfir 20 tegundir
af sófaborðum ó lager
-Ýmsarviðartegundir
Suðurlandsbraul 54, sími 568 2866
Höfundur er lögfræðingur.
Það verður hátíð í Kringlunni á morgun,
sunnudag kl. 14, þegar við kveikjum á jólatrénu okkar
Börn úr Dansskóla Hermanns Ragnars sýna clans
og Skólakór Kársness syngur jólalög.
Allar verslanir í Kringlunni verða opnar í dag, laugardag,
frá kl.10 til 18 og á morgun, sunnudag, frá kl. 13 til 18.
Kringlan verður auk þess opin alla daga fram að jólum.
Komdu í jólastemningu í stærri Kringlu.
Vertu með þegar við kveikjum á jólatrénu á morgun kl. 14
Bækur og geisladiskar áritaðir.
frd morgni til hvölds