Morgunblaðið - 30.11.1996, Side 59

Morgunblaðið - 30.11.1996, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996 59 Opið hús hjá Fjár- vangi OPIÐ hús verður í dag, laugardag, milli kl. 12 og 17 hjá Fjárvangi, Laugavegi 170. Fjárvangur er nýtt nafn á Pjárfestingarfélaginu Skandia sem nú er í eigu VIS. í opna húsinu verður boðið upp á ráðgjöf, fræðslu og veitingar, auk lukkuleiks, þar sem gestum býðst að prófa lukkunúmer á peninga- skáp Fjárvangs, sem gæti opnað dyr að hlutabréfamarkaði. Einnig verður boðið upp á ráðgjöf um hlutabréfakaup sem veita skatta- afslátt. Lukkuleikurinn verður með þeim hætti að allir sem koma í opna húsið fá lukkunúmer, sem þeir geta prófað á fjórum peninga: skápum sem verða á staðnum. I skápunum leynist glaðningur handa þeim sem eru með rétta tölu. í hveijum skáp eru hlutabréf í Almenna hlutabréfasjóðnum að verðmæti 25.000 kr. Almenni hlutabréfasjóðurinn er í vörslu Fjárvangs. Fuglaskoðun í Grafarvogi FUGLASKOÐUN á vegum Fugla- verndunarfélagsins verður í Grafar- vogi sunnudaginn 1. desember. Hist verður við pósthúsið á Stórhöfða kl. 14.30, 2 klst. fyrir fjöru. Ef aðstæð- ur leyfa verður gengið kringum vog- inn. „Grafarvogsleira hefur mikið að_- dráttarafl fyrir fugla allt árið. Á veturna má búast við hópum af stokköndum, rauðhöfðum og urt- öndum og þegar straumvötn í ná- grenninu leggur sækja gulendur þangað í hópum. Tjaldur, sendling- ur, stelkur og tildra eru meðal þeirra vaðfugla sem þar halda sig, og hettumáfur, hvítmáfur og fleiri máfar eru tíðir gestir," segir i til- kynningu frá Fuglaverndunarfélagi íslands. Dagsferð á Skeiðarár- sand FERÐAFÉLAG íslands efnir í dag, laugardag, til dagsferðar á Skeiðarársand, þar sem skoðuð verða ummerki eftir Skaftárhlaup- ið. Farið verður austur yfir Skeið- ará þannig að talsvert meira mun bera fyrir augu en í sambærilegri ferð um daginn. Brottför er kl. 7 að morgni frá BSÍ austanmegin og Mörkinni 6. Með í för verður Jón Jónsson jarðfræðingur, en all- ir eru velkomnir. Lesefni tengt þessu svæði er í árbók Ferðafé- lagsins 1993, „Við rætur Vatna- jökuls“ eftir Hjörleif Guttormsson, alþingismann. Aðventukaffi- sala Systra- félags Víði- staðasóknar SYSTRAFÉLAG Víðistaðasóknar verður með aðventukaffisölu á morgun, fyrsta sunnudag í að- ventu. Að venju verður boðið upp á girnilegt kaffihlaðborð eftir messu eða frá kl. 15. Systrafélagið gefur út jólakort í ár með mynd af Víðistaðakirkju gerðri af Ragnari Páli og verður kortið til sölu á basar félagsins sem haldinn verður dagana 6. og 7. desember nk. í Samkaup, Miðvangi 41, Hafnarfirði. FRÉTTIR Morgunblaðið/Skúli Víkingsson Landaukinn gefur sig ekki Landaukinn sem myndaðist við Skeiðarárhlaup er 4-5 ferkíló- metrar. Vísindamenn fylgjast nú grannt með því hversu lengi hann endist, en Oddur Sigurðs- son, jarðfræðingur hjá Orku- stofnun, segir að enn sjáist engin ummerki um að hann sé byrjaður að eyðast. Á vinstri myndinni sést hlaupið í há- marki. Brúni flekkurinn er aur sem vatnið bar með sér. Hin myndin er tekin 25. nóvember og sýnir landaukann. Brimið brotnar á nýju ströndinni en fyrir innan hana sést eldri strandlínan. Rangur texti fylgdi mynd af ströndinni sem birtist í gær og er beðist vel- virðingar á því. Morgunblaðið/Oddur Sigurðsson Getnaðarvarnir á brjósta- gjafatíma RANNSÓKN á notkun nýrrar „mini-pillu“ hjá konum með börn á bijósti fór fram á Kvennadeild Landspítalans frá desember 1993 til mars 1995. Öllum konum sem tóku þátt í rannsókninni og fjöl- skyldum þeirra er boðið á fund þar sem rannsóknarniðurstöður verða kynntar. Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel, í dag, laugaradag, kl. 16. Brúðubíllinn skemmtir börn- um og kaffiveitingar verða í boði. INGIBJÖRG Reynisdóttir, vinningshafinn í Forsíðu- keppninni ’96. Sigraði í for- síðukeppni NÝLOKIÐ er Forsíðukeppni tíma- ritsins Hárs & fegurðar og er þetta ellefta árið sem keppnin er haldin. Vinningshafinn í ár var Ingibjörg Reynisdóttir förðunarfræðingur sem vinnur hjá No Name og módelið er Arngunnur hjá Eskimó módels. Selma Pétursdóttir á hárgreiðslu- stofunni Prímadonnu sá um hár- greiðsluna og Bragi Þ. Jósefsson tók myndina. ■ FJALLAÐ verður um fræðslu- gildi Íslandslíkansins í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík í Tjarnar- salnum milli klukkan 14 og 15 í dag, laugardaginn 30. nóvember. Þar verður einnig fjallað um hug- mynd áhugafólks um að gera til- raunir til að stuðla að því að al- menningur geti nýtt betur ýmislegt sem í boði er til fróðleiks og skemmtunar og einnig að fá ýmsa til að auka það framboð. Þetta verði aðallega gert í vettvangsferð- um. Hugmyndina nefnir hópurinn Nýsýn. Bókmenntir í herrafata- verslun HERRAFATAVERSLUNIN Bo- ok’s, Laugavegi 61 (við hliðina á Kjörgarði), mun standa fyrir bók- menntakynningu á laugardögum fram til jóla. Næstkomandi laugar- dag, 30. nóvember, mun Gunnar Smári Egilsson, höfundur Máls- varnar mannorðsmorðingja og út- gefandi Bessastaðabókanna, verða í búðinni milli kl. 13-15, lesa upp úr bókum sínum, spjalla við gesti og viðskiptavini um lífið oig tilver- una og árita bækur sínar fyrir þá sem það vilja. Minnsta tröll í heimi í Ævintýra- Kringlunni SÖGUSVUNTAN með brúðuleiksýn- inguna „Minnsta tröll í heimi“ verður í dag kl. 14.30 í Ævintýra-Kringl- unni. Það er Hallveig Thorlacius sem samdi þáttinn og stjórnar brúðunum. Leikstjóri er Helga Arnalds. „Þetta er saga um afar smáa tröllastelpu. Hún er reyndar svo smávaxin að hún sést vart með ber- um augum. Hún lendir í allskonar vandræðum og jafnvel alvarlegum lífsháska svo áhorfendur verða oft að koma henni til aðstoðar," segir í fréttatilkyningu. Hallveig hefur ferðast víða með þessa sýningu, jafnt innanlands sem utan. Sýningartími er rúmar 30 mínútur og er miðaverð 500 kr. Ævintýra-Kringlan er barna- gæsla og listasmiðja fyrir börn á aldrinum 2-8 ára. Hún er staðsett á 3. hæð í Kringlunni og þar geta viðskiptavinir Kringlunnar skilið börnin eftir á meðan þeir versla. ■ BREYTINGAR verða á tónlistar- dagatali Gauks á Stöng vegna komu norska salsa-bandsins „Some Like It Hot“ til íslands dagana 28. nóvem- ber til 6. desember. í stað þeirra hljómsveita er bókaðar voru 1., 2. og 3. desember leikur fyrrnefnd hljómsveit salsatónlist. ■ SÝNING á myndspjöldum nem- enda Hvaleyrarskóla verður í dag kl. 14-16. Keppt verður í tveimur aldurshópum í 1.-4. bekk og 5.-7. bekk. Einnig verður sýning á köku- skreytingum sem unnar voru í heim- ilisfræði. Slökunar- og hugleiðslu- snælda ÚT er komin slökunar- og hugleiðslu- snælda eftir Helgu Sigurðardóttur með tónlist eftir Friðrik Karlsson. í kynningu segir m.a.: „Hlustand- inn er Ieiddur inn í slökun, þar sem hann getur upplifað með innri sjón- myndum fegurð, styrk og heilunar- mátt litanna og hann tengist betur kjarna sínum, ljósi, kærleika og visku. Tónlistin kallar fram hjá hlustandan- um innri frið, gleði og jafnvægi.“ A-hlið nefnist „Litir ljóssins í MORGUNBLAÐINU hefur borist eft- irfarandi athugasemd frá Erlendi Sveinssyni, fyrrverandi forstöðu- manni Kvikmyndasafnsins vegna fréttar Morgunblaðsins í gær af flutn- ingi Kvikmyndasafns íslands til Hafn- arfjarðar. „Blaðamaður Morgunblaðsins end- ursegir kafla úr ræðu Böðvars Bjarka Péturssonar, núverandi forstöðu- manns Kvikmyndasafnsins, með þeim orðum að undirritaður „vann reyndar að þvi að fá safnið flutt í Hafnarfjörð á síðasta áratug en fékk ekki mikinn hljómgrunn á meðal ráðamanna“. Þetta er ekki rétt haft eftir Böðvari Bjarka, sem sagði að því miður hefðu háleitar hugmyndir undirritaðs ekki náð fram að ganga á sínum tíma. Nóg er að ráðamönnum vegið þótt ekki séu bomar á þá rangar sakir. Hið rétta í málinu er að ráða- menn sýndu hugmyndinni um kaup MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Guð- rúnu S. Eyjólfsdóttur, forstöðumanni Lyijaeftirlits ríksins: „Vegna greinar Guðrúnar G. Bergmann, „Getum við sameinað sjónarmið okkar?“ í Morgunblaðinu í gær, vill Lyfjaeftirlit ríkisins koma eftirfarandi á framfæri. Grein Guðrúnar byggist á grund- vallarmisskilningi. Reglugerðardrög- in, sem Guðrún gerir að umfjöllunar- efni, eru ekki unnin hjá Lyfjaeftirliti ríkisins heldur Lyfjanefnd ríkisins. í grein sinni spyr Guðrún hvort Lyfja- eftirlit ríkisins sé að beita sér á röng- musteri litanna" leidd slökunar- og heilunarhugleiðsla. Á B-hlið „Litir ljóssins“, slökunar- og heilunartón- list. Snældan heitir „Litir ljóssins" og fæst í versluninni Betra líf í Kringl- unni og kostar 1.590 krónur. Dagskrá í Hnossi í GALLERÍ Hnossi, Vesturgötu 3b, verður sérstök dagskrá laugardag- inn 30. nóvember. Opið er frá kl. 10-10. Um miðjan dag verður sýnd eldsmíði, boðið upp á grasate og hljómlistarmenn leika jólalög. á Hafnarfjarðarbíói undir starfsemi Kvikmyndasafns íslands mikinn áhuga, bæði Sverrir Hermannsson, ! þáverandi menntamálaráðherra, og ( bæjarstjóm Hafnarfjarðar. Það sem í hindraði framgang málsins fyrst og fremst var áhrifamikill minnihluti í ' þáverandi stjórn Kvikmyndasjóðs. Hér við bætist að á þessum tíma var búið að taka ákvörðun um að sameina i rekstur Kvikmyndasafns og Kvik- myndasjóðs og af þeim ástæðum hafði , forstöðumanni Kvikmyndasafnsins 1 verið sagt upp störfum og því gat • hann ekki beitt sér í málinu sem skyldi. Hann sleppti þó aldrei taki af * hugmyndinni og tókst að endurvekja ' áhuga á henni í breyttri mynd (Bæjar- bíó/frystihús) um áratug siðar, sem \ leitt hefur til þeirra framkvæmda, . undir farsælli forystu Böðvars Bjarka, * sem greinir frá í frétt Morgunblaðs- ins. “ um starfsvettvangi, nær væri að starfsmenn þess eyddu orku sinni og tíma í að fýlgja með ofnotkun lyfja o.s.frv. Eins og áður segir er grein Guð- rúnar á misskilningi byggð. Reglu- gerðardrögin sem um ræðir eru ekki unnin af Lyfjaeftirliti ríkisins og hafa starfsmenn stofnunarinnar því ekki eytt orku sinni í að vinna þau. í greininni kemur fram vanþekking Guðrúnar á starfsemi Lyfjaeftirlits ríksins og hefði verið æskilegt að hún kannaði betur efni sem hún er að fjalla um, áður en lagt var út á ritvöllinn." Athugasemd Athugasemd Lyfjaeftirlits

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.