Morgunblaðið - 30.11.1996, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996 61
1
I
I
i
I
I
I
I
i
I
BRÉFTIL BLAÐSINS
Fyrir hverja vinna
alþingismenn?
Frá Eiríki Einarí Viggóssyni:
EKKI fyrir Iaunafólk, því síður
fyrir unga fólkið og alls ekki fyrir
þá sem minnst mega sín í þessu
samfélagi. Undirritaður hefur
undanfarin 25 ár heimsótt ráð-
herra, Alþingismenn, skattstjóra,
fjóra forseta ASÍ, sveitarstjórnar-
menn, einnig marga formenn
verkalýðsfélaga, fulltrúa atvinnu-
rekenda og marga forráðamenn
hinna ýmsu stofnana. Spurningin
hefur ætíð verið: „Hvers vegna
greiða ekki allir tekjuskatt og út-
svar í samræmi við þann lifistand-
ard sem hver og einn býr við?“
Svörin hafa verið á ýmsa lund.
Að verið sé að undirbúa ný skatta-
lög, að verið sé að tölvuvæða ráðu-
neyti, aðrir segja þetta bara vera
svona.
Sumarið 1995 heimsótti undir-
ritaður opið hús hjá Alþingi og
átti kost á að hitta marga Alþing-
ismenn úr öllum flokkum. Fengu
þeir allir spurninguna: „Af hveiju
greiða ekki allir til samneyslunnar
i samræmi við sannarleg laun, en
ekki vinnukonuskatt, eins og sagt
var í gamla daga?“ Öll svör voru
á þann veg, að ljóst var að það
var ekki vilji á Alþingi að breyta
skattalögunum.
Um haustið 1995 fór undirritað-
ur med opið bréf til allra þing-
manna, þar sem mælt var fyrir,
að þetta óréttlæti í skattamálum
ætti að stöðva þegar i stað. Var
undirrituðum vel tekið á Alþingi,
allavega leiddi þetta af sér, að í
fyrsta skipti var flutt þingsálykt-
unartillaga um bætta skattheimtu
af eftirtöldum þingmönnum:
Hjálmari Árnasyni, Ástu R. Jó-
hannesdóttur, Guðjóni Guðmunds-
syni, Guðna Ágústssyni, Guðnýju
Guðbjörnsdóttur, Hjálmari Jóns-
syni, Isólfi Gylfa Pálmasyni, Lúð-
vík Bergvinssyni, Magnúsi Stef-
ánssyni, Stefáni Guðmundssyni og
Ögmundi Jónassyni. Þingsá-
lyktunartillagan hljómar svo:
Alþingi ályktar að fela fjármála-
ráðherra að skipa þegar í stað
nefnd er hafí það verkefni, að
koma með tillögur um leiðir til að
bæta skattaskil til ríkis og sveitar-
félaga. Þá verði nefndinni falið að
kanna, hvort grípa þurfi til ein-
hverra aðgerða þannig að skatt-
stofn einstaklinga verði tengdur
tekju/eignamyndun þeirra. Nefnd-
in verður skipuð einum fulltrúa frá
hveijum eftirtalinna aðila: Fjár-
málaráðuneyti, ASÍ, BSRB, VSÍ,
Neytendasamtökunum, Sambandi
íslenskra sveitarfélaga, Samtök-
um iðnaðarins og Félagi löggiltra
endurskoðanda. Ráðherra geri Al-
þingi grein fyrir tillögum nefndar-
innareigi síðaren 1. febrúar 1996.
Vaxandi óánægju gætir i
þjóðfélaginu með skattamál. Æ
oftar heyrast fréttir af undan-
drætti virðisaukaskatts, svartri
atvinnustarfssemi, þar sem skatt-
skyld viðskipti eru ekki gefin upp
til skatts, stofnun nýrra fyrirtækja
í stað annarra, sem sömu aðilar
hafa gert gjaldþrota, og þannig
má áfram telja. Á síðustu fimm
árum hafa verið birtar tvær opin-
berar skýrslur um vangreidd gjöld
til hins opinbera og eru niðurstöð-
ur þeirra keimlíkar. Þar segir m.a.,
að ríkissjóður tapi árlega 8-11
milljörðum króna af fyrrgreindum
ástæðum. Þá eru ótaldar þær tekj-
ur sem sveitarfélög verða af vegna
ýmiss konar undanskota. Á tímum
niðurskurðar í ríkisbúskapnum
gætu þessar óinnheimtu tekjur
létt mjög rekstur velferðarkerfis
okkar.
í opinberum umræðum hefur
lengi verið rætt um hversu lítið
samræmi virðist vera á milli eigna-
myndunar og lífsmynsturs margra
einstaklinga annars vegar og
skattskyldra tekna þeirra hinsveg-
ar. Margt bendir til að þarna sé
pottur brotinn, jafnt í skattaeftir-
liti sem skattalögum. Þá er ljóst,
að óbreytt ástand leiðir til skertrar
samkeppnishæfni þeirra sem haga
rekstri sínum í samræmi við lög
og reglur.
Nefndinni er ætlað að taka
þessa þætti til skoðunar með það
að markmiði að kynna fyrir Al-
þingi leiðir til úrbóta, þannig að
Alþingi geti brugðist við með við-
eigandi aðgerðum og stuðlað að
auknu réttlæti og vörnum fyrir
velferðarkerfi okkar. Gert er ráð
fyrir að nefndin ráði til sín starfs-
mann og kalli til sín fulltrúa hinna
ýmsu hópa þjóðfélagsins. Undirrit-
aður hafði frá haustdögum og
fram að þinglokum nokkrum sinn-
um samband við Hjálmar Árnasom
og Vilhjálm Egilsson formann við-
skipta- og fjárhagsnefndar til að
heyra gang mála. Þingsályktunar-
tillagan var aldrei tekin til af-
greiðslu og var tímaskorti borið
við. Á sama tíma var samþykkt
þingsályktunartillaga frá Árna
Johnsen um einkanúmer á bíla,
sem er hégómi einn. Þá var nægur
tími hjá þingmönnum. Það er einn-
ig athyglisvert að öll dagblöð, sjón-
varpsstöðvar og útvarpsstöðvar
hafa þagað þessa þingsályktunar-
tillögu í hel, þótt allt þjóðfélagið
hrópi á þessa fjármuni til að það
geti haldi uppi daglegum rekstri.
Einnig þarf að hafa í huga að líf-
eyrisskuldbindingar ríkissjóðs
vaxa hröðum skrefum daglega.
Þar gæti réttlát skattalög hjálpað
mikið til.
Undirritaður hefur tekið saman
nokkrar staðreyndir um hve skatt-
svik eru stórkostleg hér á landi
og er það sýnt með 7 súlum.
Súla nr. 1 er útsvars- og tekju-
skattsstofn ríkissjóðs 1994, alls
238 milljarðar króna.
Súla nr. 2 er tekjuskattur ríkis-
sjóðs 1994, sem gaf aðeins 23,4
millj. kr., sem svarar eingöngu til
10% af súlu nr. 1, en á sama tíma
greiddu launþegar 32,27% tekju-
skatt af sínum Iaunum.
Súla nr. 3 sýnir útsvar allra
sveitarfélaga 1994, 18,3 millj. kr.,
er slagar hátt í allan tekjuskatt-
inn, en meðalútsvar 1994 var
8,69%.
Súla nr. 4 sýnir svört skatt-
svik, sem árlega eru um 14 millj.
kr. Fjármálaráðuneytið hefur
gefið út tvö rit á undanförnum
árum, en ekkert aðhafst sem
heitið getur til að uppræta þenn-
an ósóma.
Súla nr. 5 sýnir hvít skattsvik,
sem gæti numið allt að 30 millj.
kr. Það eru þeir sem skammta sér
laun að eigin geðþótta og komast
undan því að greiða til sveitarfé-
lags síns og tekjuskatt til ríkis-
sjóðs. Þeir láta jafnvel ríkissjóð
borga fyrir sig eignaskattinn með
því að kaupa verðbréf sem gefa
skattaafslátt.
Súla nr. 6 sýnir skuldir sveit-
arfélaga, sem er að stærstum
hluta vegna skattsvika.
Súla nr. 7 eru skuldir ríkissjóðs
upp á 380 millj. kr., sem er að
stærstum hluta vegna óréttlátra
skattalaga og skattsvika. Þetta
má skrifa á alla stjórnmálaflokka
sem sitja nú á Alþingi, þar sem
þeir hafa aldrei viljað taka á
skattamálum þjóðarinnar.
Vilmundur heitinn Gylfason
barðist fyrir bættum skattalögum.
Meira að segja núverandi forseti
íslands ók um bæi þessa lands,
er hann var fréttamaður sjón-
varpsins, og sýndi myndir af fal-
legum húsum og tók jafnframt
fram að viðkomandi einstaklingur
greiddi engin opinber gjöld til sam-
félagsins. Hann benti á að tvær
þjóðir byggju í þessu landi. Það
er nú gleymt og grafið og ástand-
ið í fjármálum landsins er í rúst,
sem má sjá á því að ijármálaráð-
herra er nánast á handahlaupum
við að framlengja stórlán og gefur
daglega út skuldabréf til að halda
fjármálaráðuneytinu gangandi.
Hann lætur sem þjóðarskútan sé
á réttri siglingu og talar daglega
um að hallalaus ijárlög séu fram-
undan, sem er enginn vandi þegar
allir sem minna mega sín í þessu
þjóðfélagi eru sviknir og kjör
launafólks skert.
Eina leiðin út úr þessum
ógöngum er að unga fólkið, og
aðrir þeir sem vilja þjóð sinni vel,
stofni samtök um bætt samfélag,
vegna þess að Alþingismenn hafa
ekki þor til að bijótast út úr flokks-
fjötrunum til að fylgja hinni fyrr-
nefndu þingsályktunartillögu um
bætt skattalög eftir. í dag er til-
lagan dauð og grafín.
EIRÍKUR EINAR VIGGÓSSON,
matreiðslumaður.
Umnám
Frá Ingólfi Gíslasyni:
Á ráðherrastóli
BJÖRN brosir. Hann veit um hvað
málin snúast. Hann veit betur en
námsmenn hvers þeir þarfnast. Það
eru víst ekki peningar, heldur kröf-
ur. Við verðum að gera miklar kröf-
ur til fólks. Ekki síst námsfólks.
Liðleskjur og aumingjar eiga bara
ekkert erindi við lífið, hvað þá bless-
aðir heimskingjarnir. Og þeir eiga
alls ekki að koma inn í skóla. Björn
veit þetta og hann glottir við tönn.
Menntamálaráðherra er nokkurs
konar gæðastjórnandi. Hinir dug-
legu og gáfuðu eru stimplaðir gæð-
um í heiðbláum lit. Hinir hírast utan
skóla með bláa fingur. Þeim verður
kalt af þeim ferska vindi sem gustar
af Birni. Kannski með börn eða sjúk-
dóma, en inni á skrifstofu bíður
Björn með fordóma. Hann ætlar að
hreinsa til í kerfinu sem er fullt af
heilaskít og hugardrullu. Það á að
sópa fallistunum út, og fá þá til að
opna veskin. Skipta á einkunnarbók-
um þeirra og bankabókum.
Glæpur og refsing
Allt þetta er sanngjarnt því á
prófum falla þeir sem ekkert kunna,
geta eða skilja. Að minnsta kosti
taka þeir nám sitt ekki alvarlega,
sem er alvarlegt mál. Menn skulu
gjalda þess dýru verði að fíflast með
menntastofnanir okkar og ríkissjóð,
því það er stuldur úr sparibauk þjóð-
arinnar að þykjast stunda nám. Og
glæp fyigir refsing. Svo er nefnilega
í lífinu að tækifærin eru ekki á
hveiju strái, ekki eru alltaf gefnar
þijár tilraunir, eða aukalíf eins og í
tölvuspili. Þetta veit Björn, og hann
vill engum gera Bjarnargreiða. Það
er ekki hans að veita aukalíf, heldur
kirkjunnar. Hann veit líka að
menntabröltið í óvitunum kostar
þjóðina undraverðar upphæðir.
Hann er enginn fjársóði ,og gætir
vel að fjársjóði ríkisins. Sem má
ekki verða tómur eins hausinn á
námsmanni. Þess vegna er mikil-
vægt að sem fæstir eyði tíma í skóla-
göngu. Og bara þeir sem hafa vit
til. Eins og Björn.
Mildur meistari
Hann beitir refsivendi blíðum og
tuskar til óþekku börnin sem allt
vilja læra en ekkert skulda í bönk-
um. En það er sama hvað þau orga
og orga, Björn mun ekki borga.
Þeim er það líka fyrir bestu. Hjá
honum fæst aldrei lán í óláni. Hann
þarf engar ráðleggingar frá náms-
mönnum. Hann er eldri og vitrari
og brosir breitt. Hann veit nákvæm-
lega um hvað málið snýst.
INGÓLFUR GÍSLASON, NEMI
Kögurseli 34,109 Reykjavík.
Stefnan
Frá Ingólfi Sigurðssyni:
HVERT stefnum við? Ég er ekki
alveg sáttur við afleiðingar kven-
réttindabaráttunnar. í vetur var
mikið talað um unglingavandamál
af ýmsu tagi, unglingadrykkju,
fíkniefnavandamál unglinga og
annað slíkt í þeim dúr. Er ekki
málið það að unglingavandamálin
svokölluðu endurspegla það þjóðfé-
lag sem við lifum í? Það held ég
að ætti að vera alveg ljóst. Hvernig
getur það öðru vísi verið? Eru það
ekki foreldrarnir sem móta af-
kvæmin með hegðun sinni og skoð-
unum?
Það er vanlíðan og upplausn í
þjóðfélaginu og auðvitað kemur það
niður á unglingum, börnum og full-
orðnu fólki, það kemur niður á fólki
á öllum aldri. Það þýðir ekki að
reisa endalaust ný meðferðarheimili
og setja boð og bönn um alla skap-
aða hluti, það er alls engin lausn.
Það heitir að sópa vandamálunum
undir teppið,_ eins og lengi hefur
viðgengizt á Islandi og annars stað-
ar á Vesturlöndum. Þegar hlutirnir
eru bannaðir verða þeir bara meira
spennandi, það hefur margsannað
sig. Það er ekki hægt að kæfa þá
ólgu sem undir niðri býr, vandamál-
in verða ekki leyst nema með rétt-
um aðgerðum.
Það er ekki rétt að dæma ungl-
inga endalaust og kalla þá vanda-
málahóp í þjóðfélaginu, og ef þeir
eru það þá hlýtur að vera einhver
skýring á því.
Heimilið verður ætíð kjölfesta
þjóðfélagsins. Eru ekki konur að
kaupa réttindi sín fulldýru verði ef
þær verða að fórna uppeldi barna
sinna fyrir þau? Hafa þær alveg
gleymt því að það eru sérstök for-
réttindi konunnar að fá að ala upp
börnin og sjá um heimilið?
Hvað hafa konur grætt á valda-
baráttu sinni? Eru þær orðnar eitt-
hvað sáttari við sjálfar sig en þær
voru og þann heim sem þær lifa í?
Það held ég ekki. Þvert á móti virð-
ist mér óánægja þeirra og karlanna
líka aldrei hafa verið meiri. Karlar
eru í kreppu. Konur eru í kreppu.
Ætli það séu engar skýringar á því?
INGÓLFUR SIGURÐSSON,
Digranesheiði 8, Kópavogi.
Tannverndarráð
ráðleggur foreldrum
að gefa börnum sínum
jóladagatöl
án sælgætis
Iberna ICM-31 Iberna ID-28
Iberna ID-24
Iberna IMP-245
Iberna IMP-1 4.3
Iberna IMP-30.0
H x B x D = 163 X 60 x 60 cm H x B x D = 143 x 60 x 60 cm H x B x D = 143 x 54 x 60 cm
Kælir ofan 221 Itr. Kælir neðan 213 Itr. Kælir neðan 181 Itr.
Frystir 65 Itr. Frystir 67 Itr. Frystir 44 Itr.
Rétt verð 63.900,- Rétt verð 50.950,- Rétt verð 43.980,-
H x B x D = 143 x .54 x 60 cm
Kælir 204 Itr.
Frystir 20 Itr.
Rétt verð 41.960,-
H x B x D = 85 x 54 x 60 cm
Kælir 118 Itr.
Frystir 14 Itr.
Réttverð 35.910,-
HxBxD = 143x60x60cm
Kælir 302 Itr.
Frystir enginn
Rétt verð 46.900,-
NÝTT FRÁ FÖNIX
ítalskir ísskápar
iberno
TAKIÐ EFTIR!
Nú selur Fönix ítalska
ísskápa af betri gerðinni
á verði, sem gerist
vart hagstæðara.
iberno
fyrsta flokks frá
/ronix
HÁTÚNI6A REYKJAVlK SfMI 552 4420