Morgunblaðið - 18.01.1997, Page 4
4 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Rottugangur
í vesturbænum
ÍBÚAR í vesturbæ Reykjavíkur
hafa kvartað yfir rottugangi í
hverfinu undanfarna mánuði og
segjast hafa séð rottum bregða
fyrir í húsagörðum, á götum úti
og jafnvel inni i ibúðarhúsum.
Anna Kristíne Magnúsdóttir, íbúi
á Ránargötu, segist til að mynda
hafa séð rottu í kjailaranum hjá
sér rétt fyrir jólin.
„Ég var að hlusta á tónlist í
einu herberginu þegar ég fékk
það á tilfinninguna að einhver
væri að horfa á mig. Ég skimaði
í kringum mig og leit upp og
horfðist í augu við rottuna sem
sat í lítilli skoru í veggnum,"
segir hún með hryllingi. „Ég
hringdi bæði á Neyðarlínuna og
í meindýraeyði, en rottan fannst
ekki aftur,“ segir hún.
Þetta er reyndar ekki í fyrsta
sinn sem Anna Kristíne verður
vör við rottugang i húsinu því
fyrir um tveimur árum fundust
rottur á milli þilja þess. „En eft-
ir að ég lét gera við skólprör
undir húsinu, fyrir rúmu ári hef
ég ekki heyrt í rottum, þ.e. ekki
fyrr en núna rétt fyrir jól,“ seg-
ir hún.
Annar íbúi við Ránargötuna
segist einnig hafa orðið áþreifan-
lega var við rottur í húsakynnum
sínum nýlega, er heimiliskettirn-
ir báru inn rottuhaus og aðra
hluta dýrsins.
Hátt ífimm hundruð
tilkynningar um rottur
Að sögn Guðmundar Björns-
sonar verkstjóra hjá Meindýra-
vörnum Reykjavíkurborgar,
skjóta rottur alltaf upp kollinum
annað slagið í Reykjavík, en til-
kynningar um rottur hafa ekki
verið meiri frá vesturbænum en
öðrum bæjarhlutum að undan-
förnu. „Við fengum rúmlega
fjögur hundruð útköll víðs vegar
að úr bænum á síðustu ári vegna
rottugangs, en algengast er að
rottur sjáist allt frá vesturbæ og
austur að Elliðaánum. Önnur
svæði borgarinnar virðast að
mestu vera laus við þessi dýr,“
segir hann og bætir því við að
rottur sjáist nær eingöngu ofan-
Morgunblaðið/Ema Margrét Ottósdóttir
KÖTTUR gerir sig líklegan til að ráðast á rottu en á endanum var
það rottan sem hvæsti á kettina tvo svo þeir hrökkluðust frá. Mynd-
in var tekin fyrir skömmu á horni Bárugötu og Stýrimannastígs.
jarðar séu holræsakerfi biluð í
nágrenninu.
Að sögn Inga Arasonar, for-
stöðumanns hreinsunardeildar
Reykjavíkurborgar, hefur rottu-
gangur í Reykjavík farið minnk-
andi undanfarin ár, einkum eftir
að farið var að bæta holræsa-
kerfi borgarinnar. „Með því að
fækka útrásum holræsakerfisins
og beina þeim lengra út í sjó eru
strandlengjurnar hreinni og því
erfiðara fyrir rotturnar að þríf-
ast,“ segir hann.
Þá segir Ingi að yfir sumartím-
ann sjái sérstakir starfsmenn
borgarinnar um það að setja
rottueitur ofan í holræsabrunna
í þeim tilgangi að halda rottu-
stofninum í skefjum. „Það eitur
sem við notum núna virðist virka
ágætlega," segir hann.
Ný tegund
strætisvagna
ÞRÍR nýir strætisvagnar með
mun lægra gólfi, en þeir sem í
notkun eru hér, verða teknir til
notkunar á höfuðborgarsvæðinu
í dag, laugardag.
Þessi tegund strætisvagna
hefur ekki verið áður hér á
landi, en gólfhæðin í vögnunum
er aðeins 32 sm frá jörðu, sem
þýðir að af gangstéttarbrún er
gengið nánast beint inn í þá.
Nýju vagnamir hefja akstur
á milli Hafnarfjarðar, Garða-
bæjar, Kópavogar og Reykjavík-
ur og verður frítt í þá ura helg-
ina I kynningarskyni.
♦ ♦
Landlæknir um
læknaskort á
landsbyggðinni
Tekist hefur
að manna
öll héruð
nema tvö
ÓLAFUR Ólafsson landlæknir seg-
ir að tekist hafi að ráða lækna í
lausar stöður frá og með 1. febr-
úar í öll þau héruð þar sem útlit
var fyrir að yrði læknaskortur að
tveimur stöðum undanskildum en
það eru Bolungarvík og Raufar-
höfn.
Ólafur sagði að útlitið hefði ekki
verið gott í upphafi árs þegar fyrir-
sjáanlegt var að læknaskortur yrði
í sjö til átta byggðarlögum en nú
hefur hins vegar tekist að fá lækna
til starfa á Reyðarfirði, Flateyri,
Fáskrúðsfirði, Patreksfirði, Kirkju-
bæjarklaustri og Þingeyri.
Ölafur sagði að þrátt fyrir að
tekist hafi að ráða bóta á vanda
þessara staða sé engu að síður
ástæða til að hafa áhyggjur af
ástandinu. „Það er áhyggjuefni að
það fer færra ungt fólk í heimils-
lækningar en áður og einnig að
fólk, sem lokið hefur framhalds-
námi erlendis, kemur ekki heim
sökum mun betri kjara erlendis.
Við þetta bætist svo viss hætta á
faglegri og félagslegri einangrun
úti í einstökum héruðum,“ segir
Ólafur.
NÝ TEGUND strætisvagna er komin hingað til lands.
Morgunblaðið/Ásdís
Brotist inn í
Metró-Norman
••
Ollu
tölvu-
kerfinu
stolið
BROTIST var inn í verslunina
Metró-Norman í fyrrinótt og þaðan
stolið öllu tölvukerfi fyrirtækisins,
samtals sex hörðum diskum og
þremur skjám, en þrír tölvuskjár
voru skildir eftir. RLR hefur málið
til rannsóknar.
Styggð virðist hafa komið að
þjófunum því smár en þungur pen-
ingaskápur sem fyrirtækið á, var
kominn út á mitt gólf og við hans
lágu borvél, hamar, sleggja og
kúbein og ýmis verkfæri önnur, en
ekki var búið að bijóta skápinn upp.
Tilbúnir að greiða
„lausnargjald“
Bergur Hjaltason, verslunar-
stjóri hjá Metró-Norman, segir það
tilfinnanlegt tjón að missa tölvu-
kerfið, ekki síst þar sem í því sé
geymdar upplýsingar um lager-
kerfið, öll vörunúmer, birgðastaða,
sölusaga vöru og viðskiptamanna
o.fl.
„Við tókum seinast afrit af
birgðayfirliti um áramót og allt sem
hefur verið fært inn síðan er horf-
ið. Við þurfum að færa allt saman
inn aftur, birgðastöðu, bókhald og
skrá allar nótur sem eru mörg þús-
und talsins, þannig að mikil vinna
er framundan að óbreyttu. Við telj-
um vélbúnaðinn kosta á milli 800
þúsund krónur og milljónar, en við
það bætist kostnaður við að fá
tölvufræðinga til að setja upp bún-
að og gangsetja hann, auk inn-
sláttarins," segir Bergur.
Verslunin er við Hallarmúla og
höfðu þjófamir brotið rúðu sem
veit að porti aftan við hana og síð-
an opnað hurð að aftanverðu, þang-
að sem þeir höfðu dregið ýmsan
vaming, þar á meðal loftpressu.
Bergur segir koma til greina að
greiða „lausnargjald" fyrir tölvu-
búnaðinn, þó ekki væri annað en
spara vinnu við innslátt þeirra upp-
lýsinga sem hann geymir. „Það
væri mikils virði að fá tækin, þó
það væri ekki annað en netþjón-
inn,“ segir hann.
Félagsdómur úrskurðaði um forgangsrétt stéttarfélaga árið 1974
Tveir geta ekki krafist
forgangs að sömu vinnu
SAMKVÆMT úrskurði Félagsdóms frá árinu
1974 getur stéttarfélag ekki knúið vinnuveit-
anda til að veita sér forgangsrétt að vinnu ef
það hefur áður gert samning við stéttarfélag
í sömu starfsgrein um forgang að sömu vinnu.
VR hefur sent VSl bréf þar sem óskað er eftir
viðbrögðum VSÍ við brotum Pósts og síma hf.
á forgangsréttarákvæði samnings VR og VSÍ.
í framhaldi af samningi Pósts og síma hf.
við Póstmannafélag íslands og Félag íslenskra
símamanna hefur Verslunarmannafélag
Reykjavíkur sent VSÍ bréf þar sem bent er á
að samkvæmt ákvæði í grein 5.1. í kjarasamn-
ingi VR og VSÍ hafa félagsmenn í VR forgangs-
rétt til starfa hjá aðildarfélögum VSÍ.
„Hér með er óskað eftir afstöðu VSÍ til
ákvörðunar Pósts og síma hf. og hvemig VSÍ
hyggst bregðast við brotum aðildarfélaga sinna
á samningnum. Svar óskast fyrir 25. janúar
n.k,“ segir í lok bréfsins.
Magnús L. Sveinsson, formaður VR, sagði
að samskonar bréf yrði sent Pósti og síma hf.
þar sem vakin yrði athygli stjómenda fyrirtæk-
isins á broti þess á samningi VR og VSÍ. Að-
spurður sagði Magnús að hann vonaðist eftir
að þetta mál leystist farsællega og ekki þyrfti
að koma til þess að því yrði vísað til Félagsdóms.
Hluti af Pósti og síma
eríVSÍ
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri
VSÍ, sagði að stjórn Pósts og síma hf. hefði
óskað eftir því að fá aðild að VSÍ fyrir hluta
af starfsemi sinni, þ.e. þann hluta sem ekki
er sinnt af starfsmönnum í Póstmannafélaginu
og Félagi símamanna. Framamkvæmdastjómin
hefði orðið við þessum óskum þrátt fyrir að
þetta væri óvenjulegt. Hann sagði að VSÍ hefði
ekki brotið samninga eða samþykktir sem það
hefði gert.
»
Árið 1974 úrskurðaði Félagsdómur í máli
sem snerti forgangsrétt verkalýðsfélaga. í nið-
urstöðu dómsins segir: „Dómurinn telur að
fylgja verði þeirri grundvallarreglu, að hafi
stéttarfélag náð samningi við vinnuveitanda
um forgangsrétt félagsmönnum sínum til handa
megi annað stéttarfélag í sömu starfsgrein
ekki beita verkfalli til að knýja þann sama
vinnuveitanda til að skuldbinda sig til að veita
sér sama rétt, enda er það andstætt réttum
rökum, að tveir aðilar geti haft hliðstæðan for-
gang til vinnu.“
Um þennan dóm ritaði Hákon Guðmundsson,
fyrrverandi forseti Félagsdóms, í Tímarit lög-
fræðinga. Þar segir hann: „Hafi stéttarfélag
náð gildum samningi um forgangsrétt félags-
manna sinna verða önnur stéttarfélög að hlíta
þeim samningi og geta ekki heimtað í sínar
hendur þann rétt á kostnað fyrri forgangsrétt-
arhafa."