Morgunblaðið - 18.01.1997, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 35
Tóbakslýðveldið ísland
DAGLEGAR REYKINGAR, 18-69 ÁRA,
EFTIR SKÓLAGÖNGU
GA GNFRÆÐA/LA NDSPR.
SKYLDUNÁM
VERKL. FRH. NÁM
BÓKL. FRH. NÁM
STÚDENTSPRÓF
HÁSKÓLAPRÓF
___________________0%______10% 20% 30% 40%
BYGGT á könnun Tóbaksvarnanefndar 1996. Þrjú þúsund voru
spurðir (slembiúrtak) - svarhlutfall rúmlega 71%.
ÞAÐ er engum vafa
bundið að kostnaður
heilbrigðisþjónustunn-
ar vegna reykinga ís-
lendinga er verulega
mikill og er það kald-
hæðnislegt að tekjur
ríkissjóðs af sölu fíkni-
efnisins nikótíns
brenna að mestu eða
öllu leyti upp í með-
höndlun heilbrigðis-
þjónustunnar vegna
skaðsemi reykinga.
Reikningsdæmið er
margþætt, þar sem
taka verður inní dæm-
ið kostnað vegna legu-
daga, læknishjálpar, aðgerða,
lyfj'a, örorkubóta og þannig má
lengi telja, að undanskildum
sparnaði í heilbrigðisþjónustunni
við að fjöldi reykingafólks deyr
langt um aldur fram! Hver reyk-
ingamaður veit að mannslíf hefur
og verður aldrei metið til fjár svo
verðmætt er það, en hvað er hann
þá að hugsa, þegar hann kveikir
sjálfur í sinni tímasprengju við að
reykja, vitandi að í tóbaksreyk eru
meira en 4.000 efnasambönd og
fleiri en 40 þeirra eru krabbameins-
valdandi. Þið sem reykið eða eruð
meðreykjandi í tóbaksreyk frá öðr-
um, andið þessu öllu að ykkur.
Arsenik: Eitrað við innöndun
og við inntöku.
Akrólein: Eitrað við innöndun.
Ertir augu, öndunarfæri og húð.
Akrýlónítríl: Getur valdið
krabbameini, einnig eitrað við inn-
öndun, í snertingu við húð.
Hvað er hægt
að gera?
Ein leið er fær ef
litið er til lengri tíma,
og er sú að horfast í
augu við það að nikót-
ín er í flokki harðra
fíkniefna sem neyt-
andinn ánetjast á
skömmum tíma. Það
er nauðsynlegt í þeirri
stöðu sem við erum í
í dag að beina spjótum
okkar að þeim ung-
mennum sem ekki
hafa þegar ánetjast
og koma í veg fyrir
að þau hafí aðgang
að efninu ef við ætlum okkur að
eignast reyklausa kynslóð. Þeir
neytendur sem þegar hafa ánetj-
ast og vilja hætta, þeim skal veitt
öll sú faglega aðstoð sem möguleg
er til að auðvelda þeim skrefið,
en þeim, sem ekki kjósa að hætta,
skal vera fijálst að reykja en þó
með þeim skilyrðum að sækja
verður tóbakið til sérstakra útsölu-
staða gegn framvísun lyfseðils, og
það þýðir að setja verður tóbak
Sá sem reykir pakka
á dag í eitt ár, segir
Guðbjörg Pétursdótt-
ir, hefur brennt upp
hundrað þúsund krónur
og stytt ævilíkur
satt. Ég er viss um að það er lít-
ill hluti þingmanna sem er sam-
þykkur þessum ósóma, kippið
þessu burt úr vísitöluni og hækkið
tóbak. Þetta hefur verið gert í
Belgíu, Frakklandi og Lúxemborg,
en ekki er að sjá að þessar þjóðir
séu á barmi gjaldþrots né sérstakr-
ar stjórnarfarslegrar örvæntingar.
Þetta er verksvið fjármálaráðu-
neytis, ekki satt. Eftir 1. febrúar
1997 verða alls 127 mismunandi
tóbakstegundir til sölu, fijálst
fíkniefni í fallegum umbúðum.
Hvenær megum við búast við því
að inn í landið streymi 227 tegund-
ir tóbaksfíkniefnis í neytendavæn-
um umbúðum, þannig að tóbaks-
framleiðendur úti í heimi og inn-
flytjendur tóbaks verði sællegir
eins púkinn á fjósbitanum af þegn-
um sínum í tóbakslýðveldinu ís-
landi?
Dæmisaga
Eins árs barn horfir saklausum
augum til foreldranna sem eru að
reykja, það nuddar svíðandi augun
og finnst lyktin vond, loftið frá
þeim vekur hjá því ógleði en samt
vill barnið vera hjá þeim sem það
elskar. Tíminn líður, barnið stækk-
ar og það venst menguninni frá
foreldrunum. Enn líður tíminn,
barnið prófar að taka reyk úr síg-
arettu sem foreldrið skildi eftir í
Guðbjörg
Pétursdóttir
öskubakkanum, oj bara og barnið
hóstar ákaft. Það er orðið ungling-
ur og ætlar að hitta félagana niðri
í fjöru eða bakvið sjoppuna.
Spennan við að reykja eins og ,j
þeir fullorðnu er sterk. 15 ára
kemur unglingurinn til foreldr-
anna, sest niður hjá þeim og kveik-
ir sér í sígarettu, oh vá, ég er
orðinn fullorðinn.
Af þessari sögu má það vera
ljóst að ef þú reykir ert þú fíkni-
efnaneytandi og þér er ekki sjálfr-
átt í þátttöku þinni að gera barnið
þitt að mögulegum fíkniefnaneyt-
anda sem tekur inn frá þér nikót-
ín og öll hin efnin sem þú blæst
frá þér út í umhverfið. Þér er það
fullljóst að það krefst átaks og
mikils sjálfsaga að hætta sem
mörgum reynist erfitt. Þú færð
bæði líkamleg og andleg fráhvarf-
seinkenni sem orsakar það að tób-
aksneytandinn fellur aftur og aft-
ur. Ég veit að til eru ótal afsakan-
ir, eins og þessi: Þetta er nú það
eina sem ég læt eftir mér.
Hér á eftir kemur nánari lýsing
á því hvað þú lætur eftir þér.
Á einu ári hefur sá sem reykir
einn sígarettupakka á dag:
Breytt hálfum kílómetra af
sígarettum í reyk og ösku.
Sogið úr þeim eiturefni 50-60
þúsund sinnum.
Fengist við það samanlagt í 800 ,
klst. (100 dagsverk).
Spillt andrúmsloftinu allan
þennan tíma með eitruðum reyk.
Eytt 24 tijám sem voru notuð
við vinnslu tóbaksins.
Minnkað lífslíkur sínar um einn
til tvo mánuði.
Brennt upp hundrað þúsund
krónur.
Höfundur er hjúkrunarfræðingur
og varaformaður
Tóbaksvarnanefndar.
Ammoníak: Eitrað við innönd-
un.
Asetaldehýð: Getur valdið
varanlegu heilsutjóni, ertir augu
og öndunarfæri.
Benzen: Getur valdið krabba-
meini, einnig eitrað við innöndun.
Benzó(a)pýren: Getur vaidið
krabbameini, arfgengum skaða á
litningum og fósturskaða.
Blásýra: Sterkt eitur við innönd-
un, í snertingu við húð og við inn-
töku (höfð í rottueitur).
Brennisteinsvetni: Sterkt eitur
við innöndun.
Dímetýlnítrósamín: Getur vald-
ið krabbameini, einnig eitrað við
inntöku og innöndun.
Endrín: Sterkt eitur við innönd-
un, í snertingu við húð og við inn-
töku.
Fenól: Eitrað í snertingu við húð
og við inntöku. Ætandi.
Formaldehýð: Getur valdið var-
anlegu heilsutjóni. Getur valdið
ofnæmi í snertingu við húð. Eitrað
við innöndun, í snertingu við húð
og inntöku.
Hýdrazín: Getur valdið krabba-
meini, einnig eitrað við innöndun,
í snertingu við húð og við inntöku.
Kadmíum: Getur valdið krabba-
meini, einnig eitrað við innöndun
og við inntöku.
Kolmónoxíð: Eitrað við innönd-
un (er líka í útblásturslofti bif-
reiða).
Metanól (tréspíritus): Eitrað við
innöndun og inntöku.
Naftalen: Hættulegt við inn-
töku.
Beta-Naftýlamín: Getur valdið
krabbameini, einnig hættulegt við
inntöku.
Nikótín: Sterkt eitur við innönd-
un, í snertingu við húð og við inn-
töku (vanabindandi fíkniefni).
Pólóníum 210: Getur valdið
krabbameini (mjög geislavirkt
efni).
Pýrídin: Hættulegt við innönd-
un, í snertingu við húð og við inn-
töku.
Úretan: Getur valdið krabba-
meini.
Vinýlklóríð: Getur valdið
krabbameini.
um mánuð.
undir lyfjaeftirlit ríkisins. Leið
þessi er róttæk og krefst þess að
stranglega verði tekið á ólöglegum
innflutningi og sölu á tóbaki rétt
eins og öðrum fíkniefnum. Ég
geri mér grein fyrir að hugmyndir
sem þessar eiga líklega ekki póli-
tískan hljómgrunn í dag, en rót-
tækar hugmyndir dagsins í dag
eru hversdagsleiki morgundags-
ins.
En hvað er þá til ráða hér og nú?
Miðað við veruleika dagsins í
dag tel ég besta kostinn að verð-
leggja tóbakið eftir áhættu, þeirri
áhættu sem neytandinn leggur á
sjálfan sig og sameiginlegan sjóð
landsmanna sem borgar brúsann
þegar undan hallar, sem þýðir að
tóbak þarf að vera dýrt. Éf einn
pakki af sígarettum kostaði 600
kr. myndi ungum tóbaksneytend-
um stórfækka og þeir sem hafa
reynt að hætta oft á dag fengju
ærna ástæðu og óvænta aðstoð.
Ekki má gleyma staðfasta reyk-
ingafólkinu, það færi að hugsa sig
um. Væri þá ekki tilganginum
náð? Nei, ekki alveg svo einfalt,
því tóbak sem inniheldur fíkniefnið
nikótín er bundið framfærsluvísi-
tölunni sem er samverkandi þáttur
í verðtryggingu fjármagns. Þetta
er þá einn af hornsteinum íslensks
velferðarkerfis, skammarlegt en
BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR
fyr/rWINDOWS
Sjáðu nýjan frábæran
hugbúnað:
www.treknet.is^throun
H KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 - Simi 568 8055
FRÍSTUNDANÁM í MÐBÆJARSKÓLA OG MJÓDD
ÍSLENSKA
íslenska, stafsetning og málfræði. ítarleg yfirferð.
íslenska fyrir útlendinga 1.-4. stig (í 1. stigi er raðað eftir þjóðerni nemenda).
ERLEND TUNGUMÁL
(byrjenda- og framhaldsnámskeið)
Danska. Norska. Sænska. Enska. Þýska. Hollenska. Franska. ítalska. Spænska.
Portúgalska. Gríska. Rússneska. Pólska. Japanska. Arabíska. Kínverska.
Talflokkar í ýmsum tungumálum. Áhersla lögð á tjáningu daglegs máls,
lesnar skáldsögur, smásögur, blaðagreinar o.s.frv.
VERKLEGAR GREINAR OG MYNDLISTARNÁMSKEIÐ
Fatasaumur. Skrautskrift. Postulínsmálun. Bókband. Glerlist. Teikning. Olíumálun.
Vatnslitamálun. Prjónanámskeið. Leðurvinna. Öskjugerð.
AÐSTOÐ VIÐ SKÓLAFÓLK OG NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN
Stærðfræði - upprifiun oq aðstoð fyrir nemendur 10. bekkjar og foreldra þeirra.
Stærðfræðiaðstoð á grunn- og framhaldsskólastigi.
Nemendur mæta með eigið námsefni og fá aðstoð eftir þörfum. Fámennir hópar.
DANSKA. NORSKA. SÆNSKA. ÞÝSKA
fyrir 6-10 ára gömul börn til að viðhalda kunnáttu þeirra í málunum.
Leiklist fyrir böm 9-12 ára.
ÖNNUR NÁMSKEIÐ
Galdrar í heiðnum sið á Norðurlöndum. Galdrafárið í Evrópu. Galdrar í dag.
Sex vikna námskeið. Dagur Þorleifsson.
Trúarbraaðasaaa. Yfirlitsnámskeið. Dagur Þorleifsson.
Ásatrú - norræn aoðafræði. Dagur Þorleifsson.
Listasaaa. Fiallað verður um helstu ttmabil listasögunnar. Þorsteinn Eggertsson.
Ritlist. Að skrifa fyrir börn. Elísabet Brekkan og Árni Árnason.
Lestu betur. Námskeið til að auka lesskilning og lestrarhraða. Árni Árnason.
Samskipti oa siáifsefli fvrir konur. Jórunn Sorensen.
Heimilisbókhald. Tveaaia vikna námskeið. Raggý Guðjónsdóttir.
Skokknámskeið. Byrjenda- og framhaldshópar. Jakob Bragi Hannesson.
Tarotspil. Tákn og túlkun spilanna (kennsla fer fram á ensku). Carl Marsak.
INNRITUN STENDUR YFIR í MIÐBÆJARSKÓLANUM, FRÍKIRKJUVEG11,
Upplýsingar í símum 551 2992 og 551 4106.
Kennt verður í Miðbæjarskóla og í nýju húsnæði okkar
í Mjódd á efri hæð skiptistöðvar SVR.
SVO LENGI LÆRIR SEM LIFIR.