Morgunblaðið - 18.01.1997, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 47
MESSUR A MORGUIM
Yfirlýsing vegna
stjórnarkjörs
í Dagsbrún
Guðspjall dagsins:
Er þér biðjist fyrir.
(Matt. 6.)
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffisala
safnaðarfélagsins eftir messu.
Kirkjubíllinn ekur. Árni Bergur Sig-
urbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Foreldrar hvattir til þátttöku
með börnunum. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Guðni Þ. Guðmunds-
son. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl.
11 við upphaf samkirkjulegu bæna-
vikunnar. Erlingur Níelsson kap-
teinn frá Hjálpræðishernum préd-
ikar. Tónlist flytur sönghópur frá
Hjálpræðishernum. Dómkirkju-
prestarnir þjóna fyrir altari. Fulltrú-
ar safnaðanna lesa ritningarorð.
Barnasamkoma kl. 13. Bílferð frá
Vesturbæjarskóla. Messa kl. 14
helguð þeim sem gengið hafa í
hjónaband í Dómkirkjunni. Sr. Jak-
ob Á. Hjálmarsson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Hjalta
Guðmundssyni. Guðrún Jónsdóttir,
sópransöngkona syngur einsöng.
Kammerkórinn syngur, stjórnandi
og organleikari Marteinn H. Frið-
riksson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Gísli Kolbeins
og Þórey Mjallhvít Kolbeins annast
messugjörð. Organisti Kjartan Ól-
afsson. Félag fyrrverandi sókn-
arpresta.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Messa kl. 11. Altaris-
ganga. Prestur sr. Halldór S.
Gröndal. Organisti Árni Arinbjarn-
arson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Barnasam-
koma og messa kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjörnsson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ingileif Malmberg.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Helga Soffía Konr-
áðsdóttir. Messa kl. 14. Organisti
Pavel Manasek. Sr. Tómas Sveins-
son.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson, prófastur
setur sr. Jón Helga Þórarinsson inn
í embætti sóknarprests. Kór Lang-
holtskirkju, Kammerkórog Gradua-
lekór syngja. Málmblásarakvintett-
inn „Korretto" leikur. Organisti Jón
Stefánsson. Boðið upp á léttar
veitingar á eftir. Barnastarf kl. 13
í umsjá Lenu Rósar Matthíasdótt-
ur.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Félagar úr Kór Laugar-
neskirkju syngja. Organisti Gunnar
Gunnarsson. Barnastarf á sama
tíma. Guðsþjónusta kl. 14. Eldri
borgurum sérstaklega boðið til
kirkju. Drengjakór Laugarneskirkju
syngur undir stjórn Friðriks H. Frið-
rikssonar. Kirkjukaffi að lokinni
guðsþjónustu. Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Barnastarf kl. 11.
Opið hús frá kl. 10. Sr. Frank M.
Halldórsson. Frostaskjól: Barna-
starf kl. 11. Húsið opnar kl. 10.30.
Guðsþjónusta kl. 14. Guðbjörg Jó-
hannesdóttir, guðfræðingur, préd-
ikar. Sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur sr. Hildur Sigurðar-
dóttir. Organisti Viera Manasek.
Barnastarf á sama tíma.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Altarisganga. Organleikari
Kristín G. Jónsdóttir. Vænst er
þátttöku fermingarbarna og for-
eldra þeirra í guðsþjónustunni.
Stuttur fundur með foreldrum
fermingarbarna eftir messu. Prest-
arnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 11. Altar-
isganga. Heimsókn Kristilegu
skólahreyfingarinnar. Sr. Guð-
mundur Karl Brynjarsson, skóla-
prestur, prédikar. Ungt fólk flytur
helgileik og tónlist. Samkoma Ungs
fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jón-
asson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Barnaguðsþjónusta
á sama tíma.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Barnaguðsþjónusta á
sama tíma í umsjón Ragnars
Schram. Organisti Lenka Mátéová.
Jazzmessa kl. 20.30. Prestur sr.
Sigurður Árni Eyjólfsson. Kvintett
sér um tónlistarflutning. Sigurður
Flosason alto sax, Ólafur Jónsson
tenor sax, Kjartan Valdimarsson
píanó, Gunnar Hrafnsson bassi og
Pétur Grétarsson trommur. Prest-
arnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Umsjón hafa
Hjörtur og Rúna. Barnaguðsþjón-
usta í Rimaskóla kl. 12.30 í umsjón
Jóhanns og Ólafs. Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Hörður Bragason.
Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Kristján Einar Þorvarðarson
þjónar. Barnaguðsþjónusta kl. 13
í umsjá sr. írisar Kristjánsdóttur.
Organisti OddnýJ. Þorsteinsdóttir.
Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur dr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðs-
prestur. Organisti Örn Falkner.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir préd-
ikar. Organisti Kjartan Sigurjóns-
son. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjónusta
kl. 20.30. Organisti Pavel Smid.
Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Laug-
ardag: Messa kl. 8 og kl. 14.
Sunnudag: Hámessa kl. 10.30,
messa kl. 14, messa á ensku kl.
20. Mánudaga til föstudaga: mess-
ur kl. 8 og kl. 18. Miðvikudag: Sam-
kirkjuleg bænastund kl. 20.30.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Al-
menn samkoma á morgun kl. 17.
Upphafsorð hefur Bjarni Gíslason.
Ragnar Gunnarsson sér um hug-
leiðingu. Systurnar Helga Vilborg
og Agla Marta syngja saman.
Barna- og unglingasamverur. Mat-
sala eftir samkomuna.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11 á sunnudögum.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelfía:
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumað-
ur Hafliði Kristinsson. Almenn
samkoma kl. 16.30. Ræðumaður
Tómas Ibsen. Allir hjartanlega vel-
komnir.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl.
20. Altarisganga öll sunnudags-
kvöld. Prestur sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Al-
menn samkoma kl. 11. Ræðumað-
ur Ásmundur Magnússon. Fyrir-
bænaþjónusta/bænaklútar. Allir
hjartanlega velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIM-
ILIÐ: Samkoma á morgun kl. 17.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudag
kl. 11 sunnudagaskóli. Hjálpræðis-
samkoma kl. 20. Elsabet Daníels-
dóttir talar.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Barnastarf í safnaðar-
heimilinu kl. 11. Jón Þorsteinsson.
BRAUTARHOLTSKIRKJA, Kjalar-
nesi: Messa kl. 14. Gunnar Krist-
jánsson, sóknarprestur.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Sunnudagaskóli á sama tíma
í Kirkjuhvoli og kl. 13 í Hofstaða-
skóla. Bragi Friðriksson.
BESSASTAÐA- og GARÐASÓKN-
IR: Guðsþjónusta í Víðistaðakirkju
kl. 14. Samkoma í Kirkjuhvoli,
Garðabæ á eftir athöfn. Heimili við
Ásbúð í Garðabæ sjá um veiting-
ar. Eldri borgarar sérstaklega vel-
komnir. Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Dagur aldraðra í Víðistaða-,
Álftanes- og Garðasóknum. Kór
eldri borgara og kór Víðistaðasókn-
ar syngja. Einsöngur Sigurður
Skagfjörð Steingrímsson. Org-
anisti Úlrik Ólason. Einar S.M.
Sveinsson prédikar. Samkoma að
guðsþjónustu lokinni í Vídalíns-
kirkju i Garðabæ. Ferð frá Hrafn-
istu og Miðvangi 33. Sigurður Helgi
Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli í Hafnarfjarðar-
kirkju kl. 11 fer að þessu sinni fram
í Ljósbroti Strandbergs. Umsjónar-
menn sr. Þórhildur Ólafs, Natalía
Chow og Katrín Sveinsdóttir.
Sunnudagaskóli í Hvaleyrarskóla
kl. 11. Umsjónarmenn sr. Þórhallur
Heimisson, Bára Friðriksdóttir og
Ingunn Hildur Hauksdóttir. Helgi-
stund í Ljósbroti Strandbergs kl.
14. Prestur sr. Þórhildur Olafs.
Prestarnir.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Umsjón Edda,
Aðalheiður og Sigríður. Einar Eyj-
ólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Foreldrar, ömmur
og afar eru hvattir til að koma með
börnunum. Guðsþjónusta kl. 14.
Fermingarbörn og foreldrar þeirra
eru sérstaklega beðin að mæta.
Fundur um fermingarundirbúning-
inn. Sóknarprestur.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11 sem fram
fer í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Börn sótt
að safnaðarheimilinu kl. 10.45.
Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjukórinn
syngur undir stjórn Steinars Guð-
mundssonar organista. Baldur
Rafn Sigurðsson.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Baldur Rafn
Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Munið skólabílinn.
Messa, altarisganga, kl. 14. Prest-
ur Sigfús Baldvin Ingvason. Kór
Keflavíkurkirkju syngur. Organisti
Einar Örn Einarsson. Sóknarprest-
ur.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
HVERAGERÐISKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Jón
Ragnarsson.
KOTSTRANDARKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Jón Ragnarsson.
SELFOSSKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Messa kl. 14. Sóknarprest-
ur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Messa kl. 14. Altaris-
ganga. Fundur með fermingar-
börnum og foreldrum þeirra eftir
messu. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa kl.
14. Úlfar Guðmundsson.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Úlfar Guð-
mundsson.
ODDAKIRKJA, Rangárvöllum:
Guðsþjónusta kl. 14. Sóknarprest-
ur.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. Vig-
fús Ingvar Ingvarsson.
HVAMMSTANGAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Brúðuleikrit
eldri barna (Kristrúnar, Antons og
Sigurðar Helga), hljóðsaga, söngur
og leikur undir stjórn barnafræðar-
anna Lauru Ann og Guðrúnar
Helgu. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta í dag laugardag í kirkjunni
kl. 11. I l l samvera í safnað-
arheimilinu kl. 13. Stjórnandi Sig-
urður Grétar Sigurðsson. Fjöl-
skylduguðsþjónusta sunnudag kl.
14. Vænst er þátttöku fermingar-
barna og foreldra þeirra. Björn
Jónsson.
Fríkirkjusöfnuðurinn
i Reykjavik
Sunnudagur
19. janúar
Síðasti sunnudagur eftir
þrettánda:
Guðsþjónusta
kl. 20.30 t
r
r
STJÓRN Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar í Reykjavík hefur beðið
Morgunblaðið að birta eftirfarandi
yfirlýsingu vegna greinar Árna H.
Kristjánssonar, sem birt var hér í
blaðinu í gær:
„Vegna greinar Árna H. Krist-
jánssonar, stjórnarmanns í Verka-
mannafélaginu Dagsbrún, í Morgun-
blaðinu í gær, föstudaginn 17. jan-
úar, er nauðsynlegt að eftirfarandi
staðreyndir komi fram.
1. Árni H. Kristjánsson er stjórn-
armaður í Vmf. Dagsbrún fram að
næsta aðalfundi félagsins. Honum
hefur því aldrei verið vísað úr stjórn
félagsins eins og hann segir í grein
sinni. Hann hefur tekið þátt í stjórn-
arfundum og ákvörðunum félagsins
og ber þannig jafna ábyrgð og aðrir
stjórnarmenn á stjórnarstörfum
Dagsbrúnar á yfirstandandi kjör-
tímabiji.
2. ÁHK fullyrðir í grein sinni að
„engar róttækar breytingar hafi orð-
ið á starfsháttum Dagsbrúnar".
Árna H. Kristjánssyni ætti að vera
ljóst að miklar breytingar hafa verið
gerðar á starfsháttum félagsins og
hefur stjórnin verið mótandi í því
starfi. Mikill fjöldi félagsmanna
Dagsbrúnar hefur komið að öllum
störfum félagsins á síðastliðnu ári.
Ekki hefur komið fram óánægja
ÁHK með þær breytingar sem
stjórnin hefur beitt sér fyrir.
3. Það er sérkennileg uppsetning
hjá ÁHK, þegar hann lýsir sjálfum
sér sem „óbreyttum stjórnarmanni"
í Dagsbrún sem megi ekki tala „gegn
vilja forystu félagsins" og vísar þá
til sjónarmiða sinna á ASI-þingi.
Stjórn félagsins, þ.e. allir stjórnar-
menn, er forysta félagsins og þar
skiptast menn ekki í óbreytta stjórn-
armenn og forystu. Árni H. Krist-
jánsson er hluti af þessari forystu.
Það er sjálfgefið í allri verkalýðsbar-
áttu að menn reyni að mynda sam-
hentan forystuhóp og marka sam-
eiginlega stefnu.
4. AHK lýsir því að hann hafi
viljað „leggja höfuðáherslu á grunn-
kaupshækkanir" í komandi samn-
ingum, „vinnustaðasamningar þýði
ekkert annað en veikari samnings-
stöðu“. Hann taldi fráleitt að „samið
yrði til 26 rnánaða". Hér verður að
minna Árna H. Kristjánsson á að
130 manna samninganefnd Dags-
brúnar og Framsóknar samþykkti
stefnumótun félaganna í samninga-
málum einróma. Forgangskrafan í
komandi kjarasamningum er einmitt
hækkun grunnlauna. Barátta núna
við atvinnurekendur stendur um
grunnlaunahækkunina. Stjórn
Dagsbrúnar hefur aldrei talað fyrir
vinnustaðasamningum á forsendum
VSI. Við höfum gert vinnustaða-
samninga áratugum saman á samn-
ingsforsendum okkar og atvinnurek-
enda. Honum á að vera vel kunnugt
um skilyrðin fyrir 26 mánaða samn-
ingi, þ.e. að samningsforsendur verði
ásættanlegar. Varðandi óskir hans
um fleiri félagsfundi verður einnig
að minna hann á að ný löggjöf um
stéttarfélög færir samninganefnd-
inni mikið vald í hendur.
5. Árni H. Kristjánsson vitnar í
símtal við Ágúst Þorláksson, for-
mann uppstillingarnefndar félags-
ins, sem jafnframt er stjórnarmaður
Dagsbrúnar með Árna. Alvarlegar
athugasemdir verður að gera við
lýsingu Árna á því samtali. Stað-
reyndirnar eru þessar. Árna var aldr-
ei vikið úr stjórn félagsins. Rætt var
við hann um stöðu hans innan stjórn-
ar og hvort hann gæfi kost á sér
áfram við uppstillingu til stjórnar
1997. Svar hans var jákvætt og einn-
ig sagði hann að breytingar væru
allar af hinu góða og það væri sárs-
aukalaust af sinni hálfu að hann
færi úr stjórn. Hann gerði engar
athugasemdir í þessu samtali við
breytingar á starfi sínu, þ.e. flokks-
stjórastarfi, og afsögn sem trúnaðar-
maður. Samtalinu lauk á þann hátt
að gert var ráð fyrir að hann yrði
látinn vita um niðurstöðu uppstill-
ingarinnar um kvöldið. Það var ekki
hægt, því vinnu við uppstillinguna
lauk ekki fyrr en morguninn eftir.
Að morgni 9. janúar var uppstilling-
in endanlega ákveðin og reyndi for-
maður uppstillingarnefndar allan
þann dag að hafa samband við hann
sem ekki tókst. Formaður uppstill-
ingarnefndar var aldrei í beinu sam-
bandi við formann félagsins um
málið, en á stjórnarfundi sama dag
fór stjórnin yfir málið og taldi ekki
ástæðu til breytingar á veru Árna í
stjórninni vegna breytinga á störfum
hans. Því var samþykkt að gera til-
lögu um Árna H. Kristjánsson til
stjórnar áfram, en hann afþakkaði
boðið og taldi sig ekki geta starfað
með þessu fólki áfram.
6. Að lokum þetta. Verkamanna-
félagið Dagsbrún þarf á öllu öðru
að halda um þessar mundir en óein-
ingu í sínum röðum. Það á engin
deila að þurfa að standa milli Árna
H. Kristjánssonar og stjórnar Dags-
brúnar, enda er hann hluti af núver-
andi stjórn sem hefur starfað vel
saman á kjörtímabilinu og breytt
miklu til betri vegar í starfsemi fé-
lagsins."
Stjórn Vmf. Dagsbrúnar.