Morgunblaðið - 18.01.1997, Síða 49

Morgunblaðið - 18.01.1997, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 49 Áskorun til ríkis stjórnarinnar MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi: „SAMKVÆMT nýlegum skýrslum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hafa 576 þúsund börn í Irak látist af völdum hins víðtæka alþjóðlega viðskiptabanns sem hef- ur staðið yfir frá því í ágúst 1990. Ennfremur er hætt við að vannær- ing af völdum viðskiptabannsins gæti dregið úr geðþroska heilla kynslóða þar í landi. Slíkt tilræði gegn börnum heils samfélags á ekki sitt fordæmi í nútíma mann- kynssögu. ísland er aðili að þessu viðskiptabanni. Alþjóðasamningar sem íslensk stjórnvöld hafa undirritað og heitið að virða banna þó alfarið og undan- tekningalaust atlögu sem beinist að óbreyttum borgurum. Ein meg- inregla í réttarfari okkar er að ekki má refsa saklausum mönnum. Að beita óbreytta borgara annarra landa kúgun til að etja þeim gegn eigin stjórnvöldum er skilgreint sem alþjóðlegt hi-yðjuverk. Að svelta al- menna borgara sem tilraun til að ná hernaðarlegum ávinningi telst stríðsglæpur. Viðskiptabannið gegn írösku þjóðinni er því ekki lögmæt stjórnmálaathöfn heldur flokkast samkvæmt þjóðarrétti til alþjóða- glæpa. íslensk stjórnvöld styðja með lög- formlegum hætti þetta viðskipta- Langholtssöfn- uður tekur á móti nýjum presti LANGHOLTSSÖFNUÐUR fagnar nýjum presti, sr. Jóni Helga Þórar- inssyni, sunnudaginn 19. janúar, sem er bænadagur á vetri. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson, prófastur í Reykjavíkurprófasts- dæmi vestra, setur sr. Jón Helga inn í embætti við messugjörð kl. 11. Fram yfir guðspjall þjónar prófastur altari en segur þá hinn nýja prest inn í embættið og tekur hann þá við messugjörðinni. Fyrsta embættisverk hans verður að skíra systurdóttur sína og flytur síðan sína fyrstu predikun. í tilefni þessara tímamóta verð- ur margt gert til hátíðarbrigða. Allir kórar kirkjunnar, Kór Lang- holtskirkju, Kammerkór Lang- holtskirkju og Gradualekór Lang- holtskirkju taka þátt í messunni en í þeim eru um 130 manns. Frumflutt verður nýtt verk sem Árni Harðarson tónskáld samdi í tilefni dagsins fyrir blandaðan kór og barnakór við vers úr 32. sálmi Davíðs. Kór- og Kammerkór Lang- holtskirkju flytja Laudate eftir Knut Nysted en það var samið árið 1990 og er textinn Davíðs- sálmur 117. Gradualekór Lang- holtsskirkju flytur Vögguljóð úr Bernska Krists eftir Berlios og all- ir kórarnir flytja síðan tónlist und- ir altarisgöngu. Málmblásarakvintettinn Kor- retto leikur forspil og eftirspil og einnig í sálmum safnaðarsöngs. Eftir messu býður sóknarnefnd öllum kirkjugestum í súpu. Barna- starf er síðan að vanda kl. 13. Samkirkjuleg bænavika hefst á morgun HIN árlega samkirkjulega bæna- vika hefst á morgun, sunnudag 19. janúar, með guðsþjónustu í Dóm- kirkjunni kl. 11. Þar predikar Erl- ingur Níelsson, kafteinn í Hjálpræð- ishernum, og sönghópur frá Hjálp- ræðishernum syngur. Einnig syng- bann og bera því siðferðilega og lagalega ábyrgð á afleiðingum gerða sinna til jafns við ríkisstjórn- ir annarra landa. Um leið og við undirrituð skorum á íslensk stjórnvöld að binda tafar- laust enda á þátttöku íslands í við- skiptabanninu gegn írösku þjóðinni pg setja lög sem banna þátttöku íslands í hóprefsingum af þessu tagi, krefjumst við þess að þeir ís- ienskir ríkisborgarar sem hafa með embættisverkum sínum tryggt þátt- töku íslands í þessu viðskiptabanni verði lögsóttir fyrir alvarleg brot á þjóðréttarlegum skuldbindingum Islands. Með því að bera fram þessar kröf- ur teljum við okkur uppfylla lagaleg- ar og borgaralegar skyldur sem þegnar í lýðræðissamfélagi. Amþór Helgason, forstöðumaður, Carlos Ferrer, sóknarprestur, Einar Ólafsson, rithöfundur, Eiríkur Brynjólfsson, skáld og kennari, Erp- ur Eyvindsson, nemi, Eyjólfur Ey- vindsson, atvinnulaus, Eyvindur Er- lendsson, rithöfundur, Elías Davíðs- son, tónskáld, Gunnvör Rósa Ey- vindardóttir, deildarstjóri, Jón Múli Árnason, þulur, Leifur Þórarinsson, tónskáld, Margrét Guðmundsdóttir, kennari, Sigurður Flosason, strætis- vagnastjóri, Sigurður A. Magnús- son, rithöfundur og Þórunn Magnús- son, sagnfræðingur." ur Dómkórinn og Marteinn H. Frið- riksson dómorganisti er við orgelið. Dómkirkjuprestarnir þjóna fyrir alt- ari. Miðvikudaginn 22. janúar verður samkoma í Kristskirkju í Landakoti kl. 20.30 og þar predikar dr. Jo- hannes Gijsep, biskup kaþólsku kirkjunnar á íslandi. Fimmtudaginn 23. janúar verður samkoma i Herkastalanum og pre- dikar þar Hafliði Kristinsson, for- stöðumaður Fíladelfíusafnaðarins. Sú samkoma hefst einnig kl. 20.30. Föstudaginn 24. janúar kl. 20.30 verður samkoma í Aðventkirkjunni við Ingólfsstræti og predikun flytur þar dr. Hjalti Hugason, prófessor. Bænavikunni lýkur með sam- komu í Fíladelfíukirkjunni laugar- daginn 25. janúar kl. 20.30 og þar predikar sr. Hjalti Guðmundsson. Allir eru velkomnir á samkomur bænavikunnar. Janúarmessa Kvennakirkj- unnar JANÚARMESSA Kvennakirkjunn- ar verður haldin í Hallgrímskirkju sunnudaginn 19. janúar kl. 20.30. Umfjöllunarnefni messunnar verð- ur: Ástin og vinnan. Konur leggja fram mikla vinnu sem ekki er alltaf metin. En hvað vilja konur, er spurt í fréttatilkynningu. Sr. Yrsa Þórðardóttir predikar og fjallað verður um vinnu kvenna á ýmsan hátt. íris Erlingsdóttir syngur einsöng og Kór Kvenna- kirkjunnar leiðir almennan söng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdótt- ir. Kaffi á eftir í safnaðarheimilinu. Hagyrðinga- kvöld KVÖLDVÖKUFÉLAGIÐ Ljóð og saga verður með hagyrðingakvöld í Skaftfellingabúð Laugavegi 178 laugardaginn 18. janúar kl. 21. Margt annað verður til skemmt- unar. Ljóð og saga var stofnað 1961 og hefur starfað óslitið síðan. Marg- ir þekktir hagyrðingar eru meðal félagsmanna. Einnig hefur félagið á að skipa kór, Kvöldvökukórnum. Formaður félaasins er Hrafnhild- ur Kristinsdóttir. Dregið í jóla- leik Pfaff DREGIÐ hefur verið í jólaleik Pfaff sem birtist í aukablaði Morgunblaðsins 1. desember sl. Vinningshafi er Elsa Hrönn Búa- dóttir í Reykjavík og vann hún Candy uppþvottavél. Á myndinni sést Magnús Kristmannsson, þjónustufulltrúi Pfaff, afhenda Elsu vinninginn. ITC Kvistur 20 ára ITC deildin Kvistur var stofnuð 19. janúar 1977 og er fyrsta deildin sem stofnuð var í Reykjavík. Fyrsti forseti deildarinnar var Aðalheiður Maack. Kvistur er því tuttugu ára um þessar mundir og verður hald- ið upp á þessi tímamót með kaff- isamsæti á afmælisdaginn sunnu- daginn 19. janúar í Kornhlöðunni, Lækjarbrekku v/Bankastræti og hefst það kl. 16.00. í fréttatilkynningu segir að ITC séu fjölmennustu alþjóðasamtök sem eingöngu starfi á fræðilegum grundvelli. Markmið þeirra sé að veita einstaklingum tækifæri til að afla sér þjálfunar til forystu og bæta tjáningu sína í orðum. ITC vonast til að með bættum tjáskipt- um takist þeim að efla skilning manna á meðal um víða veröld. í Kvisti eru nú starfandi tuttugu manns og eru fundir haldnir annan og fjórða hvern mánudag í Litlu Brekku, Lækjarbrekku, og eru þeir öllum opnir. Núverandi forseti deildarinnar er Kristín Halldórs- dóttir. Múmínálfar í Norræna húsinu KVIKMYNDASÝNINGAR fyrir börn og unglinga eru í Norræna húsinu alla sunnudaga kl. 14. Sunnudaginn 19. janúar verða sýndar þrjár teiknimyndir um múmínálfana eftir Tove Jansson. Sýningin tekur 64 mín. og er með sænsku tali. Áður en kvikmyndasýningin hefst á sunnudag mun Lisbet Ruth, yfirbókavörður, tilkynna hver vann í samkeppninni um nafnið á her- berginu undir bókasafninu sem var formlega opnað sl. laugardag. BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR fyrirWmOm Einföld lausn á flóknum málum gl KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 Hádegisverðarfundur Evrópusamtaka Áhrif EES á atvinnulíf E VRÓPU S AMTÖKIN gangast næstkomandi þriðjudag, 21. janúar, fyrir hádegisverðarfundi um áhrif EES-samningsins á starfsumhverfi íslensks atvinnulífs. Frummælandi á fundinum er Björn Friðfinnsson, ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í EES- málum, en hann hefur undanfarin þrjú ár setið í framkvæmdastjórn Eftirlitsstofnunar EFTA í Brussel. í fréttatilkynningu frá Evrópu- samtökunum segir: „Björn starfar nú tímabundið að kynningu á EES- samningnum fyrir ríkisstjórnina í leyfi frá störfum sem ráðuneytis- stjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytinu. Björn hefur mikla sérþekk- ingu á EES-samningnum og sér- staklega því, sem lýtur að þeim möguleikum og hömlum sem hon- um fylgja fyrir íslenskt atvinnulíf.“ Fundurinn hefst kl. 12.07 í Korn- hlöðunni við Lækjargötu í Reykja- vík. Fundargjald er 1.200 krónur fyrir félagsmenn í Evrópusamtök- unum og 1.400 kr. fyrir aðra. Há- degisverður er innifalinn í fundar- gjaldi. Reykjavík 1474 útköll slökkviliðs í fyrra ALLS urðu útköll á eldvarnarsvæði Slökkviliðs Reykjavíkur, sem er Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnar- nes og Mosfellsbær, 1.474 á árinu 1996 á móti 1.471 á árinu 1995. Talin til útkalla er öll aðstoð slökkviliðsins þ.el eldsvoðar, efna- lekar, vatnslekar, losun slasaðra úr bíflökum og ýmis önnur aðstoð. Eldsútköll, þar sem um eiginlegan eld var að ræða, urðu 440 á árinu á móti 548 á árinu 1995. Þar af var farið vegna árlegra sinubruna 56 sinnum. Vegna viðvörunarkerfa, þar sem ýmist var um grun um eld að ræða eða bilun, var farið 381 sinnum. Alls urðu sjúkraflutningar á svæðinu 11.857 á móti 11.766 árið áður. Bókafundur Sagnfræðinga- félagsins ÁRLEGUR bókafundur Sagnfræð- ingafélagsins verður haldinn í Sögufélagi í Fischersundi laugar- daginn 18. janúar og hefst kl. 13.30. Rætt verður um bækur sem komu út fyrir jól: Helgi Þorláksson um Konur og kristmenn í útgáfu Ingu Huldar Hákonarsdóttur (Háskóla- forlagið), Sigrún Pálsdóttir um ís- land framandi land eftir Sumarliða ísleifsson (Mál og menning) og íslandsförina eftir Guðmund Andra Thorsson (Mál og menn: ing), Þorleifur Friðriksson um í eldlínu kalda stríðsins eftir Val Ingimundarson (Vaka-Helgafell) og Örn Hrafnkelsson um Hug- myndaheim Magnúsar Stephen- sens eftir Inga Sigurðsson (Bók- menntafélagið). ■ FURÐULEIKHÚSIÐ sýnir í dag kl. 14.30 leikritið Mjallhvít og dvergarnir sjö í Ævintýra- Kringlunni sem staðsett er á 3. hæð í Kringlunni. í þessari nýju leikgerð leikhússins er einfaldleik- inn í fyrirrúmi. Leikarar eru Mar- grét Pálsdóttir og Ólöf Sverris- dóttir og leika þær öll hlutverkin. Gunnar Gunnsteinsson er leik- stjóri og lokalagið samdi Ingólfur Steinsson. ■ ALÞJÓÐLEGI trúarbragða- dagurinn verður haldinn 19. jan- úar nk. í fréttatilkynningu kemur fram að af því tilefni efni Baha’i samfélagið í Reykjavík til um- ræðna um trúmál og býður unn- endum sérhverra trúarbragða til samveru og umræðufundar sunnu- daginn 19. janúar kl. 20.30 að Álfabakka 12, 2. hæð. Þar er öll- um trúfélögum og hópum boðin þátttaka í almennum umræðum. LEIÐRÉTT Rangt farið með nafn í MORGUNBLAÐINU í fyrradag var rangt farið með nafn fram- kvæmdastjóra Iðnnemasambands- ins og hann sagður heita Rafn Jóns- son. Hið rétta er að hann heitir Brjánn Jónsson. Beðist er velvirð- ingar á þessum mistökum. TILBOÐSDAGAR á húsgögnum og Ijósum At\Q/ A,,tað afsláttur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.