Morgunblaðið - 18.01.1997, Side 52

Morgunblaðið - 18.01.1997, Side 52
)2 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ BRIPS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Reykjavíkurmótinu lýkur um helgina SVEITIR Hjólbarðahallarinnar, Júlla, Landsbréfa og VÍB spila í undanúrslitunum í Reykjavíkur- mótinu í sveitakeppni, sem fram fer um helgina. Sveit Landsbréfa vann sveit Eurocard nokkuð örugglega í átta liða úrslitunum. Lokatölur 113-68. Sveit VÍB tapaði fyrstu lotunni gegn Búlka en gerði síðan út um sinn leik í 2. og 3. lotunni og vann leikinn 108-74. Barning- úr var í leik Hjólbarðahallarinnar gegn Roche en hinir fyrrnefndu unnu 118-106. Sveit Samvinnu- ferða/Landsýnar sá aldrei til sólar í sínum leik gegn Júlla en hann stóð yfir til kl. 4 um morguninn. S/L sveitin tapaði þremur fyrstu lotunum og í lokalotunni sátu pörin eins. Eftir nokkrar bollaleggingar var lotan dæmd 0-0 og spilararnir fóru til síns heima en voru skömmu síðar hringdir út á ný en þá hafði ný- sett dómnefnd setzt á rökstóla og dæmt að lokalotan skyldi spil- uð og það strax. Spilað var fram á fjórða tímann en Júlla og hans fhönnum varð ekki haggað. Loka- tölur 118-84. Undanúrslitin hefjast í dag kl. 11 og verða spilaðar fjórar 12 spila lotur. Júlli spilar við Hjól- barðahöllina og risarnir Lands- bréf og Verðbréfamarkaður ís- landsbanka mætast. Úrslitaleikurinn verður svo spilaður á morgun og hefst einnig kl. 11. í þeim leik verða spiluð 64 spil. Þá spila sveitirnar sem lentu í 6.-8. sæti í báðum riðlum í Reykjavíkurmótinu um þrjú sæti í undankeppni íslandsmótsins. Spilamennskan hefst kl. 13 á laugardag og verða þá spilaðar 2 umferðir en þrír leikir verða spil- aðir á sunnudag og verður þá byijað að spila kl. 11. Ahorfendur eru að sjálfsögðu velkomnir í Bridshöllina um helg- ina. Báðir leikirnir í undankeppn- inni verða eflaust mjög spenn- andi. Umsjónarmaður er ekki vanur að geta sér til um hver verður sterkastur þegar upp verð- ur staðið en svona til að kynda svolítið undir í veðbönkunum spá- ir hann að VÍB og Júlli spili til úrslita. Bridsfélagið Muninn Sandgerði Ágæt þátttaka er í þriggja kvölda hraðsveitakeppni, sem hófst sl. fimmtudag eða 8 sveit- ir. Sveit Guðfinns KE byijaði best og skoraði 570 stig en með- alskor er 504. Sveit Kjartans Ólasonar er með 561 stig, Gunn- ar Siguijónsson hefir 557 stig og Kristján Kristjánsson hefir 547 stig. Keppninni verður fram haldið nk. fimmtudag og er hægt að bæta við sveit eða sveitum ef einhveijir hafa setið eftir í start- holunum. Spilamennskan hefst kl. 19.45. Keppnisstjóri er ísleifur Gíslason. Innilegar þakkir til allra, sem glöddu mig með ’ heimsóknum, gjöfum og heillaóskum á 90 ára afmœli mínu 27. desember sl. Guðbrandur Vigfússon, Bústaðavegi 105. Sigrún Guðbrandsdóttir frá Áshóli sendir öllum þeim, er heimsóttu hana á Hótel Örk 1. janúar 1997 vegna áttrœðisafmœlis hennar, svo og öllum þeim, er sendu henni skeyti, gjafir og blóm, bestu þakkir og óskar þeim alls góðs á komandi árum. o Kútmagar tilb. í pottinn w Hrogn og lifur^glæný bleikja og laxá góðu verði Fiskbúðin okkar býður allar helgar upp á ÚRVAL AF NÝJUM FISKI s.s. glænýja bleikju og Iax, ýsuflök og heila ýsu, rauðsprettu, hvalkjöt, skötusel, háf, gellur og kinnar á góðu verði. Ekki ma heldur gleyma vinsælu fiskirettunum, fiskibollunum og sósurettunum. Lattu sja pig!!.. um ncestci h«lgi Verð á sölubás f>;rir kompudót er þááaðeins kr. 1950,- á dag KOLAPORTIÐ MARKAÐSTORG Inniskór frá 490 cmácVÓr 'bláu húsi kuldaskór frá 1990 v/Fákafen I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is Enn um aldamót VARÐANDI bréf Pálínu Magnúsdóttur af Pálsætt um aldamót sem birtist í dálki þínum 16. janúar sl. langar mig að reyna að leiðrétta þann misskilning sem berlega kemur fram í bréfi hennar. Tímatali okkar er þann- ig háttað að talað er um ár fyrir Krist og ár eftir Krist og er miðað við at- burðinn fæðingu Krists. Samkvæmt þessu er talað um árið 1 fyrir Krist og árið 1 eftir Krist, þ.e.a.s fyrsta árið fyrir Kristsburð og fyrsta árið eftir Krists- burð. Einbeitum okkur að árunum eftir Krist. Fyrsta árið eftir burð Krists er árið 1, ekki árið 0, því við erum að tala um hið fyrsta ár eftir fæðingu Krists. Þegar eitt ár er liðið frá fæðingu Krists, þ.e.a.s. þegar Kristur á eins árs afmæli (svo við höldum okkur við þær útskýringar sem Pálína notar í bréfi sínu) þá hefst árið 2 eftir Krist. Af þessu sést að Kristur er eins árs gamall allt árið 2 eftir Krist og verður ekki tveggja ára fyrr en á miðnætti þegar árið 3 gengur í garð. Ef við höldum svona áfram og teljum árin þar til Krist- ur verður 2000 ára gamall þá sést af framangreindu að það verður ekki fyrr en á miðnætti þegar árið 2001 gengur í garð. Eins og glöggir gera sér grein fyrir af framansögðu eru ekki liðin full 2000 ár fyrr en á miðnætti þegar árið 2001 gengur í garð. Hver öld er 100 ár (ég vona að við séum sammála um það) og því eru ekki liðnar 20 aldir fyrr en liðin eru 20 sinnum 100 ár eða 2000 ár eru að fullu liðin og 21. öldin hefst því ekki fyrr en hinu síðasta hinnar 20. lýkur á miðnætti árið 2000 og árið 2001 hefst, þ.e.a.s. hið fyrsta ár nýrrar aldar, hinnar 21. og 2000 ár eru liðin frá fæðingu Krists (Kristur heldur upp á tvö þúsund ára afmælið á mið- nætti þegar árið 2001 eftir Kristsburð gengur í garð, sbr. framar fyrir þá sem hafa týnt þræðinum). Við sem kunnum að telja (og reikna) og vitum að við byijum að telja á einum en ekki núll sættum okkur því fullkomiega við að vera á 20. öldinni þangað til. Ég get hins vegar alveg skemmt mér konunglega og skálað við Pálínu á mið- nætti þegar árið 2000 gengur í garð einfaldlega af því að ártalið er svo fallegt þótt ég muni neita að skála fyrir 21. öldinni fyrr en ári síðar. Með bestu kveðjum, Hildur Svavarsdóttir. Yina leitað GEORGE Daniels skrifar blaðinu og biður um aðstoð við að leita uppi vini sína sem bjuggu í Winnipeg í Kanada á tímabilinu 1975-1985 en fluttu síðan til íslands. Nöfn þeirra eru Debbie Wickes og Ómar Jónsson. Hann biður Debbie eða Ómar um að hafa samband við sig, ann- að hvort að senda sér fax á númer (204)254-1651 eða hringja í síma (204)256-1651. Meira um leikfimi MIG langar til að taka undir með konunni sem á við offítuvandamál að stríða, það sama er að hjá mér, ég er 35 kg of þung og ég treysti mér ekki heldur á þessa staði sem eru aðallega með fólk sem er 10-15 kg of þungt, ég myndi gjaman vilja að ein- hver léti heyra í sér sem býður upp á leikfimi fyrir þetta fólk. Kona. Tapað/fundið Úr tapaðist KARLMANNSÚR, silfur- litað, tapaðist í leið 4 eða leið 140 miðvikudaginn 15. janúar um kvöldmatarleyt- ið. Skilvís finnandi vinsam- legast hringi í síma 568-8940, milli kl. 3-4. Tapaðir vettlingar ÚTPRJÓNAÐIR, drapplit- ir vettlingar töpuðust milli jóla og nýárs. Skilvís finnandi vinsamlegast hringið í síma 553-0823. Dýrahald Kettlingar TVEIR yndislegir kettling- ar óska eftir góðu framtíð- arheimili. Upplýsingar í síma 568-7234. SKAK Umsjón Margeir Pctursson SVARTUR leikur og vinnur. KROSSLEPPUN er stef sem getur verið stórglæsi- legt. Á þessari stöðumynd horfum við á hvíta kónginn á hl, drottingu hans á c2, og svarta biskupinn á b7. Línur þessara þriggja manna skerast í e4 reitnum. Þetta gefur færi á afar fal- legri fléttu: Staðan kom upp á rúss- neska meistara- mótinu í Elista í Kalmykíu í haust. H. Tsjébekov (2.240) var með hvítt, en stór- meistarinn Viktor Varavin (2.520) hafði svart og átti leik. 31. - Rxe4!! 32. Hxe4 — Hxe4! 33. Bxe4 — Dg6! (Stórkostleg kros- sleppun) 34. Rd2 - He8 35. Hel - Dxg3 36. He2 - He6 (Nú ræður máthótun á h6 úrslitum) 37. Hg2 - Del+ og hvítur gafst upp. Keppni í unglinga- flokki á Skákþingi Reykjavíkur hefst í dag kl. 14 í félagsheimili TR, Faxa- feni 12. COSPER SEGÐU sjálf þegar þú er búin, amma. Víkveiji skrifar... VÍKVERJA hefur borizt bréf frá Jóni A. Arasyni, sem er ósátt- ur við skoðanir Víkverja á því hve- nær ný öld hefst. Víkveiji færði rök að því hér í dálkinum fyrir viku að aldamót væru um áramótin 2000- 2001, en ekki 1999-2000, eins og sumir virðast halda. Jón skrifar m.a.: „í Ríkissjón- varpinu byrjaði nýiega þáttur sem nefnist „Öldin okkar.“ Þar kemur fram, að aðstandenda mati, að umræddri öld, 1900-1999, sé senn að ljúka. Og svo ég vitni í orðabók líka, þá stendur í Oxford Diction- ary undir „Century: A period of 100 years, i.e. AD 1900-1999.“ Ég veit nú að Bretar eru skrítnir en þó ekki heimskir. Til þess að einfalda allt þetta skulum við hverfa aðeins aftur í tímann. Ef við gefum okkur að Kristur hafi fæðst/dáið árið 0, og að árið 0-1 hafi verið fyrstu 365 'A dagar fyrstu aldar eftir Krists burð, þá held ég að til sanns vegar megi færa að árið 1999-2000 verði hundraðasta, og síðasta ár tuttug- ustu aldar. Eða er ég úti að aka ásamt öllum íbúum Bretlands- eyja?“ xxx ÍKVERJI lætur lesendum eftir að meta hvort Jón sé úti að aka (ekki veit hann hvort allir íbúar Bretlandseyja eru sömu skoðunar og hann). Hins vegar hefur Vík- veiji til þessa talið að fyrsta ár tíma- talsins hljóti að hafa verið árið 1, en ekki 0. (Yfirleitt byija menn að telja á einum, eða hvað?) Fyrstu áramótin í tímatali kristinna manna hafi því verið áramótin 1-2. Sam- kvæmt þessu er árið 2000 tvöþús- undasta ár tímatalsins — síðasta ár annars árþúsundsins og tuttug- ustu aldarinnar — og árið 2001 fyrsta ár nýrrar aldar og nýs árþús- unds. Hinn 1. janúar árið 2001 eru með öðrum orðum liðin full 2000 ár af tímatalinu. Víkveija finnst þetta satt að segja ekkert vafamál, burtséð frá því hvað orðabækur segja, en hann hefði þó gaman af að sjá fleiri óvenjulegar og frumleg- ar röksemdafærslur að því að svo sé ekki. VÍKVERJI fór að sjá kvik- myndina Hamsun í Háskóla- bíói fyrir skömmu og hafði gaman af. Max von Sydow og Ghita Norby fóru svo sannarlega á kost- um í hlutverkum Hamsun-hjón- anna. Víkveiji var hins vegar, einu sinni sem oftar, óánægður með þýðingu kv-ikmyndarinnar á ís- lenzku. Oft voru heilu og hálfu samtölin látin óþýdd af einhverj- um orsökum, en siíkt er algengt í kvikmyndaþýðingum. Ekki skildi Víkverji þó af hverju þetta gerð- ist; honum heyrðist þessi samtöl ekki vera torskildari en önnur í myndinni. Öllu verri þótti Víkverja þó þýðingin í upphafi myndarinn- ar. Þar er farið með fyrstu línurn- ar úr skáldsögu Hamsuns, Að haustnóttum. Það hefði ekki kost- að þýðandann mikla fyrirhöfn að finna hina prýðilegu íslenzku þýð- ingu Jóns Sigurðssonar frá Kald- aðarnesi á bókinni og notast við hana. Þess í stað gerir hann sjálf- ur atlögu að texta Hamsuns og satt að segja verður úr óttalegt hnoð og flatneskja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.